Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1991, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1991, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 FIMMTUDAGUR 4. JÚU 1991. Sverrir Hermannsson: Má ekki, vil ekki,getekki * „Ég vil ekkert segja til um það hvort Landsbankinn geti hugsað sér að leigja rekstur þrotabúa Álafoss og Hraðfrystihúss Ólafsvíkur til nýrra rekstraraðila. Ég var að koma í bæinn í gærkvöldi og hef ekki getað sett mig sem skyldi inn í þessi mál. Ég má ekkert, vil ekkert og get ekk- ert um þetta sagt,“ sagði Sverrir Hermannsson bankastjóri í morgun. Landsbankinn hefur nú í hendi sér hvort starfsemi frystihússins og Ála- fossverksmiðjanna leggst af eða ekki. Ólafsvíkingar hafa þegar komið þeim skilaboðum til bankans að þeir séu tilbúnir að kaupa þrotabúið og þá flóra báta sem frystihúsið missti fyr- ir um ári síðan og sameina hið nýja ,a» fyrirtæki Útherja sem á eina togara staðarins. „Þetta ætti að skýrast eitthvað í dag eða á morgun en um framhaldið þori ég ekkert að spá. Ég er ekkert alltof bjartsýnn á þaö að gangi saman á þeim forsendum sem maður hefur heyrt og séö þarna að vestan," segir Sverrir. Að sögn Péturs Fenger, bæjaritara Mosfellsbæjar, hafa bæði bæjar- stjórnir Akureyrar og Mosfellssveit- ar samþykkt að setja fjármagn í slík- an rekstur sé hægt að sýna fram á ''Ir að hann gangi. Enn hafi þó ekki ver- ið reiknað út hversu mikla peninga þurfi - það gæti legið á bilinu 50 til 100 milljónir. Hann segir að hug- myndin sé að fleiri aðilar, og þá íjár- sterkir, komi inn í reksturinn ef af þessu verður. Honum er þó ekki kunnugt um að neinir slíkir hafi enn sýnt þessu áhuga. -kaa heimildum Fjórtán bátar voru sviptir útflutn- ingsheimildum Aflamiðlunar í gær. Níu þessara báta eru frá Vestmanna- eyjum, þeir eru: Andvari, Baldur, Björg, Bylgja, Dala-Rafn, Danski Pét- ur, Gjafar, Sigurborg og Sigurfari. Þrír eru skráðir í Árnessýslu; Frið- rik Sigurösson, Jón Klemens og Sæ- rún, auk þess voru bátarnir Þórs- hamar frá Hafnarfirði og Otto Wathne frá Seyðisfirði sviptir út- flutningsleyfum. Bátarnir eru sviptir heimildum mislengi og vara útflutningssvipting- arnar frá 1 og upp í 6 vikur. Sá sem mest hefur flutt út umfram heimildir er Dala-Rafn. Báturinn hafði leyfi til að flytja út 4 tonn en sendi 40 tonn .. -vumfram það á markað. Fékk hann lengstu sviptinguna, 6 vikur. -J.Mar Mitóll viðbúnaður á ísafirði þegar 140 tólóum af dínamíti var eytt: 11 wm w g w m x NitroalftiQQAriniA W ti farið að leka niður - allar rúður bæjarins í hættu, segir sprengjusérfræðingur „Það hefðu ekki verið margar rúður heilar á isafiröi ef þetta hefði sprungið. Ástandiö þama ínni var vægast sagt slæmt. Þarna voru 140 kiló af dínamíti. Túpurnar voru farnar að „svitna“ og nítróglusser- ínið lekið niður í botninn á stórum stálkassa sem þetta var geymt í. Þessi vökvi má ekki við neinu hnjaski. Ef einn dropi hefði dottið á gólfið hefði orðið sprenging. Það hefði ekki orðið mikið eftir af hús- inu. Ef við vorum ekki í stórhættu þarna veit ég ekki hvenær það ger- ist,“ sagði sprenausérfræðingur þjá Landhelgisgæslunni í samtali við DV i morgun. Mikill viöbúnaður var viðhafður í nágrenni áhaldahúss ísafjarðar- bæjar