Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1991, Blaðsíða 28
36
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991.
Meiming
Kvennatónlist
Á tónleikum í Norræna húsinu í gærkvöldi lék
hljómsveit frá Svíþjóð, Nordiaensemblen, tónlist eftir
kvenkyns tónskáld frá Norðurlöndum. Voru leikin
verk eftir Pauline Hall, Karin Rehnquist, Ruth Bakke,
Kaija Saariaho, Elfrida Andr ée og Karólínu Eiríksdótt-
ur.
Tónlistargagnrýnandi DV er alis ófróður um kvenna-
baráttu og ætti auðvitað ekki að hætta sér út á þann
hála ís að leggja þar orð í belg. Þó verður vart komist
hjá því að efast um skynsemi þess fyrir konur í tón-
skáldastétt að halda sér tónleika. í því virðist felast
yfirlýsing um að þeirra efni sé lakara en annað og
komist ekki að við venjulegar aðstæður, sem er bæði
rangt og villandi.
Verkefnavalið á þessum tónleikum var fjölbreytt og
gaf ágæta yfirsýn yfir tónlist á Norðurlöndum frá
miðbiki síðustu aldar fram á okkar daga. Tónleikarnir
hófust á verki Hall, Svítu fyrir blásarakvintett. Þetta
verk er samið í anda nýklassíkur og mátti heyra áhrif
frá Stravinsky meðal annarra. Þetta er mjög vel gert
verk og fallega hljómandi. Tröllasvíta eftir Bakke var
ef til vill ekki alveg eins jafnt að gæöum en þó vel
áheyrilegt. Þar mátti heyra áhrif frá Ravel og Bartok.
Dans fyrir einleikspíanó eftir Rehnqvist lýsti sam-
skiptum danskennara og nemanda ágætlega en var
heldur einhæft er á leið. Kaija Saariaho hefur getiö
sér gott orð fyrir tónsmíðar sínar á síðustu árum en
verk hennar, sem þarna var flutt, Canvas fyrir ein-
leiksflautu, olli nokkrum vonbrigðum og virtist ekki
sérlega hugmyndaríkt. Píanókvintett í e moll eftir
Andrée er saminn í anda Brahms með ívafi frá Ha-
ydn. Þetta er vel hljómandi verk og gefur ekki eftir
öðrum norrænum verkum í sama stíL Lokaverkið á
tónleikunum var Rapsódía í C eftir Karólínu Eiríks-
dóttur. Íþví var notast við alla meðlimi hljómsveitar-
innar en fram að þessu höfðu aðeins hlutar sveitarinn-
ar leikið hverju sinni. í verkinu ber mikiö á andstæð-
Nordia-kammersveitin lék verk eftir norræn kventón-
skáld.
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
um milli efnisþátta sem eru af ýmsu tagi og ná há-
marki er c dúr hljómur tekst á við hljóð sem nálgast
hávaða og mátti ekki á milli sjá hvor reyndist sterk-
ari. Þetta er ágætlega gert verk og fallega hljómandi.
Nordiaensemblen er skipuð 11 hljóðfæraleikurum
sem hafa starfað saman um nokkurt skeið. Leikur
þeirra var yfirleitt hreinn og skýr og samleikur vel
æfður og sannfærandi. Stundum hefði verið gaman
að fá aðeins meiri tilfmningahita í túlkunina en í það
heila tekið skilaði hljómsveitin sínu hlutverki mjög
vel. Áheyrendur á þessum tónleikum voru færri en
tilefni var til því þetta voru hinir skemmtilegustu tón-
leikar.
Andlát
Oddný Stella Óskarsdóttir, Hellis-
götu 5, Hafnarfirði, lést í St. Jósefssp-
ítala í Hafnarflrði miðvikudaginn 20.
nóvember.
María Eyjólfsdóttir, Hringbraut 39,
lést í Landspítalanum þriðjudaginn
19. nóvember.
Ragnheiður Sigurgísladóttir, Kirkju-
vegi 11, Keflavík, lést í Landspítalan-
um 20. nóvember sl.
Iðunn Kristinsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum
19. nóvembgr.
Hannes Rafn Jónsson, Frostafold 20,
lést í Landspítalanum 19. nóvember.
Jarðarfarir
Magnús Ingi Halldórsson, Brautar-
holti 12, ísafirði, er lést af slysfórum
14. nóvember, verður jarðsunginn
laugardaginn 23. nóvember kl. 14 frá
ísafjarðarkirkju.
