Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Síða 24
32
FÖSTUDAGUR áÖ.'JÚNÍ 1991.
Fréttir
Vigfús Andrésson, Austur-Eyjafjallahreppi:
Fullnaðarsigur gagnvart
valdníðslu hreppsins
segir hann 1 kjölfar álitsgerðar umboðsmanns Alþingis
„Umboðsmaður Alþingis hefur
staðfest að kvörtun mín vegna valdn-
íðslu hreppsnefndarinnar var rétt-
mæt. Ég hef því unnið fullnaðarsig-
ur. Annaðhvort stendur meirihluti
hreppsnefndarinnar nú við það lof-
orð að endurgreiða mér ólöglega inn-
heimt fasteignagjöld og aðstöðugjald
eða ég fer í mál við hreppsnefndina.
Sannast sagna er ég hins vegar þeirr-
ar skoðunar að alhr hreppsnefndar-
fulltrúamir ættu að segja af sér
vegna þeirrar valdníðslu sem þeir
hafa beitt,“ segir Vigfús Andrésson
sem býr að Berjanesi, Austur-Eyja-
fjallahreppi.
Gaukur Jörundsson, umboðsmað-
ur Alþingis, hefur sent hreppsnefnd
Austur-Eyjafjallahrepps bréf þar
sem hann tekur fram að sveitarfélag-
inu hafi verið óheimilt að innheimta
fasteignagjöld og aðstöðugjöld af ein-
um íbúa hreppsins, Vigfúsi Andrés-
syni, með því að láta draga þau frá
launum hans án hans samþykkis.
Gaukur vill þó ekki staðhæfa að um
ólögmæta innheimtu hafi verið að
ræða þar sem gögn frá hreppsnefnd-
inni bentu til að samþykki Vigfúsar
heíði legið fyrir. Þá tekur Gaukur
sérstaklega fram í bréfinu að gera
verði þær kröfur til stjórnvalda að
hafa jafnan tiltækar upplýsingar um
greiðslu- og skuldastöðu einstakra
gjaldenda - annað sé ekki í samræmi
við vandaða stjórnsýslu. Hann telur
að á þetta hafi skort í tilfelli Vigfúsar.
Tildrög þessa máls eru þau að í
nóvember 1989 barst umboðsmanni
Alþingis bréf frá Vigfúsi þar sem
hann kvartaði undan viðskiptum
sínum við oddvita hreppsnefndar-
innar. Annars vegar taldi Vigfús að
of hart væri að sér gengið við inn-
heimtu á gjaldföllnum skuldum en
einnig taldi hann á sér brotið þar sem
hann hefði ekki getað fengið upp-
gefna greiðslu- og skuldastöðu sína.
Síðan þá hefur umboðsmaður haft
þetta mál til meðferðar og meðal
annars leitað aðstoðar félagsmála-
ráðuneytisins.
Að sögn Vigfúsar er hann nokkuð
sáttur við niðurstöðu umboðsmanns
Alþingis. Um hafi verið að ræða ólög-
lega innheimtu upp á á þriðja hundr-
að þúsund krónur, enda hafi hann
aldrei heimilað að umrædd gjöld
yrðu dregin af launum hans.
„Oddvitinn fór hins vegar með
rangt mál fyrir umboösmanni þann-
ig að afstaðs hans varð ekki eins af-
dráttarlaus og ella. Málið er að ég
gerði aldrei neitt samkomulag um
að skuldir mínar við sveitarsjóð yrðu
dregnar af laununum mínum. Ég
vissi sem var að þessi gjöld yrðu felld
niður þar sem þau voru tilkomin
vegna áætlunar. Slíkt samþykki af
minni hálfu hefur því aldrei út úr
mínum kjafti farið, hvað þá á papp-
ír.“
Guðrún Inga Sveinsdóttir oddviti
vildi sem minnst um þetta mál segja
opinberlega þar sem henni hafði ekki
enn borist áhtsgerð umboðsmanns
Alþingis. Aðspurð hvort hreppurinn
hefði innheimt umrædd gjöld af
launum Vigfúsar án samþykkis hans
kvaðst hún ekki vita til þess að um
það heföi staðið ágreiningur. „Ég ht
á það sem núll og nix sem Vigfús
segir og meira hef ég ekki um máhð
að segja að sinni,“ sagði hún.
