Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1992, Blaðsíða 40
52
MÁNUDAGUR 9. MARS 1992.
Fréttir_____________________ð
Jón L. vann Sirov
Um helgina voru tefldar þrjár
umferðir á APPLE-skákmótinu:
5. umferð:
Plaskett-Kotronias 1-0
Sírov - Þröstur 1-0
Conquest-Jón L. 1-0
Renet-Helgi 1-0
Karl - Hannes 'A- 'A
Jóhann - Margeir 'A- 'A
6. umferð:
Kotronias - Renet 'A- 'A
Þröstur - Plaskett 0-1
Conquest - Sírov 0-1
Helgi-Karl 0-1
Hannes - J óhann 'A- 'A
Jón L.-Margeir 1-0
7. umferð:
Karl-Kotronias 0-1
Renet - Þröstur 'A- 'A
Plaskett - Conquest 0-1
Sírov-Jón L. 0-1
Jóhann-Helgi 1-0
Margeir - Hannes 0-1
Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist
með 7. umferðinni í gærkvöldi og
urðu vitni að mögnuðum sigri Jóns
L. Árnasonar á stigahæsta kepp-
andanum, Alexei Sírov. Sá sigur
kom svo sannarlega þægilega á
óvart eftir fremur magra uppskeru
íslendinganna í fyrri helmingi
mótsins. Sírov tefldi sama afbrigði
og gegn Helga í 3. umferð og Jón
var vel undirbúinn, náði snemma
að jafna taflið og tókst að verjast
öllum atlögum Lettans sem m.a.
fórnaði manni til þess að skapa sér
færi. Umferðin byijaði þó ekki vel
fyrir landann: Karl virtist hafa í
fullu tré við Kotronias þegar hann
var skyndilega sleginn skákblindu
og lék af sér manni. Við þetta komst
Grikkinn í efsta sætið en Jóhann
náði að komast upp að hhð hans
með sigri á Helga Ólafssyni. Þeir
Jóhann og Kotronias hafa nú vinn-
ingsforskot á næstu menn og eiga
einmitt að tefla saman í næstu
umferð. E.t.v. ræður sú skák úrslit-
um um sigurinn á mótinu. Árangur
Hannesar Hlífars er athyglisverð-
ur. Hann hefur teflt af miklu ör-
yggi og á möguleika á stórmeist-
araáfanga eftir sigur á Margeiri í
7. umferð en til þess þarf hann að
fá 3 vinninga úr fjórum síðustu
skákunum. Óhætt er að segja að
barist er af mikilh hörku í mótinu
en taflmennskan vill verða ærið
köflótt og svo virðist sem æfmga-
leysi hái sumum heimamanna.
Flestir gestanna tefla af mikilli
grimmd og eru lítt gefnir fyrir jafn-
tefli. Þar eru Englendingarnir
tveir, Plaskett og Conquest, í farar-
broddi en hvorugur þeirra hefur
samið um skiptan hlut það sem af
er mótinu.
Staðan þegar fjórum umferðum
er ólokið er sú að Kotronias og
Jóhann eru efstir með 5 vinninga,
Sírov, Plaskett, Conquest og Hann-
es hafa 4, Jón L. og Renet 3,5, Helgi,
Margeir og Karl 2,5 og Þröstur rek-
ur lestina með 1,5 vinninga.
Keppendur eiga frí í dag og safna
kröftum fyrir endasprettinn en 8.
umferð verður tefld á morgun,
þriðjudag, í Skákheimilinu Faxa-
feni 12. Þá tefla, sem áður segir,
þeir Kotronias og Jóhann, auk þess
Helgi og Margeir, Jón L. og Hann-
es, Sírov og Plaskett, Conquest og
Renet og Þröstur og Karl. Taflið
hefst kl. 17.
