Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Page 8
FÖSTl!l)A<;im 28. ,11'JNÍ 1991.
Lífestm
PAPRIKA
+4%
I
■o
QQ
I
599 272
SVEPPIR
+6%
I
o
CQ
I
699 356
DV kannargrænmetismarkaðinn:
Gúrkur hafa stór-
lækkað í verði
- töluverð lækkun á tómötum
Könnun OY a gr;vnmptisvoröi tbr
fram i gær. fimmtuciag. Holst var aö
morkja aö gurkur hötbu lækkað mjög
i vorði og or þaö rakiö til ’aukins
framboös vörunnar á markaði. Töm-
atar hat’a einnig lækkaö nokkuð og
oru astæði|r af sama toga. Meöalverö
annarra grænmotistogunda or svip-
að fra þvi t síðustu viku. Könnunin
naði til eftirfarandi verslana á höfuð-
borgarsvæðinu: Fjarðarkaups í
Hafnarfirði. Bönuss við Faxafen.
Hagkaups t Skeifunni. Kjötstöðvar-
innar t Glæsibæ og Miklagarös við
Sund.
í öllum verslununum er varan seld
eftir vigt en Bónus selur flestar
grænmetistegundir í stykkjatali.
Samanburður fæst með því að um-
reikna meðalþyngd yfir í kílóverð.
Verð á tómötum hefur lækkað um
60"o að meðaltali rnilli vikna. Lægsta
verð var að fmna hjá Bónusi en þar
reiknaðist kílóveröið 110 krónur.
Hæsta verð var að finna í Miklagarði
en þar var kílóiö á 189 krónur. Hinar
þrjár verslanirnar seldu kílóið á 169
krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði var 72V
Gúrkuverð hafði lækkað mjög mik-
ið og nam lækkunin rúmlega 180%
ntilli vikna. Munur á nteðalverði var
einnig töluverður. eða um 168%.
Lægsta verð var Bónus með. var kíló-
verðið 37 krónur. Hæsta verð var 99
krónur hjá Miklagarði. Hagkaup
seldi gúrkurnar á 59 krónur. Fjarðar-
kaup á 62 krónur og Kjötstöðin á 79
krónur.
Þaö misritaðist í síðustu viku að
kílóverð á gúrkum hjá Kjötstöðinni
væri 398 krónur. Hið rétta var að
kílóið seldist á 197 krónur. Ástæðan
var sú að blaðamaður fór línuvillt
og er beðist afsökunar á þessum mis-
tökum.
Sveppaverð var ekki ólíkt því sem
það var í síðustu viku en hafði þó
hækkað um 6%. Bónus var með
lægsta verð á sveppum, eða 356 krón-
ur kílóið. Hæsta verð var að finna
hjá Kjötstöðinni en þar var verðið
699 krónur. Hagkaup seldi sína á 544
krónur kílóið en Fjarðarkaup og
Mikligarður voru með sama verð,
eða 545 krónur á hvert kíló.
Töluveröur verðmismunur er á
bláu vínberjunum og reyndist í þetta
sinn vera 132%. Bónus reyndist vera
með lægsta verðið en þar fékkst kíló-
Gúrkur hafa storlækkad i verði frá þvi i síðustu viku. í verslunum er mikið
af prýðisgóðum tómötum sem einnig hafa lækkað töluvert.
ið á 198 krónur. Hæsta verð var að
þessu sinni að finna hjá Kjötstöð-
inni. 459 krónur kílóið. Fjarðarkaup
seldi kílóið á 329 krónur, Hagkaup á
349 krónur og Mikligarður á 389
krónur.
Meðalverð á paprikum var svipað
milli vikna. Munur á hæsta og lægsta
verði var þó töluverður. Paprikan
græna var ódýrust hjá Bónusi og
reyndist kílóverðið vera 272 krónur.
Kjötstöðin var með hæsta verð og
seldi kílóið á 599 krónur. 413 kostaði
kílóið hjá Miklagarði, 544 hjá Fjarð-
arkaupi og 545 hjá Hagkaupi.
Kartöfluverð var einnig álíka milli
vikna. Lægsta verð var að finna í
Bónusi og kostaði kílóið þar 58 krón-
ur. Hæsta verð var 89,50 krónur í
Miklagarði. Hagkaup seldi kílóiö á
75 krónur, Fjarðarkaup á 75,50 krón-
ur og Kjötstöðin á 89 krónur.