undir kvöld í gær þegar lög- reglan og sérfræðingar Landhelgis- gæsiunnar sáu til þess að mikið af gömlu og stórhættulegu sprengi- efni var flutt með vörubíl út að Arnarnesi við ísafjarðardjúp þar sem því var brennt. Áhaldahúsið og stórt svæði í kringum það var rýmt. Hér var um að ræða úrelt sprengiefni sem nota átti í þágu vita- og hafframála fyrir mörgum árum. Sprengjusérfræðingurinn sagði ennfremur: „Við þurftum að taka hverja túpu fyrir sig og koma fyrir í sandgryfju sem viö útbjuggum á vörubíl sem bakkaði inn í húsið. Þegar við losuðum þetta i fjöru- borðinu við Arnarnes varð að handlanga þetta allt aftur með mik- illi varúð. Nítróglusserínið er nfrög hættu- legt þegar það er farið að leka svona. En það sem verst er er að ástandið er svona út um allt land. Það sem þarf að gera er að gefa út nákvæma reglugerð um sölu og meðferð slíkra etfra. Lögregiuemb- ættin verða að hafa nákvæma skrá yfir þá aðila sem hafa leyfi fil að vera meö sprengiefni undir iiönd- um og eftirlitsaðilar eiga síðan að kanna ástandið hverju sinni,“ sagði sprengjusérfræðingurinn. Jónas Eyjóifsson, yfirlögreglu- þjónn á ísafirði, sagði í morgun að á næstunni yrði gerð nákvæm út- tekt á ástandi þessara mála í um- dæminu. Hann sagöist ennfremur vita dæmi þess að börn hefðu kom- ist í dínamíttúpur og leikið sér meö þær. -ÓTT Það er engu líkara en þær Eyrún Hjörleifsdóttir og Elísabet Gunnlaugsdóttir séu hæstánægðar með rigninguna sem höfuðborgarbúar fengu að kynnast í gær. Annars er búist við því að helgin geti orð- ið vætusöm sunnan- og suðvestanlands. Hins vegar er spáð betra veðri á Norður- og Norðaustur- landi, þurru og jafnvel sólskini. DV-mynd Hanna Undirskriftasöfnun: Gegn aðild aðEES „Við höfum fundið að það er gífur- legur fjöldi fólks í landinu hræddur við aðild að evrópska efnahagssvæð- inu,“ segir Bjarni Einarsson, fram- kvæmdastjóri hjá Byggðastofnun og einn helsti hvatamaðurinn að stofn- un samtaka gegn aðild íslands að evrópska efnahagssvæðinu. Samstarfshópur um stofnun samtakanna kom saman í Norræna húsinu í gær og mættu 200 manns á fundinn. Samtökunum er ætlað að hrinda af stað undirskriftasöfnun um allt land gegn aðild að evrópska efnahagssvæðinu. Þegar er hafin undirskriftasöfnun í Þingeyjar- sýslu. „Við erum á móti aðild að evrópska efnahagssvæðinu vegna þess að hún er fordyri að Evrópubandalaginu sjálfu, hún leiðir til aðildar," segir Bjarni. Margt þekkt fólk er í samstarfs- hópnum gegn aðild að evrópska efna- hagssvæðinu. Auk Bjarna má nefna Hannes Jónsson, fyrrverandi sendi- herra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- ur alþingismann, Jakob Jakobsson, forstjóra Hafrannsóknastofnunar- innar, og Árna Bergmann, ritstjóra Þjóðviljans. -JGH LOKI Það má sem sé þakka fyrir að isafjörðurerenn á sínum stað! Veðrið á morgun: Bjartviðri norðan-og vestanlands Á morgun verður hæg sunnan- átt um allt land. Þokumistur eða súld verður við suður- og vestur- ströndina en bjartviðri annars staðar. Hiti verður á bilinu 10-18 stig, hlýjast austanlands. Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TMHUSGÖGN SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822 i Í i i $ i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.