Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1991, Page 24
32
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991.
Verkakonur - menntakonur:
Sameiginleg barátta
Falleg hönnun gefur
notagildinu aukinn tilgang
Ægisgötu 4, sími 625515
Laugavegi 17, sími 627810
„Launajafnrétti karla og kvenna í sambærilegum störfum getur þó ekki
verið lokamarkmið jafnréttisbaráttunnar," segir m.a. i greininni.
kaupaukakerfi við í öllum starfs-
greinum. Með því að leggja áherslu
á kaupauka en ekki taxtahækkanir
hafa taxtar veriö reyrðir niður.
Semja hefur mátt um allt milli him-
ins og jarðar nema taxtahækkanir
í starfsgreinum þar sem kaupauka-
kerfi er ekki við lýði eins og í af-
greiðslu- og skrifstofustörfum hjá
einkafyrirtækjum og ríkisstofnun-
um.
í störfum sem krefjast formlegrar
menntunar eru hiunnindagreiðsl-
ur fjölbreyttar en kannanir sýna
að þær falla frekar körlum í skaut
en konum. Forsenda þess að launa-
munur menntakarla og mennta-
kvenna minnki er því að dregið
verði úr vægi kaupauka í launum
verkafólks og að taxtar verði færð-
ir að greiddum launum. Þaö eru
einnig hagsmunir verkakvenna að
vægi kaupauka minnki í greiddum
launum þar sem slíku kerfi fylgja
óviðunandi starfsskilyrði þegar til
lengri tíma er litið.
Launajafnrétti karla og kvenna í
sambærilegum störfum getur þó
ekki verið lokamarkmið jafnréttis-
baráttunnar. Konur njóta ekki
jafnréttis á vinnumarkaði nema
þær haft einnig jafnan aögang að
„góðum“ störfum og sambærilega
framamöguleika og karlar á vinnu-
markaði.
Jafnréttislöggjöfin
Mikilvægt tæki til að tryggja kon-
um sömu starfsmöguleika á vinnu-
markaði er jafnréttislöggjöfin. Á
undanfómum ámm hefur mennta-
em kærðar til jafnréttis og kæm-
nefndar jafnréttismála. Oftast
kæra mjög hæfar konur stöðuveit-
ingu vegna þess að þeim finnst að
starfsheiðri sínum vegið og að við-
komandi staða samrýmist best
þeirri menntun og reynslu sem þær
hafa aflað sér. Fái þær ekki stöðuna
er mjög ólíklegt að önnur sambæri-
leg staöa bjóðist í nánustu framtíð.
Fjöldi menntakvenna kýs þó, eins
og svo margar ófaglærðar og fag-
lærðar konur, að þegja yfir mis-
munun við stöðuveitingar til að
eyðileggja ekki endanlega frama-
möguleika sína á vinnumarkaði.
Slík þögn er konum síst til fram-
dráttar þar sem „friðurinn" villir
sýn um raunverulega stöðu jafn-
réttismála á íslenskum vinnu-
markaði. Örfáum menntakonum
hefur tekist að ná fram leiðréttingu
mála sinna með því að kæra til
jafnréttisráðs og kærunefndar
jafnréttismála. Aðeins fáum kon-
um tekst að rétta hlut sinn með því
að nýta sér hið svokallaða lagalega
jafnrétti. Menntakonur geta aðeins
leitað til jafnréttisráðs en þar eiga
fulltrúar ASÍ og BSRB sæti en ekki
fulltrúar BHM og BHMR. Það skýr-
ir kannski hvers vegna stöðuveit-
ingar hafa verið áberandi viðfangs-
efni jafnréttisráðs en ekki launa-
mál. Hafa verður í huga að ef jafn-
réttisráð tæki á launamálum væri
það komið inn á samningssvið ASÍ
og BSRB og takmarkaði þar með
völd karlaveldisins innan verka-
lýðshreyfingarinnar.
Lilja Mósesdóttir
FYRIR FAGURKERA
handunnar gjafavörur
úr smíðajárni
Islensk hönnun,íslenskt handverk
Fullyrðingar um að jafnréttis-
baráttan snúist aðeins um frama-
baráttu metnaðarfullra mennta-
kvenna heyrast nú æ oftar. Því
hefur m.a. verið haldið fram að á
meðan verkakonur búi viö lítið
starfsöryggi og lág laun geysist
menntekonur upp metorða- og
launastiga íslensks vinnumarkað-
ar. Jafnréttisráð er sakað um að
þjóna aðeins hagsmunum „frama-
sjúkra“ menntakvenna en ekki
hagsmunum verkakvenna.
