Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992. 15 Listasafn íslands og „útibú“ Stefnt er aö þvi að ljúka fram- kvæmdum viö Listasafn íslands aö utan á þessu ári. Um er að ræða uppsetningu og frágang gosbrunns í brunninum viö inngang safnsins auk minni háttar lagfæringa. Innanhúss er þó nokkuð eftir af því verki sem bygg- ingamefnd ætlar sér að ljúka þann- ig að hún geti skilað safninu af sér með sóma. Standist þessar áætlanir verður húsinu lokið að utan í þann mund sem byggingarnefnd hefur starfað í 17 ár. Ekki er ólíklegt að nefndin verði nær 20 ára þegar núverandi safnhúsi verður skilað í þeim bún- ingi sem byggingamefndin stefnir að. Ekki þori ég að fullyrða um hvort aðrar byggingamefndir hafi verið jafnlengi að ljúka sínu ætlunar- verki. Þó segir mér svo hugur um að þetta sé engan veginn einsdæmi. Framtíðarskipulag Byggingarnefnd Listasafnsins hefur fengið húsameistara ríkisins til þess að vinna hugmyndir um framtíðarfyrirkomulag safnsins. Það hæfði vel að þessar hugmyndir voru lagðar fram á 100. fundi nefndarinnar að menntamálaráð- herra viðstöddum. Listasafn íslands er reist á nokk- uð aðþrengdum stað. Staðsetningin er eigi að síður mjög góð við tjörn- ina í miðbæ borgarinnar við fagra útivistargarða. Það er oft sagt að það sé eðli safna KjaHarinn Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur að vaxa. Safngripir halda áfram að berast að. Ekki verður framhjá því horft að þessi glæsilega safnbygg- ing er of lítil þegar til lengri tíma er litið. Listasafnið hlýtur að eiga eftir að vaxa út í umhverfi sitt. Byggingamefnd kynnti fyrir menntamálaráðherra þá ósk sína að skipulagsreiturinn helgist sem mest í framtíðinni safninu og þörf- um þess. Hér er reyndar litið til langrar framtíðar. Byggingarnefnd á hér við reitinn sem markast af Laufásvegi, Skáholtsstíg, Skothús- vegi og Fríkirkjuvegi. Þá þarf ef færi gefst að freista þess ef hús verða fól í þessum reit að festa á þeim kaup tU nota fyrir Listasafnið. Hér er ekki tjaldað til einnar nætur heldur horft til heillar aldar eða meira. Innan reitsins eru auð- vitaö hús, sem aldrei falla til Lista- safnsins, eins og Fríkirkjan og e.t.v. Thor Jensen húsið. Margir bera þá ósk í brjósti að Kvennaskólanum verði í fyllingu tímans fengið nýtt og hentugt hús- næði fyrir sína merku starfsemi. Ef og þegar að því kemur væri núverandi bygging skólans hentug viðbót safninu. Listasafn íslands á lóðina nr. 16 við Laufásveg og fljótvirkasta leið- „Gaman væri að geta notað útivistar- garðana til sýninga á höggmyndum, og oft hefi ég reifað þá hugmynd að „tengja“ Listasafnið og tjörnina yfir Fríkirkjuveginn... “ „Listasafn Islands er reist á nokkuð aðþrengdum stað. Staósetningin er eigi að síður mjög góð við tjörnina í miðbæ borgarinnar...“ in til úrbóta fyrir safnið væri að festa kaup á húsinu nr. 14 við Lauf- ásveg. Það hús yrði væntanlega rif- ið og byggt í skarðið. Þar með væri og komin aðkoma að safninu frá Laufásvegi. Létt glerbygging gæti hugsanlega risið á „höggmynda- torginu" og þar orðið framtíðar- kafShús safnsins en núverandi kafíistofa orðið minjagripasala eins og upphaflega var ætlað. Oft hefur verið rætt um kaup á Skálholtsstíg 2a fyrir safnið. Það hús yrði notað fyrir ýmsa starfsemi i þrengslum safnsins en síðar rifið og þannig gert rýmra við inngang safnhússins. Til greina kæmi líka aö kaupa eitthvert annað hús innan reitsins fyrir skrifstofur. Geymslumál Listasafnsins eru í ólestri. Auka þarf geymslurými til muna. Öflug starfsemi Starfsemi Listasafnsins hefur orðið mjög vinsæl síðan það var opnað í hinum nýju húsakynnum. Gestir eru oft margir, ekki síst um helgar. Vel hefur tekist til með sýn- ingar og hstaverkabókaútgáfa safnsins er með ágætum. Núverandi menntamálaráð- herra, Ólafur G. Einarsson, hefur sýnt Listasafninu velvilja og vin- semd, heimsótt safnið, setið fund byggingarnefndar og er áhugasam- ur um framgang safnsins. Gaman væri að geta notað úti- vistargarðana til sýninga á högg- myndum, og oft hefi ég reifað þá hugmynd að „tengja" Listasafnið og tjörnina yfír Fríkirkjuveginn með því að gera litla eyju í tjörn- inni og reisa þar fallegt hstaverk á móts við safnhúsið. Auðvitað geta menn spurt sig þeirrar spurningar hversu mjög safnið eigi að vaxa á þessum stað. Væri eðlilegra að koma á fót útibú- um frá safninu víðar um borgina? Mín skoðun er sú að safnið eigi að vaxa og dafna á þessum stað, þó auðvitað sé eðlilegt að „útibú“ komi á réttum tíma. Meðan menn enn eru þeirrar skoðunar að listin sé meðal vafa- lausustu ghda mannheims er mik- Uvægt að hlúa að þeirri starfsemi. Þarna hefur vel verið að verki staðið og vel tekist til. Þarna verður áfram