Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991.
UTSALA
vegna breytinga
Ýmsar gerðir
dagana 21. - 23. nóv.'
G. Amundason H/F
Bíldshöfða 18-sími 687820
A krakka: Peysur á 1990 kr„ skyrtur á 1490 kr„ buxur á 1590 kr.
Nýkomið fyrir herra: Frakkar frá 8.900 kr„ jakkaföt frá 15.800 kr„ jakkar frá
4.790 kr„ buxur frá 3.400 kr„ skyrtur frá 2.400 kr.
Nýkomið fyrir dömur: Peysur frá 1.790 kr„ þykkir bómullarbolir frá 2.190 kr„
skyrtur frá 2.990 kr„ samfellur frá 1290 kr.
Úrval af skóm, búsáhöldum og skartgripum á góðu verði.
Sendum í póstkröfu.
Kostaboð við Hlemm, Laugavegi 116, símí 629030
Friðarfór til að stöðva bardaga
milli Armena og Azera í suðurhluta
Sovétríkjanna snerist upp í harmleik
í gær þegar þyrla hrapaði í þoku með
þeim afleiðingum að tuttugu manns
fórust.
Tass-fréttastofan skýrði frá því að
meðal hinna látnu hefðu verið hátt-
settir émbættismenn Sovétlýðveld-
unum Azerbajdzhan og Kazakhstan,
tveir hershöfðingjar og rússneskir
þingmenn.
Tass sagöi að þyrlan hefði verið
send til fjallahéraðsins Nagomo-
Karabakh sem hart hefur verið deilt
um. Á heimleiðinni virðist sem flug-
maður þyrlunnar hafi villst af leið í
svartaþoku. Þýrlan flaug beint á fjall
og sprakk í loft upp.
„Viö sjáum ekki handa skil. Skýja-
Útlönd
ar spilla ungviðinu
Magadansmeyjar og aðrar fá-
klæddar konur, sem skemmta Egypt-
um, eru búnar að eyðileggja allt sið-
ferðisþrek ungdómsins þar í landi,
að því er prófessor í íslömskum fræð-
um sagði í viðtali við al-Nour, blað
heittrúarmanna.
Vikuritið hneykslaðist á því í gær
að í landinu væru um 20 þúsund
dansmeyjar sem skemmtu á nætur-
klúbbum án tilskilinna leyfa frá yfir-
völdum.
„Þessar dansmeyjar eiga í stríði við
guð og spámann hans og sá spillingu
um allt,“ sagði prófessor Mohammed
Abdel-Moneim.
Reuter
„Ríki“ Færeyinga svæft í nef nd
líkingu við það íslenska liggi fyrir
Lögþinginu. Meirihluti er fyrir mál-
inu á þingi en samt virðist það ætla
að daga uppi.
Frumvarpið er nú í nefnd og hefur
verið þar alltof lengi að mati þeirra
sem hlynntir eru breytingum á fær-
eysku áfengislöggjöfinni. Nú verða
menn að panta allt áfengi frá Dan-
mörku og fá ekkert nema hafa áður
greitt skattana.
Formaður þingnefndarinnar, sem
fjallar um málið, segir að það verði
senn tilbúið til afgreiðslu. Það hefur
hann sagt oft en samt gerist ekkert.
Mikil andstaða er við stofnun „rík-
is“ í Færeyjum og vilja t.d. þingmenn
Sambandsflokksins að haldin verði
þjóðaratkvæðagreiðsla til að kanna
hug almennings. Talið er víst að hug-
myndin um „ríkið" yrði felld en sam-
bandsflokksmenn hafa lengi verið á
móti breytingum á áfengislöggjöf-
inni.
Stjórnarþingmennirnir í Jafnaðar-
flokknum og Fólkaflokknum eru á
móti þjóðaratkvæðagreiðslu og vilja
að lögþingið samþykki frumvarpið.
