Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992. 3 Fréttir Saltfiskútflutmngurinn: Eg fæ hærra verð en Sölusambandið á Spáni - segirJón Ásbjömsson saltfiskútflytjandi „Ég fæ hærra verö en SÍF fyrir söltuð flök á Spáni. Þaö er staðreynd. Og allt síðan ég fékk leyfi til aö flytja út fersk flök til Spánar í maí 1988 hefur saltfiskverðið verið að hækka á Spáni. Þegar við byijuðum að flytja út fengu framleiðendur SÍF hér heima greiðslur fyrir fiskinn tveim- ur til þremur mánuðum eftir afskip- un. Verðiö var lágt og menn voru famir að tala um að senda hann ferskan út. Síðan þetta var hefur verðið hækkað stöðugt. Nú er það orðið svo að framleiðendur SÍF losna við fiskinn jafnóðum og fá hann stað- greiddan á hærra verði en nokkru sinni fyrr. Þetta kom vegna sam- keppninnar," sagði Jón Ásbjörnsson saltfiskútflytjandi en hann keppir við SÍF í saltfisksölu á Spánarmark- aði. Jón var spurður hvort umboðs- maður hans á Spáni seldi saltfiskinn á lægra verði til smásala en umboðs- fyrirtæki SÍF? „Hann gerir það ekki. Minn um- boðsmaður er með betri fisk, greiðir því hærra verð fyrir hann og getur því tæplega selt hann ódýrar en SÍF- fiskurinn er seldur á. Þó má vera að hann geti boðið smásölum eitthvað betri kjör vegna þess að hann er með mjög gott skipulag á dreifmgunni og hann er ekki með 60 ára einokun- armafiu á Spáni á bakinu eins og SÍF. Hann er alveg laus við alla milliliði sem SÍF þarf að fóðra. Mín- um umboðsmanni gengur afskaplega vel að selja og getur selt meira en ég get framleitt," sagði Jón. - SÍF segist eyða stórfé í markaðs- setningu og auglýsingar á Spáni. Lif- ið þið ekki meðal annars á því? „Umboðsfyrirtæki mitt hefur verið með mikla markaðssetningu og aug- lýsingaherferð í gangi. Við framleið- Jón Ásbjörnsson saltfiskútflytjandi. um undir merkinu Sacu. Þeir eru meö auglýsingaspjöld sem hengd eru upp um allt. Þá má nefna að Vals- menn léku með merki frá þeim þegar þeir léku handknattleik gegn Barce- lona-liðinu í haust er leið og sjón- varpað var um aUan Spán. Og svona mætti lengi telja. Þetta kemur til við- bótar þeim auglýsingum sem SÍF er með á Spáni og báðum til góðs. Hitt er annað að vel má vera að SÍF hafi auglýst of mikið því að það hefur ekki getað afgreitt það magn sem það gæti selt.“ Jón sagði að í byrjun hefði hann flutt flökin út fersk og saltað þau úti. Árið 1990 var honum leyft að verka flökin hér og selja ásamt SÍF. Árið áður voru flutt út 1005 tonn af flökum til Spánar. Þegar Jón byrjaði að verka hér heima og selja út, árið 1990, brá svo við aö SÍF seldi 3112 tonn á hærra verði en árið áður. Jón seldi ekki nema 468 tonn. „í fyrra jukum við magnið í 576 tonn en ég veit ekki hvað SÍF seldi þá mikið. Fyrstu tvo mánuði þessa árs hef ég flutt út 470 tonn af verkuð- um flökum. Síðan ég fékk leyfi til að vinna fiskinn hér heima árið 1990, í stað þess að senda hann hálfunninn til Englands og láta fullvinna hann þar, hefur þetta allt gengið betur,“ segir Jón Ásbjörnsson. Jón segir að vandræði SÍF séu í Portúgal. Þar eru Norðmenn með ódýran Alaska- og Rússlandsþorsk sem þeir hafa þítt, saltað og þurrkað og eru að selja á lágu verði. „Umboðsmenn SÍF í Portúgal kaupa fiskinn héðan blautan, þurrka hann sjálfir og selja. Þeir er nú orðn- ir undir í samkeppninni við Norð- mennina og þar í liggja erflðleikar SÍF,“ segir Jón Ásbjörnsson. -S.dór