Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Síða 19
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991.
25
Iþróttir
num sigri sínum í 110 m grindahlaupinu í gær.
Símamynd Reuter
Heimsmeistaramótið 1 Tokyo 1 morgun:
Péturlangt
frá sínu besta
- varð aðeins 15. í kúluvarpinu
Pétri Guðmundssyni mistókst
að komast í úrslitakeppnina í
kúluvarpi á heimsmeistaramót-
inu í Tokyo í morgun. Pétur kast-
aði aðeins 18,51 metra og varð í
15. sæti af 23 keppendum en tólf
fyrstu komust í úrslitin.
Lágmarkið var 19,60 metrar en
aðeins fimm kastarar náðu því
og tólfti maður slapp inn með 19
metra slétta. Wemer Gunthör frá
Sviss kastaði lengst, 20,97 metra,
enda er hann sigurstranglegastur
í greininni. Georg Andersen frá
Noregi kastaði 20,41 metra og
Sergej Nikolajev frá Sovétríkjun-
um 20,16 metra.
Allir kastararnir voru talsvert
frá sínu besta í morgun, enda
veður leiðinlegt. Til dæmis kast-
aði Ron Backes frá Bandaríkjun-
um, sem spáð hafði verið verð-
launasæti á mótinu, aðeins 19,05
metra.
O’Brien fremstur
í tugþrautinni
Þegar átta greinum af tíu í tug-
þrautinni var lokið í morgun var
Bandaríkjamaðurinn Dan O’Bri-
en með góða forystu en hann
náði henni strax í fyrstu grein í
gærmorgun. Að loknu 110 metra
grindahlaupi, kringlukasti og
stangarstökki í morgun var for-
ysta hans 389 stig, hann var með
7.368 stig gegn 6.979 stigum hjá
Mike Smith frá Kanada. Heims-
met Daleys Thompsons, 8.847
stig, var jafnvel talið í hættu en
tugþrautinni átti að ljúka nú um
hádegisbilið.
Veðrið er farið að setja strik í
reikninginn í Tokyo, í morgun
hellirigndi og spáð var áfram-
haldandi úrhelli og jafnvel stormi
með morgni. Mótshaldarar eru
viðbúnir hinu versta, jafnvel því
að þurfa að fresta keppni á morg-
un. -VS
Róbert með 34 mörk
ffyrir Malmberget
- markahæstur og Malmberget komið upp
„Róbert er þyngdar sinnar virði í
gulli," segir í fyrirsögn sænska
íþróttablaðsins NSD-Sport sem kom
út um síðustu helgi og þar er átt við
íslenska knattspyrnumanninn Ró-
bert Haraldsson sem hefur leikið
með Malmberget í sænsku 4. deild-
inni í sumar.
Róbert hefur skorað 34 mörk í 17
leikjum fyrir Malmberget í 4. deild
en hðið hefur haft mikla yfirburði í
sínum riðli og er búið að tryggja sér
sæti í 3. deild þó tveimur umferðum
sé enn ólokið. Róbert er langmarka-
hæsti leikmaður riðilsins og hefur
skorað í öllum leikjunum nema
þremur. Sigur Malmberget er lang-
þráður en 15 ár eru síðan liðið lék
síðast í 3. deild.
Róbert er 22 ára gamall og lék með
Breiðabliki og KS í 2. deild en hefur
aðallega lagt áherslu á handboltann
og spilar þar með HK og verður
væntanlega með Mðinu í 1. deildinni
í vetur.
-VS
Stúfar frá
HMíTokyo
• Carl Lewis lét sig ekki muna
um að stökkva 8,56 metra í und-
ankeppninni í langstökki í gær-
morgun, 35 sentímetrum lengra
en næsti maður. Þetta var besti árangur
ársins í greininni en Lewis stökk aðeins einu
sinni. Úrslitakeppnin hófst um þaö leyti sem
blaðið fór í prentun en þar var reiknað meö
að Lewis myndi gera harða atlögu að „met-
inu ódauölega" sem Bob Beamon setti þegar
hann stökk 8,90 metra í Mexíkó árið 1968.
Robert Emmijan frá Sovétríkjunum var
meðai þeirra sem féllu úr keppni í lang-
stökkinu, það dugði honum ekki aö stökkva
8 metra slétta tii að komast áfram.
• Carl Lewis er orðinn þreyttur á hinu
mikla umtaM um nýju hlaupa- og atrennu-
brautirnar á velMnum í Tokyo en sagt er
aö þær stuðli að bættum árangri. „Rkki
fleiri spurningar um hversu hagstæð braut-
in er, takk fyrir,“ sagði hann eftir undan-
keppnina í langstökkinu. „Það kemur að því
að einhver verður skotinn fyrir að spyija
svona!“ bætti stjaman við.
