Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1992, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992.
17
rólympíuleikum. Smetanina var i sigursveit
tíundu í röðinni. Símamynd/Reuter
Bikar-karfa:
Valsmenn
áfram
Valsmenn unnu sér réttinn til aö leika í
íögurra liða úrslitum bikarkeppninnar í
cörfuknattleik eftir sigur á Breiðablik í
ligranesi í gærkvöldi, 76-100. í háifleik var
>taðan 46-56 Valsmönnum í hag.
Hjörtur Amarsson var stigahæstur hjá
Jreiðabliki, skoraði 25 stig, en Franc Booker
rar stigahæstur Valsmanna, skoraði 20 stig.
-KG
Raisa Smetanina, skíðakona frá Samveldinu:
Elsta kona til
að vinna gull
- og vann um leið sín tíundu verðlaun á ólympíuleikum
Raisa Smetanina, sem í gær varð
elsta kona til að vinna gullverðlaun
á vetrarólympíuleikum, tilkynnti að
loknum sigri Samveldisins í 4x5 km
boðgöngunni að hún væri hætt
keppni.
Verður fertug
í næstu viku
Smetanina verður fertug í næstu
viku og keppir nú á ólympíuleikum
í fimmta sltipti. „Ég held að ég keppi
ekki á næstu leikum, í Lillehammer.
Tvö ár er langur tími. Kannski fer
ég þangað sem ferðamaður," sagði
hún í gær.
Ekki taka allir
yfirlýsinguna alvarlega
En það táía ekki allir þessar yfirlýs-
ingar alvarlega. Rússneskur hlaða-
maður sagðist hafa heyrt hana segja
þetta áður, meðal annars á ólympíu-
leikunum í Lake Placid fyrir 12
árum!
Eftir að hún vann til bronsverð-
launa í Calgary fyrir fjórum árum
lýsti hún því yfir að þetta væru síð-
ustu verðlaunin, nú gæti hún hætt
ánægð.
í gær vann hún til sinna tíundu
verðlauna á ólympíuleikum og setti
nýtt met - enginn einstaklingur hef-
ur komist svo oft á pall á vetrarleik-
um. Metið, níu verðlaun, átti hún
ásamt sænska skíðagöngumannin-
um Sixten Jernberg. Smetanina hef-
ur unnið til 4 gullverðlauna, 5 silfur-
verðlauna og einna bronsverðlauna.
Fyrra aldursmetið átti Ludowika
Jakobsson frá Finnlandi sem var 35
ára gömul þegar hún sigraði í hst-
hlaupi á skautum árið 1920. Hún
vann silfurverðlaun fjórum árum
síðar, 39 ára og 189 daga gömul.
Smetanina fædd
á hlaupársdag
En Smetanina verður í raun aðeins
10 ára gömul í næstu viku - hún er
nefnilegafæddáhlaupársdag! -VS
Sigursveit Samveldisins í 4x5 km boðgöngu, ánægðar á svip með verðlaunin. Frá vinstri Raisa Smetanina, Larisa
Lasutina, Elena Valbe og Lyubov Egorova. Símamynd/Reuter
4x5 km boðganga kvenna í Les Saisies:
Samveldið sterkast
íþróttir
Ölympíuleíkamir:
4x5 km boðgangakvenna
1. Samveldiö..............59:34,8
Velbe-Smetanina-Lasutina-Eeerova
2. Noregur............. 59:56,4
Pwlorson Nybraten Dybendahl Nilseri
3. ítalía..............1:00:25,9
Vanzetta-Di Centa-Paruzzi-Bclmondo
4. Fínnland............1:00:52,9
5. Frakkland...........1:01:30,7
Norræn tvíkeppni
Fyrri hluti, stökk af 90 metra palli:
1. Japan
2. Austumk
3. Þýskaland.
4. Bandaríkin
5. Frakkfand..
...645,1
.615,6
.609,7
.591,3
.578,4
.4-0
.5-3
.3-3
Ishokki
A-riðill
Þýakaland -Pólland
Finnland - Italía..
Svíþjóð - Bandaríkin
Lokastaðan:
Bandaríkin
Svfþjóð
Finnland
Þýskaland
Ítalía
Pólland
4 efstu eru komin 1 8-liða úrslit.
Isdans
1. Klimova/Ponomarenko
.................. ....... .Samveldinu
2.1. Duchesnay/P. Duchenav.
•■•••......... ................... ...f l djvlvl
3. Usova/Zhuhn......Samveldmu
Badminton:
Þórdís
hafði betur
gegn Elsu
Þórdís Edwald, TBR, náði að koma
fram hefndum á meistaramóti KR í
einhðaleik í badminton á dögunum.
Þá sigraði hún Elsu Nielsen, TBR, í
úrslitum í hörkuleik en í úrslitaleik
þeirra á íslandsmótinu fyrir
skömmu hafði Elsa betur og tryggði
sér íslandsmeistaratitilinn.