Lægsta verð á blómkáli var aö
finna í verslun Hagkaups og reyndist
vera 197 krónur. Hæst var verðið, 247
krónur, hjá Kjötstöðinni. Meðalverð
reyndist vera 225,50 krónur og 14%
verðhækkun hafði orðið á því milli
vikna. Fjarðarkaup seldi blómkálið á
221 krónu og Mikligarður á 237 krón-
ur. Bónus var ekki með blómkál á
boðstólum.
Verð á hvítkáli var lægst í Bónusi
og reiknaðist kílóverðið 90,50 krónur.
Næst á eftir kom Fjarðarkaup með
125 krónur, Hagkaup með 179 krón-
ur, Mikligarður með 189 krónur og
hæst var verðið hjá Kjötstöðinni og
reyndist það 252 krónur. Milli vikna
var meðalverð svipað.
Verð gulrótna var nokkuð erfitt að
meta því þær virtust misjafnar að
gæðum. Neytandinn þarf aö hafa það
í huga. Veröið var enn lægst hjá Bón-
usi, 101 króna. Hæsta verð var að
finna hjá Kjötstöðinni en þar kostuðu
þær 245 krónur, 174 krónur hjá
Fjarðarkaupi, 179 krónur hjá Hag-
kaupi og 223 krónur í Miklagarði.
Hjá Fjarðarkaupi fengust einnig ís-
lenskar gulrætur og voru þær á mun
hærra verði, eða 392 krónur kílóið.
Virtust þær hins vegar mun vinsælli
þrátt fyrir verð þar sem neytendum
þykja þær greinilega betri. -tlt
Sértilboð og afsláttur:
Grísahnakki, villt-
xir lax og konfekt
Kjötstöðin var að þessu sinni með
nýjan, villtan lax á lækkuöu verði.
Grísahnakki fæst á 790 krónur kílóiö
en einnig er að finna hjá versluninni
Lucerne kakómalt á 298 krónur (907
grömm). Að auki var aö finna Blutex
þvottaefni. Eru 2,4 kíló seld á 299
krónur. Fyrir þá sem ekki hafa tök
á því að versla á virkum degi má
nefna að verslunin er opin á sunnu-
dögum frá 11 til 16.
Fjarðarkaup er að vanda með Til-
boðstorgið á sínum stað. Var þar að
finna plastfilmu á 43 krónur (30 metr-
ar). Barilla pasta er á tilboðsverði en
einnig vörur frá Uncle Ben’s. Má þar
á meðal nefna hrísgrjón í poka ásamt
krukku af súrsætri sósu á 298 krón-
ur. Bamableiur frá Aplus (26 stykki,
9-18 kg) kostuðu 380 krónur. 800
gramma konfektkassi kostaði 490
krónur.
MikUgarður var með tfiboðsverð á
195 minútna videospólum og kostaði
hver þeirra 399 krónur. 4-6 manna
Verslanir bjóða allt mögulegt á til-
boðsverði og ekki úr vegi fyrir neyt-
andann að fylgjast vel með hvað í
boði er hverju sinni.
fonduesett er hægt að kaupa í versl-
uninni á 4.995 krónur. 8 manna mat-
ar- og kaffistell er hægt að fá á 3.995
krónur. Verslun Miklagarðs í
Garðabæ er opin til klukkan 18 á
sunnudögum sem er prýðilegt fyrir
þá neytendur sem ekki komast í
verslun á öðrum tíma.
í Hagkaupi var hægt að fá Wella
hársnyrtivörur á tjlboðsverði.
Sjampó og næring kostar 298. Sun-
quick ávaxtaþykkni er á tilboðsveröi
og kostar 298 krónur. RC-Cola er
boðið á 109 krónur (1,5 lítrar). Tvær
plötur af Milka súkkulaði var hægt
að fá á 159 krónur.
Bónus er með ýmislegt á hagstæðu
verði og veröur hér nefnt nokkuð af
því. 1 lítri uppkveikilögur kostar 95
krónur. 1 kíló af sykri kostar 46 krón-
ur og Prince kex (3 saman í pakka
með peningaveski) kostar 217 krón-
ur. Burton’s lakkrískonfekt (454
grömm) er fáanlegt á 129 krónur.
-tlt
%
Vínber
4001 Veröíkrónum
345
300
Nóv. Oes. Jan Feb. Mars Apríl Mai Júní
#
Tómatar
Verð í krónum
Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Aprll Mai Júní