Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Side 3
FÖÖfÖDÁGÍÍR áÓ. ÁGÖáf 1991.'
3
pv______________________________Fréttir
Aðhaldsáform ríkisstjómarinnar:
Gera alla
kjarasamninga
mjög erfiða
segir formaður verkalýðsfélagsins Jökuls
„Ég held að þetta hljóti að gera
alla kjarasamninga mjög erfiða.
Þetta er ákveðin aðfór að þvi kerfi
sem verkalýðshreyfmgin hefur tekið
fullan þátt í að byggja upp í gegnum
tíðina," sagði Björn Grétar Sveins-
son, formaður verkalýðsfélagsins
Jökuls á Höfn í Hornafirði, um að-
haldshugmyndir ríkisstjórnarinnar.
Skólagjöld á bilinu 15.000-30.000
eru meðal þeirra hugmynda sem eru
nú á borði ráðherranna við gerð
nýrra fjárlaga, einnig 5000 króna inn-
ritunargjald á sjúkrahús, svo og
gjaldtaka fyrir þjónustu heilsu-
gæslustöðva.
„Þetta er ekkert annað en ný teg-
und skattheimtu þótt einhverjir vilji
kalla það öðru nafni þar sem þessum
kostnaði er ekki dreift á þegnana
heldur eiga þolendur að greiöa,"
sagði Björn Grétar ennfremur.
„Þetta hefur ekki verið stefna verka-
íýöshreyfingarinnar til þessa og mín
skoðun er óbreytt í þessum efnum.
Eg hef ekki umpólast á þessu sviði. “
Björn Grétar sagði að nú kæmi rík-
ið inn í kjarasamninga, þannig að
þeir væru þríhliða. „Mér sýnist að
sumar þessara hugmynda, sem kom-
ið hafa fram, séu ósættanlégar. Þá á
ég við skólagjöldin, aðgerðirnar i
lyfjamálum, sem við höfum þegar
bent á, og innritunargjöldin. Varð-
andi lyfjamálin höfum við haldið
skoðunum okkar mjög eindregið
fram og þá launþegahreyfmgin í
breiðfylkingu. Ég vona það svo sann-
arlega að verkalýðshreyfingin hafi
þrek til þess að standa gegn þessu.
Ég trúi ekki öðru.“
Bjöm Grétar kvaðst hafa heyrt um
hugmyndir varðandi skertar barna-
bætur, sjómannaafslátt, húsnæðis-
bætur og persónuafslátt. „Ég heyrði
þetta í fréttunum í gærkvöld. Ég var
að borða ágætismat, en það dró mjög
út matarlystinni að hlusta á þetta.“
-JSS
Ruben Karl fann ekki hjólið sitt í óskilamunageymsiunni hjá lögreglunni í
gær. Á bak við drenginn skoðar Jónas Hallsson aðalvarðstjóri eitt af þeim
fjölmörgu reiðhjólum sem ekki hafa komist til skila. Hjólið hans Kalla er
svart, 12 gíra Huffi fjallahjól. Það var með svörtum keðjukassa og örlítið
upphækkuðu stýri. DV-mynd GVA
FjaUahjóli stolið fra 10 ara dreng við Meistaravelii:
Þungbært fyrir hann
að missa hjólið
- segir móðirin sem er enn að greiða afborganir afþvi
„Eg keypti þetta hjól fyrir strákinn
í vor og er að borga af því ennþá. Því
var læst með stórum og miklum
hlekkjum. Það var hér fyrir utan á
miðvikudag en morguninn eftir kom
í ljós að hjóhð hefur greinilega verið
borið í burtu. Þetta virðist ekki vera
fyrsta hjóhð sem hverfur hér úr
hverfinu," sagði Signý Hackert, ein-
stæð þriggja barna móðir, í samtali
við DV. Hjóh sonar hennar, 12 gíra
svörtu Huffi íjallahjóli, var stohð fyr-
ir utan heimih þeirra aö Meistara-
vöhum 23 á miðvikudagskvöldið eða
aðfaranótt fimmtudagsins.
„Mér finnst þetta mjög sárt því
hjóhð var eina gjöfin sem hann hafði
fengið í langan tíma. Það kostaði um
30 þúsund krónur og afborganir er
enn verið aö greiða upp. Þetta er því
þungur biti fyrir okkur, sérstaklega
þó drenginn sem tekur þetta mjög
nærri sér,“ sagði Signý.
Sonur hennar, Ruben Karl, segist
hafa málað með svörtu módellakki
yfir rispur á stelli hjólsins. Það er
með svörtum keðjukassa og stýrið
var lítillega hækkað upp.
Samkvæmt upplýsingum Jónasar
Hallssonar, aðalvarðstjóra lögregl-
unnar í Reykjavík, var tilkynnt um
stuld á 70 reiðhjólum í Reykjavík í
júh. í ágústmánuði, sem er að ljúka,
var hins vegar tilkynnt um 27 tilfehi:
„Það kemur gtfurlegur fjöldi af
óskilareiðhjólum í okkar geymslur á
Hverfisgötunni og í Saltvík er einnig
mikih fjöldi reiðhjóla sem þar eru
geymd áður en þau fara á uppboð,"
sagði Jónas í samtali við DV.
„Ég tel að fólk eigi hiklaust að
koma til lögreglunnar og að minnsta
kosti athuga hvort þeirra týnda hjól
sé ekki komið til okkar,“ sagði hann.
Jónas sagði að eigendur þyrftu að
lýsa hjóh sínu, svo sem ht og ýmsum
einkennum, til að fá þau aftur í sína
vörslu ef þau reynast vera hjá lög-
reglunni.
-ÓTT
Otrúlegf
satt!
en
Leður hægindastólar m/skemli
í tilefni 20 ára afmælis unico
seljum við 100 stóla á þessu
ótrúlega verði:
Áður
56.200
Opið:
Mánudaga
til föstudaga
9- 18
Laugardaga
10- 17
sunnudaga
14—17
TMHOSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822
kristaltær mynd...
SHARP V C - A 3 0
Stórgott myndbandstæki frá Sharp. 100% kyrr-
mynd. Verð aðeins kr. 35.900 stgr. Afborgunar-
verð 43.900.
SHARP V C - A 6 0
Heldur fullkomnara VCA-30, m.a. 4 hausa, sjálf-
virkur hreinsibúnaður á myndhaus og 8 klst. upp-
tökumöguleiki (LP). Verð áður 56.740. Tilboð nú
45.999 stgr.
OflPIQIMEER V R - 7 3 7
Hi-fi NICAM, 4 hausa. Afburða vandað tæki og
framherji Pioneer myndbandstækjanna. Rétt verð
á tækinu er kr. 126.870 stgr. en við getum boðið
takmarkað magn á aðeins 77.301 stgr.
MYNDBANDSTÆKI
Qö PIOIMEER
The Art of Entertainment
Opið laugardaga 10.00-14.00
Hér er um að ræða heitt mál því það er
ekki á hverjum degi sem Pioneer tæki
bjóðast á lækkuðu verði. Gríptu því
gæsina á meðan hún gefst ætlirðu að
eignast hi-fi myndbandstæki og byggja
upp Heimabíó.
ATH. Örfá orð um eiginleikana duga ekki.
Komdu þvf við í verslun okkar og kynnstu
tækjunum af eigin raun.
Hverfisgötu 103 - sími: 25999 - Umboðsmenn um allt land