Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Side 30
42
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991.
Afmæli
Viktor Bjömsson
Viktor Björnsson, Boðahlein 29,
Garðabæ, er níutíu ára í dag.
Starfsferill
Viktor fæddist á Akranesi og ólst
þar upp. Hann starfaði sem sjómað-
ur á yngri árum en lengst sem véla-
maður og síðar sem verkstjóri hjá
frystihúsinu Heimaskaga á Akra-
nesi.
Viktor ílutti til Reykjavíkur 1959
og vann hjá Umbúðamiðstöðinni hf.
Hann var síöar í sóknarnefnd Akra-
neskirkju og safnaðarfulltrúi þar.
Einnig söng hann með Karlakórn-
um Svanir í mörg ár.
Fjölskylda
Viktor kvæntist 9.6.1923 Frið-
meyju Jónsdóttur, f. 14.9.1904, d.
15.5.1986, húsmóður. Hún var dóttir
Jóns Ólafssonar, f. 10.1.1876, d.
27.11.1908, frá Ólafsvöllum á Akra-
nesi, ogÁgústu Hákonardóttur, f.
1.8.1880, d. 1.9.1963, húsmóður..
Börn þeirra Viktors og Friðmeyjar
eru: Jóna Ágústa, f. 8.6.1924, hús-
móðir, gift Olafi J. Elíassyni, neta-
gerðarmanni í Reykjavík, og eiga
þau fjögur börn; Björn, f. 27.6.1925,
d. 11.8.1990, húsasmiður á Akra-
nesi, var kvæntur Sigríði Péturs-
dóttur og eignuðust þau fjögur börn;
Þóra, f. 30.4.1929, húsmóðir, gift
Úlfari Kristmundssyni, kennara í
Reykjavík, og eiga þau tvö börn;
Alfreð, f. 10.9.1932, húsasmiður á
Akranesi, kvæntur Erlu Karlsdótt-
ur, og eiga þau fjögur börn; og Lilja,
f. 23.5.1936, gift Guðmundi Einars-
syni, verkfræðingi í Garðabæ, og
eigaþau eittbarn.
Alsystkin Viktors, sammæðra,
eru: Olafur, f. 6.7.1895, d. 15.5.1959,
fyrrum ritstjóri á Akranesi, var
kvæntur Maríu Ásu Ólafsdóttur
Finsen og eignuðust þau tvö börn
og áttu eitt fósturbarn; og Oddur, f.
7.11.1898, d. 14.12.1972, fyrrum skip-
stjóri og afgreiðslumaður í Reykja-
vík, var kvæntur Sigríði K. Hall-
dórsdóttur.
Hálfsystkini Viktors, af fyrra
hjónabandi Katrínar og Ólafs
Bjarnasonar (1851-1887) frá Kjar-
ansstöðum eru: Bjarni, f. 28.7.1878,
d. 8.1.1880; og Oddur, f. 9.9.1879, d.
4.5.1905; Þóra, f. 12.10.1882, d. 14.7.
1902; Bjarni, f. 9.3.1884, d. 19.2.1939,
skipstjóri og útgerðarmaður á Akra-
nesi, var kvæntur Elínu Ásmunds-
dóttur frá Háteigi og eignuðust þau
eitt barn; Oddgeir, f. 10.6.1885, d.
14.12.1935, b., kvæntur Önnu
Margréti Nikulásdóttur og eignuð-
ust þau þrjú börn; og Jón, f. 25.8.
1886, d. 14.12.1935, skipstjóri, var
kvæntur Kristínu Ásbjörnsdóttur
og eignuðust þau þrjú börn.
Einnig ólu foreldrar Viktors upp
systurson Bjöms, Þjóðleif Gunn-
laugsson, f. 2.10.1896, d. 16.8.1972,
rafstvstjóra á Akranesi, var kvænt-
ur Guðrúnu J. Bjarnadóttur og eign-
uðust þau þrjú börn.
Foreldrar Viktors voru Björn
Hannesson, f. 6.4.1872, d. 12.7.1958,
formaður og útgerðarmaður frá
Vík, Innri-Akraneshreppi, og Katrín
Oddsdóttir, f. 4.4.1859 á Hrafnseyri
Viktor Björnsson.
við Arnarfjörð, d. 25.4.1937, hús-
móðir.
