Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992. 9 Fimm ára sonur breskrar konu, sem kunn varð fyrir áróður fyrir fiæöingum 1 vatni, drukknaði á dögunum. Carmela B’Hahn varð fræg víöa um heim þegar hún ól son sinn í lítilli plastsundlaug og ikjölfar þeirrar fæðingar ákváðu margar aðrar mæður að fylgja fordæmi Carmelu. Sonurin týndist og fannst ekki fyrr en eftir þriggja tima leit. Sýnt þykir að hann hafi falliö í á skammt frá heimili þeirra mæðg- ina. „Hann kom i þennan heim í vatni og fór aftur i vatni," sagði Carmela við lát sonar sins. KonaAshdowns æfSaðiaðskilja viðhann Jane Ashdown, eiginkona breska stjórnmálamannsins Paddy Ashdown, segir að hún hafi alvarlega ihugað að skilja við mann sinn þegar hún komst að þvi að hann hólt við einkaritar- ann. Hún segir að eftir nokkra um- hugsun hafi hún séð að skilnaður væri ekki rétta lausnin og því hafi hún ákveðiö að búa áfram með Paddy. Hann varð mjög um- talaður fyrr á árinu þegar blöð skýrðu frá ffamhjáhaldi hans. Þrátt fyrir ámæh margra stórjók Paddy vinsældir sínar meðal al- mennings. Kók kemur upp rísaverksmiðju í Póllandi Kókframleiðendur í Bandaríkj- unum hafa ákveðið að koma upp risagosdrykkjaverksmiðju í Pól- landi. í fyrstu atrennu verður reist stórt verksmiðjuhús og hef- ur 56 þúsund fermetra lóð verið keypt undir það. Atælað er að byggja alls þrjár átöppunarverksmiðjur fyrir kók í Póllandi og nemur fjárfestingin mörgum milljörðum zlotýa. Stjórnvöld í Póllandí leggja mikla áherslu á að fá erlend fyrirtæki til að fjárfesta í landinu. Tók leigubfl fráDanmörku tilSviss LeigubOstjóri í Slagelse í Dan- mörku datt í lukkupottinn þegar kona á sextugsaldri snaraðist inn i bíl hans og bað hann að aka sér til Sviss. Leigubílstjórinn vildi fyrirframgreiðslu og fékk hana - um 100 þúsund íslenkrar krónur. Við svo búið var haldið til Sviss og þegar komið var á leiðarenda vantaði aðeins fáein þúsund upp á að fyrirframgreíðslan dygði. Konan reiddi það sem eftir var af hendi og leigubílstjórinn hélt ánægður heim. Kínverjarætla aðeignastmörg börnááríapans Það er útbreidd trú í Kina að hagstætt só að eignast börn á ári apans. Það gekk einmitt í garð í byrjun febrúar og nú óttast yfir- völd að áætlanir þeirra um aö draga úr fólksfjölgun bregðist í fyrra var ár geitarinnar. Það þykir ekki gott barnaár og margir foreldrar ákváöu aö bíða ársins i ár með að eígnast börn. Á siðasta ári fekkaði bamsfæðingum í Kína og þökkuðu stjórnvöld það áróðri sínum. Aörir segja að Kín- vetjar hafi hvort eð er ekki viljað eignast böm. Útlönd Eystrasaltsráðið: Uffe vill ekki haf a ísland með Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, vísar á bug vangaveltum manna um að fyrirhug- uð stofnun Eystrasaltsráðs muni gera Norðurlandaráð óþarft. Stofn- fundur ráðsins verður haldinn í Kaupmannahöfn á morgun og á fóstudag og hann sækja utanríkis- ráðherrar tíu landa sem liggja að Eystrasalti. Á sama tíma útilokar utanríkisráðherrann að íslendingar geti orðið þátttakendur í hinu nýja ráði. „Það væri mjög rangt og ósann- gjamt að hta svo á að Eystrasaltsráð- inu sé beint gegn einhveiju öðru,“ sagði Ellemann-Jensen á fundi með fréttamönnum í gær. Hann