• DeMsa Floyd, bandaríski meistarinn í
800 metra hlaupi kvenna, varð í gær uppvís
að því að neyta amfetamíns. Það kom fram
í lyfjaprófi og hún er nú sjálfkrafa komin í
fjögurra ára keppnisbann. Reglurnar hafa
verið hertar til muna en áður var bann
vegna lyfjanotkunar tvö ár. Floyd, sem er
þritug, varð síðust í sínum riðM í undanúr-
sMtum 800 metra hlaupsins.
• íris Grönfeldt hefur mátt bíða
lengst íslendinganna í Tokyo eftir
því að keppa en nú er rööin að
koma að henni. Undankeppnin í
spjótkasti kvenna hefst klukkan 2.20 í nótt
að íslenskum tíma en keppt verður til úr-
sMta á sunnudag, lokadegi mótsins.
Úrslitaleikur
- Fram og Víkingur mætast á sunnudaginn
Einn af úrslitleikjunum í 1. deMd
karla á íslandsmótinu í knattspymu
fer fram á sunnudaginn. Þar eigast
við tvö efstu Mð deildarinnar, Fram
og Víkingur, og fer leikurinn fram
á Laugardalsvelli og hefst klukkan
16.
Þessi tvö félög eru þau einu sem
eiga möguleika á íslandsmeistaratitl-
inum. Fram stendur betur að vígi,
er með þriggja stiga forskot á Víking,
en nái Víkingar að vinna Fram fara
þeir á toppinn með betra markahlut-
faM. Á laugardaginn eru þrír leikir,
Valur og Víðir leika á Valsvelli og
Stjarnan og KR í Garðabæ. Þessir
leikir hefjast klukkan 14 og klukkan
16 leika UBK og ÍBV í Kópavogi. FaM-
slagur er á Akureyri klukkan 16 á
sunnudag en þá taka KA menn á
móti FH-ingum. Staðan í deiidinni
er þannig:
JónE.Ragnarsson,Fram........9
SteindórEMson,UBK...........9
17. umferð
Fram 15 10 3 2 24-11 33 Laugardaginn 7. september hefst
Víkingur.. 15 10 0 5 31-20 30 næstsíðasta umferð 1. deMdar og þá
KR 15 7 3 5 29-13 24 mætast þessi lið: ÍBV - Stjarnan,
ÍBV 15 7 2 6 26-30 23 Víkingur-KA, FH-Víðir og á
Valur 15 6 2 7 19-19 20 sunnudeginum leika: UBK - Valur og
UBK 15 5 5 5 21-23 20 KR - Fram.
FH 15 5 4 6 20-22 19
KA 15 5 3 7 16-20 18 18. umferð
Stjaman... 15 4 5 6 22-24 17 íslandsmótinu lýkur laugardaginn
Víðir 15 1 3 11 14-40 6 Markahæstir: 14. september og í lokaumferðinni leika: Valur - FH, Stjarnan - UBK, Fram - ÍBV, KA - KR og Víðir - Vík-
Guðmundur Steinsson.Vík 12 ingur.
Leifur Hafsteinsson, ÍBV... 11 -GH
HörðurMagnússon, FH 10
21 árs landsliðið valið
Gunnar Einarsson, landsliðsþjálfari 21 árs landsliðs
karla í handknattleik, hefur valið 16 leikmenn fyrir
heimsmeistarakeppnina í þessum aldursflokki sem fram
fer í Grikklandi 4.-14. september. Þessir leikmenn eru
eftirtaldir:
Markverðir: Axel Stefánsson, KA, Hallgrímur Jónasson,
ÍR, Ingvar Ragnarsson, Stjömunni. Aðrir leikmenn:
Björgvin Rúnarsson, Víkingi, Dagur Sigurðsson, Val,
Einar Sigurðsson, Selfossi, Finnur B. Jóhannsson, Val,
Gunnar Andrésson, Fram, Gústaf Bjamason, Selfossi,
Jason Ólafsson, Fram, Jóhann Ásgeirsson, ÍR, Magnús
Sigurðsson, Stjörnunni, Patrekur Jóhannesson, Stjörn-
unni, Páll Þórólfsson, Fram, Róbert Rafnsson, ÍR, Sig-
urður Bjamason, Grosswallstadt. ísland er í riðli með
Brasilíu, Danmörku og Sovétríkjunum en Sovétmenn
eru heimsmeistarar í þessum aldursflokki. -VS
Skallagrímsmenn úr Borgamesi, nýliðamir í úrvals-
deildinni í körfuknattieik, hafa fengið ti! sín sovéskan
leikmann. Hann heitir Maxim Krupachev, 27 ára gam-
all Rússi, og er 2,07 metrar á hæð. Hann hefur leikið
með félagsliöinu CSKA Moskva og þá á hann leiki meö
sovéska landsliöinu.
