Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992.
Sviösljós
DV-myndir ÞÖK
Kjólfatapíurnar voru í banastuði þegar Ijósmyndara DV bar að garði.
Inter Coiffure klúbburinn:
Kamival á Borginni
Félagar í hinum alþjóðlega hár-
greiðsluklúbbi Inter Coiffure héldu
árshátíð fyrir starfsfólk hárgreiðslu-
stofanna á Hótel Borg um síðustu
helgi.
Að þessu sinni var reynt að breyta
út af vananum og hafa árshátíðina
með „karnival" yfirhragði þar sem
allir voru klæddir í hin furðulegustu
föt og að sjálfsögðu með hárgreiðsl-
una í lagi.
Hátt í hundrað manns mættu á
Borgina og virtust allir skemmta sér
konunglega eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum. Búningarnir voru af ýmsu tagi, allt frá kjólfötum upp í fangabúninga.
Þorrabtótsnefndin sá um skemmtiatriðin og tókst frábærlega vel upp.
Þorri blótaður í Suðursveit
Einar R. Sigurðs., DV, Öræfum: þorrablótsnefnd matargestum með
Suöursveitungar láta ekki ýrasum uppákomum. Það var
harmavæl og krepputal aftra sér greinilegt að nefndin hefur hæfi-
frá þvi að halda sitt þorrablót með leika til að sjá atriði úr samlífi og
pompi og prakt. Blótið var haldið á einkaiífi sveitunga sinna og nær-
Hrollaugsstöðum þann 8. þessa sveitunga í spaugilegu ljósí.
mánaðar við góöa aðsókn úr A- Hláturinn ómaöi í húsinu allt
Skaftafellssýslu. kvöldið og það var mikið dansað,
Þegar gestirnir höfðu gætt sér á draflað og duflað fram á nótt.
þjóðlegum kræsingum skemmti
í tilefni þess að skinnaverkunartímabilið er á enda hjá Jakobi Árnasyni,
eiganda loðdýrabúsins á Auðnum, ákvað hann að verðlauna starfsstúlkur
sinar með því að bjóða þeim út að borða í Perluna. Til þess að gera dag-
inn enn eftirminnilegri fengu þær lánaða pelsa að eigin vali til þess að vera
í um kvöldið, en hver þeirra er um 300 þúsund króna virði. Þær voru þvi
að vonum brosmildar starfsstúlkurnar er þær mættu í Perluna í sínu fín-
asta pússi. F.v., Margrét Pétursdóttir, Sonja ísafold, Silja Björg Jóhannsdótt-
ir og Jakob Árnason. DV-mynd Hanna
Fyrir skömmu hélt hljómsveitin Risaeðlan tónleika fyrir gesti Hins hússins
(áður Þórskaffi) og mæltust þeir mjög vel fyrir. Tónleikarnir fóru fram I
miðri viku og eru liður í fjölbreyttri dagskrá skemmtistaðarins sem þó eink-
um miðar að því að bjóða unglingunum upp á aðstöðu til ýmiss konar tóm-
stundastarfsemi. DV-mynd GVA
Aukablað
um
tísku
á morgun
Fjallað verður um tísku í víðum skilningi.
Föt, snyrtivörur og fylgihlutir eru í
brennidepli. Stiklað verður á stóru
í fréttum úr tískuheiminum og
auk þess verða birtar stuttar greinar
um tískutengt efni og ýmsar
hagnýtar leiðbeiningar.
Þverholti 11 - Sími 63 27 00