Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992.
Fréttir
Skiptalokí
fimm þrotabúum Nesco af sex:
Fáskrúðsfjörður:
Ogreiddar kröf ur
243,8 milljónir
ólokiö skiptum á framleiðslufyrirtæki Nesco
Skiptameðferö í fimm þrotabúum
Nesco af sex er nú lokið. Samtals
námu lýstar kröfur í þrotabúin, sem
skipti hafa þegar farið fram í, rúm-
lega 251 milljón króna. Engar eignir
fundust í búunum nema einu þeirra.
Þar fengust rúmlega 7 milljónir upp
í kröfur. Við skiptalok voru því
ógreiddar kröfur aö upphæð 243,8
milljónir.
Séu þrotabúin tekin hvert fyrir sig,
þá námu lýstar kröfur í Nesco hf.
samtals 58,6 miUjónum króna. Þar
af var krafa upp á 1.222.046 í DM, sem
nemur um 44 milljónum íslenskra
króna. Ekkert fékkst upp í þessar
kröfur.
Kröfur í þrotabú Nesco Internatio-
nal hf. námu rúmum 59 milljónum
króna. Aðeins tveir kröfuhafar lögðu
fram kröfur í búið. Gjaldheimtan var
með kröfu upp á 50 þúsund en Lands-
bankinn var með afganginn. Engar
eignir fundust í búinu, þannig að
ekkert fékkst upp í kröfumar.
Þá er skiptum í þrotabú Nesco
Kringlunnar hf. lokið. Lýstar kröfur
í búið námu samtals 22,6 milljónum
krónum. Af þeim voru kröfur að
upphæð 1,2 milljónir flokkaðar sem
forgangskröfur. Greiddust þær aö
fuUu. Almennar kröfur námu sam-
tals 21,4 milljónum krónum. Upp í
þær greiddust 5,9 milljónir. Eftir
stóðu 15,5 milljónir, sem ekkert
fékkst upp í. Langstærsti kröfuhaf-
inn í þrotabú Nesco Kringlunnar hf.
var Nesco-framleiðslufélag hf.
Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur
að upphæð 77,4 milljónir í þrotabú
Nesco Laugavegar hf. Sama máli
gegndi um þrotabú Nesco Xenon-
iðnfyrirtækis hf. Lýstar kröfur í búið
námu 33,3 milljónum króna. Engar
eignir fundust í búinu og fékkst því
ekkert upp í kröfumar.
Enn hafa ekki farið fram skiptalok
í þrotabúi Nesco-framleiðslufélags
hf. Að sögn Gests Jónssonar bústjóra
námu lýstar kröfur í það um 500
milljónum króna. Ekki er búist við
að skiptum í því búi ljúki fyrr en
með vorinu.
-JSS
Heimamenn og Sauðkræk-
ingar fá veiðiréttinn í Blöndu
ÞóihaHur Asmundsson, DV, Norðurl. vestra;
Gengið hefur verið frá veiðlrétti í
Blöndu næsta sumar. Það verða fé-
lagar í veiðifélögunum á Sauðár-
króki og Blönduósi sem renna fyrir
lax í Blöndu í sumar en síðasta sum-
ar höfðu ána á leigu þrír aðilar að
sunnan. Þeir kölluöu sig Veiðifélagið
Ós. Þar á undan höfðu Blönduósing-
ar og Sauðkrækingar haft ána í 10
ár ásamt Stangaveiðifélagi Reykja-
víkur.
Að sögn Halldórs Maríussonar,
formanns Veiðifélags Blöndu og
Svartár, er fastlega reiknað með að
í sumar gæti ekki þess misrennslis
sem var í Blöndu sl. sumar en ekkert
er vitað hvort mikið vatnsrennsli á
hrygningartímum síðasta haust hafi
valdið því að klak hafi orðið verulega
minna en í meðalári.
Rannsóknir fiskifræðinga hafa leitt
í ljós að hrygningarstöðvamar í
Blöndu eru uppi í Blöndudal og menn
vona að fiskurinn hrygni áfram -á
þessum slóðum, í gljúfrinu neðan
stíflunnar. Blöndustífla lokar fyrir
að sjógenginn fiskur hrygni í Seiðsá
og í Haugakvísl framan Galtarár.
