Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Síða 9
FÖSTÚD'ÁGUR'áO. ÁGtJáT l991.
£
Útlönd
George Bush Bandarikjaforseti fór með John Major, forsætisráðherra Bret-
lands, í veiðitúr við sumaraðsetur sitt í Mainefylki í gær. Simamynd Reuter
Bush og Major sammála:
Sovétstjórnin hraði
efnahagsumbótunum
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og
Bretlandi eru þeirrar skoöunar að
nú sé lag fyrir Sovétstjórnina aö
hraða efnahagsumbótum í landinu í
kjölfar valdaránstilraunarinnar í
síðustu viku og hétu því að Vestur-
lönd mundu gera allt sem í þeirra
valdi stæði til að aðstoða.
En George Bush Bandaríkjaforseti
og John Major, forsætisráðherra
Bretlands, ítrekuðu í gær að stuðn-
ingur og fjárhagsaðstoð Vesturlanda
yrðu nátengd pólitískum og efna-
hagslegum umbótum, þar á meðal
niðurskurði í útgjöldum til hermála.
„Við erum sameinaðir, eins og önn-
ur Vesturlönd, í þeirri staðfestu okk-
ar að hlaupa undir bagga með um-
bótaáætlunum Sovétmanna," sagði
Bush á sameiginlegum blaðamanna-
fundi þeirra Majors í sumarhúsi
Bandaríkjaforseta í Kennebunkport
í Mainefylki.
Major bætti við að nú væri lag fyr-
ir Sovétríkin að hraða efnahagsum-
bótunum og það væri landinu lífs-
nauðsynlegt.
Bush og Major, sem flýgur til
Moskvu á sunnudag þar sem hann
mun ræða við Gorbatsjov Sovétfor-
seta, Jeltsín, forseta Rússlands, og
leiðtoga lýðveldanna, voru sammála
um aðgerðir í sex liðum til að koma
til móts viö brýnustu þarfir Sovét-
ríkjanna, þar á meðal matvælaað-
stoð, tækniaðstoð og aðstoð við mat-
vælaframleiðslu og dreifingu.
Þeir sögðu að hraða ætti inntöku
Sovétríkjanna í Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn en útilokuðu mikla beina
fjárhagsaðstoð á meðan enn væri
upplausnarástand í landinu. Þeir fé-
lagar reyndu líka að draga úr áhyggj-
um manna yfir því að kjarnorku-
vopnabúr Sovétríkjanna hefði ekki
verið í öruggum höndum á meðan á
valdaránstilrauninni stóð.
Major sagði að hann mundi nota
ferð sína til Sovétríkjanna til að meta
stöðuna og gefa síðan hópi sjö helstu
iðnríkja heims skýrslu um niður-
stöður sínar. Major er formaður
hópsins. Á sama tíma hittust emb-
ættismenn sjöveldanna í London og
var ekki búist við að sá fundur sam-
þykkti neinar áætlanir um aðstoð við
Sovétríkin.
Reuter
utnaar búnir að
prenta peninga
Gediminas Vanorius, forsætisráð-
herra Litháens, segir að þegar sé
búið að prenta peninga og slá mynt
fyrir nýjan gjaldmiðil landsins. Pen-
inga sína ætla Litháar að kalla litas.
Enn hefur ekkert af þeim verið sett
í umferð og segir ráðherrann að Lit-
háar verði fyrst að gera upp skuldir
sínar við önnur lýðveldi Sovétríkj-
anna. Nýi gjaldmiðillinn á að vera
liður í víðtækum breytingum á efna-
hagskerfi hins nýfrjálsa lands. Meðal
þess sem gera á er að skipta upp rík-
isreknum samyrkjubúum og auka
ívilnanir fyrir útlendinga sem vilja
fjárfesta í landinu.
Forsætisráðherrann segir að ekki
sé halli á fjárlögum ríkisins þótt
landsmenn búi við þrengingar. Hann
sagðist ekki óttast verðbólgu þegar
nýju peningarnir yröu formlega
gefnir út enda hefði stjórn sín fullan
hug á að takmarka peningamagn í
umferð.
Nú hafa Litháar og nágrannar
þeirra í Lettlandi og Eistlandi hlotið
viðurkenningu á sjálfstæði sínu frá
30 þjóðum. Enn halda Bandaríkja-
menn þó að sér höndum og sömuleið-
is Bretar, enda eru það einkum minni
ríki með ísland í broddi fylkingar
sem hafa komið á formlegum stjórn-
málatengslum við Eystrasaltsríkin.
Stjóm Sovétríkjanna hefur heldur
ekki fallist á sjálfstæði þessara ríkja.
Það þykir þó góðs viti að málið verð-
ur tekið á dagskrá í fulltrúaþinginu
á mánudaginn. Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseti hefur slegið úr og í varð-
andi sjálfstæði einstakra lýðvelda.
