Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991. 33 Afrnæli Ásgeir Ólafsson Einarsson Ásgeir Ólafsson Einarsson dýra- læknir, Sólvallagötu 23, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Ásgeir fæddist í Reykjavík og ólst upp í Skuggahverfinu. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1927, kandi- datsprófi í dýralækningum frá dýra- læknaháskólanum í Hannover í Þýskalandi 1934 og dvaldi viö nám íBretlandil967. Ásgeir var skipaöur héraðsdýra- læknir í Austfirðingafjórðungsum- dæmi 1934-39, starfaði við dýra- lækningar í Reykjavík 1940-50, skip- aður héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarsýslu 1950 en varð fyrir alvarlegu slysi í starfi 1965 og fékk lausn 1968. Hann var eftir það hér- aðsdýralæknir í Vestur-Skaftafells- sýsluumdæmi og var síðan skipaður heilbrigðisráðunautur við HeO- brigðiseftirht ríkisins 1970 en lét af störfum fyrir aldurs sakir 1.9.1976. Hann hefur nú starfaö í nokkur ár sem bókavörður við bókasafn Elh- og hjúkrunarheimihsins Grundar. Ásgeir hefur frá unga aldri verið áhugamaður um frjálsar íþróttir og vann hann nokkur afrek á því sviði. Hann var kosinn í stjórn Glímufé- lagsins Ármanns 1927, sat í íþrótta- ráði Austurlands 1935-39, í stjórn Dýralæknafélags íslands og í stjórn Sambands dýraverndunarfélaga. Hann var sæmdur fálkaorðunni 1982. Fjölskylda Ásgeir kvæntist 12.8.1937, Kirst- ínu Láru Sigurbjömsdóttur, f. 28.3. 1913, húsmóöur og handavinnu- kennara. Hún er dóttir Sigurbjörns Ástvalds Gíslasonar, stærðfræði- kennara og prests, og konu hans, Guðrúnar Lárusdóttur, rithöfundar ogalþingismanns. Böm Ásgeirs og Lám eru Guðrún Lára, f. 14.11.1940, kennari við Laugabakkaskóla í Miðfirði, gift Ágústi Sigurðssyni, sóknarpresti að Prestbakka, og em börn þeirra Lár- us og María; Einar Þorsteinn, f. 17.6. 1942, arkitekt í Reykjavík, og eru börn hans Sif og Ríkharður; Sigrún Valgerður, f. 19.10.1944, deildar- stjóri í fjármálaráðuneytinu, búsett í Mosfehsbæ, gift Pétri Guðgeirs- syni, sakadómara í Reykjavík, og em böm þeirra Ásgeir, Kjartan og Gunnar; Þórdis, f. 16.11.1948, kenn- ari við Varmárskóla í Mosfellsbæ, gift Hirti Ingólfssyni framkvæmda- stjóra og eru börn þeirra Hjörtur, Láms og Guðrún; Áslaug Kirstín, f. 13.2.1952, kennari viö Varmár- skóla, gift Hahdóri Bjamasyni, dehdarstjóra hjá Úrvah-Útsýn, og eru börn þeirra Oddur, Lára og Anna. Alsystkini Ásgeirs: Gunnar, f. 26.3. 1909, bifreiðarstjóri í Reykjavík, kvæntur Pálu Kristjánsdóttur; Ás- gerður, f. 15.8.1911, húsmóðir í Kópavogi, ekkja eftir Ara Jóhannes- son; Loftur, f. 3.9.1916, d. 9.4.1982, loftskeytamaður á Akureyri og í Borgamesi, var kvæntur Ásthhdi Guðlaugsdóttur; Sigurbjörg, f. 24.6. 