Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1992, Blaðsíða 22
22
MÁNUDAGUR 9. MARS 1992,
Meiming_____________________________________
Gamanleikhúsið sýnir Grænjaxla:
Sjáum mikið af okkur
sjálf um í persónunum
segja Magnús Geir Þórðarson og Bryndís Björk Ásgeirsdóttir
Fyrir stuttu haföi Gamanleikhúsið
aðra frumsýningu sína á leikriti Pét-
urs Gunnarssonar, Grænjöxlum.
Síðastliðið sumar voru þrjár sýning-
ar á leikritinu í íslensku óperunni,
en nú eru sýningar hafnar á Litla
sviði Borgarleikhússins og verður
sýningafjöldi takmarkaður, ein-
göngu vegna þess að Gamanleikhús-
ið er skipað ungum krökkum sem
allir eru í skóla og senn hður að próf-
um.
Gamanleikhúsið er einstakt meðal
þekktra leikhópa hér á landi. Þau
voru aðeins börn að aldri þegar þau
stofnuðu leikhúsið og hófu að sýna
opinberlega og hefur sami hópurinn
verið kjarni leikhússins en í Gaman-
leikhúsinu í dag eru 60 krakkar sem
allir eru undir tvítugu. Grænjaxlar
eru áttunda verkefni þeirra og til að
kynnast starfi þeirra og af hveiju þau
völdu Grænjaxla fengum við tvö úr
hópnum, Magnús Geir Þórðarson og
Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, í stutt
spjall:
- Voruð þið ekki ung að árum þeg-
ar þið stofnuðuð Gamanleikhúsiö.
„Við vorum á aldrinum 9-12 ára
þegar við stofnuðum Gamanleikhús-
ið. Það voru ekki margir þá sem
höfðu trú á okkur og algengustu
svörin sem við fengum þegar við
vorum að fara fram á styrk var að
ef leikritið yrði sett upp þá kæmi til
mála að styrkja okkur en ekki fyrr.
Fyrsta verkefnið var Töfralúðurinn,
1985, sem við sýndum í sal á Hótel
Loftleiðum. Við sýndum Töfralúður-
inn aðeins tvisvar en fengum samt
um áttatíu manns á hvora sýningu.
Síðast sýndum við svo Línu langsokk
og ávallt fyrir fullu húsi.“
Leiklistarhátíðir
sóttar
- Er ekki mikil áhætta sem fylgir
því að setja upp leikrit?
„Til aö byrja með áttum við ekki
krónu, en sýningar hafa yfirleitt
gengið ágætlega þannig að peningar
hafa verið lagðir í sjóð. Við byrjuðum
smátt en umfangið hefur orðið meira
og meira með hverri sýningu og
áhættan um leiö meiri, en hingað til
hafa áætlanir gengið upp.“
- Þið hafið ferðast til útlanda með
leikritin?
„Þrisvar sinnum höfum við farið á
leikhstarhátíðir. Fyrst var það 1986
og síðan 1988 og síðastliðið sumar. í
þessum ferðum höfum sótt fimm
leiklistarhátíðir og sótt leikhst-
amámskeið í leiðinni."
- Af hverju setjið þið upp Græn-
jaxla?
„Við vorum ákveðin í að fara með
leikrit til útlanda síðastliðið sumar
og urðum þvi að hafa leikritiö fá-
mennt. Við byijuðum með lista yfir
mikinn fjölda leikrita og vorum að
fara yfir hann í eina tvo mánuði. Úr
þessum fjölda vöra síðan valin leik-
rit og þeim skipt á milli rneðhma
hópsins til aflestrar. Þegar við'svo
komum saman var listinn enn
grisjaður og farið var að lesa saman.
Út úr þessari yfirferð kom síðan
Grænjaxjar sem hentaði okkur mjög
vel að ölíu leyti.
Grænjaxlar er leikrit um ungt fólk.