Jónatan Björns Einarsson, andaðist
í Sjúkrahúsi Keflavíkur þann 18.
nóvember. Útförin fer fram í Ytri-
Njarðvíkurkirkju laugardaginn 23.
nóvember kl. 14.
Þorkell Skúlason húsasmíðameist-
ari, Hátúni 27, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fóstudaginn 22. nóvember kl. 15.
Björn Magnússon, ketil- og plötu-
smiður, Suðurgötu 18, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkur-
kirkju fóstudaginn 22. nóvember kl.
14.
Kristín Einarsdóttir, Krabbastíg la,
Akureyri, sem lést 12. nóvember,
veröur jarðsungin fóstudaginn 22.
nóvember kl. 13.30 frá Akureyrar-
kirkju.
Hrafnhildur Einarsdóttir, Hallkels-
staðahlíð, Hnappadal, verður jarð-
sungin frá Kolbeinsstaðakirkju laug-
ardaginn 23. nóvember kl. 14. Ferð
verður frá BSÍ kl. 11.
Sæmundur í Loga vélsmíðameistari,
Aðalstræti 115, Patreksflrði, verður
jarðsunginn frá Patreksfjarðar-
kirkju laugardaginn 23. nóvember
kl. 14.
Þorleifur Arason slökkviliðsstjóri,
Skúlabraut 2, Blönduósi, verður
jarðsunginn frá Blönduóskirkju
laugardaginn 23. nóvember kl. 14.
Ása Sigurðardóttir, Öldrunarstofn-
un Flateyrar, sem andaðist 15. nóv-
ember sl., verður jarðsungin frá Flat-
eyrarkirkju fostudaginn 22. nóvem-
ber kl. 14.
Kristinn M. Sveinsson, Hrcifnistu
v/Kleppsveg, áður Austurbrún 25,
verður jarðsunginn frá Áskirkju
föstudaginn 22. nóvember kl. 13.30.
Kristín Pálsdóttir, Drápuhlíð 38,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju fóstudaginn 22. nóv-
ember kl. 13.30.
Tilkyimingar
Dagskrá með tónlist,
Ijóðlist og myndlist
í Borgarleikhúsinu
Sagnanökkvinn landar, skemmtidagskrá
meö tónlist, skáldskap og myndlist verð-
ur haldinn í Borgarleikhúsinu í kvöld,
21. nóvember, kl. 20. Fram koma tónlist-
armennimir Bubbi og Megas, Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir. Þá lesa úr verkum sínum
skáldin Einar Már Einarsson, Ólafur
Gunnarsson, Vigdís Grímsdóttir og Þór-
arinn Eldjám. Einnig verður nýstárleg
myndasýning á málverkum Tolla, Þor-
láks Kristinssonar, og fer hún fram sam-
hliða lestri Einars Más en þeir hafa tekið
höndum saman og senda frá sér bók með
málverkum Tolla og ljóðum Einars. Vig-
dís Grímsdóttir og Þórarinn Eldjám em
einnig að gefa út nýjar bækur og væntan-
t
Hrafnhildur Einarsdóttir,
Hallkelsstaðahlíð, Hnappadal,
verður jarösungin frá Kolbeinsstaöakirkju laugardaginn 23.
nóvember kl. 14.00. Ferð verður frá BSÍ kl. 11.00.
LANDSLAGIÐ1991, SÖNGLAGAKEPPNIÍSLANDS
ATKV ÆÐ ASEÐILL
Landslagið 1991 er að mínu mati:
□ Dansaðu við mig - Eldfuglinn
□ Það er ekki hægt annað - Ómar og Þuríður
□ Vængbrotin ást - Þúsund andlit
□ Enginn er eins og þú - Herramenn og Ruth
□ Ég vil dufla og daðra - Edda Borg
□ Hlustaðu - Ruth Reginalds
□ Reykjavík - ÁgústRagnarsson
□ Signin ríka - íslandsvinir
□ Ég aldrei þoröi - Anna Mjöll
□ Svo lengi - Sigríður Guðnadóttir.
Meridð aðeins viö eitt lag.
Atkvæðaseðlar þurfa aö hafá borist
til Rásar 2 fyrir 26. nóvember.
Utanáskriftin en Rás 2, LandslagiÖ,
Efstaleiti 1,150 Reykjavík.
Nafn:.............................
Heimilisfang:.....................
Póstnr.:....................Súni:
Myndgáta dv
" '*' \r—---------w------------
*---------EVl^oR,-ó-
Myndgátan hér að ofan
lýsir kvenkynsorði í ft.