Reuter
Forseti Æðsta
ráðsins hand-
tekinn í morgun
- þingið skerti völd Gorbatsjovs
Anatólíj Lúkjanov, forseti Æðsta
ráðs Sovétríkjanna, hefur verið
handtekinn og sakaður um landráð
vegna meintrar þátttöku í valda-
ránstilrauninni í síðustu viku, að því
er óháða fréttastofan Interfax skýrði
frá í morgun.
Sovéska þingið réðst gegn komm-
únistaflokki landsins í gær, skerti
völd Míkhaíls Gorbatsjovs forseta og
heimilaði að Lúkjanov yrði sóttur til
saka.
Yfirgnæfandi meirihluti þing-
manna Æðsta ráðsins greiddi at-
kvæði með því í gær að starfsemi
kommúnistaflokksins yrði stöðvuö
um allt land. Flokkurinn hafði ekki
lengur neinn leiðtoga og búið er að
hirða af honum flestar eignir hans.
Nikolaj Trubin saksóknari sagði af
sér í gær vegna þess að samstarfs-
menn hans höfðu stutt valdaráns-
mennina í síðustu viku. Síðasta verk
Trubins í embætti var að fyrirskipa
handtöku Anatólíjs Lúkjanovs, for-
seta Æðsta ráðsins, sem margir saka
um að hafa verið höfuöpaur samsær-
ismannanna.
Lúkjanov, sem var skólabróðir
Gorbatsjovs í lagaskóla, hefur neitað
öllum sakargiftum og segist aldrei
mundu geta svikið þennan gamla vin
sinn.
Gorbatsjov skipaði leiðtoga níu lýð-
velda í nýtt þjóðaröryggisráð en Edu-
ard Shevardnadze, fyrrum utanríkis-
ráðherra, neitaði að taka sæti í því.
Mikil reiði var í þingsölum í gær
og skoðanakönnun meðal 177 félaga
Æösta ráðsins leiddi í ljós að 57 pró-
sent þeirra áhtu Gorbatsjov eiga sök
á valdaráninu og 66 prósent töldu
hann hafa staöið sig slælega í emb-
ætti.
Æðsta ráðið samþykkti einnig að
svipta Gorbatsjov auknum völdum
sem honum voru veitt í desember til
að glíma við gífurlegan efnahags-
vanda þjóðarinnar. Þingmenn neit-
uðu upphaflega að styöja málið en
tóku það síðan aftur á dagskrá.
Hin auknu völd Gorbatsjovs heim-
iluöu honum m.a. að gefa út tilskip-
anir um nær alla þætti sovésks þjóö-
lífs.
Reuter
Andi frjálslyndis og
manngæsku hjá KGB
Vadim Bakatín, nýr yfirmaður
leyniþjónustunnar KGB, lofar að
hún muni eftirleiðis starfa í anda
frjálslyndis og manngæskú. Bakat-
ín er einn úr hópi umbótasinnanna
sem varð að víkja úr stjórn Míkha-
íls Gorbatsjovs þegar harðlínu-
menn komust til áhrifa í desember
á síðasta ári. Til þess tíma var Bak-
atín innanríkisráðherra en varð að
víkja fyrir Borís Pugo, þeim er
framdi sjálfsmorð í lok valdaráns-
ins.
Æðsta ráðið samþykkti skipum
Bakatíns í embætti yfirmanns KGB
í gær. Bakatín haföi áður heitið því
að leysa KGB upp í núverandi
mynd og skipuleggja starfsemina
að nýju. Hann sagði að KGB heföi
til þessa legið eins og mara á öllum
þáttum sovésks þjóölífs, jafnt opin-
berum verkum sem einkalífi fólks.
Bakatín sagði að KGB hefði ekki
framar afskipti af sjónvarpi, út-
varpi, íþróttum og listalífi í Sovét-
ríkjunum. Til þessa hafa útsendar-
ar KGB litið eftir starfsemi af þesu
tagi. Eitt fyrsta verk Bakatíns í
embætti var að taka niður mynd
af Lenín á skrifstofu sinni. Þá lét
hann skipta um síma og fékk sér
nýjan stól.
Bakatín hlaut yfirburðafylgi í
ráðinu þegar skipun hans kom til
atkvæða. Aöeins niu fulltrúar voru
á móti. Bakatín lýsti þeirri skoðun
sinni að hann vissi ekki um KGB
útsendara í Æðsta ráðinu.
Reuter
§•
CC
>
HIMNESKUR MATUR FRA
Eldbakaðar tortillakökur fylltar
með (eyndarmáli frumbyggjanna
Uið hussum einnifí
um fírænmetisætuna
Lúmskir kokkteilar
með Þióðardrykk
Mexikana
Pottaáaldrar f Siefríð Þórisdóttir J sér um matreiðsluna
HRjrgwm
"<E( conte" Skipholti 37 s. 39570