„Iætta er búið aö vera lengi i bígerð en dróst á langinn
vegna ástandsins í Sovétríkjunum," sagði Sóirún Rafns-
dóttir, formaður körfuknattleiksdeildar Skallagríms.
Kmpachev leikur með Skallagrími á aftnæMsmóti Vals
um helgina og þar kemur styrkleiki hans væntanlega í
Borgnesingar hafa einnig fengið Mðstyrk frá ÍA en þar
er á ferð Sigurður Elvar ÞóróM'sson og mun hann leika
meö Mðinu i vetur.
-EP/VS
Sport-
stúfar
Golfmót FH fer fram á
golfvelMnum í Grinda-
vík á laugardaginn og
hefst klukkan 10. Tek-
ið er við skráningum í símum
53834 Og 652534.
Valur með sterkt
mót í körfubolta
Körfuknattleiksdeild
Vals heldur um helg-
ina mót í tilefni af 80
ára afmæli félagsins á
þessu ári. Það er mjög sterkt því
átta úrvalsdeildarMð mæta til
leiks, öll nema Tindastóll og
Grindavík. Leikið verður frá kl.
20 í kvöld, 12-18 á morgun og
13-20 á sunnudag. Liðum er skipt
í tvo riðla; KR, Haukar, Valur og
Snæfell eru í öðrum en Njarð'vík,
Keflavík, Þór og Skallagrímur í
hinum; og síðan verður leikið til
úrsMta.
Skúli til Vals
ÚrvalsdeildarMð Vals í körfu-
knattleik hefur fengið til sín
Skúla Skúlason, efnilegan bak-
vörð sem var í röðum Keflvíkinga
síðasta vetur. Hann er þriðji bak-
vörðurinn sem Valur fær fyrir
komandi tímabil, hinir eru Franc
Booker frá ÍR og Tómas Holton
sem er kominn heim frá Ung-
verjalandi.
Vercauteren
í bílslysi
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Frank Vercauteren,
fyrrum landsliðsmað-
ur Belga í ‘knatt-
spyrnu, sem nú leikur
með RWD Molenbeek í 1. deild-
inni, lenti í bílslysi fyrr í vik-
unni. Hann slasaðist ekki að ráði
en nokkrum tímum eftir óhappið
frétti hann að eiginkona hans
hefði líka lent í bílslysi á sama
tíma! Þetta var of mikið og Ver-
cauteren var ekki í andlegu
ástandi til að spila með Mði sínu
í fyrrakvöld.
Demol til Standard
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Standard Liege hefur fest kaup
á belgíska landsliðsmanninum
Stephan Demol frá Toulouse í
Frakklandi. Lengi var þrefað um’
kaupverð og Toulouse vildi háar
upphæðir en lokaniöurstaðan
varð aðeins um 35 milljónir ís-
lenskra króna. Arie Haan er tek-
inn við liði Standard sem hefur
keypt marga leikmenn og ætlar
að láta einskis ófreistað til þess
að komast í fremstu röö á ný.
Þrír ekki með
vegna leikbanna
Þrír enskir landsliðsmenn verða
íjarri góðu gamni þegar Englend-
ingar mæta heimsmeisturum
Þjóðverja í vináttuleik á Wem-
bley þar sem þeir hafa verið
dæmdir í leikbann í deildakeppn-
inni. Reglur enska knattspyrnu-
sambandsins segja að þeir megi
ekki leika með landsMðinu á með-
an. Þetta erú Stuart Pearce frá
Nottingham Forest, Steve McMa-
hon frá Liverpool og Nigel Mart-
yn, markvörður Crystal Palace.
Köln rak þjálfarann
Erich Rutemöller var í gær vikið
úr starfi sínu sem þjálfara þýska
knattspymuMðsins Kölnar. Hann
var annar þjálfarinn á tveimur
dögum sem rekinn var frá liöi í
úrvalsdeildinni, hinn var Josef
Hickersberger sem missti starfið
hjá Dusseldorf. Köln gerði jafn-
tefM í fimm fyrstu leikjum sínum
í deMdinni en tapaði síðan, 4-0,
fyrir Nurnberg í sjöttu umferð-
inni í fyrrakvöld. Hinn gamal-
kunni Udo Lattek tekur við liðinu
en hann hefur starfað sem tækni-
legur ráðgjafi hjá félaginu.