Sjúkrablll í hörðum árekstri
Sjúkrabíll úr Reykjavík, sem var á
leiðinni í Amarholt á Kjalamesi til
aö sækja sjúkling, lenti í árekstri við
fólksbíl í Kollafirðinum í aðfaranótt
sunnudags.
Skyggni var lítið og færð mjög
slæm þegar atburðurinn átti sér stað
rétt hjá Laxeldisstöðinni í Kollafirði
og varð áreksturinn harður. Mesta
mildi þykir að engin meiðsl urðu á
mönnum en bílamir em báðir stór-
skemmdir, fólksbíllinn er nánast
ónýtur.
-HK
Þessum bil verður varla ekið meira eftir að hann lenti i órekstri við sjúkrabíl.
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfixöi:
Buðafell SU 90 slitnaði frá
bryggju á Fáskrúðsfirði í gær-
morgun, mánudag. Skipiö rak
upp í fjöru á móts við vélaverk-
stscöi HFF
Skuttogarinn HoffeU SU dró
Búðafelliö af strandstað. Mjög
hvasst var á Fáskrúðsflrði í gær-
raorgun og gekk á með hvössum
hrinum.
Búðafell skemmdist ekki við
þetta óhapp. Skipið er í eigu
Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar.
Vestmannaeyjar:
Tveirbílarónýt-
ir eftir árekstra
Tveir harðir árekstrar urðu í
Vestmannaeyjum um helgina og
eru tveir bílar ónýtir en meiðsl
urðu minni háttar á fólki, Fyrri
áreksturinn var á föstudags-
kvöldið á Hamarsveginum. Öku-
maður á Escort missti stjóm á
bíl sínum í hálku og fór yfir á
öfugan vegarhelming og lenti þar
framan á jeppa. Escortinn er tal-
inn ónýtur.
Siðari áreksturinn varð á iaug-
ardagskvöldið á gatnamótum
Kirkjuvegar og Illugagötu og er
þaö þriöji áreksturinn á tæpum
háifum mánuði á þessu hættu-
lega homi þar sem bílar hafa
eyðilagst. Á laugardagskvöldið
lentu saman Voivo og pickup-bfll
með þeim afleiðingum að Volvo-
inn er ónýtur. Ökumaður Volvos-
ins meiddist lítils háttar. -HK
RiöaíÁsbrekku:
Alltféskorið
Magnús Ólafeson, DV, Kixnaþmgt
Enn heggur riöan skörð i fjár-
stofn Húnvetninga. í gær, föstu-
dag, var allt féð á Asbrekku i
Vatnsdal, á fimmta hundrað
kindur, skoriö niður í gröf eftir
aö veikin var staðfest.
Nú era aöeins sex fiárbú í ás-
hreppi sem sioppið hafa við riðu-
veiki. Nokkrir bændur hafa hafið
fjárbúskap að nýju eftir riðunið-
urskurð.
í dag mælir Dagfari
Eftir einstaklega gott árferöi, hátt
markaðsverð og mikla sölu á sjáv-
arafurðum okkar hefur fiskvinnsl-
an í landinu lýst yfir því að mikið
tap sé á rekstrinum. Sjávarútvegs-
ráðherra segir að þijú af hveijum
fimm fyrirtækjum í þessum at-
vinnuvegi séu á hausnum. Samtals
er sagt að fiskvinnslan skuldi um
hundrað milljarða. Niðurstaðan
verði þess vegna sú aö ef fyrirtæk-
in fara ekki á hausinn muni Lands-
bankinn fara á hausinn vegna þess
að skuldimar séu langmestar í
bankanum.
Ekki era þetta góðar fréttir og
Dagfari spyr í einfeldni sinni, hvað
væri um ástandið ef árferðið hefði
verið lakara? Hvemig væri afkoma
fiskvinnslunnar ef fiskurinn hefði
ekki selst eða selst á lágu verði?
Nú er það svo að íslendingar eru
sagðir lifa á fiski. Þjóðin gerir út á
þorskinn og atvinnuleysi og sam-
dráttur í þjóðartekjum stafar fyrst
og fremst af því að afli hefur dreg-
ist saman og þjóðartekjumar
minnka. En hvemig geta íslending-
ar gert út á bolfisk ef afkoman
versnar eftir því sem hún batnar?
