Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1991, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1991, Side 23
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991. 31 pv____________________Menning Andhetiurnar Það muna margir eflir leynilög- reglusögunum um lögreglufor- ingjann Martin Beck og félaga hans hjá glæpadeild lögreglunn- ar í Stokkhólmi, eftir sænsku hjónin Maj Sjöwall og Per Wa- hlöö. Þau hjón rituðu 10 sögur um fyrrnefndan lögregluforinga sem allar náðu töluverðum vin- sældum. Með sögum sínum þóttu þau hjón draga upp óvenju- raunsæja mynd af störfum lög- reglunnar. Það sem meira var, dregin var upp mjög raunsæ mynd af manneskjunum á bak við iögreglumennina, misjöfnu einkalífi þeirra og heilsufari. Þannig man undirritaður vel eftir þvi að fyrmefndur lögreglufor- ingi átti í erfiðleikum 1 hjóna- bandinu (skildi á endanum) og var sífellt þreyttur, með háls- bólgu og hitavellu. Þeim sem vanir voru harðsvíruðum has- arbókmenntum, þar sem vöðva- búntin tókust á og hárin risu af æsingi á 10. hverri síðu, var óneitanlega brugðið. Að sama skapi tóku ófáir nánast ástfóstri við sögur Sjöwalls og Wahlöös. Bókmeimtir Haukur L. Hauksson Undirritaður var í þeim hópi. Það var því með nokkurri eftir- væntingu að hann tók til við lestur nýrrar bókar eftir þau Maj Sjöwall og Thomas Ross. Per Wahlöö lést fyrir allnokkr- um árum og sinnti kona hans ekki bókaskrifum lengi á eftir, allt þar til hún hóf samstarf með Hollendingnum Thomas Ross. Fyrsta afsprengi samstarfs þeirra heitir Konan sem líktist Grétu Garbo. Sagan er alþjóðleg í víðum skilningi. Segir frá miðaldra sænskum uppgjafablaðamanni, Pétri Hill, og jafnaldra hans, Albert Kroonen, bílasala frá Amsterdam. Pétur Hill fær ábendingu um mögulegt hneykslismál sem velgt getur erkióvini hans, dómsmálaráð- herranum undir uggum. Ungt par kúgar fé út úr hollenskum aðstoðarráðherra á ferð í Stokk- hólmi, með óþægilega nærgöng- ulum myndum af ráðherranum. Reynt er að þagga málið niðm-. A sama tíma er Albert Kronen á bílasýningu í Frankfurt. Á hótelinu verður hann fyrir áfalli er hann sér stúlku er líkist dótt- ur hans í aöalhlutverki í klám- mynd. Ðótturina hafði hann ekki séð né heyrt lengi en vissi aö hún var í Svíþjóð. Leiðir Pét- urs og Alberts liggja saman í rannsókn þeirra. Þriðji aðilinn, sem rannsakar málið, er öryggislögreglumað- urinn Bo Wester. Meðan les- andinn öðlast samúð gagnvart þeim félögum Pétri og Albert tekst höfundum að gera mis- kunnarlausa og framagjama persónu úr Bo Wester. Það er dæmigerður kerfisskúrkur. Hér skal söguþráðurinn ekki rakinn. Eins og í bókunum um Martin Beck og félaga eru aðal- söguhetjumar dæmigerðar and- hetjur. Þeir drekka töluvert, reykja mikið, em þungir á sér og hálfklepraðir af svita á stund- um. Pétur Hill hefur misst átt- imar sem blaðamaður (löggu- blaðamaður) og fitlar við þá hugmynd (hvað annað?) að skrifa opinskáa og afhjúpandi bók um starf sitt. Konan er löngu hlaupin með forríkum arkitekt en frísk dóttir blæs í hann lífi með því að éta með honum steik og drekka rauðvín. Allt við Albert Kronens er einfald- ara. Hann vill fmna dóttur sína og bjarga henni úr ósómanum. Hann er ólíkur Pétri, þokkalega stæður bílasali sem kippt er úr hversdags- legu amstri sínu þegar hann slysast til aö sjá klámmynd á hóteli. Þessi leynilögreglusaga lullar áfram á mjög þægilegu tempói, í takt við líkamlegt ásigkomulag Pét- urs og Alberts. Þeirra bjástur og samskipti eru þungamiðja sögunn- ar. Byrjun sögunnar er hressileg en undirritaður hafði lúmskt gam- an af því að aðalsöguhetjurnar höfðu varla hlaupið við fót, hvað þá lent í átökum, þegar einungis íjórðungur sögunnar var eftir. Engu að síður er manni haldið við efnið allan tímann. Sagan verður aldrei langdregin. Lestur hennar er ágætis skemmtun og flækjan mátulega flókin til að gráu sellum- ar hafi eitthvað aö gera. Ekki er að sjá að vinnubrögð þeirra Sjöwalls og Ross, að skrifa söguna hvort í sínu lagi og saman þegar við átti, komi niður á henni. Þvert á móti. Gunnlaugur Ástgeirsson þýddi söguna og hefur farist það verk prýðilega úr hendi. Eins og segir á bókarkápu ættu aðdáendur Sjöw- alls og Wahlöös ekki að verða sviknir af þessari bók. Fleiri orð þar um era með öllu óþörf. Stúlkan sem líktist Gretu Garbo. Maj Sjöwall og Tomas Ross örn og Örlygur 1991 ■ ' ’ », . «. f r BUBBI MORTHENS veröur m e ð t ó n I e i k a í Borgarleikhúsinu föstudaginn 19 D e s e mber o g k e m u r þar fram meö nýja efnisskrá og glænýja hijómsveit sem skipuö er frábærum tónlistarmönnum. Peir eru PÁLMI GUNNARSSON, T R Y G G V I H U B N E R , G U #N LÁUGUR BRIEM O G H e i REYNI JÓNASSON. e s t u r kvöldsíns veröur e n g i n a r e n M E G A S , v i n u r v o *s^ o g b I ó m a . TÓNLEIKARNIR HEFJAST % K L . 2 1 : 0 0 * T O N L I S T A R V I Ð MIÐAVERÐ: 1000 K R . ♦ « V I Ð BURÐ U R í BORG A R L E I K H Ú S I N U

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.