Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Blaðsíða 15
Héðinn Gilsson skorar í landsleik gegn Norðmönnum fyrir tveimur árum. íslendingar mæta Norðmönnum í B-keppninni og þá verður Héðinn fjarri góðu gamni. Héðinn úrleik - leikur ekki 1 B-keppninni „Það er nokkuð ljóst að Héðinn Gilsson er út úr myndinni og mun ekki leika með íslenska landsliðinu í B-keppninni í Austurríki," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, í samtali við DV í gær. Héðinn er samningsbund- inn hjá félagi sínu, Dusseldorf, eins og fram kom í DV í síðustu viku. Þetta er áfall fyrir íslenska lands- liðið þvi tvísýnt hefur verið um að Júlíus Jónasson komist í B-keppnina en forráðamenn Bidasoa hafa neitað aö gefa hann lausan. Það er því erf- itt hlutskipti sem bíður Þorbergs en samkvæmt öruggiun heimildum DV styttist nú óðum í það að Alfreð Gíslason gefi kost á sér. Undanfarið hefur verið gífurlegur þrýstingur á hann að gefa kost á sér og ekki minnkar hann eftir nýjustu fréttim- anaf Héðni og slæmri stöðu mála hjá Julíusi. Samkvæmt heimildum DV mun Sigurður Bjamason nú vera öruggur með stöðu hægrihandarskyttu í landshðinu og þá losnar staða miðju- manns en Sigurður hefur fyrst og fremst verið inn í myndinni hjá landshðsþjálfumnum sem leik- stjómandi. Jakobí hópnum Jakob Sigurðsson verður í landsUðs- hópnum fyrir B-keppnina en hann hefur sem kunnugt er átt við lang- varandi meiðsU að stríöa. „Jakob verður í hópnum og það verður síðan að koma í ljós hvort hann stenst próf- ið,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson í gær. Þorbergur reiknar með að til- kynna 16 manna landsUðshóp sinn sem fer til Austurríkis í næstu viku en nú er mánuður þar til B-keppnin hefst. Þorbergurí vanda með markverðina Það er nokkuð ljóst hvaða leikmenn skipa 16 manna landsUðshópinn ef frá era taldar þrjár markvarðastöð- ur. Samkvæmt heimUdum DV er Þorbergur í miklum vanda hvað markverðina varðar. Markvarsla hefur verið áberandi veikasti hiekk- urinn í annars liflegum handknatt- leik hér á landi í vetur. Guðmundur Hrafnkelsson, Val, hefur átt dapurt keppnistímabil í vetur en á mótí kem- ur mikU reynsla hans. Samkvæmt heimUdum DV verður Guðmundur í hópnum. Bergsveinn Bergsveinsson er einn besti markvörðurinn í 1. deUd- inni í dag og hefur verið einn jafnb- estí markvörður deUdarinnar í vetur. Varla er hægt að ganga framhjá hon- um við val landsUðsins og má hann teljast öraggur með sæti í Uðinu. Sigmar Þröstur Óskarsson er einnig inni í myndinni. Þá er þriðja sætíð eftir og samkvæmt heimUdum DV verður Einar Þorvarðarson í hópn- um. Hann er okkar reyndasti mark- vörður og þegar í sUkan slag sem B- keppni er komiö er leikreynslan gíf- urlegamikUvæg. -SK Niðurröðun leikja hjá Islendingum í undankeppni HM: Grikkland verður fyrsti mótherjinn í gær var leikjum í 5. riðU undan- keppni heimsmeistarakeppninnar í knattspymu raðað niður en í þess- um riðli leika sem kunnugt er ís- lendingar. Niðurröðunin fór ffam í Búdapest í Ungverjalandi og vora Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Ásgeir