Er þessi lífsbarátta ekki dæmd til
að mistakast, ef tapið verður
stærra eftir því sem menn selja
Tap á fiskvinnslunni
betur?
Aö vísu verður Dagfari að taka
það fram að hann man ekki eftir
því að fiskvinnslan í landinu hafi
boriö sig. Ár eftir ár og áratug eftir
áratug hafa talsmenn fiskvinnsl-
unnar birst á skjánum til að segja
okkur frá því hvaö þeir tapa rosa-
lega. Ýmist var það gæftaleysi eða
aflaleysi eða þá að ekkert verð
fékkst fyrir lu-áefnið eða þá aö
verðbólgan var of mikil til að fisk-
vinnslan gæti fylgst með og launin
vora að sliga hana og vextirnir
vora að sliga reksturinn. Ríkis-
stjómir allra flokka voru á handa-
hlaupum að bjarga fiskvinnslunni
frá gjaldþroti og þjóðin lagði á sig
harðræði og kaupskerðingar til að
forða fiskvinnslunni frá stöðvun.
Allir lögðust á eitt til að bjarga fisk-
vinnslunni og ríkisstjómir felldu
gengið og bankamir lánuðu og svo
fór meira aö segja að síðasta ríkis-
stjórn stofnaði sérstaka björgunar-
sjóði til að koma fiskvinnslunni á
réttan kjöl.
Það verður hins vegar að segja
þá sögu eins og hún er að aldrei
var minnst á það að þijú af hveij-
um fimm fiskvinnslufyrirtækjum
vora kominn á hausinn og aldrei
hvarflaði það að nokkram manni
að Landsbankinn færi á hausinn
og aldrei kvartaöi ríkissjóður und-
an skuldsetningu. Allt var sem sagt
1 himnalagi meöan verðið var lágt
og fiskvinnslan tapaði á tapinu.
En svo fór verðbólgan lækkandi
og verkalýðshreyfingin gerði þjóð-
arsátt um að halda kaupinu í skefj-
um og salan vestra gekk vel og sj óð-
imir jusu peningum í allar áttir til
þeirra sem bára sig verst. Var þá
ekki annað vitaö en verðlag væri
hátt á mörkuðum og hvert metið
að fætur öðra slegið í sölu og nýjum
verðmetum. En í því lá ógæfan. Nú
er svo komið að ríkissjóður á ekki
einu sinni fyrir dagpeningum
handa ráðherrunum og Lands-
bankinn á ekki lengur innstæður
fyrir öllum skuldunum sem fisk-
vinnslan getur ekki borgað og ann-
að hvert fiskvinnslufyrirtæki er á
hausnum!
Spumingin er sú hvort þetta
borgi sig? Er ekki mikið skynsam-
legra aö hætta allri þessari útgerö
og allri þessari fiskvinnslu og fara
að snúa sér að einhveiju öðru?
Hvar era allar þjóðartekjumar ef
menn tapa samt og þá einkum og
sérílagi verður tapið óviðráðanlegt
þegar verðið nær hámarki? Þjóðin
þyrfti þá ekki að ganga í gegnum
sífelldar þjóðarsáttir og ráðherr-
amir gætu ferðast á fullum dag-
peningum og sjómenn þyrftu ekki
að hætta lífi sínu, ef menn hættu
einfaldlega þessum misskilningi að
halda að fiskvinnslan eigi að bera
sig. Fyrir Landsbankinn er það lífs-
spursmál að halda áfram að lána í
tapreksturinn til aö fiskvinnslan
fari ekki á hausinn því annars fer
bankinn á hausinn. Svo eiga menn
að afstýra þeirri ógæfu að gott verð
fáist fyrir afurðimar. Það fer allt
til andskotans þegar sú ógæfa dyn-
ur yfir að verðið fer upp úr öllu
valdi.
Eina von þjóðarinnar er sú aö
veröið fari lækkandi aftur og geng-
ið veröi fellt og verðbólgan fari á
skrið á nýjan leik. Þá fyrst er von
til þess aö fiskvinnslan lifi þetta
góðæri af og Landsbankinn geti
lánað án þess að fara á hausinn.
Dagfari