Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELfAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Engar,,ódýrar" lausnir Þjóðhagsstofnun fékk öllu hagstæðari útkomu úr síð- ustu þjóðhagsspá sinni, spánni sem ekki mátti birta, heldur en stofnunin haföi áður fengið fyrir árið 1992. Engu að síður verður ástandið býsna svart, gangi það eftir, sem stofnunin segir. Framleiðslan verður 3-3,5 prósentum minni en á síðasta ári. Þjóðartekjur dragast saman um 4-5 prósent. Nýjustu spár benda til þess, að hér á landi muni hátt á fjórða þúsund manns ganga atvinnulausir á árinu að jafnaði. Atvinnuleysi hefur verið geysimikið í janúar og febrúar. Fari sem horfir mun lítið rætast úr atvinnumálum, þegar líður á árið. Fall þjóðartekna okkar gæti þó orðið minna en horfir, til dæmis má gera ráð fyrir mikilli lækkun ohuverðs, sem yrði mikil búbót fyrir okkur. Uppsveifla verður væntanlega í nálægum löndum, og gæti verð á útflutningi okkar því haldizt betur en sum- ir sérfræðingar hafa tahð. En samdrátturinn hjá okkur og atvinnuleysi leiða til þess, að ýmsir þeir, sem gagn- rýna niðurskurðinn hjá hinu opinbera, spyrja sem svo: Væri ekki réttara, að ríkið frestaði niðurskurði, nú þeg- ar hann eykur á samdrátt og atvinnuleysi? Niðurskurðurinn hjá hinu opinbera bitnar hart á mörgum og veldur því án efa, að lægðin verður dýpri en eha. Margar ríkisstjómir mundu við þær aðstæður faha frá ráðagerðum um niðurskurð. En við höfum ekki efni á að bíða, illu heihi. Landsfeðumir hafa haldið þannig á málum undanfarin ár, að við erum sem þjóð komin í þrot. Við megum th dæmis ekki við því að taka lán erlend- is tU að halda þjóðarbúinu gangandi og mæta samdrætt- inum í ár. Skuldastaða þjóðarinnar er þannig, að hætt er við, að við töpum trausti. Hrein skuldastaða þjóðar- búsins nam síðasta áratug yfirleitt 45-50 prósentum af framleiðslunni í landinu. Þetta em erlend lán að frá- dreginni gjaldeyriseign þjóðarinnar. Hæst fór hlutfaUið árið 1985 í tæplega 53 prósent. HlutfaUið fór lækkandi í uppsveiflunni 1986-87 en hefur aftur hækkað undanfar- in þrjú ár. Samkvæmt greinargerð með fjárlagafrum- varpi fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir, að skulda- staðan versni töluvert, og hlutfalhð fari upp í tæplega 52 prósent að minnsta kosti. Samkvæmt síðustu þjóðhagsspá, eða „drögum að þjóðhagsspá“, stefnir enn í, að viðskiptahaUinn við út- lönd verði 15-16 miUjarðar í ár eða 4-4,5 prósent af fram- leiðslunni, þegar gjöld vegna Fokkervéla Flugleiða em meðtalin. Viðskiptahallinn verður því lítið minni en var í fyrra. Ríkissjóður verður áfram rekinn með miklum halla. Þessar tölur sýna, að ekkert svigrúm er til þess að halda uppi atvinnu með frekari haUarekstri, hversu æskUegt sem það yrði út frá öðrum sjónarmiðum. Við verðum að komast úr vandanum án þess. Sumir vija auka þorskveiðikvótann fyrir þetta veiði- tímabU tU þess að auka tekjur þjóðarbúsins. Það yrði ekki gæfuleg stefna. Lítil þorskveiði í vetur gæti þvert á móti verið hættumerki. Við gætum nú þegar hafa gengið of hart að stofninum. EðUlegt er, að síðustu tölur um atvinnuleysi hafi valdið skelfingu. Menn vUja ekki, að slíkt böl hendi ís- lenzku þjóðina. Við höfum ekki kynnzt slíku atvinnu- leysi síðan 1968-69. Leiðin út úr vandanum er hins veg- ar ekki auðveld, og sýnt, að hafna verður „ódýrum“ lausnum. Haukur Helgason Gleðst nú Hannes Hólmsteinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson er einn helsti hugmyndafræðingur þeirra sem vilja aíhenda fiskimiðin útgerðarmönnum til ævarandi eignar. Að lögum eru þó fiskimiðin sameign allrar þjóðarinnar. Ein helstu rök Hannesar gegn því að ríkisvaldið - fyrir hönd eigendanna - geri tilkall tíl arðs af fiskimiðun- um eru þau aö fé sé mun betur komið í höndum auðmanna en al- mennings. FuIItrúi hans sé hvort eð er