Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. EB og ísland Þaö segir sína sögu um afstöðu íslendinga til Evrópu- bandalagsins aö þjóðin rak upp stór augu þegar Þórar- inn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandins, lét þau orð falla að ísland ætti að sækja um aðild að bandalaginu. Þórarinn hefur að vísu allan fyrirvara um aðild okkar að Evrópubandalaginu en hann telur tímabært að íslendingar láti á það reyna hver staða þeirra er og hvaða kostir standi okkur til boða með því að sækja um aðild í samfylgd með öðrum EFTA-ríkjum sem nú hyggja á inngöngu. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Svíar, Norðmenn og Finnar hafa allir lýst yfir vilja sínum til að ganga í Evrópubandalagið, svo og margar Austur-Evrópuþjóðir. Við erum satt að segja einir um það að vísa þessu banda- lagi á dyr. Það hefur verið tabú í íslenskri stjórnmála- og þjóð- málaumræðu að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. Flokkarnir hafa allir borið það af sér að vilja hugsa um slíkt, hvað þá tala um það. Forystumenn flokkanna hafa allir lýst sig andvíga aðild að Evrópubandalaginu og eftir höfðinu dansa hmirnir. Enda eiga þeir það á hættu, stjómmálamennimir, að vera bornir sökum um svik og landsafsal ef þeir hreyfa þeirri hugmynd að ís- land gangi í bandalagið. Þess vegna þykir það bíræfni hjá Þórarni að þora að minnast á umsókn. Hins vegar er engum blöðum um það að fletta að til- laga Þórarins er alls ekki út í bláinn. íslendingar hljóta að velta aðild að Evrópubandalaginu fyrir sér og það er heimskulegt að afgreiða það út í hafsauga án hugsun- ar. Umræðan ein getur varla skaðað og íslendingar hafa enga þá sérstöðu sem útilokar þjóðina frá því að skiptast á rökum með og móti. Ef við viljum ekki ger- ast aðilar að Evrópubandalaginu þá verður að finna því stað með ísköldu og raunsæju mati á kostum og göllum. Þá höfnum við aðild af skynsemi og sannfæringu en ekki fordómum og fyrirframgefmni tortryggni. Hvað mæhr með aðild, hvað gegn? Það þarf þjóðin að vita í stað þess að láta sefja sig upp í andstöðu af thfinninga- ástæðum einum. Helsti ásteytingarsteinn íslendinga gagnvart Evrópu- bandalaginu er afsal á forræði okkar yfir fiskimiðunum og fiskveiðunum. Þau rök vega auðvitað þungt og að því leyti er samkomulag um evrópskt efnahagssvæði ákjósanlegra ef við komumst þannig inn á Evrópumark- aðinn án þess að afsala okkur grundvallarréttindum. Nú hefur ungur maður í Háskólanum sent frá sér ritgerð þar sem hann gerir því skóna að í praksís muni íslendingar hafa fulla stjórn á fiskveiðum og sitja einir að miðunum. Þetta er fróðlegt sjónarmið og nýtt innlegg í umræðuna og bæði þessi úttekt og tillögur Þórarins V. Þórarinssonar leiða vonandi til þess að vitsmunaleg umræða fari fram á næstunni um gildi Evrópubanda- lagsins fyrir framtíð íslands og íslendinga. Hér er ekki verið að mæla með að ísland sæki um aðild. En hér er mælt með því að íslendingar feti í fót- spor annarra Evrópuþjóða og meti hagsmuni sína til lengri tíma út frá skynsamlegum rökum og málatilbún- aði þannig að málið sé ekki tabú eða bannorð þegar rætt er um nútíð og framtíð. Þróunin í Evrópu og samfé- lag þjóðanna er að breytast. íslendingar sjálfir eiga að minnsta kosti að fá skýra mynd af því hvað vinnst og hvað tapast við það að vera utan eða innan Evrópusam- starfs. Umræðan skaðar ekki. EUert B. Schram „Erlend veiðiskip, sem leita hafnar á Islandi, geta skapað umtalsverð viðskipti fyrir margar greinar íslensks atvinnulífs." Erlend fiskiskip í íslenskum höfnum: Langþráðar breytingar Árið 1922 setti Alþingi lög um rétt til fiskveiða í íslenskri land- helgi. í lögunum er lagt bann við því að erlend fiskiskip, að veiðum utan landhelginnar, megi landa afla sínum í íslenskum höfnum eða kaupa þar þjónustu. Á þessum tíma voru ákvæði laganna eðlileg og sjálfsögð. Síöan eru liðin 70 ár og landhelgin er orðin 200 mílur. Allar aðstæður hafa gjörbreyst og lögin löngu úrelt. Það var því aðilum í fiskvinnslu, iönaði, versl- un og þjónustu mikið fagnaðarefni þegar sjávarútvegsráðherra lagði fram frumvarp á þessu þingi um breytingar á lögunum. í frumvarpi Þorsteins Pálssonar var gert ráð fyrir því að banni lag- anna yrði aflétt og þess í staö sett almenn regla um að erlendum skipum væri heimilt að landa afla sínum í íslenskum höfnum og kaupa þar alla þjónustu. Almenna reglan átti sem sagt að vera fullt frelsi, þó ekki án undantekninga. í frumvarpinu var gert ráð fyrir því að ef skip, sem leituðu