Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Síða 25
KÖSTUDAdUlt 28. JÚNÍ 1991.
33
Afmæli
Björgvin Heiðarr Ámason
Björgvin Heiöarr Árnason vél-
virkjameistari, Tungutúni, H vann-
eyri, varð llmmtugur í gær.
Starfsferill
Björgvin er fæddur á Hrærekslæk
í Hróarstungu í N-Múlasýslu en bjó
í Heiðarseli til 6 ára aldurs er hann
fluttist til Hveragerðis. Hann var
búsettur í Keflavík 1975-87.
Björgvin tók landspróf frá Barna-
og miöskóla Hveragerðis 1957. Hann
lærði vélvirkjun í vélsmiðju KÁ á
Selfossi 1959-63 og tók sveinspróf
1964. Björgvin var í Vélskólanum
veturinn 1964-65, vann á verkstæði
ísarn 1966-67, í Búrfellsvirkjun
1968-69 og hjá Hitaveitu Hveragerð-
is 1969-74. Hann var aöstoðarverk-
stjóri hjá Vélsmiöju KÁ 1974-75 og
starfaði hjá íslenskum aðalverktök-
um á Keflavíkurflugvelli 1975-87 en
hefur unnið á vélaverkstæði
Bændaskólans á Hvanneyri frá 1987.
Björgvin fékk meistararéttindi í
vélvirkjun 1977. Hann var í Slökkvil-
iöi Hveragerðis frá 1958-1975. Björg-
vin var í stjórn Iönsveinafélags Suö-
umesja 1978-87 og ritari þess 1978-83.
Hann var enn fremur formaöur
málmiönaðardeildar og varaformað-
ur ISFS1983-87. Björgvin var fulltrúi
vélvirkjasveina í Iðnráði Suðurnesja
1984-87 og sat í miöstjórn MSÍ
1983-87.
Fjölskylda
Björgvin kvæntist 3.2.1968 Steinn-
unni Birnu Magnúsdóttur, f.
22.1.1947, húsmóður og verkakonu.
Kjörforeldrar hennar: Magnús Sig-
urbergsson, f. 2.6.1902, d. 17.6.1975,
og Hjördís Guðmundsdóttir, f. 5.6.
1907, vistkonaá Hrafnistu í Hafnar-
firði.
Björgvin og Steinunn eiga fimm
börn. Hjördís, f. 11.12.1967,_þroska-
þjálfanemi, í sambúð með Asgrími
Ágústssyni, f. 24.11.1967, leigubíl-
stjóra; Anna, f. 7.4.1970, búfræðing-
ur, gift Guöna Hörödal Jónassyni,
f. 23.3.1967, búfræðingi; Magnús
Heiöarr, f. 20.4.1972, búfræöingur;
Sigurðar Heiðarr, f. 9.10.1979; Björg-
vin Heiðarr, f. 7.4.1983.
Björgvin á eina uppeldissystur,
Guðbjörgu Jónu Sigurðardóttur, f.
25.9.1943, sem gift er Valdimar
Ingvasyni.f. 3.8.1944, ogeigaþau
þrjú börn, Sigurð Heiðar, f. 17.9.
1965, d. 9.2.1991; Soffíu, f. 18.4.1968,
í sambúð með Ingþóri Óla Thorla-
cius, f. 23.12.1966, ogeigaþau einn
son, Valdimar, f. 15.8.1988; Önnu
Erlu.f. 13.12.1973.
FósturforeldrarBjörgvins: Sig-
urðurÁrnason, f. 26.6.1903, d. 18.1.
1989, og Anna Guðjónsdóttir, f. 13.3.
1907, en þau bjuggu í Heiðarseli til
1947 er þau fluttust til Hveragerðis
þar sem þau gerðust garðyrkju-
bændur. Móðir Björgvins er Svava
Jónsdóttir, f. 13.6.1915, frá Hræreks-
læk, nú vistkona á Dvalarheimili
aldraðra á Egilsstöðum.
Afmælisveislunni er frestaö um
Björgvin Heiðarr Árnason.
óákveðinn tíma vegna veikinda eig-
inkonu.
Til ham- ingju með afmælið 28. júní
85 ára
Steingrímur Sveinsson, Logafold 86, Reykjavík. Sigurður Karlsson, Höfðahlíð 7, Akureyri. Stefán Guðmundsson, Hringbraut 50, Reykjavík. Björgvin Finnsson, Laufásvegi 11, Reykjavík.
80 ára
Erlendur Jónsson, Kleppsvegi 136, Reykjavík.
75 ára
Magnús Kristjánsson, Norötungu 1, Þverárhlíðarhr.
70 ára
Geir Guðmundsson, Laugarásvegiöl, Reykjavík. Ragnar Jónsson, Holtsgötu 39, Reykjavík. María Ragnarsdóttir, Skógargötu 1, Sauðárkróki.
60 ára
Skúli Jónsson, Lambastöðum, Álftaneshr. Jón Ósmann Magnússon, Smáragrund 7, Sauðárkróki. Soffia Jóhannsdóttir, Skipasundi 35, Reykjavík.