1919, húsmóðir í Reykjavík, gift Þor- steini Oddssyni; Þorsteinn Einars- son, f. 2.7.1922, d. 25.11.1975, þvotta- hússtjóri í Reykjavík, kvæntur Katrínu Hendriksdóttur. Hálfsystir Ásgeirs, sammæðra, er Lára Jóns- dóttir, f. 11.2.1904, húsmóðir í Reykjavík, ekkja eftir Sigurð Gríms- Asgeir Olafsson Einarsson. son. Foreldrar Ásgeirs: Einar Ólafsson, f. 1884, d. 1955, matsveinn ogverka- maður, og Þórstína Björg Gunnars- dóttir, f. 1882, d. 1950, húsmóðir. Ásgeir var að miklu leyti alinn upp hjá föðurbróður sínum, Sigurjóni Ólafssyni, og konu hans, Guðlaugu Sigurðardóttur. Ásgeir tekur á móti gestum laug- ardaginn 23.11. klukkan 15.00-18.00 í safnaðarheimih Lágafellssóknar, Þverholti 3, Mosfellsbæ. Helgi Hinrik Schiöth Helgi Hinrik Schiöth, fyrrv. lög- regluþjónn og bóndi, Þórunnarstræti 130, Ákureyri, er áttræður í dag. Starfsferill Helgi er fæddur á Akureyri og ólst þar upp og í Eyjafjarðarsveit. Hann dvaldi ennfremur í Kaliforníu í Bandaríkjunumárin 1929-32. Helgi lauk gagnfræðapróh frá Menntaskólanum á Akureyri og út- skrifaðist síðar sem búfræðingur frá bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal. Helgi var lögregluþjónn á Akureyri 1933-48, bóndi í Hólshúsum 1948-77 og verslunarmaður á Húsavík 1977-83. Helgi hefur verið búsettur á Akureyri undanfarin ár. Helgi var formaður Knattspymufé- lags Akureyrar (KA) í eitt ár. Fjölskylda Helgi kvæntist 9.4.1941 Sigríði Guðmundsdóttur Schiöth, f. 3.2. 1914, húsmóður, söngstjóra, tónlist- arkennara og organista. Foreldrar Sigríðar: Guðmundur Sæmunds- son, bóndi á Lómatjörn í S-Þingeyj- arsýslu, og Valgerður Jóhannes- dóttir. Börn Helga og Sigríðar: Reynir Helgi Schiöth, f. 25.10.1941, bóndi í Hólshúsum, maki Þuríður Jóna Einarsdóttir Thorlacius, þau eiga tvo syni, Einar Axel og Helga Hin- rik; Margrét Anna Schiöth, f. 7.4. 1945, húsmóðir og starfsm. á Bæjar- skrifstofu Húsavíkur, maki Árni Sigurðsson bifvélavirki, þau eiga þrjú börn, Árna Grétar, Sigurð og Elsu Þóru; Valgerður Guðrún Schi- öth, f. 30.8.1949, húsmóðir, maki Gunnar Jónasson, bóndi, Rifkels- stöðum, þau eiga högur börn, Þóri, Sigríði Helgu, Jónas og Axel Trausta. Systkini Helga: Oda Margréthe, f. 29.9.1900, d. 1980, hennar maður var Einar Celion, verkfræðingur, þau eignuðust einn son, Bengt Celion, erindreka hjá SAS, en á meðal barna hans er Crister Cehon, íþróttamað- ur; Aage Riddermann, f. 27.6.1902, d. 1969, lyfsali á Siglufirði, hann kvæntist Gudrun Julsö, f. 14.5.1903, d. 1942, þau eignuðust þrjú börn, Inger Margréti, Axel Jóhannes og Birgi Vagn, Aage kvæntist annarri konu sinni, Jóhönnu Sigfúsdóttur, látin, Aage kvæntist þriöja sinni, danskri frænku sinni, þau skildu, Aage kvæntist íjórðu konu sinni, Helgu Westfale, þau eignuðust þrjá syni, Alfred, Þóri og Helga Birgi; Kaj Hermann Scott, f. 2.9.1904, lát- inn, bakari í San Francisco í Banda- ríkjunum, hans kona var Thora, þau eignuðust eitt barn, Elsu Þóru, skrifstofustjóra í San Francisco; Elsa María, f. 23.12.1906, látin, fyrri maður hennar var Magnús Blöndal, látinn, forstjóri á Siglufirði, þau eignuöust tvö börn, Margréti Sig- ríði, búsetta í Bandaríkjunum, og Sveinbjöm Helga, hstmálara á Skagaströnd, seinni maður