Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1991, Síða 5
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBBR 1991.
5 1
Fréttir
hver ruglingur sem komst á
þegar unnið var við jarð-
itl og hellulagningu á Torg-
ÖRN OG ÖRLYGUR - jÓLAÚTGÁFA 1991
Norska flokkunarfyrirtækið Det Norske Veritas um skipakost Ríkisskipa:
99 gráður
á Akureyri
Það er stundum sagt að Akureyring-
ar séu „góðir með sig“ þegar þeir
eru að gefa upplýsingar um hitastig
í bænum, sérstaklega á sumrin, og
aldrei eins og þegar þeir eru að
tala við höfuðborgarbúa. En sumum
finnst e.t.v. of langt gengið þegar
þeir láta hitamælinn i „turninum" á
Ráðhústorgi sýna 99 stiga hita f
desember. En hitamælir „turnsins"
hefur verið örlitið upp á við að und-
anförnu, það munar rúmlega 100
gráðum eða svo, og ástæðan mun
vera einhver
mælinn
inu í haust. DV-mynd gk
Deildarstjóri RÚVAK:
um
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Tveir umsækjendur eru um stöðu
deildarstjóra Rikisútvarpsins á Ak-
ureyri en staðan verður væntanlega
veitt öðrum hvorum þeirra í dag eða
á morgun.
Umsækjendumir eru Arnar Páll
Hauksson, fréttamaður á fréttastofu
Útvarpsins í Reykjavík, og Gísli Sig-
urgeirsson, fréttamaður Sjónvarps-
ins á Akureyri. Útvarpsráð mun taka
málið fyrir á fundi í dag og væntan-
lega greiða atkvæði um umsækjend-
uma en það er útvarpsstjóra aö taka
ákvörðun um hvor þeirra hlýtur
stöðuna.
Stakkavík seld
á 135 milljónir
Bakkafiskur hf. á Eyrarbakka fékk
135 milljónir fyrir Stakkavík ÁR 107
sem nú hefur verið seld. Kaupendur
em Pétur Stefánsson og Gjögur á
Grenivík. Skipið var selt með tæp-
lega 600 þorskígilda kvóta.
Endurskipulagning stendur nú yfir
á Bakkafiski hf. Er sala skipsins hluti
af henni. Hreppsnefnd Eyrarbákka-
hrepps hafði rétt til að ganga inn í
kauptilboö þess en nýtti sér þaö ekki.
Fyrirtækið hefur sagt upp 90
manns. Endurráðningar bíða þess að
forráðamenn Bakkafisks finni leiðir
til að koma því úr fjárhagsvandan-
um. -JSS
Þú kemur ekki q6 tómum
kofunum...
ÞJOÐLIF OG ÞJOÐHÆTTIR
eftir Guðmund L. Friðfinnsson, Egilsá
Þór Magnússon þjóðminjavörður ritar formála.
Höfundur er glöggskyggn á fólk og starfshætti
fyrri tíðar og dregur upp skýra og áhrifamikla
mynd af þjóðlífi sem nútíminn hefur leyst af
hólmi. Bókin er prýdd 300 ljósmyndum sem
gera efnið ljóst og lifandi.
Verð. 8.900.-
SJtfjpn'Ján Júlunn.Min I Rn^nhiUn' S’ijfúUúiw : O'
DÆTURfe
lífi úlpnsltra kvenna
1850- 1950
ISLANDSDÆTUR
Svipmyndir úr lífi íslenskra kvenna eftir
Símon Jón Jóhannsson og Ragnhildi
Vigfúsdóttur
Glæsileg bók, prýdd 200 ljósmyndum, sem
bregða upp lifandi svipmyndum úr lífi íslenskra
kvenna í eina öld: Tímamót, helstu skemmtanir,
gleðistundir, þjóðtrú og kerlingabækur. Hvemig
lifðu og hugsuðu mæður okkar, ömmur og
langömmur?
Verð kr. 4.490.-
flug,fyndni,fákar;
fljób og þjóðlegur
fróbleikur
Albert Jóhannsson f Skógum
HANDBÓK
ÍSLENSKRA
HESTAMANNA
100 LJÓSMYNDIR SÝNA UTBRIGDI ISIINSKA HI5TS1NS
HANDBOK ISLENSKRA HESTAMANNA
eftir Albert Jóhannsson í Skógum
Með 100 ljósmyndum af litbrigðum íslenska
hestsins. Kári Amórsson, formaður L.H. ritar
formála.Vönduð og fróðleg bók urn hesta og
hestamennsku og uppruna og eiginleika íslenska
hestsins. Leiðbeint er um aldursgreiningu hrossa,
gangtegundir, ásetu, taumhald, jámingar, reiðtygi,
beislabúnað, hirðingu, fóðmn, sjúkdóma og
meiðsli. Auk teiknaðra skýringamynda, er öllum
helstu litbrigðum íslenska hestsins lýst með 100
ljósmyndum.
Verð kr. 3.490,-
Eggert Norðdahl
FLUGSAGA ÍSLANDS
í STRÍÐI OG FRIÐI 1919 - 1945
Njörður Snæhólm ritar formála. Sagt frá frum-
herjum flugs á íslandi og í fyrsta sinni rakin saga
herflugs hér á landi og yfir hafinu í kring á árum
síðari heimsstyrjaldarinnar.
Verð kr. 3.890.-
MAGNÚS ÓSKARSSON
og »«ii umin
NY ALISLENSK FYNDNI
Magnús Óskarsson borgarlögmaður tók saman
Nú mun þjóðin reka upp skellihlátur og skemmta
sér vel yfir hinni nýju bók Magnúsar, rétt eins og
hún gerði fyrir nokkmm ámm er fyrri bók hans
um sama efni kom út, en hún varð strax met-
sölubók og er nú ófáanleg.
Verð. 1.250.-
ORN OG ORLYGUR
Síbumúli 11 -108 Reykjavík - Sími: 684866
Skipin í góðu ástandi
- rangt aö búast megi við verulegum endumýjunarkostnaði
Öll þijú skip Skipaútgerðar ríkis-
ins virðast í góðu ástandi ef marka'
má skýrslu flokkunarfyrirtækisins
„Det Norske Veritas“ sem hefur haft
flokkun á skipunum í sínum verka-
hring síðan þau voru smíðuð.
Þetta vekur athygh þar sem úttekt
sú á rekstri Skipaútgerðar ríkisins,
er Endurskoðun Akureyrar hf. vann
fyrir Halldór Blöndal samgönguráð-
herra, segir allt annað. Þar segir að
sé tillit tekið til flokkunarstöðu skip-
anna geti endurnýjun kostað veru-
legar upphæðir.
Samkvæmt upplýsingum DV hefur
Det Norske Veritas staðfest að fram
hafi farið aðalskoðun á öllum skip-
unum þrem á árunum 1988-1990. Við
aðalskoðun var framkvæmt eðlilegt
viðhald. Við flokkun að því loknu
reyndust skipin vera kvaðalaus að
hálfu ofangreinds flokkunarfélags
eða „nýklössuð".
Viðhaldsmálum Ríkisskipa er
þannig fyrirkomið að þar er í notkun
sívirkt kerfi til fyrirbyggjandi við-
halds. Með notkun þess á ekki aö
þurfa aö koma til kostnaðarsamra
viðgerða eða endumýjunar á flestum
hiutum skipsins æ ofan í æ eins og
stundum vill annars verða.
-JSS