Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Blaðsíða 6
ooor u * t
i r 71
Viðskipti
Verkefni Islenskra aðalverktaka
utan Keflavíkurflugvallar
1. Tværblokkir við
Kaplaskjólsveg.
2. Vegagerð í Ár-
túnsbrekku.
3. Eignir Aðalverk-
taka við Höfðabakka.
Keflavfk
1. Þrjár götur mal-
bikaðar fyrir Kefla-
víkurbæ á árunum
1960-61.
2. Lagning Keflavík-
urvegar 1961-65.
Gunnólfsvíkurfjall
Ratsjárstöð
Stokksnes
Ratsjárstöð
1. Fjarðargata í Hafnarfirði, fyllt upp í höfn.
2. Brekkan úr Fjarðargötu upp Reykjavíkurveg breikkuð.
3. Gatan Arnarhraun byggð upp.
Grindavík
Hafnargerð í Grindavík á árunum 1965-66. Brimvarn- argarður. Heiðarfjall
Ratsjárstöð
Framkvæmdir á Gunnólfs-
víkurfjalli, Stokksnesi,
Heiðarfjalli, Hvalfirði, Gufu-
skálum og Straumnesi
tengjast varnarliðinu.
Islenskir aðalverktakar hafa verið með umfangsmiklar framkvæmdir utan Keflavíkurflugvallar.
Um tíu stórfram-
kvæmdir Aðalverk-
taka utan vallar
- fyrir utan hemaöarleg mannvirki úti á landsbyggðinni
íslenskir aðalverktakar hafa tekið
þátt í um tíu stórframkvæmdum ut-
an Keflavíkurflugvallar frá því fyrir-
tækið tók til starfa 1954 og átti sam-
kvæmt samningi íslendinga og
Bandaríkjamanna að sjá eingöngu
um varnarliðsframkvæmdir. Helsta
verk Aðalverktaka utan vaflar er
eflaust Keflavíkuryegurinn.
Keflavíkurvegurinn
Aðalverktakar hófu vinnu við
Keflavíkurveginn árið 1%1 og var því
verki endanlega lokið árið 1%5. Veg-
urinn var bylting á sínum tíma í
vegagerð, fyrsti steypti þjóðvegurinn
á Islandi.
Á svipuðum tíma, á árunum 1%0
til 1961, sáu Aðalverktakar um mal-
bikunarframkvæmdir í Keflavík fyr-
ir Keflavíkurbæ. Þar malbikaði fyr-
irtækið götur eins og Hringbrautina,
Hafnargötuna og Vatnsveg.
Á þessum árum voru í raun tvö
fyrirtæki í landinu sem höföu yfir
að ráða tækjum og tólum til malbik-
unarframkvæmda. Það voru Malbik-
unarstöð Reykjavíkurborgar og Að-
alverktakar.
Tvær íbúðablokkir
við Kaplaskjólsveg
Á árunum 1963 tfl 1964 byggöu
Aðalverktakar tvær íbúðarblokkir
við Kaplaskjólsveg í Reykjavík. Þær
voru síðan seldar Reykjavíkurborg.
Áður en framkvæmdir hófust var
búið að gera samning um að borgin
keypti blokkimar á kostnaðarverði.
Aðalverktakar hafa komið nokkuð
við sögu í gatnagerð í Hafnarfirði. Á
árunum 1964 til 1965 lagði fyrirtækið
hina frægu Fjarðargötu. Fyrst var
fyllt upp í hluta hafnarinar með
grjóti úr Hvaleyrarholtinu og síðan
var vegurinn lagður á uppfylflnguna.
Þá sáu Aðalverktakar um að
breikka frægustu götu Hafnarfjarðar
með miklum tilþrifum. Þetta er auð-
vitað brekkan á Reykjavíkurvegi
sem flggur niður í miðbæ Hafnar-
fjarðar. Við þessa brekku stendur
meðal annars lystigarðurinn Hellis-
gerði.
Framkvæmdirnar við brekkuna
voru nokkuð stórtækar. Þaö þurfti
að sprengnja og rífa hús til að gatan
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
kæmist almennilega fyrir. Fyrirtæk-
ið sá svo einnig um aö malbika hana,
leggja kantsteina og annast holræsa-
gerð.
Aðalverktakar byggðu einnig upp
götuna Arnarhraun í Hafnarfirði.
Vinnan var aflt frá því að skipta um
jarðveg tfl lokafrágangs. Þá malbik-
aði fyrirtækið á þessum árum
Reykjanesbrautina að Kópavogslæk.
A árunum 1%5 til 1966 unnu Aðal-
verktakar mikið verk í hafnargerð
fyrir Vita- og hafnamálastofnun í
Grindavík. Byggður var meðal ann-
ars öflugur brimvarnargarður.