ekki annað en fámenn klíka 63 manna, sem hafi hreiðrað um sig á Alþingi. Þannig spyr Hannes Hólmsteinn í Morgunblaðinu 10. des. sl.: „Viljum við, að þeir 10-20 milljarðar kr. á ári sem hugsanlega myndast við hagræðingu í sjávar- útvegi, komi til viðbótar við þá 90-100 milljaröa kr. sem stjóm- málamenn hafa nú þegar árlega til ráöstöfunar, eða að þeir skiptist á nokkur þúsund útgerðaraðila?" Menn taki eftir fyrirhtningunni á fulltrúalýðræðinu: Annars vegar lendi arðurinn af fjöreggi þjóðar- innar hjá fámennum hópi stjóm- málamanna - ekki þjóðarinnar - eða hins vegar hjá einkaaðilum. Og ekki fer á milli mála hvom kost- inn Hannes kýs, enda segir hann í grein hér í DV 21. okt. sL: „Kapital- isminn krefst kapitahsta“. Þjóðin á að skapa þá með því að afhenda þeim fiskimiðin. Örþrifaráð fámennisklíkunnar Alþingi samþykkti fjárlög fyrir áramót og gekk frá fylgifiskum þess í lagalanghala fyrir skömmu. Þar hafa stjómmálamenn - sem Hannes fyrirUtur - gripið til ör- þrifaráða sakir fjárskorts. Sparað er í hvívetna, hvort sem er heldur í mennta- eða heUbrigðiskerfinu. Hannesi og hans líkum finnst nefnUega ótækt að rUdð fái úr meiru að moða. Það fari hvort sem er svo Ula með féð; reki t.d. fyrir það skóla og sjúkrahús. Féð eigi að vera hjá athafnamönnum þar sem það vaxi og dafni öUum til hags- bóta. Einokunarverktakar Ekki hefur Hannesi enn tekist að tryggja útgerðarmönnum þjóðar- KjaUarinn Þorkell Helgason situr í nefnd um mótun sjávarútvegsstefnu eignina, fiskimiðin. Að auki á það nokkuð í land að þau verði svo arð- bær að þaðan sprettí upp þeir miklu velgjörðarmenn sem Hannes dreymir um. En forsmekkinn af sUkri paradís höfum við nú fundið í eigendum Sameinaðra verktaka. Þeim var fyrir nokkrum áratug- um afhentur einkaréttur á annarri auðlind, ameríska hemum á ís- landi. Að vísu ræðst sú auðUnd ekki af gjöfulU náttúru eins og fiskimiöin, heldur af þeim öflum sem ráöa gangi heimsmálanna. Þessi póUtíska auðUnd er því faU- valtari en fiskimiðin, en arðbær þó. A.m.k. gat þetta útgerðarfélag ný- verið dreift hluta ábatans, 900 millj. kr., til handhafa einokunarréttar- ins. Mér er tíl efs aö þjóðin kæri sig um að teljast eigandi þessarar ó- náttúrlegu auðlindar, en svo mikið er víst að þeir sem hafa gert út á hana greiða treglega afgjald af afl- anum. Gleðjast gumar Ný hlýtur Hannes að gleðjast. Ekki fór einokunargróðinn í þetta sinn í sameiginlegan vasa hinna gerspUltu 63-menninga, heldur til athafnamanna. Ég bíð eftirvænt- ingarfuUur eftir því að nú braggist þjóðarhagur, menntastofnanir blómstri og aldraðir og fatlaðir fái spón í askinn sinn. Velferðin í kreppu Að slepptu öllu gamni: Þjóðar- hagiu- er í kreppu. Það skortir margfalda útborgunina til samein- uðu einokraranna til að rétta ríkis- sjóð við og búa sómasamlega að velferðarkerfi fólksins - ekki fyrir- tækjanna. I þessu skyni verður víða að spara og krefja almenning um ýmis velferðargjöld, a.m.k. í bráð. En það getur reynst stjómmálamönn- um erfitt að afla skUnings á þessum gjörðum á sama tíma og einokun- argróði streymir í vasa fárra, hvort sem það em hermangarar eða út- gerðarmenn. Veiðigjald til velferðar Veiðigjald í sjávarútvegi verður að koma þó ekki sé nema til að styrkja velferðarkerfi okkar. Gjaldið skUar e.t.v. Utlu í bráð en sé vel um hnútana búið og útgerð- inni skapaöur sá stjómunarrammi aö hún auki arð sixm getur útgerð- in með tímanum skUað þvílíku af- gjaldi af nýtingarrétti af fiskimið- unum að óvinir Hannesar, þeir sem sitja á Alþingi, geti í raun komið velferðinni á varanlegan gmnn. Þorkell Helgasor „ ... getur útgerðin með tímanum skil- að þvílíku afgjaldi af nýtingarrétti af fiskimiðunum að óvinir Hannesar, þeir sem sitja á Alþingi, geti í raun komið velferðinni á varanlegan grunn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.