Jógvan Sundsten, formaður Fólka-
flokksins, hefur mjög látið málið til
sín taka en það dugar ekki til að
vekja „ríkið“ af svefni í þingnefnd-
inni.
Tuttugu fórust 1 friðarfór til Nagomo-Karabakh:
Auglýsing
um kosningarétt íslenskra ríkis-
borgara sem búsettir eru erlendis
Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa Islendingar sem flust hafa af landi
brott og sest að erlendis kosningarétt hér í átta ár frá þvi þeir fluttu lögheimili sitt talið
frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Eftir það falla menn sjálfkrafa af kjörskrá nema
sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarétti. Einungis þeir sem einhvern tíma
hafa átt lögheimili á islandi geta haft kosningarétt hér. Kosningaréttur fellur niður ef
Islendingur gerist ríkisborgari í öðru ríki. Kosningarétturinn miðast við 18 ára aldur.
Reglur þessar gilda með sama hætti um kjör forseta islands.
Þeir sem búsettir hafa verið erlendis skemur en átta ár, talið frá 1. desember næstum
fyrir kjördag, munu verða teknir á kjörskrá án umsóknar. Þurfa því þeir sem flust hafa
af landinu eftir 1. desember 1983 ekki að sækja um skráningu á kjörskrá miðaða við
1. desember 1991.
Þeir sem búsettir hafa verið erlendis lengur en átta ár (þ.e. fluttu af landi brott fyrir 1.
desember 1983) þurfa að sækja um það sérstaklega að verða teknir á kjörskrá. Um-
sókn skal senda Hagstofo islands á sérstöku eyðublaði. Sé umsókn fullnægjandi skrá-
ir Hagstofa Islands umsækjanda á kjörskrárstofn. Slík skráning gildir fjögur ár og þarf
þá að endurnýja hana með nýrri umsókn. Eyðublöð fyrir slíkar umsóknir fást í sendiráð-
um Islands erlendis, sendiræðisskrifstofum, skrifstofum kjörræðismanna og hjá fasta-
nefndum við alþjóðastofnanir. Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu Hagstofunn-
ar.
Umsækjandi verður sjálfur að undirrita umsókn sína.
Umsókn þarf að hafa borist til Hagstofu islands fyrir 1. desember nk. til þess að umsækj-
andi verði tekinn á kjörskrá fyrir næstu kosningar.
Islendingar sem búsettir eru erlendis verða skráðir á kjörskrá þar sem þeir seinast áttu
lögheimili samkvæmt þjóðskrá.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 19. nóvember 1991.
Fifi Abdou er fræg magadansmær sem skemmtir á næturklúbbum í Kaíró, höfuðborg Egyptalands. Nú hefur hún
verið sökuð um það, ásamt starfsystrum sínum, að spilla siðferðisþreki egypskrar æsku. Símamynd Reuter
Fáklæddar dansmeyj-
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum:
Allar líkur eru á að ekki verði opn-
uð áfengisútsala i Færeyjum í bráð
þótt frumvarp um stofnun „ríkis“ í
Þyrla f laug á
fjall og sprakk
þykknið er rnikið," hafði sovéska
sjónvarpið eftir áhöfn þyrlunnar
stuttu áður en hún hrapaði.
Meira en átta hundruð manns hafa
látið lífið í Nagomo-Karabakh á und-
anfórnum þremur árum. Héraðið er
að mestu byggt Armenum en hefur
verið undir stjórn Azerbajdzhan frá
1923.
Jeltsín og Nursultan Nazarbajev,
forseti Kazakhstan, höfðu milligöngu
um friðarsáttmála sem var undirrit-
aður í september, þó svo að vígaferli
hafi haldið áfram í héraðinu.
Interfax-fréttastofan sagði að á
undanfórnum dögum hefði á ný
komiö til átaka milli þjóðarbrotanna
og að Armenar hefðu aftur náð þorp-
um sem þeir höfðu verið reknir frá.
Reuter