Tilgangur slíkra fullyrðinga er
fyrst og fremst að sundra konum
til að draga úr slagkrafti jafnréttis-
baráttunnar. Svipuðum aðferðum
hefur m.a. verið beitt gegn rétt-
indabaráttu svertingja í Suður-
Afríku. Konum er talin trú uni að
einn hópur kvenna hafi í nafni jafn-
réttis náð meiru fram en annar
hópur kvenna til að innbyröisá-
greiningur komi í veg fyrir að ár-
angur náist í baráttu kvenna fyrir
jafnrétti.
Árangursrík jafnréttisbarátta
myndi nefnilega svipta karla mörg-
um þeim forréttindum sem þeir
Kjallaiiim
Lilja Mósesdóttir
hagfræðingur
hafa nú á íslenskum vinnumarkaði
eins og tilkalli til betri atvinnu- og
tekjumöguleika. Hagsmunir verka-
kvenria og menntakvenna eru sam-
tvinnaðir þar sem ávinningur eins
hóps kvenna hefur áhrif á stöðu og
möguleika annars hóps kvenna.
Kjarasamningar eru dæmi um
hversu nátengdir hagsmunir verka-
kvenna og menntakvenna eru.
Kjarasamningar
Undanfarin ár hafa kjarasamn-
ingar aðallega snúist um almennan
efnahagslegan stöðugleika án tillits
til afkomumöguleika þeirra lægst
launuðu og almennar kauphækk-
anir í stað þess að færa taxta
(kvenna) að greiddum launum
(karla). Stöðugt meiri áhersla hefur
verið lögð á kaupaukakerfi meðal
ráðandi hópa innan stærstu heild-
arsamtaka launafólks ASÍ. Kaup-
aukakerfi gerir mörgum verkakon-
um kleift að ná sama tímakaupi og
verkakarlar hafa en slíkur jöfnuð-
ur er dýru verði keyptur.
Sambærilegu tímakaupi ná
verkakonur aðeins með því að af-
kasta meiru en verkakarlar. Auk
þess að vera mjög líkamlega slít-
andi kerfi hefur kaupaukakerfið
aðskilið konur í kjarabaráttunni
þar sem ekki er mögulegt að koma
■. I
konum fiölgað umtalsvert. Ætla
má að um 600 konur ljúki prófi á
háskólastigi árlega og fer þeim
fiölgandi. Flestar konur fara í lang-
skólanám í von um að aukin
menntun bæti atvinnu- og tekju-
möguleika þeirra á vinnumarkaði.
Eftir að komið er út á vinnumarkað
sjá menntakonur þó fljótt að flest
störf eru skilgreind, skipulögð og
metin til launa í samræmi við hvort
kona eða karl verða ráðin en ekki
í samræmi viö mikilvægi mennt-
unar og starfsreynslu fyrir við-
komandi starf. Störf ætluð mennta-
konum eru eins og störf verka-
kvenna, vel aðgreind frá störfum
karla og einkennast af lágum laun-
um og fáum framamöguleikum.
Einhæfni og stöðnum íslensks at-
vinnulífs hefur einnig takmarkað
mjög starfsmöguleika mennta-
kvenna. Flestar menntakonur
þurfa því stöðugt að berjast fyrir
„góðum“ störfum - oft án sýnilegs
árangurs. Örfáar tapaðar orrustur
koma upp á yfirborðið þegar þær
„Hagsmunir verkakvenna og mennta-
kvenna eru samtvinnaðir þar sem
ávinningur eins hóps kvenna hefur
áhrif á stöðu og möguleika annars hóps
kvenna.“
ATHUGID, AUKATONLEIKAR
18. desember kl. 19
VEKJUM REYKJAVIK
Tónleikar í Laugardalshöll
17,desember1991
VERÐ 3.500 STÆÐI
ÐEINS 3.800 ÍSÆTI
FLUGLEIÐIR B JÓÐA 30% AFSLÁTT
AF FLUGFARI OG GISTINGU
F0RS ALA AÐGONGUMIÐA:
*
FLUGLEICHR i
ReykjavíloStéÍnar, Laugavegi 24, Glæsibæ, Strandgata 37, Mjódd, Borgarkringlunni
og Au^íírstræti; Skífan, Kringlunni, Laugavegi 33, Laugavegi 96 og Laugavegi 26.
Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Húsavík: Sími 9§ 4l 362. Akureyri: KEA-Hljómdeild.
Neskaupstadur: Tónspil. Selfoss: Verslunin ösp. Akranes: Bókaskemman.
Skagafirdi: Kaupfélag Skagfirdin§a. Hornafirdi: KASK. ísafjördur: Hljómborg.
Keflavík:K-Sport. \