-kaa
Það er ekki amalegt að vinna útivið í góða veðrinu sem verið hefur i höfuð-
borginni að undanförnu. Þessar stúlkur undu sér vel þar sem þær voru
að laga til á Arnarhóli. Og það er kannski ekki siður að þeir sem eldri eru
uni sér vel á sama stað, horfandi á æsku landsins taka til hendinni.
DV-mynd Brynjar Gauti
Sigurður Líndal prófessor:
Engar endanlegar niðurstöður
„Það er rétt að ég hef unnið að því
að skoða reglur um búvörufram-
leiðslu. Ég hef unnið að þessu verki
í vetur en ekki í tvö ár. Engar endan-
legar niðurstöður liggja fyrir enn-
þá,“ sagði Sigurður Líndal prófessor
við DV. í blaðinu í gær var sagt frá
lagaáhti sem Sigurður hefur unnið
fyrir hóp bænda.
„Ummæli um að lögin um stjóm
búvöruframleiðslu frá 1985 standist
ekki 2. og 67. grein stjórnarskrárinn-
ar eru alveg ótímabær. Ég er ekki
kominn að neinni endanlegri niður-
stöðu um það.
Síðan segir: „í lagaálitinu kemur
fram sú skoðun Sigurðar að úthlutun
fullvirðisréttar um miðjan síðasta
áratug hafi í senn verið ranglát og
handahófskennd. Þau sjónarmið hafi
ekki verið í heiðri höfð sem ganga
skal út frá þegar hróflað er við eign-
arréttindum fólks.“
Ég fer ekkert út í framkvæmdina.
Ég segi hvorki að hún hafi verið
ranglát né handahófskennd. Ég ætla
mér ekkert að fara út í það atriði því
það er sérstakt athugunarefni.
í stuttu máli, það er engin endanleg
niðurstaða í þessum skrifum mínum
enn sem komið er. Allar yfirlýsingar
um stjórnarskrárbrot og annað em
gjörsamlega ótímabærar." -JSS
Slysavamafélag íslands:
Fær fyrstu gervitunglabaujuna
í dag mun Slysavamafélag íslands
taka á móti fyrstu gervitunglabauj-
unni sem sett verður í íslenskt skip.
Það er Radíómiðun hf. sem afhendir
baujuna.
Gervitunglabauja, öðru nafni
neyðarradíóbauja, er þannig úr garði
gerð að hún losnar sjálfkrafa frá
sökkvandi skipi. Hefur hún þegar
neyðarsendingar sem gervihnettir
taka á móti. Þeir staðsetja baujuna
og senda staöarákvörðun til sér-
stakra móttökustööva.
Alþingi samþykkti þann 8. febrúar
síðastiðinn reglugerð þar sem neyð-
arsendibaujur af gerðinni EPIRB
voru samþykktar. í framhaldi af því
hafa nokkrar gerðir af baujum verið
samþykktar og er Jotron-baujan ein
þeirra. það er Radíómiðun hf. sem
er umboðsaðih fyrir þá gerð.
Umræddar baujur hafa nú sannað
gildi sitt erlendis. Þær hafa stytt
björgunartíma verulega og gefið ná-
kvæmari upplýsingar um staðsetn-
ingu þess sem er í sjávarháska. Þessi
búnaður er skyldaöur um borö í
skipum margra þjóöa, svo sem í Nor-
egi, Bretlandi og Bandaríkjunum.
-JSS
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum og skipi
fer fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Lynghagi 10,1. hæð, þingl. eig. Guð-
mundur Ingimundarson, mánud. 1.
júh 1991 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi
er Fjárheimtan hf.
Mb. Andey BA-125, skn. 1170, þingl.
eig. Háanes hf., útgerð, mánud. 1. júlí
1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er
Hróbjartur Jónatanisson hrl.
Reynimelur 84,3. hæð f.m., þingl. eig.
Walter Antonsson, mánud. 1. júlí 1991
kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Veð-
deild Landsbanka íslands.
Stapasel 10, þingl. eig. Ásta Björt
Thoroddsen, mánud. 1. júlí 1991 kl.
10.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Stuðlasel 15, þingl. eig. Ólafur Auð-
unsson, mánud. 1. júlí 1991 kl. 10.30.
