Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992. 13 Friðarferð til ísraels? „Á meðan Davíð Ben Gurion og eftirmenn hans í israelska verkamanna- flokknum stjórnuðu var samúð heimsins með þeim mikil,“ segir Bjarni m.a. í grein sinni. Forsætisráðherra Islands er í opinberri heimsókn í ísrael. Það er gott að hann heimsækir önnur lönd til að treysta bönd vináttu við þjóð- ir og ríkisstjómir sem okkur er hlýtt til. Okkur hefur lengst af ver- ið hlýtt til ísraela en síðustu árin hefur samúð okkar og fleiri þjóða með þeim minnkað vegna stefnu og framkomu núverandi ríkis- stjómar þeirra. Margir íslendingar sem aðrir óttast afleiðingar þessar- ar stefnu. israelsk óbilgirni og yfirgangur Nú erum við flest hætt að óttast styrjöld á milli Bandaríkjamanna og Rússa og okkur finnst heimur- inn friðvænlegri en hann hefur verið svo lengi sem við munum. Samt eru enn til pólitískar púðurt- unnur og sú hættulegasta er við Miðjarðarhafið austanvert. Bandaríkjamönnum tókst með ærinni fyrirhöfn að draga ísraela að samningaborði þar sem arabar, og þar á meðal Palestínumenn, sitja andspænis þeim. En á meðan menn tala saman á fundum, með smá- uppákomum inni á milli, halda ísraelar áfram að storka Palestínu- mönnum og öðrum aröbum með því að meina Palestínumönnum grundvallarmannréttindi í eigin landi og með því að auka sífellt landnám á herteknu svæðunum. Valdhafar í ísrael nú eru hægri- sinnaðir öfgamenn, studdir af bók- stafstrúargyðingum. Talið er að á árunum áður en Ísraelsríki var stofnað hafi Shamir, forsætisráð- herra ísraels, verið einn af aðalfor- ingjum Stern-flokksins sem var þekktasca hryðjuverkasveit gyð- inga. Talið er að Stern-menn hafi á sínum tíma myrt Folke Bemadotte KjaUarinn Bjarni Einarsson aðstoðarforstjóri Byggðastofnunar þegar hann vann að sáttum í milli Palestínumanna og gyðinga á veg- um Sameinuðu þjóðanna. - Stem var fyrirmynd palestínskra skær- uliða. Þrátt fyrir aUt binda menn mikl- ar vonir við samningafundi araba og ísraela enda em Bandaríkja- menn nú loks famir að taka Sham- ir og hans menn fóstum tökum því jafnvel bandarískum gyðingum, þeim hófsamari, blöskrar nú at- hæfi ísraelsmanna. Ekki er vafi á að ef samningar nást ekki verður styrjaldahættan mikil í Austur- löndum nær og sú styrjöld yrði enginn bamaleikur. Hvert er erindið? í þessari viðkvæmu stöðu mála er ákveðið að forsætisráðherra ís- lands fari og heimsæki annan deiluaðilann, þann sem flestir em sammála um að sé nú orðið óbil- gjamari aðili deilunnar. Ef hann hefur farið í þessa ferð til þess að tala um fyrir Shamir, til þess að leggja löð okkar á vogarskálina með Bandaríkjamönnum til að ísraelar sjái að sér, er ferðin vel farin. Ef þessi ferð er farin sem vinar- heimsókn er hún diplómatísk mis- tök. Þá er pólitískur leiðtogi íslands að leggjast á sveif með öðrum deilu- aðilanum fyrir botni Miðjarðar- hafs. Þar með verða íslendingar flokkaðir í fremstu röð vina núver- andi valdhafa ísraels hvaða afleið- ingar sem það hefur. Breytt afstaða til ísraels íslendingar vom fyrstir þjóða til að lýsa stuðningi við myndun ísra- elsríkis og þjóðin stóð að baki þeirrar yfirlýsingar. Fólk vildi eiga hlut í að bæta gyðingum meðferð nasista á þeim. Einnig dáðumst við flest að snilld ísraelsmanna í bar- áttu þeirra við arabíska ofureflið. Á meðan Davíð Ben Gurion og eftirmenn hans í ísraelska verka- mannaflokknum stjórnuðu var samúð heimsins með þeim mikil. En eftir valdatöku hægrimanna og vegna hörkunnar í stefnu þeirra og aðgerðum fór samúðin að minnka og hún hefur minnkað ört síðan Shamir tók við stjórnartaum- unum. Síðan hafa ísralesmenn rekið stefnu sem helst er sambærileg við nasisma sem ekki getur leitt til annars en vopnaðs uppgjörs verði fram haldið sem hingað til. Nú, þegar fólk eygir vonina um batn- andi heim friðar og réttætis er það stefna þeirra sem veldur okkur öll- um mestri hættu. Hver er stefna íslands? Þjóðin á að fá að vita hver stefna íslands er nú gagnvart deilum ísra- ela og araba. Saga afskipta okkar af þessum málum er þannig aö lóð okkar getur verið talsvert þungt. Við getum ekki stutt núverandi stefnu ísraelsku stjórnarinnar. Því er nú spurt: Er það erindi forsætis- ráðherra að styðja viðleitni Bush forseta og vinna að stefnubreyt- ingu ísraela og að friði þama eystra? - Sé svo árna ég honum allra heilla í ferð hans. Bjarni Einarsson „Okkur hefur lengst af verið hlýtt til Israela en síðustu árin hefur samúð okkar og fleiri þjóða með þeim minnk- að vegna stefnu og framkomu núver- andi ríkisstjórnar þeirra.