sagði að ástæðan fyrir því að ráðstefnan væri haldin á sama tíma og þing Norðurlandaráðs í Hels- inki væri sú að þetta hefðu verið einu dagarnir sem utanríkisráðherrarnir hefðu orðið sammála um. Af hálfu Norðurlandaráðs hefur sú ósk verið borin upp að það verði hluti af Eystrasaltsráðinu en því hafnar Ellemann-Jensen. Þá hafnaði hann einnig þátttöku íslands í ráðinu. „Til að samstarfið hafi einhverja þýðingu og verði árangursríkt verð- ur það að vera bundið við ákveðið svæði og við getum ekki breytt landafræðinni. ísland Uggur ekki að Eystrasalti. Við verðum að stoppa einhvers staðar og það er eining um það meðal landanna tíu,“ sagði Uffe Ellemann-Jensen. Ritzau Uffe Ellemann-Jensen, utanrikisráðherra Danmerkur, þvertekur fyrir það að ísland sé með í nýju Eystrasaltsráði þar sem landið liggi ekki að Eystr- salti. Og landafræðinni verði ekki breytt. DV-mynd GVA Afráðið er að Leonard Martin, dómari í St John’s á Nýfundna- landi, verði ekki opinberlega ákæröur fyrir ósiðlegt athæfi á almannafæri þótt sannað sé að hann hafi arkaö mn ganga á hót- eli klæddur kvennærfötum. Ðómarinn, sem er um sextugt, var handtekinn enda kvörtuðu hótelgestir undan framkomu hans. Hann er nú hættur störfum og hefúr lofað því að fara í áfeng- ísmeðferð gegn því að ákæra á hendur honum verði felld niður. Þegar þetta gerðist var skólaliö í blaki statt á hótelinu og þótti það ekki bæta mál dómarans og rýraálitdómskerfisins. Reuter Kúplingsdiskar Pressur Legur Bjóöum einnig flest annaö sem viökemur rekstri bílsins. SKEIFUNNI 5A.SIMI 91-81 47 88 CarlBiIdt: Minni pappír, meiri pólitík Þung orð féllu um samstarf Norð- urlandanna á 40. þingi Norðurlanda- ráðs í Helsinki í gær. Það var ekki síst Carl Bildt, forsætisráðherra Sví- þjóðar, sem var ómyrkur í máh á sama tíma og hann hélt því fram að þróunin innan Evrópu gerði Norður- löndunum það kleift að vera í farar- broddi. „En það gerir líka miklar kröfur til norrænnar samvinnu. Á síöustu áratugum höfum við horft upp á það að pappírsflóðið í norrænni sam- vinnu hefur vaxið á sama tíma og pólitískur kraftur hennar hefur farið þverrandi. Því verður að breyta. Minni pappír, meiri pólitík," sagði Carl Bildt. Gro Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Noregs, Vcu: efnislega sam- mála Biidt í ræðu sinni. Eins og við var búist einkenndist umræðan í gær af kröfu forsætisráð- herranna fimm um meira vald innan Norðurlandaráðs og vandamálum í sambandi við hugsanlega inngöngu Svíþjóðar, Noregs og Finnlands í Evrópubandalagið. Poul Schlúter, forsætisráðherra Danmerkur, lagði til að löndin þrjú legðu inn umsókn sina um aðild á sama tíma svó að hægt yrði að semja um hana sam- hhða. Hann sagði að það hefði mikla þýð- ingu fyrir Norðurlöndin, m.a. vegna þeirra skilyrða sem hægt yrði aö ná fram við inngöngu landanna. Hann sagði að aðild að EB mundi styrkja samstarf Norðurlandanna þar sem löndin fjögur gætu stutt hvert annað viö ákvarðanatöku innan bandalags- ÚIS. Ritzau Fyrst og fremst á farmabraut Frá verksmiðju til hafna erlendis.... og heim! FLUTNINGSMIDWNIN »r TRYGGVAGÚTU 26 - REYKJAVÍK - S: 29111 Fax 25590

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.