Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Síða 9
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991. 9 hókuspókusí Til stendur að opna skóla fyrir væntanlega galdramenn í borg- inni Napólí á Ítalíu til að bjálpa þeim að láta gott af sér leiða. Salvatore Mascali,-forseti dul- vísinda- og stjörnuspekiakadem- íunnar í borginni, sagði í gær að námstiminn yröi sex mánuðir og lyki með prófi. „Mig hefur alltaf langað til aö stofna skóla til að berjast gegn þeim sem reyna að svindla á fólki með því að segja að eitthvað séu töfrar sem er það ekki,“ sagði hann. Á Ítalíu starfa um 18 þúsund töframenn og huglæknar og sam- anlagðar árstekjur þeirra eru um 60 milljarðar króna. VatnaskrímsEi meðkindarhaus íSíberíu íbúar í afskekktu þorpí í Síber- íu segja aö risastór slanga með kindarhaus syndi um á vatninu þeirra. „Tugir manna hafa séð skrímsli þetta, sem er svert eins og trjábol- ur og sex eða sjö metra langt. Einum þeirra tókst meira að segja að taka af því mynd. Það syndir um með reist höfuð,“ sagði í fréttaskeyti frá sovésku Tass- fréttastofunni í gær. Tass sagði að fundist hefðu spor eftir dýrið í grasinu við vatnið og væru þau eins og eftir meiða á stórum sleða. Fréttastofan líkti Síberíuskrímslinu við Nessie sem býr í Loch Ness á Skotlandi og snjómanninn hræðilega í Hima- lajaíjöllum. Flutningartil Grænlands boðnirút Lars Emil Johansen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, telur að hægt sé að minnka kostn- aðinn við fragtflutninga til Græn- lands um helming, úr 500 milljón- um danskra króna í 250 milljónir. Þess vegna verða flutningamir þegar boðnir út til áhugasamra skipafélaga, eins og t.d. danska skipafélagsins J. Lauritzen, skipadeildar Grænlandsverslun- ar og Eimskips. Lars Emil Johansen lagði á það áherslu i viðtali við útvarpið á Grænlandi að markmiðið með útboðinu væri að taka upp ílutn- inga með gámum sem á að gera þá ódýrari. Þá sagði hann aö þessi endurskipulagning ætti að ganga í gildi svo fljótt sem auðið væri. „Við borgúm tíu milljón krónur of mikið i flutninga i hverjum mánuði sem líður og við höfunm ekki ráð á því,“ sagði landstjóm- arformaðurinn. Síbrotamaður í steininum yfirjóliit Það veröur ekkert öl næstu 40 dagana fyrir Bror Uno Blom, sænskan síbrotamann, sem á dögunum var var dæmdur í 51. skipti fyrir að brjóta enn einu sinni ársgaraalt landvistarbann í Danmörku. Blom gefst því ekki færi á að gæða sér á öllum þeim guðaveigum sem dönsk brugghús senda frá sér um jólaleytið. Svíanum var vísaö úr landi á mánudag eftir að hann hafói haldið upp á 50. dóra sínn en liann sneri strax tii baka daginn eftir. r>ómarinn tók því enga áhættu og lokaði hann inni í Vesturfang- elsinu þar sem Biom á orðiö sinn oigin klefa. .... - ■ Útlönd Króatar sakaðir um morð á 41 bami 1 þorpinu Borovo Naselje nærri Vukovar: Skáru börnin á háls í kjallara skóla þeiira - Króatar segja að Serbar hafi myrt 80 menn eftir að bardögum lauk 1 Vukovar Sjónarvottar segja að liðsmenn Króata hafi myrt 41 barn í þorpinu Borovo Naselje, nærri Vukovar, rétt áður en þeir flúðu staðinn. Lík þam- anna fundust