hlutverkiö að gæta eldsins og arfleifðarinnar komandi kyn- slóðum til þroska og gleði. Guðmundur G. Þórarinsson Matreiðsla „Matreiðslumenn eru iðnaðarmenn sem, eins og aðrir slíkir, hjálpa okkur við að lifa betra lifi en við annars gerðum." Matreiðsla er ein þeirra starfs- greina sem komist hafa í tísku hin síðari ár. Þetta er sjálfsagt að hluta vegna þess að umfjöllun um mat og veitingahús hefur verið mikil í fjölmiðlum og veitingahúsum fjölg- aði verulega á skömmum tíma. Eitt er það í þessari umíjöllun sem virk- ar dálítið hjákátlega á mig og reyndar ýmsa aðra. - Þetta er sú óskaplega upphafning á greininni sem ástunduð er. Menn eru ekki lengur yfirmat- reiðslumenn heldur yfirmat- reiðslumeistarar. Þeir fara á ólympíuleika þótt engir ólympíu- leikar í matreiðslu séu th. Ölymp- íuleikar eru, eins og við öll vitum, íþróttakeppni og þar er ekki keppt í matreiðslu. Matreiðsla er kölluð matargerðarhst og afraksturinn „matargerðarlist í æðra veldi“ eða annað álíka. Þessi upphafning hefur svo vald- ið því að menn geta komist upp með nánast hvað sem er í krafti þess að þaö sé hst. Klaufarnir af- saka mistök sín með því að þetta eigi að vera svona og við gestimir höfum bara hreint ekkert vit á þessu. Ef við viljum ekki steikina okkar svo hráa að við getum næst- um átt von á því að hún taki sig tíl og spásséri í burt eða soðnu kartöfl- umar svo htið soðnar að við hggur að við þurfum að elta þær út um allan bæ eftir að hafa reynt að stinga í þær gafílinum höfum við einfaldlega ekki vit á mat. Við kunnum ekki að meta hstina. Þegar við htum á auglýsingar frá veitingahúsum kemur í ljós að myndir af mat em oftast þannig að mér koma í hug orð gömlu konunn- ar sem kom á „matarsýningu“ í Hótel- og veitingaskólanum. Að- spurð um það hvemig henni htist á sagði hún: „Þetta er svo sem ágætt en af hverju er það allt úr plasti?" KjaUaiinn Guðmundur Agnar Axelsson framhaldsskólakennari Tíska Öh vitum við að fatatískan er sköpuð af bisnessmönnum úti í heimi. Þeir ákveða hvernig húrt skuh vera og við eltum eins og lömb sem leidd eru til slátrunar. Vitan- lega geta eigendur veitingahúsa ákveðiö sjálfir hvemig þeir láta matreiða það sem þeir bjóða gest- um sínum upp á. Þeir geta til dæm- is ákveðið að þeir vilji aðeins hafa þá gesti sem sækjast eftir að borða hráan mat eða mat sem htur út eins og misheppnað málverk en ekki matur. Þeir vita sém er að þær félagslegu athafnir, sem eiga sér stað á veit- ingahúsum, em, í mörgum thvik- um, þess eðlis að maturinn er hvort sem er aukaatriði. Þetta leiðir hug- ann að því hvernig fólk velur sér veitingahús. Ef maturinn væri jafn mikilvægt atriði um val okkar á veitingahúsum og okkur er talin trú um er næsta víst að menn væru ekki að eyöa öllum þeim fjármun- um sem fara th aö skapa þar nota- legt umhverfi. Skemmtikröftum væri sjálfsagt gefið frí. Það væri óþarfi að fara fram á þæghegt viðmót og faglega færni framreiðslufólks og aðgengi stað- anna væri aukaatriði. Til er gamalt máltæki sem hljóðar eitthvað á þessa leið: „Góöur þjónn getur bjargað lélegum mat en það er sama hvað kokkurinn er góöur, hann getur aldrei bjargað slæmri þjónustu." Th þess að dæmið gangi upp þurfa ahir þættir málsins að vera í lagi. Iðnaðarmenn Matreiðsla er lögght iðngrein og þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu eru matreiðslumenn. Til skamms tíma gátu menn, eftir að hafa starfað við greinina í ákveðinn tíma, sótt um og fengið meistarabréf í henni, ef þeir höfðu hreint sakavottorð og áttu peninga til þess að leysa til sín bréfið, og þar meö höfðu þeir leyfi til að kaha sig matreiðslumeistara. Meistaranafnbótin hafði ahs ekk- ert með faglega færni manna aö gera enda ekki gerð krafa um að menn sönnuðu fæmi sína. Meist- aranafnbótin er ekki eitthvað sem menn fá vegna þess hvers konar snillingar þeir eru, heldur vegna þess að tíminn hður, og þeir hafa rænu á að nálgast meistarabréfiö. Matreiðslumenn eru iðnaöar- menn sem, eins og aðrir slíkir, hjálpa okkur við að lifa betra lífi en við annars gerðum. Ef við kaup- um verk þeirra eigum við að hafa tryggingu fyrir því að þau uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur um gæði. Ef allt er eðhlegt eiga svo þessar lágmarkskröfur að vera talsvert meiri en þær sem gera má ráð fyrir að venjulegur fúskari standi undir. Listamenn eru allt annar hand- leggur. Guðmundur Agnar Axelsson „Menn eru ekki lengur yfirmatreiðslu- menn heldur yfirmatreiðslumeistarar. Þeir fara á ólympíuleika þótt engir ólympíuleikar 1 matreiðslu séu til. Ólympíuleikar eru, eins og við öll vit- um, íþróttakeppni og þar er ekki keppt í matreiðslu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.