Lausn gátu nr. 186:
Stendur í
eldlínunni
leg er á markaðinn heildarútgáfa á ljóð-
um Megasar. Þá hefur Bubbi nýverið
.sent frá plötu. Flestir listamannanna
kynna þannig ný verk.
Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands
Aðrir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í rauöri áskriftagröð í vetur verða
haldnir í Háskólabíói í kvöld, 21. nóvemb-
er, og hefjast kl. 20. Á efnisskránni verða
fjögur verk: Coriolanus, forleikur eftir
Beethoven, Sinfonia Conertante eftir
Prokofieff, Síðdegi skógarpúkans eftir
Debussy og að lokum Bolero eftir Ravel.
Einleikari er norski einleikarinn Truls
Mörk og hljómsveitarstjórinn Svisslend-
ingurinn Michel Tabachnik.
Ný plata Sálarinnar
og útgáfutónleikar
í dag, 21. nóvember, kemur út ný 12 laga
breiðskifa með hljómsveitinni Sálinni
hans Jóns míns sem heita mun í höfuðið
á henni en nú em rúmlega tvö ár liðin
fi-á þvi að sveitin sendi frá sér plötu síð-
ast. Af þessu tilefni heldur hljómsveitin
útgáfu- og kynningartónleika í kvöld i
Tunglinu við Lækjargötu þar sem inni-
hald plötunnar verður kynnt í tali og tón-
um. Húsið opnað almenningi kl. 22 og
hefjast þá tónleikamir áður en langt um
liður.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Bridge
og frjáls spilamennska. Silfurlínan er
síma- og viðvikaþjónusta viö eldri borg-
ara. Símatími milli kl. 16 og 18 alla daga
í síma 616262.
Ferðalög
Tunglskinsganga og blysför:
Setbergshlíð - Kershellir
Hressandi kvöldganga og blysfór í
skammdeginu. Gengið um Setbergshlíð-
ina sunnan Hafnarfiarðar. Áð viö kerta-
'ljós í Kershelli. Kynningarverð kr. 400,
frítt f. börn meö fullorðnum. Blys kr.
200. Brottfór frá Umferðarmiðstööinni,
austanmegin (á Kópavogshálsi og v.
kirkjugarðinn í Hafnarfirði). Sunnudags-
ferðin 24. nóv. kl. 13 verður Húsfell-
Valaból.
Aðventuferð í Þórsmörk
30.nóv.-l. des. 2 dagar.
Gleymið jólastressinu og dveljið í Mörk-
inni fyrstu helgi í aðventu. Göpguferðir
og kvöldvaka með góðri aðventu- og jóla-
stemmningu. Verð kr. 4.500 fyrir utanfé-
laga og'4.000 f. félaga. Pantið strax. Laug-
ardaginn 30. nóv. verður kynning á fé-
lagsheimili Ferðafélagsins, Mörkinni 6.
Gönguferðir um Elliðaárdalinn kl. 14 og
opið hús kl. 15-16. Allir velkomnir.
Leikhús
| ÍSLENSKA ÓPERAN FRÚ EMILÍA
^‘Tnfrnfn^ „Haust með
Ibsen“
eftir Leiklestur þekktra leikverka eftir Henrik Ibsen í Listasafni íslands
W.A. Mozart við Frikirkjuveg.
Föstudaginn 22. nóv. kl. 20. Laugardaginn 23. nóv. kl. 20. AFTURGÖNGUR
Föstudaginn 29. nóv. kl. 20. Laugard. 23. nóv. og sunnud.
Laugardaginn 30. nóv. kl. 20. 24. nóv. kl. 14.
Leikstjóri: Pétur Einarsson.
Ósóttar pantanir seldar Leikarar: Margrét Helga Jóhanns-
. tveimur dögum fyrir sýningar- dag. dóttir, Ingvar Sigurðsson, Þorsteinn Gunnarsson, Eyvindur Erlendsson
og Bára Lyngdal Magnúsdóttir.
Sunnud. 24. nóv. BRÚÐUHEIMILI
Sýning i samkomuhúsinu Laugard. 30. nóv. og sunnud.
Ýdölum, Aðaldai. Sýning kl. 15 og 20.30. t.des. kl. 14.
Aðgöngusala hefst kl. 13 i Listasafni
Miðasalan opin Irá kl. 15-19, íslands báóa sýningardaga.
sími 11475. FRÚ EMILÍA-LEIKHÚS
Greiöslukortaþjónusta VISA - EURO - SAMKORT