Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Page 8
8
i
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991.
Útlönd______________________________e
Börnin vaka bara og gráta
„Megi guö forða ykkur frá því sem
viö höfum mátt þola. Börnin hvorki
borða né sofa lengur. Þau bara
gráta,“ sagöi kona sem ílúði frá
ferðamannabænum Dubrovnik við
Adríahaf á laugardagskvöld.
Júgóslavneski sambandsherinn,
sem er undir stjórn Serba, gerði
harðar árásir á borgir og bæi um
alla Króatíu í gær, aðeins tveimur
dögum áður en úrslitafrestur Evr-
ópubandalagsins um lok bardaga í
lýðveldinu rennur út. Ef bardögum
lýkur ekki fyrir þann tíma verður
viðskiptaþvingunum beitt.
Að minnsta kosti tuttugu og sex
manns létu lífið í bardögunum um
helgina. Herinn beitti flugskeytum,
stórskotaliði og sprengjuvörpum í
árásum sínum á skotmörk um allt
lýðveldið og flugherinn gerði síend-
urteknar loftárásir.
Eitthvað dró úr árásum á úthverfi
Dubrovnik en mikil spenna ríkti
engu að síöur meðal íbúanna fimm-
tíu þúsund sem komast hvergi. Her-
inn var í eins kílómetra fjarlægö frá
þessari sögufrægu borg og fallbyssu-
bátar sjóhersins biðu átekta undan
ströndinni.
Antonis Samaras, utanríkisráð-
herra Grikklands, hitti Milosevic
Serbíuforseta að máli í Belgrad og
sögðu stjórnarerindrekar að það
kynni að vera lokatilraun Evrópu-
bandalagsins til aö telja Serba á að
samþykkja áætlun bandalagsins um
sundurlimun Júgóslavíu í núverandi
mynd.
Serbía er eina lýðveldið sem hefur
hafnað tillögum um að gera Júgó-
slavíu að laustengdu bandalagi sex
sjálfstæðra lýðvelda. Serbía á yfir
höfði sér viðskiptaþvinganir ef ekki
verður fallist á þessa tillögu EB í við-
ræðum í Haag á þriðjudag.
Nokkrir stjórnarerindrekar töldu
að Serbar væru reiöubúnir að fallast
á tillögur EB en Tanjug-fréttastofan
ítrekaði að þeir mundu ekki gefa sig.
Reuter
hem
Hryðjuverk Serba
m í Króatíu
Serbar hafa markvisst unnið að
því að vinna sem mest tjón á
menningarverðmætum í Króatíu,
einkum í Varazdin, Vukovar, Sib-
nik og nú síðast á virkisborginni
Dubrovnik við Adríahaf.
0 100 m.
T
Dubrovnik
Þetta forna borgríki, sem stóðst
innrásir Húna, Tyrkja og síðast
innrásarherja Napoleons, hefur leg-
ið undir þungri stórskotahríð sam-
bandshersins sl. vikur og þegar loga
eldar víða í borginni. Þegar sprengju-
regnið var sem þéttast í sl. viku
skrifaði biskup borgarinnar Jóhann-<
esi páfa bréf og sagði m.a.: „Getið
þér ímyndað yðurað á þessari stundu fellur
sprengjuregnið allt umhverfis okkur.” Páfinn hefur
lýst stuðningi sínum við Króata og margar alþjóðastofnanir
hafa hvatt sambandsherinn til að þyrma borginni, en fram til þessa
hefur slíkt lítinn árangur borið. Á kortinu má sjá nokkrar sögufrægar bygg-
ingar sem beðið hafa óbætanlegt tjón.
1. Revelinvirkið. 2. Mincetaturninn. 3. Bænahús gyðinga. 4. Sponzahöllin.
5. Rupesafnið.
’®%o
BESTI TRYLLIR ÁRSINS
NBC TV
“llll!"!lii f 5 £
“THE BEST MYSTERY
MOVIEOFTHEYEAR
...Heartpounding, pulsating
suspense with elegance
and electricity.”
- David Sheehan. KNBC-TV
UIOirGHIiG P í l [ B SE fl S
SllTTElED
Það er ekki unnt að greina frá
söguþræði þessarar einstöku
spennumyndar - svo óvæntur og
spennandi er hann.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnud innan 16 ára.
Filippus veiðir
alf riðaða f ugla
í Pakistan
Filippus, drottingarmaður í
Englandi, er í veiðiferð í Pakistan
og nýtur þar mikillar gestrisni.
Honum var í gær boðið aö skjóta
alfriðaöa fugla en slíkt fá aðeins
hinir betri þjóðhöfðingjar að gera
þar í landi.
Um er aö ræöa fugla af doður-
ætt en þeir eru í útrýmingar-
hættu. Einkum eru það olíufurst-
ar sem kaupa sér leyfi tii að veiða
þessa fugla. Náttúruverndar-
mönnum þykir hins vegar skjóta
skökku við að vernda fuglana tii
þess eins aö hagnast á veiðileyf-
unum.
Kviðdómur
skoðar sann-
anirgegnstúd-
entamorðingja
Kviðdómur í borginni Gaines-
ville á Flórída kemur saman á
morgun til að rannsaka ákærur
á hendur Iögregluþjónssyni þess
efnis að hann hafi myrt háskóla-
stúdínu, skorið af henni höfuðið
og sétt það upp á bókahillu svo
að aðrir gætu séö það.
Saksóknarar munu tára fram á
aö formleg ákæra verði gefin út
á hendur Danny Rolling, 37 ára
gömlum flækingi og fólskulegum
atvinnuglæpamanni, vegna
morðsins á Christu Hoyt og ijór-
um öðrum háskólastúdentum.
Þau voru myrt á hroðalegan hátt
í ágúst 1990.
Reuter
Sonur þorps-
rakarans
verður kirkju-
leiðtogi
Dimitros Bartholomew, rúmlega
fimmtugur sonur þorpsrakara, hefur
verið krýndur partríarki yfir grísku
rétttrúnaðarkirkjunni. Hann er þar
með orðinn æðsti trúarleiðtogi um
250 milljóna manna.
Patríarkinn situr í Istanbúl eöa
Býsans samkvæmt aldagamalli hefð.
Það er einnig hefð manna í hans
stöðu að raka sig ekki þótt óviðkom-
andi sem karl faðir hans hefði getað
unnið gott verk á andliti sonarins.
Reuter
Nýr patríarki grisku rétttrúnaðar-
kirkjunnar er sonur þorpsrakara
þótt þess sjái ekki merki á andliti
hans. Símamynd Reuter