-ÁÖK
Andlát
Sigríður Guðlaugsdóttir, Hásteins-
vegi 7, Vestmannaeyjum, andaðist 5.
mars í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
Guðleif Magnúsdóttir frá Kálfholti
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 6. mars.
Eiríkur Þorleifsson rafvirki, Gnoðar-
vogi 26, Reykjavík, lést í Vífilsstaða-
spítala 6. mars.
Jóhann Óskar Guðjónsson, Ægis-
götu 43, Vogum, lést í Sjúkrahúsi
Keflavíkur 5. mars.
Valgeir Hörður Guðmundsson frá
Akureyri, Hafnarbraut23, Kópavogi,
lést fóstudaginn 6. mars.
KNATTSPYRNA
Firmakeppni Skallagríms verður haldin í íþrótta-
miðstöðinni Borgarnesi dagana 20.-22. mars nk.
Upplýsingar og þátttökutilkynningar í símum
93-71450 Sigurgeir, 93-71015 Guðmundur og
93-71668 Jóhanna.
Vertu ár í Bandaríkjunum sem þú
munt muna alla ævi.
Komdu í hóp þeirra hundraða 18-25 ára einstaklinga
með reynslu af ummönun barna sem taka þátt í spenn-
andi prógrammi: Au Pair in America. Þú færð 100
dollara hverja viku í vasapeninga, heilsutryggingu,
frjálst flug, vegabréfsáritun og margt annað. Til að
fá frekari upplýsingar og Au Pair in America bækl-
ing, hringdu í 91-78666 (fax 626273) eða skrifaðu
til Au Pair In America, Pósthólf 8263,128 Reykjavík.
auj
mí
S®MC\
Ár erlendis
Minningar ævilangt.
Jarðarfarir
Útfor Guðríðar Egilsdóttur frá Hhði
á Vatnsleysuströnd fer fram frá
Fossvogskapellu þriðjudaginn 10.
mars kl. 13.30.
Elínborg Þuríður Þórðardóttir, Suð-
urgötu 78, Hafnarfirði, andaðist í St.
Jósepsspítala 29. febrúar. Jarðarfór-
in hefur farið fram í kyrrþey.
Gerður Magnúsdóttir kennari, Bú-
staðavegi 67, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 10. mars
kl. 13.30.
Minningarathöfn um Stefaníu Stef-
ánsdóttur frá Flugustöðum, sem lést
á Hrafnistu 2. mars, fer fram frá
Fossvogskapehu þriðjudaginn 10.
mars kl. 17. Jarðsett verður frá Hofi
í Álftafirði laugardaginn 14. mars kl.
14.
Þórður Jónsson fyrrverandi hóndi,
Byggðarholti, Lóni, andaðist á ehi-
og hjúkrunarheimihnu Skjólgarði,
Höfn, Homafirði, föstudaginn 6.
mars.
Krístinn Gunnarsson lést í Land-
spítalanum 1. mars sl. Jarðarförin
hefur farið fram.
Stefán Pétursson frá Bót, til heimflis
á Dalbraut 21, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 10. mars kl. 15.
Margrét Jakobsdóttir, Garðaflöt 37,
Garðabæ, verður jarösungin frá
Garðakirkju á Álftanesi miðvikudag-
inn 11. mars kl. 13.30.
Sigrún Þorláksdóttir, Dalbraut 27,
síðast tíl heimhis á hjúkranarheimU-
inu Skjóh við Kleppsveg, er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Sigurjón Jónsson, Álftamýri 33,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 10. mars kl. 15.
Oddný Þ. Björnsdóttir, Stóragerði 12,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag, 9. mars, kl.
13.30.
Tónleikar
Tónleikar í
Norræna húsinu
Guðbjöm Guðbjömsson ópemsöngvari
og Þórarinn Stefánsson píanóleikari
halda tónleika þriðjudaginn 10. mars í
Norraena húsinu. Tónleikamir hefjast kl.