Elsu var Helgi Hinrik Schiöth. Láms Jónsson, látinn, læknir á Skagaströnd; Anna Eva Cathrine, f. 5.10.1909, d. 1981, hennar maður var Ágúst Kvaran, leikstjóri á Akur- eyri, þau eignuðust tvö börn, Axel Kvaran og Önnu Lilju Kvaran, full- trúa á Loftleiðahóteh. Foreldr.ar Helga: Axel Schiöth, f. 14.2.1870, d. 13.4.1959, bakarameist- ari á Akureyri, og Margréthe Ehse Friis, f. 31.7.1871, d. 20.6.1962, hús- móðir og stjórnandi Lystigarðsins á Akureyri. Ætt Axel var sonur Hinriks Schiöth bakara, en hann kom tíl Akureyrar 1868, og Önnu Caterinu Schiöth myndasmiðs. SystkiniAxels vom Almáen hún giftist Oddi Thóraren- sen lyfsala; Olga, kona Friðjóns Jenssonar læknis; Carl, kaupmaður á Akureyri; Anna, kona Klemensai- Jónssonar landritara. Af móður- frændum má nefna Hermann Friis en hann er búsettur i Kalifomíu. Helgi er að heiman á afmæhsdag- inn. Til hamingju meó afmælið 21. nóvember 85 ára Jónína Halldórsdóttir, MýrargötulS, Neskaupstað. 80 ára Una Margrét Bjarnadóttir, Tjarnargötu 7, Flateyri. Stefán Pálsson, Skipasundi25, Reykjavik. Hanntekurámóti gestum á afmæhs daginnisalLögre- glufélagsinsað Brautarholti30, Reykjavík, kl. 17-20. 60 ára 40ára Eyþór Guðmundsson, Stapasíðu 4, Akureyri. Valey Jónasdóttir, Hafnartúni 4, Siglufirði. Ragna Bjamadóttir, Stekkjarflöt 14, Garðabæ. 50 ára Hiédís Guðmundsdóttir, Barmahlíð 27, Reykjavik. Hreinn Júliusson, Hverfisgötu 7, Siglufirði. Stefán Friðgeirsson, Lundarbrekku2, Kópavogi. Haukur Gröndal, Selbrekku 26, Kópavogi. Jórunn Guðlaug Sigurðardóttir, Móholti3,ísafirði. Aðalbjörg Vagnsdóttir, Grundarstíg 5, Sauðárkróki. Björg Guðmundsdóttir, Laugabóh, Ytri-Torfustaðahreppi. Helgi Guðjón Jóhannesson, Hafraholti 26, ísafirði. Hafdís Berg Gísladóttir, ' Nestúni 6, Stykkishólmi. Ingvar Jóhann Kristjánsson, Eiöistorgi 17, Seltjarnarnesi. Unnur Sveinsdóttir, Smyrlahrauni 38, Hafnarfirði. Andlát Þorsteinn Ö. Stephensen Þorsteinn Ogmundsson Stephensen, leikari og fyrrv. leiklistarstjóri Rík- isútvarpsins, lést í Reykjavík, mið- vikudaginn 13.11. sl. Utför hans fór fram í gær. Starfsferill Þorsteinn fæddist að Hurðarbaki í Kjós 21.12.1904 en ólst upp að Hóla- brekku við Skeijafjörð. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1925, stundaði nám í læknadehd HÍ um skeið en hættí og sneri sér að leiklistamámi við Konunglega leikhúsið í Kaup- mannahöfn 1934-35. Þorsteinn tók mikinn þátt í skóla- leikritum MR á menntaskólaárun- um. Næstu árin lék hann nokkur hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Reykjavíkur-annál en stundaði annars þýðingar, skrifstofustörf og fleira. Eftir heimkomuna frá Danmörku varð Þorsteinn þulur, leikari og leikstjóri við Ríkisútvarpið. Þá sá hann tvisvar um bamatíma þess, flögur ár í senn. Hann hætti þular- í ’ Á :i\ f t í lll I.s I í U.