50 ára
Ingibjörg Hauksdóttir, Sandholti 26, Ólafsvík. Magnús Kristinn Herjólfsson, Kvíabólsstíg 3, Neskaupstað. Guðrún ElinBjarnadóttir, Grandavegi 37, Reykjavík. Þórunn Jensen, Eyjabakka 18, Reykjavík. Ástdis Valdemarsdóttir, Hliðarendavégi 4B, Eskifirði.
40 ára
Ingimundur Eyjólfsson, Kársnesbraut37, Kópavogi. Margrét Jódís Sigurðardóttlr,
Fannarfelli 4, Reykjavík. Guðrún Þórsdóttir, Jakaseli 31, Reykjavík. Sigurlaug Helga Maronsdóttir, Helgavatni, Sveinsstaðahr. Unnur Magnúsdóttir, Miðvangi 123, Hafnarfirði. Ólafur Tehódórsson,
MarKianai iz, KeyKjaviK.
Jenný Marelsdóttir
Þorgerður Hermannsdóttir.
Þorgerður
Hermanns-
dóttir
Þorgerður Hermannsdóttir, fyrrv.
ræstingakona við Landspítalann í
Reykjavík, til heimilis að Fannborg
1 í Kópavogi, er sjötug í dag.
Hún verður að heiman á afmælis-
daginn.
Jenný Marelsdóttir, húsmóðir og
starfsstúlka á Sjúkrahúsi Suður-
lands, Lóurima 14 á Selfossi, verður
fimmtug í dag.
Starfsferill
Jenný er fædd að Hólshúsum í
Gaulverjabæjarhreppi en flutti ung
að árum að Selfossi og ólst þar upp.
Hún vann við verslunarstörf hjá
Kaupfélagi Árnesinga í átján ár
ásamt húsmóðurstörfum. Nú starf-
ar Jenný sem starfsstúlka á Sjúkra-
húsi Suðurlands.
Fjölskylda
Jenný giftist 7. júlí 1962 Kjartani
Vigni Bjarnasyni, f. 28.12.1935,
verkamanni. Foreldrar hans eru
Bjarni Bjarnason og Guðmunda Sig-
ríður Jónsdóttir sem nú er látin.
Börn Jennýjar og Kjartans eru
Elín María, f. 6.6.1959, gift Herði
Friðþjófssyni og eiga þau þijú börn,
Björk f. 23.1.1979; Helga, f. 2.6.1988
og Kjartan, f. 27.8.1990; Kjartan
Vignir, f. 1.10.1965; Sigríður Jóna,
f. 12.9.1969, sambýlismaður hennar
er Guömundur R. Ágústsson.
Systkini Jennýjar eru: Sigrún
Jóna, f. 1944, gift Einari Páli Sig-
urðssyni og eiga þau íjögur börn,
Sigríði Helgu, Elínu, GunnarMarel
og Áslaugu; Óskar Haraldur, f. 1946,
d. sama ár; Guðrún Elsa, f. 1950, gift
David Clive Vokes og eiga þau þrjú
börn, Guðrúnu Lísu, Atla Marel og
Sally Önnu; Óskar Jón, f. 1954,
kvæntur Guðrúnu Guðmundsdótt-
ur og eiga þau þrjú börn, Svein Við-
ar, Kolbrúnu Eir og Arnar Frey.
Jenný á einn hálfbróður, Ingi-
mund Marelsson.
Foreldrar Jennýjar eru Marel
Jónsson, f. 14.5.1913, fyrrv. mjólkur-
bílstjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna,
og Elín Elíasdóttir, f. 7.2.1920, hús-
móðir og fyrrv. starfsmaður hjá
Mjólkurbúi Flóamanna. Þau búa á
Selfossi.
Ætt
Marel er sonur Jóns Ólafssonar
frá Uxahrygg á Rangárvöllum og
Jenný Marelsdóttir.
Guörúnar Andrésdóttur frá Hemlu.
Elín er dóttir Elíasar Árnasonar
frá Vöðlakoti í Gaulveijabæjar-
hreppi og Guðrúnar Þórðardóttur
frá Hólshúsum í Gaulveijabæjar-
hreppi.
Jenný verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Andlát
Jón H. Guðmundsson
Jón H. Guðmundsson, frv. skóla-
stjóri, bæjarfulltrúi og ritstjóri Al-
þýðublaðs Kópavogs, lést 20. júní sl.
Útfór hans fer fram í Kópavogs-
kirkjuídag kl. 13.30.
Starfsferill
Jón fæddist 3. desember 1913 á
Brekku á Ingjaldssandi við Önund-
arfjörð. Hann flutti til ísafjarðar
árið 1942 og bjó þar til 1963 er hann
flutti til Kópavogs og bjó þar ásamt
konu sinni til dauöadags.
Hann stundaði nám við Héraðs-
skólann á Núpi 1932-1934 og lauk
kennaraprófi frá Kennaraskólanum
í Reykjavík árið 1938. Jón kynnti sér
skólamál í Svíþjóð og Noregi vetur-
inn 1963-1964.
