Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991.
Þjónustan sem þig
vantar er líklega
á Gulu línunni
"****> guu
62-62-62
Hringdu fyrst í Gulu línuna áður en þú leitar annað
HRAÐNÁMSTÆKNI
í TUNGUMÁLANÁMI
ENSKA - ÞÝSKA
- FRANSKA - ÍTALSKA -
SPÆNSKA OG ÍSLENSKA
FYRIR ÚTLENDINGA
SKRÁNING STENDUR YFIR
sim
10004
MÁLASKÓLINN MÍMIR
GOODfYEAR
VETRARHJÓLBARÐAR
60 ÁR Á ÍSLANDI
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
m
HEKIA
FOSSHÁLSI 27
SÍMI 695560 674363
Utlönd
ísraelsstjórn reynir að koma í veg tyrir hátíðahöld Palestínumanna vegna friðarráðstefnunnar í Madríd. Flestir
Palestinumenn eru fylgjandi ráðstefnunni og hafa nokkrir verið teknir höndum vegna fagnaðarláta á götum úti.
Hér má sjá hermenn færa Palestínumann í fangelsi. Simamynd Reuter
Enginn árangur í Madríd þrátt fyrir næturfundi:
ísraelsmenn vilja
fá allt fyrir ekkert
- sagði al-AlIaf, formaður sendinefndar Syrlendinga
„Við eru ekki ánægðir með árang-
urinn. ísraelsmenn vilja fá allt fyrir
ekkert,“ sagði Muwaffaq al-AIlaf,
formaður sendinefndar Sýrlendinga,
á friðarráðstefnunni í Madríd. í gær-
kveldi sátu Sýrlendingar og ísraels-
menn fyrsta fund sinn í annarri lotu
viðræðnanna.
Mjög erfiðlega gekk að koma fund-
inum á þótt ísraelsmenn og Palest-
ínumenn hefðu áður rætt saman.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fór frá Madríd þegar
fundur Sýrlendinga og ísraelsmanna
var fastmælum bundinn. Hann
reyndi að miðla málum og fá menn
til að sættast á fjölmörg formsatriði
vegna fundarins.
Fundurinn í gærkveldi stóð í fimm
klukkustundir og varð árangurslaus.
„Við gátu ekki komið okkur saman
um nokkurn hlut,“ sagði Yossi Ben
Aharon, formaður ísraelsku sendi-
nefndarinnar, þegar hann kom af
fundi.
Nú er fimm fundardögum lokið á
friðarráðstefnunni en árangur hefur
enn enginn orðið fyrir utan þann að
deiluaðilar hafa talast við. Þeirra í
milh hafa þó einkum farið skammir
og svívirðingar.
Menn binda nokkrar vonir við að
tvíhliða viðræðurnar skili árangri
þótt ekki blási byrlega. Þrátt fyrir
endalausar deilur um hvað skuli
rætt og hvar þá hefur enn ekki slitn-
að upp úr viðræðunum. Það bendir
þó til að einhver vilji sé til að ræða
málin.
Ákveðiö er að halda fundunum
áfram og er næsta skrefið að semja
um hverjir skuli ræðast við, hvar og
um hvað. Baker er hins vegar farinn
heim til Bandaríkjanna og því kemur
það í hlut annarra að miðla málum.
ísraelsmenn og Palestínumenn
hafa ekki ræðst við áður í þau 43 ár
sem Ísraelsríki hefur verið th. Það
telst þó mikilvægur árangur og Ba-
ker lagði á það áherslu við brottför-
ina frá Madríd í nótt að þrátt fyrir
deilur um smáatriði mætti ekki horfa
fram hjá þeirri staðreynd að menn
töluðustþóvið. Reuter
Norðmenn ætla að veiða hrefnu í tilraunaskyni:
Hvalfangarar hlaða
byssurnar á ný
Norskir hvalfangarar geta nú farið
að hlaða byssurnar á nýjan leik.
Norsk stjómvöld ætla að hundsa
umhverfisverndarsamtök með því að
gefa til kynna að hrefnuveiðar í vís-
indaskyni geti hafist aftur á næsta
ári. Þá munu dyrnar einnig opnast
fyrir hvalveiðar í ábataskyni.
Þetta kom fram í norska blaðinu
Verdens Gang á laugardag.
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, mun hitta forráða-
menn sjávarútvegsráðuneytisins á
morgun, þriðjudag, til að taka af-
stöðu til hvalveiða á næsta ári. For-
sætisráðherrann synjaði beiðni vís-
indamanna í fyrra um veiðar í vís-
indaskyni.
„Það hggur í loftinu að hvalveiðar
í vísindaskyni verði leyfðar,“ segir
Bjöm Reppe, sérlegur ráðgjafi í sjáv-
arútvegsráðuneytinu.
Á sama tíma halda hann og Per
Alf Andersen ráðuneytisstjóri mögu-
leikunum opnum fyrir hrefnuveiðar
í ábataskyni.
Hrefnuveiðum Norðmanna í
ágóðaskyni var hætt árið 1985 eftir
að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann
við þeim þar sem haldið var fram að
stofninn væri í hættu. Þrýstingurinn
frá náttúruverndarsamtökum var
mikill, einkum frá Grænfriðungum.
Síðar hafa norskir vísindamenn lagt
fram tölur sem sanna að hrefnu-
stofninn, sem Norömenn veiða úr,
þolir veiði upp á um eitt þúsund dýr
á ári. Vísindanefnd Alþjóðahvalveið-
iráðsins hefur lýst stuðningi sínum
við þær niðurstöður.
Bandarfska tímaritið Forbes skrif-
aði í síðustu viku mjög gagnrýna
grein um Grænfriðunga og aðferðir
þeirra til að koma sér inn á gafl já
Alþjóðahvalveiðiráðinu. ntb