Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992.
11
Sviðsljós
3 ODYRASTIR
Þær voru þakklátar kanínurnar í Gullfiskabúðinni sem Bjarney Guð-
mundsdóttir heimsótti á dögunum því að hún gaf sér tíma til þess að
gefa þeim gulrót að narta í. Hundurinn Júlíus Vífill fylgdist spenntur
með, hvort sem hann var nú að horfa á gulrótina eða kanínurnar...
DV-mynd RASI
Kútmagakvöld Ægis:
Sannkallað sælkerakvöld
Nú er hver að verða
síðastur að panta
fermingarmyndatöku
Ljósmyndastofurnar:
Mynd sími 65-42-07
Barna og Fjölskylduljósm.
sími 677-644
Liósmyndastofa Kópavogs
sími 4-30-20
Tómas Árnason seðlabankastjóri mætti ásamt fjórum sonum sínum. F.v.,
Gunnar, Eiríkur, Tómas, Árni og Tómas. DV-myndir S
Félagar í Lionsklúbbnum Ægi
héldu sitt árlega kútmagakvöld á
Hótel Sögu fyrir skömmu og buðu
með sér gestum og starfsmönnum
hinna ýmsu fyrirtækja. Fastagest-
imir létu sig heldur ekki vanta og
voru fyrir löngu búnir að tryggja sér
borð.
Fjöldi gesta var með meira móti í
ár því um 360 manns mættu í matinn
sem, eins og venjulega, var ekki af
verri endanum.
Boðið var upp á 70 sjávarrétti sem
margur fær hvergi að smakka ann-
ars staðar og stóð borðhaldið í nærri
þijá tíma. Sú heíð hefur skapast að
ákveðnir aðilar innan klúbbsins út-
vegi matinn en Hótel Saga sá að öllu
leyti um matseldina. Og það er óhætt
að segja að þetta hafi verið sannkall-
að sælkerakvöld hjá þeim félögum.
Að þessu sinni var Markús Örn
Antonsson borgarstjóri ræðumaður
kvöldsins, en sjávarútvegsráðherra,
sem alltaf er fastur boðsgestur, var
illa fjarri góðu gamni í ár. Steingrím-
ur Hermannsson lét sig hins vegar
ekki vanta frekar en venjulega.
Þeir félagarnir fóru ekki varhluta
af skemmtiatriðum um kvöldið.
Ómar Ragnarsson, sem er félagi í
klúbbnum, gerði grín eins og öll und-
anfarin ár, Sigfús Halldórsson spilaði
og Gysbræður voru mættir til leiks.
Miðinn á kútmagakvöldið er seldur
á 6000 krónur og rennur allur ágóði
til líknamála, aðailega þó til Sól-
heima í Grímsnesi.
Boðið var upp á 70 sjávarrétti svo jafnvel þeir allra matvöndustu fengu
eitthvað sem þeim likaði.
Borgarstjórinn er hér í góðum félagsskap þeirra Sigurðar Dagbjartssonar,
veislustjóra, Böðvars Valgeirssonar, Jóns Inga Baldurssonar og Engilberts
Gíslasonar.
Fordkeppnin 1992
í Súlnasal Hótel Sögu
fimmtudagskvöldið 19. mars
Húsið opnar kl. 20.00
Gestir fá sérstakan Ford-drykk
Jónas Þórir leikur á píanó
Stúlkurnar tólf kynntar
Bergþór Pálsson syngur nokkur lög
Tískusýning - Módel 79
Gysbræður skemmta af sinni alkunnu snilld
Anne Gorrison velur
Fordstúlkuna 1992
Kynnir: Bryndís Schram
hókel
>A<7A