20.30. Á efnisskránni em verk eftir ýmsa
höfunda, m.a. Grieg, Peterson-Berger,
Mendelssohn, Haydn ogíslensk tónskáld.
Fyrirlestrar
Rannsóknarstofnun Kennara-
háskóla íslands
Skilningur 3-8 ára bama á íslenska fóð-
umafnakerfmu og hugtökum um fjöl-
skylduvensl. Dr. Hrafnhildur Ragnars-
dóttir, prófessor í uppeldissálarfræði við
KHI, heldur fyrirlestur í Kennaraháskól-
anum við Stakkahlíð (stofu B-301) þriðju-
daginn 10. mars kl. 17. Fyrirlesturinn
Myndgáta
Myndgátan hér að ofan
lýsir athöfn.
Sammála
byggir Hrafnhildur á doktorsritgerð í
sálarfræði sem hún varði við háskólann
í Aix-en-Provence í Frakklandi nýlega.
Fyrirlestur þessi er hluti af fyrirlestraröð
sem flutt verður á vormisseri á vegum
Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla
íslands.
Myndir af hellum og fossum
í Gerðubergi
Anna Guðjónsdóttir sýnir í Gerðubergi
myndir af hellum og fossum, hjara ver-
aldar og frá Hamborg: dullarfullan anda,
sjálfsmynd af Martin Kmtzfeldt, fransk-
ar leikkonur, sigur í sjómanni við þekkt-
an listaprófessor, leiösögn um Hamborg
eftir leyndardómsfullum leiðum og
margt fleira. Sýningin stendur frá 10.
mars til 7. apríl. Sýningaropnun 9. mars
kl. 20. Opiö mánudaga til fimmtudaga kl.
10-22, fóstudaga og laugardaga kl. 13-16.
Spilakvöld SÍBS og Samtaka
gegn astma og ofnæmi
SÍBS deildimar í Hafnarfirði og Reykja-
vík og Samtök gegn astma og ofnæmi
spila félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Múlabæ,
Ármúla 34, 3. hæð. Félagar em hvattir
til að fjölmenna og taka með sér gesti en
allir em velkommr á spilakvöldin. Kaffi-
veitingar í hléi.
Leikhús
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Simi680680
38
iRon *
•50% afsláttur
á síðustu sýningar, gild-
ir aðeins á Ljón í síð-
buxum.
LJÓN í SÍÐBUXUM
eftir Bjöm Th. Bjömsson
Aukasýning:
Föstud. 13. mars.
Allra siðasta sýnlng.
ÁSTÓRA SVIÐI:
ÞRÚGUR REIÐINNAR
Byggtá sögu
JOHNS STEINBECK
Leikgerð: FRANK GALATI
Flmmtud. 12. mars.
Hvit kort gilda. Uppselt.
Laugard. 14. mars.
Brún kort gilda. Uppselt.
Sunnud. 15. mars.
Uppselt.
Flmmtud. 19. mars.
Fáein sæti laus.
Föstud. 20. mars.
Uppselt.
Laugard. 21.mars.
Fáein sætl laus.
Fimmtud. 26. mars.
Fáein sætl laus.
AUKASÝNING
Föstud. 27. mars.
Laugard. 28. mars.
Fáeln sætl laus.
Fimmtud. 2. april.
Laugard. 4. apríl.
Kaþarsis - Leiksmiðjan
sýnir á litla sviði:
HEDDU GABLER
eftir Henrik Ibsen.
Miðvikud. 11. mars.
Föstud. 13. mars.
Gamanleikhúsið
sýnir
í Borgarleikhúsinu
eftir Pétur Gunnarsson
og Spilverk þjóðanna.
5. sýning, fimmtud. 12. mars.
Fáein sæti laus.
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Miðaverð kr. 800.
Miðasaia opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanir í sima alla
virka daga frá kl. 10-12.
Simi 680680.
Leikhúslinan 99-1015.
Greiöslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur.
Borgarleikhús.