Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992.
Útlönd__________
Svíakóngur lenti
íáreksfri við
Karl Gústaf Svlakonungur
slapp með skrekkinn þegar hann
ók á furutré úti í skógi á Várma-
landi á sunnudag. Konungur var
að prufukeyra einn af Mitsubishi
bílunum sem taka þátt í rallöku-
keppni sem þar fer fram.
Blaðafulltrúi hirðarinnar sagði
aö konung heföi ekki sakað viö
áreksturinn og væri hann nú far-
inn á ólympíuleikana í Aibert-
ville ásamt drottningunni.
Karl Gústaf hefur lengi haft
áhuga á bílaíþróttum og hann
hefur áður fylgst með rallakst-
ursmönnum á ferð um snævi-
þakta skógana á Vármalandi. {
þetta sinn ætlaði hann hins vegar
að kynnast því af eigin raun
hvemig það er aö vera slíkur
ökuþór.
Og þá fór sem fór.
í Suður-Afríku
Heill herskari gráðugra maura
lagði undir sig ísskápa á eUiheim-
ili í Suður-Afríku og neyddi íbú-
ana til að leggja á flótta.
Suður-afHska fréttastofan sagði
frá þvi að míUjónir á milljónir
ofan af pinulitlum svörtum arg-
entínskum maurum hefðu nagað
aUt sem fyrir var í ísskápunum
og lagst á stóla, borð og rúm á
elliheimili i Höfðahéraði um helg-
ina. Flytja þurfti íbúana 27 á
brott.
Maurarnir eru óvenju athafna-
samir núna vegna mikUla
þurrka. Ýmislegt hefur verið
reynt tíl að drepa þá, svo sem
sölt og barnapúður, en eftirtekjan
hefur verið heldur rýr.
Hægrisinnaðir
öfgamennsigra
íkosningum
Þjóðfylkingin, tlokkur öfga-
sinnaöra hægrimanna í Frakk-
landi, sigraði í fyrstu umferð
bæjarstjómarkosninganna í Nice
á sunnudag. Sósíalistar lentu í
fjórða sæti og em úr leik fyrir
aðra uxnferöina eftir viku.
Frambjóðandi Þjóðfylkingar-
innar fékk 37,4 prósent atkvæða
en aöeins um þriöjungur atkvæð-
isbærra manna í borginní haföí
fyrir þvi aö koma á kjörstaö.
Þetta vom fyrstu kosníngarnar
í Nice ff á þvi fyrrverandi borgar-
stjóri, sem er í Úrúgvæ á flótta
undan franskri réttvísi, lýsti yfir
stuðningi sínum víð Jean-Marie
Le Pen og öokk hans.
Frönsku íhaldsöokkamir tveir,
UDF og RPR, fengu hvor um sig
15,8 prósent og sósíalistar fengu
12,1 prósení.
RAeirihluti Dana
ámótinánari
Þegar tæpir öórir mánuðir eru
þar til haldin verður þjóðarat-
kvæöagreiðsla um nánarí sam-
runa Evrópubandalagsríkjanna
er meirihluti Dana andvigur slík-
um áformum. Og aðeins fjórði
hver stuðningsmaður jafhaðar-
manna ætlar að fylgja tilmælum
flokksins og greiða atkvæði með
samrunanum. Þetta eru niður-
stöður skoðanakönnunar sem
gerð var fyrir dagblaöið Börsen.
Ef kosiö væri nú mundu 35,5%
greiða samrunanum atkvæöi sitt
en 36,2% em á móti. Fylgi hinna
síðamefhdu hefúr aukist um
1,6% frá í janúar. Samkværot
skoðanakönnuninni em 27,6%
kjósenda enn óákveðin.
