Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Blaðsíða 14
14 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Með brauki og bramli Heilbrigðiskerfi íslendinga er ekki það dýrasta í heimi, þótt heilbrigðisráðherra hafi nokkrum sinnum sagt það á síðustu vikum. Samkvæmt alþjóðlega viður- kenndum reikningsaðferðum, sem notaðar eru af Efna- hags- og framfarastofnuninni, erum við ekki dýrust. Heilbrigðisráðherra hefur hins vegar pantað sér skýrsiu frá Hagfræðistofnun háskólans, þar sem kemur fram, að kostnaður hins opinbera af heilbrigðiskerfinu sé meiri hér á landi en annars staðar og hafi aukizt nokkru hraðar hér á landi er annars staðar. Sama hagfræðistofnun hefur líka fundið, með tilþrif- um í reiknikúnstum, að nokkurra milljarða sparnaður fáist árlega, ef skólatími verði lengdur og gerður sam- felldur. Þetta gerði hún að beiðni menntaráðherra þeirr- ar ríkisstjórnar, sem var næst á undan þessari. Niðurstöður stofnunarinnar um heilbrigðismálin hefðu verið trúverðugri, ef betur hefði verið skýrt, hvers vegna hinar sérstæðu reikningsaðferðir hennar ættu að teljast betri en þær, sem tíðkast hjá Efnahags- og framfarastofnuninni og öðrum alþjóðlegum stofnunum. Niðurstöðurnar hefðu líka verið trúverðugri, ef stofn- unin og heilbrigðisráðherra sem túlkur niðurstaðna hefðu gert skarpari mun á kostnaði hins opinbera og heildarkostnaði þjóðarinnar, svo að neytendur upplýs- inga hefðu áttað sig betur á sérstöðu útreikninganna. Staðreyndin er, að í kostnaði við heilbrigðismál erum við á svipuðu róh og flestar aðrar þjóðir í norðanverðri Evrópu, töluvert ódýrari en Bandaríkjamenn og tölu- vert dýrari en Bretar og Japanir. Okkar heilbrigðis- kostnaður er alls ekki óvenjulegur eða afbrigðilegur. Niðurskurður heilbrigðismála um hálfan milljarð króna á þessu ári stafar ekki af, að kostnaður við þau hafi farið úr böndum. Niðurskurðurinn stafar einfald- lega af, að ríkisstjórnin þarf að útvega meira en millj- arð til að borga stóraukin útgjöld til landbúnaðar. Allur niðurskurður velferðarkerfisins, hvort sem er í heilbrigðismálum, skólum, tryggingum eða á öðrum sviðum, sem varða hagsmuni peningalítils almennings, fer beinlínis í að auka útgjöld ríkisins til velferðarkerfis hins hefðbundna landbúnaðar kúa og kinda. Nær væri að játa þetta samhengi heldur en að fram- leiða villandi upplýsingar um, að sjúkrahús og skólar séu of dýrar stofnanir. Þjóðin þyrfti að geta séð, hvers konar velferð hefur forgang og dregið af því þá rökréttu niðurstöðu, að búvörusamningur er ekki ókeypis. Hinn sami heilbrigðisráðherra, sem flaggar villandi tölum, er að reyna að spara með því að leggja einn millj- arð í endurbætur á Borgarspítalanum, svo að hann geti tekið við hlutverki Landakotsspítala. Af þessum millj- arði þarf sennilega að greiða tæpan hálfan á þessu ári. Það er alveg sama, hvernig reiknuð er hagkvæmni sameiningar Borgarspítala og Landakotsspítala. Niður- staðan er mjög mikill kostnaður, mikil óhagkvæmni. Ódýrasta leiðin í stöðunni er að reka spítalana á aðskil- inn hátt enn um sinn alveg eins og verið hefur. Kenningin um sparnað af sameiningu Borgarspítala og Landakotsspítala var vanhugsuð. Það var fljótræði að ráðast í bramboltið, sem við höfum verið vitni að í vetur. Með slíkum vinnubrögðum mun heilbrigðisráð- herra takast að gera íslenzka kerfið dýrast í heimi. Þótt ýmislegt megi laga í heilbrigðisgeira ríkisins, er spítalabrauk og -braml ráðherrans ekki til þess fallið að útvega peninga til að sóa í búvörusamning. Jónas Kristjánsson "Þf l RAUfJH.'iTT í? gT7Tii.frir.rilP.I ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992. „... meðferð sjávarafla stórbatnaði þegar nemendur úr fiskvinnsluskólanum komu til starfa í fiskvinnsl- unni“, segir m.a. í greininni. Mikil umræða hefur farið af stað um skólann vegna niðurskurðar á því fjármagni sem ætlað er til menntunar þjóðarinnar. Það var kominn tími til að umræða færi fram um skólann og gildi hans fyr- ir samfélagið. Langvinnar verkanir Tvennt finnst mér hafa verið áberandi í málflutningi þeirra sem telja verjandi að skera niður í skólakerfinu. Annars