Við fylgjumst með þeim Kára, Grétu,
Láru og Dóra frá leikskóla og upp
að rúmlega tvítugu. í leikritinu er
tekið á ýmsum skemmtilegum at-
burðum bama- og ungUngsáranna
og flaUað um þá á opinskáan og lif-
andi hátt. í leikritinu er skemmtUeg
tónUst sem samin var af Spilverki
þjóðanna. Það kóm í Ijós þegar við
fóram að huga að tónlistinni að að-
eins fáein lög hafa verið hljóðrituö
í Gamanleikhúsinu eru 60 félagar en í Grænjöxlum eru aðeins sex, þau eru: Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Hólm-
fríöur Lýdia Ellertsdóttir, Ragnar Kjartansson, Magnús Þór Torfason, Magnús Geir Þórðarson og Auður Sverris-
dóttir. DV-mynd Hanna
með Spilverkinu og er þau að finna
á Sturlu, en önnur hafá varla heyrst
síðan 1977 þegar leikritið var sýnt í
Þjóðleikhúsinu. Grænjaxlar hefur þó
nokkur verið sýnt í skólum og úti á
landi, en þá hefur ávallt orðið að
sleppa stórum hluta tónhstarinnar
nema í einni uppsetningu á Akureyri
fyrir fáeinum áram. Þar voru öll lög-
in meö. Við leituðum að upptökum
af lögunum en engin fannst, ekki
einu sinni í Þjóðleikhúsinu þar sem
leikritið var frumsýnt. Við höfðum
því samband við tónlistarmennina
sem léku lögin á Akureyri og þeir
fóra með okkur í stúdíó og léku lögin
inn á band eftir minni.“
Frumsýndum á
heitasta deginum
Gamanleikhúsið framsýndi
Grænjaxla í fyrrasumar, er það ekki
rangur tími fyrir leikhús?
„Ástæðan var aö við sáum fram á
að það tæki mikinn tíma að æfa leik-
ritið og það væri vitavonlaust að
framkvæma það með skólanum. Við
hófum því æfmgar í maí og lokuðum
okkur frá umheiminum og lágum
yfir leikritinu aUa daga frá morgni
til kvölds og datt enginn dagur úr frá
10. maí þar tU við frumsýndum 4.
júU. Leikrit þetta byggir á svo miklu
hópsamstarfi að það var með vilja
gert að loka okkur frá umheiminum.
Við leikum öll margar persónur og
til að komast sem næst þeim skrifuð-
um við meira segja ævisögu hvers
og eins. Þegar við svo frumsýndum
4. júlí var Ukast til heitasti dagur
sumarsins.
Við fóram síöan fljótlega tíl útlanda
og sýndum leikritið í írlandi og Hol-
landi og á írlandi skráðum við okkur
á leikhstarskóla í tvær vikur. Græn-
jöxlum var mjög vel tekiö aUs staöar
þar sem við sýndum og þótt enginn
skUdi hvaö við sögðum gerðu flestir
sér grein fyrir hvað um var að vera
og tónlistin hjálpði einnig tíl.“
- Nú er ákveðinn boðskapur í
Grænjöxlum sem átti rétt á sér 1977,
gengur sá boðskapur enn þann dag
í dag?
„Leikritið stenst alveg tímans tönn.
Við fundum þaö meðan við voram
að vinna leikritið hvað það stendur
okkur nærri. Við höfum sett upp átta
leikrit og í engu þeirra höfum séð
jafn mikið af okkur sjálfum og í
Graenjöxlum."
- Á strax að fara að undirbúa næsta
verkefni þegar þessu leikári lýkur
hjá ykkur?
„Já, já. Við byrjum yfirleitt að
skipuleggja næsta verkefni eftir
hveija frumsýningu. Við getum ekki
sýnt Grænjaxla nema í stuttan tíma,
því öU erum við í skóla og prófin
nálgast, en eftir að prófum lýkur
veröur þráðurinn tekinn upp að nýju
og farið að undirbúa næsta verkefni.