TT, Reuter og Ritzau
Hizbollah hyggur á hefndir fyrir Musawi:
ísraelsmenn eru að
graf a sína eigin gröf
- eldflaugum skotiö á ísrael aðra nóttina í röð
Arabískir skæruhðar í Líbanon
skutu Katyushaeldflaugum inn í
norðurhluta ísraels aðra nóttina í
röð en ekki urðu meiðsl á mönnum,
að því er heimildarmenn innan ör-
yggissveitanna sögðu í morgun.
Þeir sögðu að fleiri eldflaugum
hefði verið skotið á sjálfskipað örygg-
issvæði ísraelsmanna í suðurhluta
Líbanons. Margir ísraelskir íbúar við
landamærin eyddu nóttinni í neðan-
jarðarbyrgjum og styrktum her-
bergjum á heimilum sínum.
Enginn hefur lýst ábyrgð á árásun-
um á hendur sér en þær fylgja í kjöl-
farið á morði ísraelsmanna á Abbas
Musawi, leiðtoga Hizbollahhreyfing-
arinnar í Líbanon, í þyrluárás á
sunnudag. Eiginkona Musawis og
sex ára sonur fómst einnig í árás-
inni.
Heittrúaðir sjítar í Líbanon hafa
lýst yfir allsherjarstríði á hendur
ísraelsmönnum tfi að hefna fyrir
dauða Musawis.
„ísraelsmenn eru að grafa sína eig-
in gröf,“ sagði sjítaklerkurinn sheik
Hassan Nasrallah við tugþúsundir
syrgjenda sem tóku á móti kistunni
með líki Musawis í höfuðstöðvum
hreyfingarinnar í bænum Baalbek í
austurhluta Bekaadalsins í Líbanon
í gær.
Nasrallah sagði að baráttan gegn
Ísraelsríki yröi löng og lyki ekki fyrr
en það heíði verið þurrkað út.
ísraelskar hersveitir og banda-
menn þeirra í suður-líbanska hem-
um svöruðu eldflaugaárásunum í
nótt með sprengjuárásum. Ritskoð-
arar ísraelska hersins koma í veg
fyrir að fréttamenn skýri frá því hvar
eldflaugamar lentu.
Stuðningsmenn Abbas Musawi, leiðtoga Hizbollahhreyfingarinnar í Libanon, hefja kistu hans á loft í Beirút. ísra-
elsmenn myrtu Musawi, eiginkonu hans og ungan son, i þyrluárás á sunnudag. Simamynd Reuter
Stjórnarerindrekar og embættis-
menn sögðu að stríðið milli ísraels-
manna og Hizbollahhreyfingarinnar
mundi færast í aukana á næstu vik-
um. Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa í
Líbanon, sagði að morðið á Musawi
væri olía á eld róttækra og mundi
leiða af sér aukið ofbeldi.
ísraelsmenn sögðu Líbönum í gær
að þeir yrðu að koma í veg fyrir árás-
ir yfir landamærin og þeir sem ryfu
friðinn yrðu að gjalda það dýra verði.
Leiðtogar ísraels fognuðu árásinni
sem varð Musawi að bana og sögðu
hana sigur í baráttunni gegn hryðju-
verkamönnum.
„Þetta er hður í stöðugri baráttu
okkar gegn hryðjuverkum. Við berj-
umst eins og okkur sýnist best hæfa
hvetju sinni,“ sagði Yitzhak Shamir,
forsætisráðherra ísraels.
Reuter
Kjósendur í smáþorpi
höf nuðu f orsetanum
George Bush Bandaríkjaforseti
fékk aðeins níu atkvæði í smáþorp-
inu Dixville Notch í New Hampshire
en óþekktur andstæðingur sigraði
með ellefu atkvæðu. í þorpinu búa
aðeins 39 manns.
Hefð er fyrir því að þorpsbúar í
Dixville Notch fari allra fyrstir á
kjörstað þegar forkosningar fara
fram hjá bandarísku stjórnmála-
flokkunum vegna vald á forsetaefnu
þeirra. Þeir í Dixville Notch bmgðust
ekki fremar en fyrri daginn og tahð
var upp úr kjörkössunum þar
skömmu eftir að kjörstaðir vom opn-
aðir í morgun.