vegar er það blinda þeirra á þær breytingar sem orðið hafa á samfélaginu og þar með hlutverki skólans og hins veg- ar vanmat á þeim kröfum sem auk- in samvinna og um leið harðnandi samkeppni við aðrar þjóðir gerir til skólanna. Sá niðurskurður sem nú er verið að framkvæma í skóla- kerfinu öllu mun verða varanlegur vegna þess að hann verður seint unninn upp. Það breytir því ekki þótt hann sé tímabundinn. Verkanir hans munu hafa í för með sér afturkipp í þeirri þróun sem átt hefur sér stað og þrengja verulega kostina til að takast á við ný verkefni. Það þarf tvöfalt átak til þess að ná til baka skerðingunni og miðað við fyrri reynslu verður að teljast ólíklegt að slík aukning á fjármagni til skólans komi aftur með snöggum hætti. Það hefur alla tíð verið ákveðin tregða hjá stjórn- völdum til að auka kostnað við menntakerfið þó svo vitað sé að það skilar miklum arði. Þetta gildir raunar um uppeldis- mál almennt. í þeim slag sem verð- ur um fjármagn ríkisins á næstu árum þarf að halda ansi vel á spil- unum ef mennta- og uppeldismálin eiga að geta rétt hlut sinn. Þess vegna er sú skerðing, sem nú á sér stað, ofan í tvær aðrar „spamaðar- aðgerðir" afskaplega hættuleg. Það er ranglega farið með af ýms- um aðilum að útgjaldaþensla hafi verið í skólakerfinu undanfarin ár. HlutfaU af þjóðartekjum, sem farið hafa tU menntamála, hefur haldist óbreytt síðast liðin tuttugu ár. Á þessum tíma hefur hlutfallið verið að jafnaði 14 til 15%. Nú hefur margt nýtt komið inn á þessmn tíma. Þar má nefna fleiri fram- haldsskóla og mikla aukningu á nemendum þar, fræðsluskrifstof- ur, aukna sérkennslu, nýjar náms- brautir í háskólanum og fleira mætti nefna. Þessi viðbót hefur samt öll rúmast innan þessara 14 tfl 15%. Þetta sýnir m.a. aö fjármagnið hefur verið vel nýtt. En þetta sýnir einnig að viss „útþynning“ hefur átt sér stað, þ.e. fjármagn hefur verið flutt frá einum þættinum yfir á annan. Grunnskólinn stendur því mjög berskjaldaður fyrir þeim niður- skurði sem nú á að beita. Þess vegna eru viðbrögð viö honum mjög hörð. Slæm vígstaða Varðandi hinn þáttinn sem snýr að samkeppninni við önnur lönd er auösætt að dvergríki eins og ís- land verður að byggja afkomu sína á gæðum þeirrar framleiðslu sem þjóðin lifir á. Þar kemur háþróuð tækni til meö að skipa háan sess. En til þess að hún nýtist atvinnu- vegunum sem best þarf grunn- og EB. Hvergi held ég að sé þó meiri ástæða til aðlögunar en ein- mitt í skólunum. Þar skiptir ekki máli hvort ísland verður innan eða utan bandalaga. í menntamálum verða íslendingar aö standa öörum jafnfætis og þó raunar framar til þess að geta boðið hér svipuð lifs- kjör og gerist meðal nágranna okk- ar. Það sem ríkisstjómin átti að gera við þær kringumstæður sem nú ríkja var að leggja fé í að bæta skólann þannig að hann væri fær um að skila ennþá meiri arði en hann gerir í dag. Það er leið út úr efnahagsvanda. Niðurskurður í menntakerfinu er líklegur til að hafa öfug áhrif vegna þess að hann tefur fyrir þeirri verömætasköpun sem aukin og bætt menntun skilar. Um þær breytingar sem mennta- málaráðherra hefur veriö að tala um í skólakerfmu mun ég fjalla síðar. Kári Arnórsson menntunin að vera góð. Við höfum séð það á undan- gengnum árum hve fræðsla og auk- in menntun hefur skilað sér vel í mörgum framleiðslugreinum. Það var t.d. mjög glöggt hve meðferð sjávarafla stórbatnaði þegar nem- endur úr fmnskvinnsluskólanum komu tfl starfa í fiskvinnslunni. Mörg önnur dæmi af svipuðum toga mætti nefna. Mörg námskeið hafa verið haldin til að bæta verk- kunnáttu og meðferð. Það er eðli- legt að atvinnufyrirtæki kosti slíkt nám. En tfl þess að þeir íjármunir nýtist er nauðsynlegt að góð grunn- menntun sé fyrir hendi. Við sjáum það á mörgum sviðum og þó einkum í iðnrekstri að menn eru famir að aðlaga marga þætti væntanlegri samkeppni innan EES KjaHarmn Kári Arnórsson skólastjóri „Grunnskólinn stendur því mjög ber- skjaldaöur fyrir þeim niðurskurði sem nú á að beita. Þess vegna eru viðbrögð við honum mjög hörð.“ Skammsýni í skólamálum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.