íslenskr- ar hafnar, hefðu verið að veiðum í sameiginlegum nytjastofnum og íslendingar ekki náð samningum um hvemig skuh nýta, þá væri ráðherra heimilt að banna þessum skipum að leita hafnar á íslandi. Þetta er mjög eðlileg varúöarregla. Þarna er meginreglan skýr og í anda frjálsræðis í viðskiptum. Á grundvelli hennar er auðvelt fyrir íslensk fyrirtæki að kynna eigend- um erlendra skipa þjónustu sem stendur til boða í íslenskum höfn- um. Öllu snúið við En Adam var ekki lengi í para- dís. Á leið sinni um nefndir þings- ins hefur frumvarpið tekið miklum breytingum. Sjávarútvegsnefnd þingsins sá ástæðu til þess að hafa endaskipti á hlutunum. í stað meg- inreglunnar um frjáls viöskipti er sett bann viö löndunum og þjón- ustu við skip sem veiða úr sameig- inlegum stofnum. Frá banninu má veita undanþágur þegar sérstak- lega stendur á. Það sem með réttu ætti að vera aðalregla er nú orðiö að undan- tekningu og sjálfsögð undantekn- ing orðin að aðalreglunni. Þetta stangast algjörlega á við strauma í alþjóðlegum viöskiptum og ís- lenska hagsmuni. Eins og frumvarpið er úr garði gert, eftir að sjávarútvegsnefndin gerði sínar breytingar, virðist mega túlka það sem svo að nánast öllum skipum sem eru að veiöum við Grænland og þeim skipum sem KjáUariim Gunnar Svavarsson forstjóri Hampiðjunnar og form. FÍI margs konar þjónustu að halda, kaupa þarf vistir, gera þarf við skip og veiðarfæri eða kaupa ný, kaupa þarf olíu og oft er tækifærið notað til þess að skipta um áhöfn á skipi. Öll þessi umsvif, sem skipakomur hafa í för með sér, færa viðskipti og gjaldeyri í landið. Ekki er óvar- legt að ætla að viðskipti, sem skap- ast við að erlendur togari kemur til hafnar á íslandi, geti numið á bihnu 5-10 milljónum króna. Það leikur ekki nokkur vafi á því að íslenskar atvinnugreinar geta stutt hver aðra og það eiga þær að gera. Margs konar iðnaður og þjón- usta hefur sprottiö upp, vaxið og dafnað beint og óbeint í kringum sjávarútveginn. Á sama hátt hefur sjávarútvegurinn getað reitt sig á íslensk þjónustu- og iðnfyrirtæki. Með góðri samvinnu atvinnugrein- „Þaö sem með réttu ætti að vera aðal- regla er nú orðið að undantekningu og sjálfsögð undantekning orðin að aðal- reglunni. Þetta stangast algjörlega á við strauma í alþjóðlegum viðskiptum og íslenska hagsmuni.“ eru á úthafskarfaveiðum utan 200 mílnanna verði óheimilt að leita hafnar á íslandi nema sækja um leyfi í hvert skipti. Þetta þýðir í rauninni að eina breytingin sem framvarpið hefur í för með sér á þessum 70 ára gömlu lögum er sú að Rússamir, sem stunda veiðar í Barentshafi, ættu nú möguleika á því að sækja þjónustu til íslenskra hafna. Þeir sem best þekkja til era nokk- urn veginn sammála um það að sá stofn sem ráðherra vildi geta beitt upphaflegu heimildarákvæði frumvarpsins til þess að vernda, væri karfastofninn, sem íslending- ar veiða reyndar mest úr, en hann heldur sig að hluta íil einnig innan grænlensku lögsögunnar. Viðskipti til landsins íslenskt atvinnulíf þarf mjög á því að halda öll viðskipti, ekki síst viðskipti við erlenda aöila, verði sem mest og best. Til þess að það sé mögulegt þarf öll viðskiptalög- gjöf okkar að byggjast á meginregl- um um ftjáls viðskipti. Erlend veiðiskip, sem leita hafnar á ís- landi, geta skapað umtalsverð við- skipti fyrir margar greinar íslensks atvinnulífs. Fiskvinnslan þarfnast hráefnis til að vinna úr. ■ Skip sem koma til hafnar þurfa á anna næst bestur árangur og ís- lendingar verða áfram í fremstu röð sjávárútvegsþjóða. Ekki annars flokks Þess vegna skýtur skökku við þegar sjávarútvegsnefnd Alþingis hefur endaskipti á hlutunum þegar gerð er thraun til þess aö losa um áratuga gömul höft sem era löngu úrelt. Eins og framvarpið var úr garði gert í upphaflegri mynd sinni var tekið fullt tillit til sjávarútvegs- hagsmuna þjóðarinnar. Samt fyll- ast menn hræðslu við, að aðeins hið versta geti gerst sé slakað á gömlum höftum. - Þetta er gert á kostnað iðnaðar- og þjónustugrein- anna. Það er ekki lengur hægt aö búa viö það þegar fjallað er um málefni sjávarútvegsins að ekkert tilllt sé tekið til annarra atvinnugreina en þær settar til hliöar sem annars flokks. Þaö var orðinn sæmilegur friður um frumvarp Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra eins og það var upphaflega lagt fram. Þess vegna er það algjörlega óþolandi aö megininntaki þess skuli á síð- ustu stundu snúið við á þann hátt sem nú blasir við. Gunnar Svavarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.