Erfiðleikar SÍF í saltfiskútílutningi: Stafa af undirboðum Norðmanna í Portúgal - segir Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra „Það er greinilega að þrengjast nokkuð um á saltflskmörkuðunum í S-Evrópu. Einkum er það í Portúgal. Norðmenn hafa gefið saltfiskútflutn- ing sinn fijálsan og þeir hafa einhent sér á portúgalska markaðinn. Þeir hafa stóraukið útflutning þangað og dregið saman útflutning til Spánar og Brasilíu, sem voru mjög stórir markaðir hjá þeim. Útflytjendur eru margir og verð í Portúgal hefur lækkað vegna harðrar samkeppni milli norsku útflytjendanna. Á með- an þetta gerist hefur SÍF staðið hjá og neitað að lækka sitt verð og stend- ur nú frammi fyrir því að eiga erfitt með að selja,“ sagði Þröstur Ólafs- son, aðstoðarmaður utanríkisráð- herra, um stöðuna í saltfisksölumál- unum sem SÍF segir orðna alvarlega. Þröstur segir að á Spáni sé eitt- hvert óöryggi um þessar mundir vegna væntanlegrar opnunar EES- markaðarins. Þeir vita að þá breytist útflutningurinn frá íslandi, verður að öllum líkindum gefinn frjáls. „Við höfum veitt Jóni Ásbjömssyni leyfi til að flytja saltfisk til Spánar meðfram SÍF. Hann hefur aukið þann útflutning nokkuð, einkanlega í söltum flökum. Skilaverð hans til okkar er það sama og hjá SÍF. Hann er ekki að undirbjóða neitt. SÍF aftur á móti heldur því fram að hans verð á Spáni sé lægra en SÍF-veröið. Það eru uppi mismunandi fullyrðingar um að heildsali SÍF og heildsali Jóns séu ekki með sama verð gagnvart smásölunum. Verðið er þrenns kon- ar. Það er skilaverð hingað, það er hið sama. Deilt er um heildsalaverðið úti en smásöluverðið er hins vegar það sama. Ef heildsali Jóns Ásbjörns- sonar er að bjóða smásölum lægra verð á Spáni þá tekur hann bara minna í sinn hlut en hinir," sagði Þröstur. Hann benti einnig á að SÍF hefði meiri kostnað á Spáni en Jón. SÍF rekur þar mikla markaðsstarfsemi og hefur því kostnað af auglýsingum. Þröstur segir að það séu á milli 1200 og 1400 tonn sem leyft er aö flytja út fram hjá SÍF, sem hins vegar flutti út um 40 þúsund tonn af salt- fiski til S-Evrópu í fyrra. Aftur á móti er Jón Ásbjörnsson kominn með um 30 prósent af útflutningi salt- fiskflaka til Spánar. „Ég lít svo á að þessi útflutningur fram hjá SÍF sé hreinn tittlingaskít- ur, sem skiptir ekki máli ef á heildina er litið. Aftur á móti er flakasala Jóns, miðað við flakasölu SÍF, um- talsverð. En annað skiptir engu máli,“ sagði Þröstur Ólafsson. -S.dór Ingvar á Nonna SU landar afla sinum, DV-mynd Ægir Fáskrúösfl öröur: Rýr af li hjá trillubátum Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði; Afli í net hjá trillubátum á Fá- skrúðsfirði hefur verið ansi rýr að undanfómu, um 100 kg eftir nóttina á bát, en hver trilla er með 30 net. Sjö trillur eru byrjaðar með net og að sögn trillukarla er von á að afli glæðist upp úr næstu mánaðamótum þegar fiskurinn þéttir sig. IVI £1 I .1 .1 IKK U PASKAFERÐ 12 dagar (4 vinnudagar) Brottför 15. apríl (daginn fyrir skírdag). Komið heim sunnudagskvöld 26. apríl Inn í ferðina koma óvenjumargir fri- dagar. Öll páskahelgin, fimmtudagur til mánudagskvölds, og sumardagur- inn fyrsti sem er 23. april. Dvalið á góðum íbúðarhótelum á Magaluf og Santa Ponsa Verð frá kr. 32.800. FIUGFEROIR SÖLRRFLUG Vesturgötu 17 - sími 620066 l'I.JilJHlj !!H! wmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.