Uppboðsbeiðandi er Landsbanki ís-
lands.
Valshólar 6, 1. hæð t.v., þingl. eig.
Einar Sigurþórsson og Edda Runólfs-
dóttir, mánud. 1. júh 1991 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Lands-
banka íslands.
Vesturvallagata 7, hluti, þingl. eig.
Haraldur Einarsson, mánud. 1. júlí
1991 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru
íslandsbanki hf. og Eggert B. Ólafsson
hdl___________________________
BORGARFÓGETAEMBÆTH) í REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum
fer fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Bárugata 29, kjallari, þingl. eig. Sig-
urður Grímsson, mánud. 1. júh 1991
kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Bárugata 29, 1. hæð, kj. og 'A bflsk.,
þingl. eig. Sigurður Grímss. og Hólm-
fríður Sigurðard., mánud. 1. júlí 1991
kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru Is-
landsbanki, Tryggingastofhun ríkis-
ins og Róbert Ami Hreiðarsson hdl.
Beykihbð 25, þingl. eig. Jóna Sigr.
Þorleifsdóttir, mánud. 1. júh 1991 kl.
11.45. Uppboðsbeiðendur eru Ólafur
Gústafsson hrl. og Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Dalsel 10,3. hæð t.h., þingl. eig. Krist-
ín Björg Hákonardóttir, mánud. 1.
júh 1991 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur
eru Gjaldheimtan í Reykjavík og
Magnús Norðdahl hdl.
Gaukshólar 2, 7. og 8. hæð G, þingl.
eig. Bryndís Jónsdóttir, mánud. 1. júlí
1991 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er
Sveinn H. Valdimarsson hrl.
Grettisgata 38B, þingl. eig. Sigríður
Jónsdóttir, mánud. 1. júh 1991 kl.
13.45. Uppboðsbeiðandi er Trygginga-
stofiiun nkisins.
Háaleitisbraut 30, 04-01, þingl. eig.
Birgir Hermannsson, mánud. 1. júlí
1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru
Ólafur Axefeson hrl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Kringlan 61, -hluti, tal. eig. Ásbjöm
Ketih Ólafeson, mánud. 1. júh 1991
kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Lands-
banki íslands.
Torfufell 33, hluti, þihgl. eig. Jóhann
Ingi Reimarsson, mánud. 1. júlí 1991
kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild
Landsbanka íslands og Skúh J.
Pálmason hrl.
Torfufell 46,1. hæð, þingl. eig. Krist-
leifur Kolbeinsson, mánud. 1. júlí 1991
kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em
Tryggingastofiiun ríkisins, Sigríður
Thorlacius hdl. og Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Vesturberg 6,1. hæð t.v. B, þingl. eig.
Einar Þórðarson og Helga Sigurðar-
dóttir, mánud. 1. júh 1991 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur em Tolfetjórinn í
Reykjavík og Sigurmar Albertsson
hrl.
Þangbakki 8, íb. 07-08, þingl. eig.
Bjöm Steinar Hauksson, mánud. 1.
júlí 1991 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi
er Veðdeild Landsbanka íslands.
borgarfógetaembæ™ í REYKJAVÍK
Nauðungamppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Gljúfrasel 8, þingl. eig. Guðmundur
Franklín Jónsson, fer fram á eigninni
sjálfri mánud. 1. júh 1991 kl. 17.00.
Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan
í Reykjavík og íslandsbanki hf.
Hólaberg 20, þingl. eig. Rafh Gests-
son, fer fram á eigninni sjálfri mánud.
1. júlí 1991 kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi
er Veðdeild Landsbanka Islands.
Frostafold 79, hluti, tal. eig. Gyða B.
Svansdóttir, fer fram á eigninni sjálfri
mánud. 1. júlí 1991 kl. 15.30. Uppboðs-
beiðendur em Tollstjórinn í Reykja-
vík, Veðdeild Landsbanka íslands,
Gjaldheimtan í Reykjavík, Hafeteinn
Hafeteinsson hrl., Lögmenn Hamra-
borg 12, Jón Þóroddsson hdl. og Veð-
deild Landsbanka íslands.
BORGARFÓGETAEMBÆTTH) í REYKJAVÍK