Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992. 5 Verð frá kr. 68.900 stgr. með náttborðum og dýnum. Dæmi um lánakjör: Visa og Euro raðgreiðslur í 12 mánuði, kr. 6.877 á mánuði. Munalán: útborgun kr. 18.475-eftirstöðvará 20 mánuðum, kr. 3.352 á mánuði. 'V' <X Jt ’/zœ&a/ Grensásvegi 3 0 sími 681144 Svend Aage Malmberg haffræðingur: Spáir feikna lax- veiði næsta sumar Tl LBOÐ Fréttir „Spáin mín í fyrra stóöst, þaö varð ekki góð laxveiði. En næsta sumar veröur feikigóð laxveiði," sagði Svend Aage Malmberg, haffræðing- ur hjá Hafrannsóknastofnun, við DV. Veiðimönnum leikur forvitni á að vita hvemig laxveiðin verður í sum- ar. Þessa dagana eru þeir að kaupa veiðileyfl fyrir tugi milljóna. Líklega kaupa íslenskir veiðimenn veiðileyfi fyrir um 300 milljónir í sumar. Konan sem slasaðist þegar jeppi valt niður að flöru í Hvalfirði: Ég sá hengif lugið en svo ultum við niður Raynor Verksmiðju- hurðir 2ja og 3ja tommu þykkar „Ég á von á að eins og tveggja ára laxinn skili sér vel. Þessa spá byggj- um við á ástandi sjávar síðustu sum- ur, það hefur verið mjög gott. Við erum að fara í ferð kringum landið í vikunni til að kanna ástand sjávar. Veiöimenn eiga von á því aö fá góða veiði þetta sumarið," sagði Svend. -G.Bender • Veiðimenn eiga von á góðri lax- veiði næsta sumar, segir Svend Aage Malmberg haffræðingur. En á myndinni er Brynjólfur Bjarnason við Laxfoss i Laxá í Kjós með 12 punúa lax. DV-mynd Gylfi - þakklátust bróður mínum sem hélt á mér þangað til hjálp barst •Innbakað lakk Tvöfalt gler Galvaniseruð stálklæðning með sléttri eða hamraðri málningaráferð Læsing og tvöföld þétting 27/8" þykk plasteinangrun Handfang og þrep Vinyl þéttilisti I álfestingu Verkver Skúlagötu 61a, 3. hæð Sími 621244 Fax 629560 Opiö milli kl. 16.00 og 18.00 „Ég hitti krakkana í söluskála í Hvalfirði og fór upp í bílinn þar. Þeg- ar við komum að Hvammsvík fórum við fram úr bíl sem var kyrr á vegin- um. Sami bíll fór síðan fram úr okk- ur en hægði svo ferðina. Þá varð bróðir minn að fara fram úr, annars hefðum við farið aftan á hann. Við það rakst framendinn í hinn bílinn. Við snerumst heilan hring en stöðv- uðumst í einhverjar sekúndur við hengiflugið á vegbrúninni. Ég horfði niður en svo ultum við af stað að fjör- unni. Mér var sagt að bíllinn hefði farið 28 metra niður að fjörunni. Ég sagði „passið þið ykkur“ við systur mína og frænku, 13 og 16 ára, og henti mér á þær og hélt í sætið,“ sagöi Ragna Bjömsdóttir, konan sem slas- aðist þegar Lapplander-jeppi valt Ragna er hress miðað við aðstæð- ur, en hún var útskrifuð af Borgar- spitalanum fyrir helgi. niður að fjöru við Hvítanesbrekku við Hvammsvík fyrir rúmri viku. Ragna útskrifaðist af Borgarspítal- anum fyrir helgina. Hún brotnaði á beini við gagnaugað, hlaut talsverð- an skurð á hnakka, tognaði í baki og kenndi mikilla eymsla í mjöðm og öxlum auk annarra minni áverka. Ragna er talin munu ná sér að fullu og mikil mildi að hún og þrennt ann- að sem var í bílnum skyldu ekki stórslasast. Bílstjórinn slapp nánast ómeiddur. Hann var í öryggisbelti. Stúlkurnar tvær slösuðust lítið. „Ég man eftir að við vorum að velta niður. Ég veit að ég hentist út með fæturna á undan og lenti á grjóti fyr- ir utan. Rúðumar fóm úr bílnum í heilu lagi. Bílhnn fór áfram en ég sá hann ekki. Bróðir minn kom svo upp og tók mig. Hann hélt á mér í kjölt- unni þangað til sjúkraliðiö kom. Stelpurnar meiddust lítillega en þær voru það hressar að þær gátu gengið upp á veg og fengu að fara inn í bíl til Siglfirðings sem var þama. Við erum honum mjög þakklát og fleirum sem komu að hjáipa okkur. Manneskjan, sem var á bflnum sem við fórum fram úr, fór hins vegar í burtu en hún skildi símanúmerið sitt eftir hjá stelpum sem voru þama. Mér finnst aðdáunarvert hvemig bróðir minn brást við öllu og á hon- um mikið að þakka. Hann á hrós skilið. Það var kalt þama á meðan við biðum en hann breiddi yfir mig teppi og sængur,“ sagði Ragna. Hún er búsett á Blönduósi. -ÓTT Lapplander-jeppinn lentur eftir að hafa oltið tæplega 30 metra niöur að fjöru í Hvalfirði. Talið er að hann hafi farið þrjár og háifa veltu. RAUTT UOS þjcfövi RAUTT UÓS/ ux iFEROAR Kýr drapst úr svæs- inni matareitrun Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi: Nýlega veiktist kýr á Köldukinn í Austur-Húnavatnssýslu af bótólisma sem er alvarlegasta matareitnm sem þekkt er. Engin lækning er til við þess- um sjúkdómi svo að kúnni var lógað. Ekki er vitaö til að kýr hafi áður veikst af þessum sjúkdómi hér á landi en hross hafa drepist' úr sjúkdóminum. Að sögn Sigurður H. Péturssonar héraðsdýralæknis lifir bakterían, sem veldur veikinni, eingöngu þar sem súrefni kemst ekki að. Taldi hann því líkur benda til þess að dauð mús eða fugl hafi verið í rúllubagga- heyinu sem kúnni í Köldukinn var gefið. Veiki þessi smitast ekki milli dýra en skepnur verða að eta eitrið til þess að veikjast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.