EUasson, landsUðsþjálf- ari, fuUtrúar íslands á fundinum. „Eins og vænta mátti var erfitt að koma þessu saman. AUar þjóð- irnar vUdu ná sínu fram en ég held að alUr aðUar hafi mæst á miðri leið. Það var vandkvæðum bundið að ákveða leikdaginn gegn Grikkj- um. Við vUdum leika við þá síðast en á endanum var ákveðið að það yrði fyrsti leikurinn í riðUnum," sagði Ásgeir Elíasson, landsUðs- þjálfari, í samtaU við DV frá Búda- pest í gær. Eins og máUn Uta út í dag er óvíst hvar leikurinn við Sambandsríkin verður og eins hvaða Uöi þau tefla fram. Fulltrúi þeirra á fundinum í gær átti þó von á því að leikurinn yrði í Moskvu. Hann áttí Uka eins von á þvi að þeir myndu tefla fram Uði Rússlands. Júgóslavar lögðu á það þunga áherslu að leika fyrstu þijá leikina á útívöllum og tóku fundarmenn tilUt tíi þeirra óska vegna ástands- ins í Júgóslavíu. íslenska landsUðið í knattspymu leikur fimm leiki í undankeppni heimsmeistarakeppninnar á þessu ári og fimm á því næsta. Tveir fyrstu leikimir fara fram strax í vor, báðir á útívelU. ísland sækir Grikkland heim 13. mai og Ung- verjaland 3. júní. Leikdagar íslands í keppninni era sem hér segir: 1992: 13.5. Grikkland-ísland 3.6. Ungverjaland - ísland 2.9. Ísland-Júgóslavía 7.10. ísland - Grikkland 14.10. Samveldið - ísland 1993: 20.5. Lúxemborg-ísland 2.6. ísland - Samveldið 16.6. ísland - Ungveijaland 22.8. Júgóslavía-Ísland 8.9. ísland - Lúxemborg í þessarri niðurröðun hefur tekist betur til en oft áður. Fjórir leikj- anna fara fram að sumarlagi, þrír í júni og einn í ágúst, enginn fyrr en 13. maí og enginn síðar en 14. október. -VS/JKS B-keppnin 1 handbolta: leik Bidasoa flýtt í bikamum Ekkert hefur skýrst í málum Júlíusar Jónassonar hvað varðar þátttöku hans með landsliðinu i B-keppninni í handknattleik. IHF sendi spænska handboltasamband- inu skeyti þess efnis að þaö léti Bidasoa standa við geröan samning en engin viöbrögö hafa komið frá ^ forráöamönnum Bidasoa. ~ Eins og fram hefur komiö hefur Bidasoa neitað Júlíusi um að leika með í B-keppninni fyrr en þátttöku Júlfus Jónasson lelkur stórt hlut- félagins lýkur í bikarkeppninni og verk I ísienska landsliðinu. þáhefurþaömeinaðJúliusiaötaka þátt í undirbúningi landsliðsins fyrir keppnina. Bikarkeppnin á Spáni átti upp- haflega aö hefjast 19. mars eða sama dag og íslendingar leika sinn fyrsta leik í B-keppninni. Nú hefur veriö ákveðið að bikarkeppnin heflist deginum fyrr eða þann 18. Bidasoa á að leika gegn Teka. Liðið sem tapar er úr leik svo líkumar era þó nokkar að Július verði með í fyrsta leik enda er lið Teka geysi- öflugt um þessar raundir. -GH Peysa „Magic“ hengd upp - segist hlakka mikið til að leika á ólympíuleikunum Besti körfuknattleiksmaður sög- unnar, Erwin „Magic“ Johnson, hef- ur líklega leikið sinn síðasta leik í NBA-deildinni. Eins og kom fram í DV í gær hefur peysa Johnsons, númer 32, verið hengd upp í Fooram- höllinni en það er mesti heiður sem körfuknattleiksmanni hlotnast í NBA-deildinni að fá búning sinn hengdan upp í höllum félaganna. Áður en peysa Johnsons var hafin á loft héngu fjórar