Hann kenndi við Héraðskólann á
Núpi 1938-1939, barnaskóla Innri-
Njarðvíkur og unglingaskólann í
Keflavík 1939-1940 og bamask. ísa-
fiarðar frá 1942. Jón var settur
skólastjóri Barnaskólans á ísafirði
1954-1955 og var skólastjóri frá
1957-1964. Hann var einnig stunda-
kennari gagnfræðaskólans, Sjó-
mannaskólans, Iðnskólans og Hús-
mæðraskóla ísafjarðar á þessum
árum. Jón var skólastjóri Digranes-
skóla í Kópavogi 1964-1981.
Jón var formaður Sjómannafélags
ísfirðingafrá 1944-1%2, Bygging-
arsamvinnufél. 1947-1963, fulltrúa-
ráðs Alþýðuflokksins á ísafirði
1950-1963. Hann var bæjarfulltrúi á
ísafirði 1949^-1963 og endurskoðandi
Kaupfélags ísfirðinga 1947-1963.
Hann var varabæjarfulltrúi Al-
þýðufl. í Kópavogi 1966-1974. Jón
var í flokksstjórn Alþýðufl. frá 1966
til dauðadags. í Húsnæðismála-
stjórn frá 1971-1983 og í stjórn
Sjúkrasamlags Kópavogs frá 1974.
Hann sá að mestu leyti um útgáfu
Skutuls á ísafirði 1946-1%3.
Jón var ritstjóri Alþýðublaðs
Kópavogs frá 1%6 til dauðadags.
Fyrir utan fjölmargar blaðagreinar
sem hann ritaði þýddi hann barna-
bókina Bátur á reki árið 1%9.
Fjölskylda
Jón kvæntist 13. september 1938
Sigríði Magnúsínu Jóhannsdóttur,
f. 31.8.1918, húsmóður. Hún er dótt-
ir Jóhanns Andréssonar, sjómanns
á Flateyri, og konu hans, Jónu Ág-
ústu Sigurðardóttur.
Börn Jóns og Sigríðar eru Sverrir,
f. 9.7.1939, tæknifr. á rekstrarsviði
íslandsbanka, kvæntur Rannveigu
Guðmundsdóttur alþingismanni, f.
15.9.1940.
Jóhannes Guðmundur, f. 9.5.1944,
húsasmiður í Kópavogi, kvæntur
Sigrúnu Sigurðardóttur skrifstofu-
manni, f. 7.1.1947.
JónaElísabet, f. 10.2.1946, farar-
stjóri og skíðakennari, gift Ulrik
Arthurssyni arkitekt, f. 27.4.1936.
Önundur, f. 5.10.1947, prentari og
lögregluþjónn í Reykjavík, kvæntur
Gróu Stefánsdóttur húsmóöur, f.
11.2.1961.
Guðrún Helga, f. 2.1.1949, útibús-
stjóri íslandsbanka í Reykjavík, gift
Baldvini Jóhanni Erlingssyni sölu-
manni, f. 9.9.1946.
Erlingur Andres, f. 15.10.1950, rit-
stjóri Eiðfaxa, kvæntur Sigrúnu
Sigurðardóttur skrifstofumanni, f.
10.6.1953.
Halldóra Jónsdóttir, f. 30.10.1953,
gift Edvard Kjartani Sverrissyni, f.
20.4.1950, þau hjón reka saman fyr-
irtækiíKópavogi.
Kristín Sigríður, f. 21.6.1960, gift
Jóni Sigurði Ólasyni, lögregluþjóni
í Reykjavík, f. 9.10.1960.
Jón átti eina dóttur með Ingi-
björgu Finnsdóttur, Ingibjörgu, f.
18.9.1963, þroskaþjálfi, sambýlis-
maður hennar er Ámi Ármann
Árnason lögfræðingur, f. 23.4.1963.
Jón átti tuttugu systkini, þar af
sextán alsystkini ogfjögur hálf-
systkini, og eru sjö á lífi.
Foreldrar Jóns voru Guðmundur
Einarsson, f. 19.7.1873, d.22.7.1964,
bóndi og refaskytta, og kona hans,
Guðrún Magnúsdóttir, f. 2.7.1877, ■
d. 9.5.1%7, húsmóðir. Þaubjuggu
Jón H. Guðmundsson.
lengst af á Brekku á Ingjaldssandi
við Önundarfjörð.
Ætt
Faðir Guðmundar var Einar Guð-
mundsson, bóndi á Heggsstöðum í
Andakíl í Borgarflrði, Guðmunds-
sonar, Einarssonar, Kortssonar,
bóndi á Tjarnhúsi á Seltjarnarnesi.
Kona hans hét Guörún Gísladóttir.
Móöir Guðmundur var Steinþóra
Einarsdóttir.
Faðir Guðrúnar var Magnús Egg-
ertsson, bóndi á Eyri í Flókadal og
Tungufelli í Lundareykjadal. Móðir
hennar var Halldóra Guðmunds-
dóttir.