í dag er Gamanleikhúsið orðið
miklu meira fyrirtæki en það var og
hingað til hefur Gamanleikhúsið
standið undir sér fjárhagslega, en á
þaö verður að líta að við höfum aldr-
ei þegið nein laun, enda veitir það
okkur ómælda ánægju að standa í
þessu.“
-HK
Þorbjörgsýnir
íNýhöfn
Hin kunna myndlistarkona
Þorbjörg Höskuldsdóttir opnaði
málverkasýningu um helgina í
Nýhöfn. Þorbjörg sýnir ný mál-
verk og vatnslitamyndir. Sýning-
in í Nýhöfn er níunda einkasýn-
ing Þorbjargar en hún hefur
einnig tekíð þátt í fjölda samsýn-
inga hér heima og erlendis og
unnið að leikmyndagerð hjá Þjóö-
leikhúsinu og Leikbrúðulandi og
auk þess myndskreytt bækur.
Gerðuberg:
Myndiraf
hellumogfossum
ogfráHamborg
Anna Guöjónsdóttir er mynd-
listarkona sem býr í Þýskalandi.
í dag opnar hún í Gerðubergi
fyrstu einkasýnmgu sína hér á
landi. Sýnir hún myndir af hell-
um og fossum, hjara veraldar og
frá Hamborg, dularfullan anda,
sjálfsmynd af Martin Krutzfeldt,
franskar leikkonur, sigur í sjó-
manni við þekktan listaprófessor,
leiðsögn um Hamborg eftir leynd-
ardómsfullum leiðum og margt
fleira. Anna er fædd 1958 og nam
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1981-1983 en frá 1986 hef-
ur hún stundað nám við Listahá-
skólann í Hamborg. Anna hefur
tekið þátt í fjölda sýninga og núna
siðast í Kunst, Europa-Island,
Kölnischer Kunstverein.
Samkeppnium
uppsetninguog
sýningu á
nýju leikriti
Áfengisvarnaráð hefur ákveðið
að gangast fyrir samkeppni milll
grunnskóla landsins um uppsetn-
ingu og sýningu á nýju leikriti
sem hinn kunni rithöfundur, Ið-
unn Steinsdóttir, hefur samið.
Var Iðunn sérstaklega fengin til
aö semja leikritið sem heitir
Föstudagur hjá smáfuglunum og
tekur þaö um fjörutíu mínútur í
flutningi. Fjallar leikritið um fjöl-
skyldu og ýmis mál sem þar koma
upp. Keppnin er tvíþætt. í fyrsta
lagi verða verðlaun veitt þeim
sem að mati dómnefndar skilar
bestum árangri á sýningu leik-
ritsins. í öðru lagi eru veitt verð-
laun fyrir umræður og umíjöllun
um leikritið að lokinn sýningu.
Vinir Dóra til
Austin íTexas
Kunnasta blússveit íslendinga,
Vinir Dóra, hefur verið valin ein
af sjötíu hljómsveitum til aö
koma fram á músík- og ráðstefnu-
hátíðinni South by South sem
haldin er í Austin í Texas í þess-
ari og næstu viku. Umsækjendur
voru hvorki meira né minna en
9000. Vinir Dóra munu koma
fram sem aðalnúmer i þekktum
blúsklúbbi ásamt Chicago Beau
og Pinetop Perkins en um sama
leyti kemur á heimsmarkað
geisladiskur sem hljóörítaður var
á tónleikum sem Vinir Dóra
ásamt Pinetop og Beau héldu í
Púlsinum í nóvember sl. Á þess-
ari hátíö verða útsendarar frá
öllum heistu útgáfufyrirtækjum
í Bandaríkjunum og því kjörið
tækifæri fyrir Vini Dóra að koma
sér á frainfæri. ;