slíkar fyrir í ijáfri Fooramhallarmnar. Það era peysur Wilt Chamberlains, númer 13, Elgin Baylors, númer 22, Ábdul-Jabbars, númer 33 og Jerry West, númer 44. Peysu Johnsons var komið fyrir við hliö hinna fjögurra í leikhléi á leik Lakers og Boston í fyrrinótt. Kveðjustundin var ógleymanleg þeim sem sáu og vinur Johnsons, Tap gegn Frökkum á HM í badminton Karlalandshð Islands tapaði fyrir Frakklandi, 2-3, í fyrstu umferð Thomas-bikarkeppninnar í badmin- ton sem hófst í Frakklandi í gær. Úrshtin era nokkurt áfall fyrir ís- lenska liðið sem var sigurstranglegt í sínum riöh mótsins. Broddi Kristjánsson vann Panel í fyrsta leik, 15-6 og 18-14. Þorsteinn Páll Hængsson tapaði fyrir Renault, 8-15 og 3-15. Jón P. ZimseA tapaði fyrir Massirs, 1-15 Og 11-15. Broddi og Ámi Þór Hallgrímsson unnu Panel og Renault, 15-8 og 15-13. Þorsteinn og Jón töpuðu fyrir Je- anJean og Massirs, 8-15, 15-10 og 8-15. -VS Larry Bird, leikmaður Boston, lét sig ekki muna um að fljúga yfir þver Bandaríkin til að geta verið viðstadd- ur athöfnina. Tárin streymdu niður kinnar Johnsons og allir í íþrótta- hölhnni risu úr sætum og hylltu þennan mesta körfuboltasnilling sem uppi hefur verið. Margir þekktir leikmenn og framámenn í NBA- dehdinni voru viðstaddir athöfnina. Þar má nefna Kareem Abdul-Jabbar, James Worthy, Larry Bird, Jerry West, sem nú er framkvæmdastjóri Lakers, og David Stem frá NBA. Æfir 3 tíma á dag og hefur engu gleymt Johnson æfir enn af fuhum krafti, 3 tíma á degi hveijum og hann sýndi það í Stjömuleik NBA á dögunum aö hann hefur engu gleymt. Hann tilkynnti 7. nóvember á síðasta ári að hann yrði að hætta að leika með Lakers vegna þess að komið hefði í ljós að hann bæri HTV-veiruna. En er hann hættur að leika í NBA- deildinni? Margir hafa viljaö túlka athöfnina í fyrrinótt sem lokapunkt hjá Johnson varðandi NBA. Sjálfur segir hann: „Ég hlakka mjög mikið til þess að leika á ólympíuleikunum í Barcelona í sumar. Og ef mér snýst hugur varöandi NBA-dehdina þá vona ég að enginn reiðist þvi að þurfa að hífa peysuna mína upp í loft Foor- umhaUarinnar á ný.“ Það er því enn möguleiki á að Johnson klæðist bún- ingi Los Angeles Lakers í úrshta- keppni NBA-deUdarinnar í vor og víst er að margir myndu gleðjast endurkomu hans. Hins vegar er ljóst, að því miður er þessi snillingur ekki lengur fuUgUdur leikmaður í deUd- inni og verður það aldrei aftur. Johnson þakkaði Larry Bird sérstak- lega fyrir að vera viðstaddur athöfn- ina í Foorum í fyrrinótt en hann er bakveikur og því ekki það besta í slíku ástandi að fljúga í margar klukkustundir. Johnson sagöi að ekkert hefði jafnast á við að leika gegn Boston og Bird. Og við Bird sagði hann: „Án þín hefði ég aldrei náð á toppinn og ég met það mik- Us.“ Við áhorfendur í FoorumhöU- inni sagði Johnson: „í mínum huga erað þið meira en áhorfendur, þið erað vinir mínir. Ég hef eignast marga vini úr stuðningsmannahópi Lakers. Ég þakka ykkur fyrir stuön- inginn í gegnum árin og fyrir að hafa stutt mig svo dyggUega í 12 ár.“ -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.