Björn var sonur Hannesar Ólafs-
sonar, b. í Vík, og Höllu Björnsdótt-
ur húsmóður.
Katrín var dóttir Odds Jónssonar,
prests á Hrafnseyri, og Þóru Jóns-
dóttur, hreppstjóra á Kópsvatni,
Einarssonar.
Viktor veröur að heiman á afmæl-
isdaginn.
Til hamingju með
afmælið 4. nóvember
80 ára
Pétur Sigurbjörnsson,
Barónsstig 23, Reykjavík.
Helgi Hallgrímsson,
Hvassaleiti 56, Reykjavík.
75 ára
Erlendur Suæbjörnsson,
Byggðavegi 138a, Akureyri.
Kristín V. Kristinsdóttir,
Tjarnargötu 40, Keílavík.
Valgerður Einarsdóttir,
Bekansstöðum, Skilmannahreppi.
60 ára__________________
Kristín Ólafsdóttir,
Háaleitisbraut 73, Reykjavík.
50 ára
Sigurður Ingvarsson,
Sunnubraut 8, Garði.
Hildur Hilmarsdóttir,
Óðinsgötu 14a, Reykjavik.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Jörundarholti 202, Akranesi.
Guðrún Einarsdóttir,
Snjóholti, Eiðahreppi.
Auðbjörg Díana Árnadóttir,
Vogatungu 20, Kópavogi.
Björgvin Kjartansson,
Mánastíg4, Hafnarfirði,
40ára
Bjarni Júlíus Valtýsson,
Sólhlíð 3, Vestmannaeyjum.
ÞórðurOddsson,
Geithömrum 5, Reykjavik.
Patricia Ann Heggie,
Hlíðarvegi 12, Eyrarsveit.
Guðmundur H. Guðnason,
Barónsstíg 51, Reykjavík.
Ólöf Kristj ánsdóttir,
Logafold 98, Reykjavík.
Guðmundur HaukurSigurðsson,
Kirkjuvegi 10, Hvammstanga-
hreppi.
Jóhanna Sigrún Thorarensen,
Gjögri2, Árneshreppi.
Gestur Már Þórarinsson,
Logafold57, Reykjavík.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta, á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum
mánudaginn 11. nóvember 1991 á neðangreindum tíma:
Strandgata 29, Eskifirði, þingl. eig. Trausti R. Guðvarðarson, kl. 10.30.
Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimta Austurlands og Björn Jónsson hdl.
Strandgata 9a, Eskifirði, þingl. eig. Jónas Helgi Helgason, kl. 11.00. Upp-
boðsbeiðandi er Húsnæðisstofnun ríkisins.
100 ára:
Guðný Pétursdóttir
Guðný Pétursdóttir húsmóðir,
Dvalarheimilinu Hulduhlíð, Eski-
firði, er eitt hundrað ára í dag.
Starfsferill
Guðný fæddist að Þuríöarstöðum,
Eiðaþinghá, S-Múlasýslu, en ólst
upp aö Borgum á Eskiflrði og að
Högnastöðum í Helgustaðahreppi.
Að loknu barnaskólanámi lærði
Guöný karlmannafatasaum í
Reykjavík og stundaði þá iðn á Eski-
firði ásamt heimilisstörfum en hún
hefur búið þar alla tíð.
Fjölskylda
Guðný giftist á sumardaginn
fyrsta 1912 Guðna Jónssyni, f. 26.7.
1891 á Eiríksstöðum í Fossárdal, d.
29.12.1974, trésmíðameistara á Eski-
firði. Hann var sonur Jóns Gíslason-
ar, b. Eiríksstöðum í Fossárdal á
Beruíjarðarströnd og síðar á Sjólyst
á Eskifirði, og Guðnýjar Guðnadótt-
urhúsmóður.
Guðný og Guðni eignuðust fiögur
börn. Þau eru: Hjalti, f. 9.7.1912,
húsgagnasmiður á Eskifirði og
kirkjuorganisti þar um árabil, nú
látinn; Vilberg, f. 4.12.1924, ljós-
myndari á Eskifirði; Guðni Sigþór,
f. 8.11.1926, hljóðfæraleikari í
Reykjavík; og Steinunn, f. 30.8.1930,
húsmóðir á Egilsstöðum.