“ Hasttulegir spaugarar „Hvers vegna fórnarlamb rannsóknarvalds?“ Sportklúbburinn við Borg- artún í Reykjavik brennur. Nýlega útlistuðu leikarar spaug- stofu ríkissjónvarpsins vendilega hvemig einn eigandi klúbbsins kveikti í húsi sínu eða svo mátti skilja á annars vel gerðum leik- þætti. Logarnir léku um rjáfur og glugga hússins við Borgartún en spaugstofumaður í líki frétta- manns átti viðtal við brennuvarg í anddyri hússins. Taldi hann vá- tryggingarféð kvað ákafast þegar sprengidrunur kváðu við og juku tjón eigandans, ef vátryggingin þá dugir til að bæta það. Eða hvað? Hverju voru spaugstofumenn að lýsa? Glæfralegum framapotara einkaframtaksins sem nýlega var búinn að hækka tryggingar sínar. Er þetta sú ímynd sem stærsti fjölmiðill landsins vill gefa þeim sem þora að leggja út í fyrirtækja- rekstur? Dómur fyrirfram Voru spaugarar að leggjast á sveif með lævísum orðrómi og kveða upp fyrirfram dómsúrskiu-ð yfir manni sem situr í gæsluvarðhaldi, fanga sem ekki getur tjáð sig? Það verður að athugast að rannsóknar- lögreglan hafði áður beðið um gæsluvarðhald yfir hinum grunaða sem síðan er staðfest af Hæstarétti. Hvemig sem mál þróast hlýtur það að vera krafa í lýðræðisríki að rík- isfjölmiölar ráðist ekki á grunaða menn með óviðeigandi hætti beint eða óbeint til að styrkja aðgerðir annarra embættismanna. Þvert á móti eiga ríkisíjölmiðlar að styrkja lýðræðið og vera gagn- rýnir á ákvarðanir dómsvaldsins vilji þeir ekki teljast vilhallir. Gæsluvarðhald Er það nauðsynlegt fyrir réttar- Kjállariim Sigurður Antonsson framkvæmdastjóri öryggið í landinu að yfirvöld hafi vald til að beita gæsluvarðhalds- vist? Mörg lönd hafa bannað gæslu- varðhald nema viðkomandi séu hættulegir umhverfi sínu. Oftast er talið nægilegt að grunaðir séu til tals við rannsókn brotamála, fari ekki út fyrir lögsagnannn- dæmið, og svo framvegis. Maður sem situr í varðhaldi get- ur á engan hátt varist óréttmætum ásökunum fréttamanna eða grín- ara hvað þá komið sjónarmiðum sínum á framfæri. Lögmenn þeirra eru og misjafnlega störfum hlaðnir, allflestir þó önnum kafnir við að hafa nógu mörg mál í gangi sér til lífsviðurværis. Alltof oft eru þó lög- menn háðir sínu kerfi og því lítt gagnrýnir á aðgerðir dómstóla. Fórnarlamb Hvers vegna fórnarlamb rann- sóknarvalds? Fyrir rúmum áratug urðu aðrir forráðamenn Klúbbsins við Borgartún að sitja saklausir svo vikum skipti í gæsluvarðhaldi. í Guðmundar- og Geirfinnsmáli, einu furðulegasta sakamáli sem komið hefur upp á íslandi. Ekki nóg með það heldur urðu margir grunaðir en alsaklausir að sæta gæsluvarðhaldsvist svo mánuðum skipti. Sakadómur beitti einangrun, harðræði og ómanneskjulegum að- ferðum til að spinna þráð eftir eigin höfði og fá menn til að játa og und- irrita. Spaugstofumenn eru vel látnir af sjónvarpsfólki. Einkum við að lífga upp á gráan hversdagsleikann og til að gera grín að stjómmálum sem ekki mega verða leiðinleg. Leikara- skapur á þó sín takmörk og verður ískyggilegur ef hann nær að renna stoðum undir óréttláta dóma. Að hækka brunatrygginguna Menn í áhætturekstri þurfa oft að hækka eða lækka brunatrygg- ingar sínar. Rekstur fyrirtækja er breytilegur. En hvenær skyldu forráðamenn fyrirtækja komast undan grun um að hafa hækkað tryggingu sína í vafasömum til- gangi? Ef bruni verður innan 2 mánaða, árs eða eftir tvö ár? At- vinnurekstrarmenn hljóta að íhuga þetta þegar dómur rann- sóknarvalds og ríkisíjölmiðla er jafnbeinskeyttur og raun ber vitni um. Skyldu menn fresta nauðsynleg- um brunatryggingum? Gæti það og ekki orðiö ámælissök? Ríkisstarfs- menn þurfa ekki að hafa þessar áhyggjur. Stóri bróðir sér um sína og allt er í fóstum skorðum. Yfir- leitt eru stofnanir komnar til að vera og lítið um breytingar á trygg- ingarupphæðum. Hitt er þó umhugsunarverðara hversu meðfærileg blöð og sjón- varp eru í frásögnum af meintum sakamálum. Fréttatilkynningar eru teknar hráar og gagnrýnis- laust. Brugið er leikfléttum og spaugarar leika undir. Útkoman einn hrærigrautur, Geirfinnsmál. Sigurður Antonsson ,,Er þetta sú ímynd sem stærsti fjölmið ill landsins vill gefa þeim sem þora að leggja út í fyrirtækjarekstur?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.