í i í.Li i.11:c 1 starfinu 1946 og var eftir það leiklist- arstjóri Ríkisútvarpsins þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1975. Þorsteinn lék mikinn fjölda ólíkra hlutverka hjá Ríkisútvarpinu, Leik- félagi Reykjavíkur og nokkur hlut- verk sem gestur Þjóðleikhússins. Af fjölda hlutverka Þorsteins hjá Leikfélagi Reykjavíkur má nefna hlutverk hans í Browningþýðing- unni og síðar pressarann í Dúfna- veislunni en fyrir bæði þessi hlut- verk hlaut hann Silfurlampann. Hann var af Alþingi kjörinn í heið- urslaunaflokk hstamanna árið 1988. Fjölskylda Eftirlifandi kona Þorsteins er Dó- róthea Guðmundsdóttir Breiðfjörð, dóttir hjónanna Guðmundar J. Breiðfjörö og konu hans, Guðrúnar Bjamadóttur Breiðfjörð. Þorsteinn og Dóróthea hafa eign- ast fimm böm. Þau em: Guðrún, leikkona við Þjóðleikhúsið: Ingi- björg, kennari að Ljósafossi: Stefán og Kristján, sem báðir eru tónhstar- kennarar og hljóðfæraleikarar við Sinfóníuhljómsveit íslands, og Helga, leikkona hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Systkini Þorsteins: Hans, múrari í Neskaupstað: Sigríður, búsett í Reykjavík: Stefán, fyrrv. formaöur Prentarafélagsins: Guðrún, móðir Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB, og Einar, fyrrv. formaður Þróttar. Foreldrar Þorsteins vom Ög- mundur Hansson Stephensen og kona hans, Ingibjörg Þorsteinsdótt- ir. Ætt Ögmundur var sonur Hans Step- hensen, b. á Hurðarbaki í Kjós, bróður Sigríðar, ömmu Helga Hálf- danarsonar og langömmu Hannesar Péturssonar skálds. Hans var sonur Stefáns Stephensen, prests á Reyni- vöhum í Kjós, bróður Magnúsar, fóður Magnúsar landshöfðingja. Stefán á Reynivöhum var sonur Stefáns, amtmanns á Hvítárvöhum, Olafssonar, stiftamtmanns í Viðey, Stefánssonar, ættfööur Stephensen- ættarinnar. Móðir Hans var Guðrún, systir Þuríðar, langömmu Vigdísar for- seta. Guðrún var dóttir Þorvalds, prófasts og skálds í Holti, Böðvars- sonar, prests í Holtaþingum, Högna- sonar, prófasts á Breiðabólstað, Sig- urðssonar. Móðir Ögmundar var Guðrún Ögmundsdóttir, b. á Hlemmiskeiði á Skeiðum, Hansson- ar, bróður Jóns, langafa Vigdísar, móður Harðar Sigurgestssonar, for- stjóra Eimskips. Móðir Guðrúnar Ögmundsdóttur var Þórunn Stur- laugsdóttir, b. á Brjánsstöðum, Eg- ilssonar, og konu hans, Þorbjargar Bjömsdóttur, systur Knúts, langafa Tómasar Guðmundssonar skálds, Hannesar þjóðskjalavarðar og Jó- hönnu, ömmu Ævars Kvaran og Gísla Alfreðssonar, fyrrv. þjóðleik- hússtjóra. Ingibjörg, móðir Þorsteins, var dóttir Þorsteins, b. á Högnastöðum í Þverárhhð, bróöur Hjálms, alþing- Þorsteinn Ö. Stephensen. ismanns í Norðtungu, langafa Ey- jólfs Konráðs Jónssonar alþingis- manns og Ingibjargar, móður Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. Móö- ir Þorsteins var Ingibjörg, systir Sig- valda, afi Sigvalda Kaldalóns tón- skálds og Eggerts Stefánssonar söngvara. Annar bróðir Ingibjargar var Bjarni, afi Bjarna Þorsteinsson- ar tónskálds og langafi Gunnars í Þórshamri, föður Þorsteins, leikara, arkitekts og fyrrv. leikhússtjóra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.