Barnabörn þeirra eru átta talsins
og barnabarnabörnin 22, eitt látið.
Systkini Guðnýjar eru bæði látin.
Þau hétu Árni og Jarðþrúður.
Foreldrar Guðnýjar voru Pétur
Sigurðsson, f. á Tunguhaga á Völl-
um í Fljótsdalshéraði, og Anna Ein-
arsdóttir, f. á Borg í Skriðdal.
Guðný Pétursdóttir.
Vagn Kristjánsson
Vagn Kristjánsson.
Vagn Kristjánsson, Fellsmúla 14,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Fjölskylda
Vagn er kvæntur Svönu Björns-
dóttur, f. 8.3.1923, húsmóður.
Þau eiga sex börn: Kristján, f. 28.5.
1946, kvæntan Hólmfríði Ingvars-
dóttur og eiga þau fiögur böm;
Björn, f. 3.11.1949; Stefán, f. 11.11.
1951, kvæntur Guðveigu Búadóttur
og eiga þau fiögur börn; Hreinn, f.
22.6.1953, kvæntur Guðrúnu Sverr-
isdóttur og eiga þau fiögur börn;
Birgir, f. 21.11.1959, kvæntur Krist-
ínu Kristinsdóttur og eiga þau tvö
börn; og Gunnar, f. 17.2.1963,
kvæntur Elísabetu Sigurbjörnsdótt-
ur og eiga þau tvö börn.
Þau hjónin taka á móti gestum kl.
20 á afmælisdaginn í Félagsheimili
Skagfirðinga, Síðumúla35.
BÆJARFÓGETINN Á ESKIFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN í SUÐUR-MÚLÆSÝSLU
Menning
TRYGGINGASTOFNUN
Bensínstyrkur -
Breytt fyrirkomulag á greiðslum
Framvegis verður bensínstyrkur borgaður út mánað-
arlega, í fyrsta sinn 3. desember fyrir desembermán-
uð.
Útborgun í nóvember er fyrir mánuðina október og
nóvember (samtals kr. 8.100).
Útborgun í ágúst var fyrir mánuðina júlí, ágúst og
september.
Upphæð bensínstyrks er nú kr. 4.050 á mánuði.
Tryggingastofnun ríkisins
The Pogues - The Best of The Pogues:
Óvæntur kveðjusöngur
Þær fregnir berast nú rétt í þann mund sem The
Pogues senda frá sér plötu með safni af þvi besta sem
hljómsveitin hefur látið frá sér fara gegnum tíðina að
forsöngvari og forsprakki sveitarinnar, Shane
MacGowan, sé hættur vegna ótæpilegrar neyslu á gör-
óttum drykkjum. Þannig verður þessi safnplata
skyndilega kveðjuplata MacGowans og undirstrikar
sem slík að Pogues verður ekki sama hljómsveitin án
hans.
Shane MacGowan hefur nefnilega ekki einungis ver-
ið forsöngvari og andlit sveitarinnar út á við heldur
hefur hann samið obbann af lögum og textum hljóm-
sveitarinnar. Mikilvægi hans fyrir Pogues er best lýst
með því að á þessari safnplötu á hann hvorki fleiri
né færri en tíu lög af fiórtán. Og þegar það hefur nú
verið upplýst að sæti MacGowans í Pogues taki gamli
Clash-söngvarinn, Joe Strummer, er ljóst að hljóm-
sveitin er liðin undir lok sem slík en ný Pogues tekin
Hljómplötur
Sigurður Þór Salvarsson
til starfa. Og án þess að neitt sé hallað á ágæti Joe
Strummer fer hann ekki í fótin hans Shane MacGowan
frekar er nokkur annar.
Hvað um það þá gefst sem sé gott tækifæri hér á að
líta yfir glæstan feril Pogues og Shane MacGowan.
Hér er að finna mörg dæmi um fiölhæfni og fijóan
hug þess síðarnefnda, lög eins og Fairytale of New
York, Sally McLennane, A Pair of Brown Eyes, A
Rainy Night in Soho og síðast en ekki síst lag með því
táknræna nafni sem varð MacGowan fiötur um fót,
Streams of Whiskey.