Ártúnsbrekka
Þeir sem aka upp Ártúnsbrekkuna
gera sér eflaust ekki grein fyrir því
að þar komu Aðalverktakar mikið
við sögu. Á árunum 1968 til'1970 vann
fyrirtækið við veginn frá brúnni yfir
Elliðaár upp að Vesturlandsvegi við
Höfðabakka. Þetta var glæsilegur
vegur á sínum tíma, fjögurra ak-
reina.
Þá má geta þess að Aðalverktakar
byggðu sjálfir húsakynni sín að
Höfðabakka 9. Þetta eru miklar bygg-
ingar sem meðal annars hýsa Jötun
hf. og Tækniskólann. Þá byggðu þeir
einnig háhýsi sitt sem uppnefnt hef-
ur veriö Watergate-byggingin.
Þá hafa Aðalverktakar annast
byggingu allra hernaðarmannvirkja
úti á landsbyggðinni fyrir varnarlið-
ið. Nefna má ratsjárstöðvar við
Stokksnes, á Heiðarfjalli og Straum-
nesi. Nýjasta stöðin er svo á Gunn-
ólfsvíkurfjalli.
Hæsta mannvirki í Evrópu
Aðalverktakar byggðu einnig
hæsta mannvirki í Evrópu árið 1%0,
mastrið að Gufuskálum við Hellis-
sand á Snæfellsnesi. Einnig reistu
þeir þijár íbúðarblokkir að Gufu-
skálum.
Þá hafa Aðalverktakar verið með
umfangsmiklar framkvæmdir í
Hvaflirði en þar er N ATO-olí ubirgða-
stöö.
-JGH
SUS styður Þorstein
Samband ungra sjálfstæðismanna
hefur gefið út sérstaka stuðningsyfir-
lýsingu við Þorstein Pálsson sjávar-
útvegsráðherra í Aðalverktakamál-
inu.
„Sú stefna venjulegra og frjálsra
viðskiptahátta sem Þorsteinn hefur
boðað í málinu undanfarin ár er í
samræmi við ítrekaðar ályktanir
landsfunda Sjálfstæðisflokksins og
þinga Sambands ungra sjálfstæðis-
manna,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá segir meðal annars: „Einokun
íslenskra aðalverktaka á fram-
kvæmdum ber að aflétta þegar í stað
og verkefni á vamarsvæðum á að
bjóða út í samræmi við reglur Mann-
virkjasjóðs Atlantshafsbandalags-
ins. Það er eina leiðin sem er ásætt-
anleg.“
-JGH
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992.
DV
Spenna yffir mjólkurdufti
Innan iðnaðarins er nú beðið
með nokkurri eftirvæntingu eftir
því hvort verð á mjólkurdufti
hækki 1. mars.
Verð á mjólkurdufti til íslensks
iðnaðar breyttist um síðustu ára-
mót þegar það var hækkað úr 60
krónum í 209 krónur kílóið.
Það var í samræmi við þá ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar að draga úr
niðurgreiðslum á mjólkurdufti frá
áramótunum.
Fyrir áramót var framleiðslu-
kostnaður reiknaður á 605 krónur
kílóið. Heildsöluverð frá mjólk-
urbúum var reiknað á 209 krónur.
Á sama tíma var heimsmarkaðs-
verð 60 krónur. Það var það verð
sem iðnaðurinn fékk mjólkurduftið
á. Mismunurinn var niðurgreiddur
af ríkinu.
Eftir áramót var ákveðið að iðn-
aðurinn keypti kílóið á 209 krónur.
Mismunurinn á 605 króna fram-
leiðsluverði og 209 króna söluverði
hefur eftir áramót verið greiddur
þannig að 120 krónur hafa komið
frá viðskiptaráðuneytinu sem nið-
urgreiðslur en 276 krónur hafa
komið frá Verðmiðlunarsjóði
mjólkurbúanna.
Greiðslan úr verðmiðlunarsjóðn-
um var hins vegar ákveðin til
bráðabirgða eða til 1. mars næst-
komandi. Spennan snýst um það
hvað við taki eftir þann tíma.
Ljóst er að ríkið stendur fast á
að niðurgreiða mjólkurduftið ekki
um meira en 120 krónur kílóið.
Mjólkurduft er mikið notað af
sælgætisiðnaðinum við íramleiðslu
á súkkulaði. Samkvæmt samningi
við EB og EFTA er lagt á jöfnunar-
gjald á innflutt sælgæti til að ís-
lenskur sælgætisiðnaður búi við
sama verð á mjólkurdufti og það
sælgæti sem hingað er flutt inn.