Þórdís vann fyrstu lotuna naum-
lega, 11-9. Þá sigraði Elsa, 9-12 og í
úrslitalotunni hafði Þórdís betur og
sigraði 11-7.
I einliðaleik karla spiluðu Mike
Brown frá Bretlandi og Ámi Þór
Haligrímsson, TBR, í úrslitum. Árni
Þór Hallgrímsson sigraöi örugglega,
15-9 og 15-5. íslandsmeistarinn,
Broddi Kristjánsson, keppti ekki á
mótinu vegna meiðsla.
í aukaflokki, þar sem þeir kepptu
sem töpuðu leik sínum í fyrstu um-
ferð, sigraði Haraldur Kornelíusson,
TBR, Jóhann Helgason, KR, 15-3 og
15-1. í aukaflokki kvenna sigraði El-
ísabet Þórðardóttir, TBR, Áslaugu
Jónsdóttur, TBR, 11-8 og 11-6. _gj^
- norska s veitin hreppti silfurverðlaunin
Kvennasveit Samveldanna vann
mjög öraggan sigur í 4x5 km boð-
göngu á vetrarleikunum í gær. Sveit-
in kom í mark um 20 sekúndum á
undan sveit Noregs sem varð í öðru
sæti en sveit Ítalíu varð þriðja.
í sveit Samveldanna voru þær
Elena Valbe, Raisa Smetanina, Lar-
isa Lasutina og Lyubov Egerova.
Sveitin gekk á 59:34,8 mín. Egerova
vann þarna sín þriðju guliverðlaun
á leikunum. Athyghsverðastur er þó
árangur Raisu Smetaninu en hún
varð í gær elsta konan til að vinna
gullverðlaun á vetrarólympíuleik-
um. Hún verður fertug eftir nokkra
daga og vann í gær 10. verðlaun sín
á vetrarleikum sem einnig er met.
Gangan í gær var nokkuð spenn-
andi til að byrja með og þegar hún
var hálfnuð var norska sveitin í
fyrsta sæti en tapaði því til Samveld-
iskvenna á lokakafla þriðja spretts-
ins. Þá munaði 2,6 sekúndum á sveit-
unum. Egerova gekk síðan síðasta
sprettinn af feiknalegu öryggi og
norska stúlkan Elsa Nielsen átti enga
möguleika. ítalska sveitin kom mjög
á óvart og hafnaði í þriðja sæti. Sveit-
in var í níunda sæti fyrir síðasta
sprettinn en Stefania Belmondo gekk
mjög rögklega og tryggði ítölum
bronsið. -SK
Skíði:
Bikarmót
María Magnúsdóttir frá Akureyri
og Amór Þ. Gunnarsson frá ísafirði
sigruðu í svigi kvenna og karla á
fyrsta bikarmóti Skíðasambands ís-
lands í vetur sem fram fór á Selja-
landsdal við ísafjörð um helgina. Til
stóð að keppa tvisvar í svigi en vegna
veðurs var keppni á sunnudeginum
aflýst eftir fyrri ferð í báðum flokk-
um og þá höfðu María og Arnór aftur
náð bestum tíma.
Efstu sætin í sviginu á laugardag
féllu þannig:
Konur:
1. MaríaMagnúsdóttir, Ak....95,98
2. GuðrúnH.Kristjánsd., Ak..96,24
3. Fanney Pálsdóttir, ísaf..100,24
Karlar:
1. Amór Þ. Gunnarsson, ís...91,%
2. Valdemar Valdemarss, Ak..93,54
3. Jóhann B. Gunnarsson, ís.94,36
Sjö konur af tíu luku keppni og sjö
karlar af þrettán. -VS
„Sett stef nuna á ólympíuleikana"
Arnþór Ragnarsson var aðeins mínútum og vann báöar greinar. „Ástæðan er sú að ég hef ekki efni
17/100 frá ólympíulágmarki í 100 „Ég hef sett stefnuna á ólympíu- á aö vera lengur í Danmörku því
metra bringusundi á alþjóðlegu leikanaogerbjartsýnnáaðnálág- éghefþurftaðkostadvölmínaþar
móti í Rostock í Þýskalandi á dög- markinu en því þarf ég aö vera alfarið sjálfur. Mér bauöst að æfa
unum. Eins og fram kom í DV á búinn að ná í júní,“ sagði Arnþór með danska landsliðinu, sem er að
mánudagimi, setti hann tvö Is- í samtali við DV í gær. hefia lokaundirbúning sinn fyrir
landsmet á mótinu, synti 100 metra Araþór hefur dvalið í Danmörku ólympíuleikana, en varð að hætta
bringusund á 1:04,78 mínútum og við æfingar og keppni síðan í maí viðþað,‘'sagðiArnþórRagnai-sson.
200 metra bringusund á 2:21,77 1990 en er nú kominn heim. -VS