í kjallara þorpsskólans og höfðu þau verið skorin á háls. Þau voru á aldrinum flmm til sjö ára, af serbneskum ættum. Bæði hermenn sambandshersins og óháðir fréttamenn hafa sagt þessa sömu sögu. Eftir því sem best er vit- að voru morðin framin um síðustu helgi. Ljósmyndari Reuters kom á staðinn en hann fékk ekki að ljós- mynda líkin. Fréttir hafa einnig bor- ist af morðum á Króötum í Vukovar en Serbar náöu bænum á sitt vald í vikunni eftir langvarandi bardaga. Sagt er að í það minnsta 80 króatar hafi verið drepnir í Vukovar eftir að bardögum lauk þar. Króatar segja að meðal hinna myrtu séu menn sem gáfu sig á vald Serbum og sambands- hernum. í Borovo Naselje hafa fleiri voða- verk verið framin. Þar á meðal gekk ljósmyndari Reuters fram á lík af fólki í serbneskri fjölskyldu. Allir höfðu verið myrtir á götu úti, sjáan- lega skotnir í höfuðið. Sambandsher- menn sögöu honum að þetta væri verk króatískra varðliða. Yfirvöld í Króatíu hafa neitað öll- um ásökunum um aö liðsmenn þeirra hafi framið umrædd morð. Þeir segja að um áróður Serbá sé að ræða og hafa farið fram á að Evrópu- bandalagið og Rauði krossinn annist rannsókn á málinu. Talsmaður Kró- ata segir að engar óháðar upplýs- ingar séu til um morðin. Allt sem fréttist komi frá hermönnum sam- Ljósmyndari Reuters gekk fram á lík sex manna úr serbneskri fjölskyldu I þorpinu Borovo Naselje. Hann sá þar bandshersins og Serbum. Reuter einniglík41 barns en fékk ekki að taka myndir af þeim. Símamynd Reuter Mannræningjar falla frá skilyrðum sínum: Cicippio fær frelsið næstur Vonir manna um að fleiri vestræn- ir gíslar í Líbanon verði látnir lausir á næstunni glæddust þegar Hiz- bollah-samtökin féllu frá helsta skil- yrði sínu fyrir lausn þeirra. Samtök- in sögðu í gær að þau tengdu lausn gíslanna við lausn um 300 araba sem eru í haldi ísraelsmanna. Að minnsta kosti flmm vestrænir gíslar eru enn á valdi mannræningja. Sjeik Abbas Musawi, leiðtogi Hiz- boflah, sagði að hægt yrði að ljúka gísladeilunni á næstu dögum eða vik- um. * íranska fréttastofan IRNA sagði að Bandaríkjamaðurinn Joseph Cicippio, sem var tekinn í gíslingu árið 1986, mundi losna næstur. Reuter Fékk eyðni við glasafrjóvgun Kanadíska ríkið hefur ákveöiö komma. að bæta hjúkrunarkonu að nafni Neuzen reyndi35sinnumáárun- Ter Neuzen með einni milljón um 1981 til 1985 að veröa þunguð kanadískra dollara eyðnismit sem með glasafrjóvgun. Það tókst aldrei hún varð fyrir við glasafrjóvgun. en í síðustu tihaunimú fékk hún Hæstiréttur landsins korast að eyðni. Gerald Kom aðstoðaði hana þeirri niðurstöðu að læknirinn í öll skiptin. Ekki er vitað hverrúg Gerald Korn hefói gerst sekur um eyðnisnútaö sæði komst í sæðis- vítaverða vanrækslu þegar hann bankasjúkrahússinsþvisásemgaf notaði smitað sæði við að frjóvga þaðerhorfumsporlaust. Reuter / tilefni 15 ára afmælis verslana okkar veitum við 15% staðgreiðslu afslátt af öllum vörum dagana 21., 22. og 23. nóv. \ falke \ ÖfiTUrtB_________Bókabúð nv I VI XwSportvöruverslun Háaleitisbraut 68 - Austurveri, sími 68-42-40

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.