Hækki mjólkurduftið til iðnaðar-
ins hækkar jöfnunargjaldið og þar
með hækkar allt súkkulaði, sem
inniheldur mjólkurduft, í verði,
bæði innlent og erlent. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLAN óverðtrvggð
Sparisjóðsbækur óbundnar Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 6 mánaða uppsögn Tékkareikningar, almennir Sértékkareikningar 1.25- 2 1.25- 4 2.25- 5 1 1.25- 2 Landsbanki Sparisjóðirnir Sparisjóðirnir Landsbanki Landsbanki
VISITÖLU8UNDNIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 1 5-24 mánaða Orlofsreikningar Gengisbundnir reikningar í SDR Gengisbundnir reikningar í ECU 2.75- 3 6.75- 7,75 5-5,5 6,25-8 9 Allir nema Landsb. Sparisjóðirnir Allir nema Islb. Landsbanki Allir
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. Óverðtryggð kjör, hreyfðir 3,25-3,5 5,0-6,0 Búnb., Landsb. Landsbanki
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan tfmabíls)
Vísitölubundnir reikningar Gengisbundir reikningar 1,75-3 1,75-3 Landsb., Islb. Landsb., Islb.
BUNDNIR SKIPTIKJ ARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör Óverðtryggð kjör 6.25- 7 7.25- 9 Búnaðarbanki Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir Sterlingspund Þýsk mörk Danskar krónur 2,75 3,0 8,25-9,0 7,5-8,1 8,0-8,5 Islandsbanki Sparisjóðirnir Sparisjóðirnir Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
OTLAN ÓVERÐTRYGGÐ
Almennir víxlar (forvextir) Viðskiptavíxlar (forvextir)1 Almenn skuldabréf B-flokkur Viðskiptaskuldabréf1 Hlaupareikningar(yfirdráttur) 12,5-14,75 kaupgengi 13,25-1 5,25 kaupgengi 15-17 Búnaðarbanki Allir nema Landsb Allir Islb.
OtlAn VERÐTRYGGÐ
Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki
afurðalAn
Islenskar krónur SDR Bandaríkjadalir Sterlingspund Þýsk mörk 1 2,5-13,0 8,25-8,75 6,0-6,75 11,7-12,75 11,3-11,5 íslb. Landsbanki Landsbanki Sparisjóðirnir Sparisjóðirnir
HUsnœölslán 4.9
Ufeyrissjóöslán 6-9
Dráttarvextir 23.0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf mars 14,3
Verðtryggð lán mars 10,0
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala febrúar 31 98 stig
Lánskjaravísitala mars 3198stig
Byggingavísitala mars 598 stig
Byggingavísitala mars 187,1 stig
Framfærsluvísitala janúar 160,2stig
Húsaleiguvísitala 1,1% lækkun 1. janúar
VERÐ8RÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF
Sölugengl bréfa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,119 HÆST LÆGST
Einingabréf 2 3,253 Sjóvá-Almennar hf. - 5,65 L
Einingabréf 3 4,019 Ármannsfell hf. - 2,40 V
Skammtímabréf 2,037 Eimskip 5,05 K 5,80 V,S
Kjarabréf 5,753 Flugleiðir 1,85 K 2,05 K
Markbréf 3,091 Hampiðjan 1,50 K 1,84 K.S
Tekjubréf 2,136 Haraldur Böðvarsson 2,00 K 3,10 K
Skyndibréf 1,782 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 V 1,10 V
Sjóðsbréf 1 2,937 Hlutabréfasjóðurinn - 1,73 V
Sjóðsbréf 2 1,955 Islandsbanki hf. - 1,73 F
Sjóðsbréf 3 2,028 Eignfél. Alþýðub. 1,25 K 1,70 K
Sjóðsbréf 4 1,733 Eignfél. Iðnaðarb. 1,85 K 2,22 K
Sjóðsbréf 5 1,220 Eignfél. Verslb. 1,15 K 1,48 K
Vaxtarbréf 2,0693 Grandi hf. 2,10 K 2,70 S
Valbréf 1,9396 Olíufélagið hf. 4,50 K 5,00 V
Islandsbréf 1,287 Olís 2,10 L 2,18 F
Fjóröungsbréf 1,148 Skeljungur hf. 4,80 K 5,40 K
Þingbréf 1,282 Skagstrendingur hf. 4,60 F 4,90
öndvegisbréf 1,262 Sæplast 6,80 K 7,20 K
Sýslubréf 1,307 Tollvörugeymslan hf. 1,09 F 1,13 L
Reiöubréf 1,239 Útgerðarfélag Ak. 4,50 K 4,80 L
Launabréf 1,021 Fjárfestingarfélagið 1,18 F 1,35 F
Heimsbréf 1,165 Almenni hlutabréfasj. 1,10 F 1,15 F,S
Auðlindarbréf 1,04 K1.09 K,S
Islenski hlutabréfasj. 1,15 L 1,20 L
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 L 3,50 L
' Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
K= Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F = Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast i DV á fimmtudögum.