Maðurinn sem þarna bar sigurorð
af Bush heitir Andre Marrou og hef-
ur ekki komið við sögu í kosninga-
baráttunni áður. Fulltrúar demó-
krata hlutu ekki náð fyrir augum
kjósenda í Dixvill. Bil Chnton fékk
þrjú atkvæði og Paul Tsongas tvö.
Aðrir fengu færri.
Úrslitin í Dixvill vekja jafnan
nokkra athygli þótt þau geti ekki tal-
ist dæmigerö fyrir afstöðu kjósenda
í ríkinu öllu. Ekki veit þó á gott fyrir
Bush að hann skuli bíða lægri hlut
fyriróþekktummanni. Reuter
Fnðargæsluliðið verði
jafn lengi og þurfa þykir
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
lagði formlega til í gær að nærri fjórt-
án þúsund manna friðargæslulið
yrði tafarlaust sent til Júgóslavíu og
það yrði þar þangað til Evrópu-
bandalagið hefði náð fram samning-
um um pólitiska lausn deilunnar.
Króatar vilja takmarka dvöl friðar-
gæsluliðsins en með yfirlýsingu
sinni braut Boutros-Ghali fyrri hefð
þar sem óskir þeirra sem hlut eiga
að máh em virtar hvað varðar dvöl
sveitanna.
Framkvæmdastjórinn viðurkenndi
að friðargæsluliðinu kynni að vera
hætta búin á serbneskum yfirráða-
svæðum í Króatíu og hafði uppi efa-
semdir um að stjómvöld í Zagreb og
uppreisnarmenn Serha í Króatíu
yrðu samvinnuþýðir.
Milan Babic, leiðtogi Krajinahér-
aðs, hefur haft í hótunum við sveitir
SÞ en á mánudag skýrði hann frá því
að hann mundi ekki skipuleggja
vopnaða andspymu. Hann útilokaði
þó ekki árásir skæruliða sem neituðu
aðleggjaniðurvopn. Reuter
Hermenn eru hvarvetna á verði í Belfast enda eru óeírðir par nu dag-
legt brauö. Símamynd Reuter
ÍRA missti fjóra menn 1 skotbardaga:
Hef ndu með morði á
sautján ára unglingi
Fylgismenn írska lýðveldishers-
ins skutu í gærkvöldi sautján ára
unghng tfi bana tfi að hefna fyrir
fall fjögurra liðsmanna sinna í
átökum við sérsveitir breska hers-
ins.
Mikil ólæti vom í miðborg Bel-
fast í gærkveldi. Unglingar óðu um
götumar og grýttu allt sem fyrir
varð. Unglingurinn, sem féll, vann
í myndbandaleigu og kom ekki
nærri ólátunum.
Spennan eykst nú dag frá degi á
Norður-írlandi eftir að hreska
stjómin ákvað að mæta hryðju-
verkaherferð ÍRA af aukinni
hörku. Mikil reiði er meöal fylgis-
manna ÍRA eftir bardaga sérsveit-
armanna og ÍRA mannanna flög-
urra í gær.
Átökin hófust þegar skæruliðar
ÍRA óku á vörabíl, vopnuðum
stórri vélbyssu, að lögreglustöð og
hófu skothríð. Þeir lögðu síöan á
flótta en sérsveitarmenn sátu fyrir
þeim og felldu þá alla.
Fyrir árásarmönnum fór 21 árs
gamall maður að nafni Kevin Barry
O’Donnell. Hann var í haldi lög-
reglunnar þar til fyrir fárnn mán-
uðum vegna ólöglegs vopnahurðar.
ÍRA sagði í yfirlýsingu í gær að
mennirnir heíðu alhr verið sjálf-
boðaliðar í þjónustu baráttunnar
fyrir sameiningu írsku ríkjanna.
Reuter