Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 30
42 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992. Afmæli Jónas Stefánsson Jónas Stefánsson framhaldsskóla- kennari, Bröttuhlíð 1, Akureyri, er fimmtugurídag. Starfsferill Jónas fæddist á Akureyri og hefur alið þar mestallan aldur sinn. Hann lauk gagnfræðaprófl frá Gagn- fræðaskóla Akureyrar 1959, lauk prófum frá Iðnskólanum á Akureyri í blikksmíði 1964 og í rennismíði 1970, lauk prófum í uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ1986, lauk stúdentsprófi frá öldungadeild M A 1987 og hefur sótt ýmis námskeið sem haldin hafa verið á vegum fræðsluráðs málmiðnaðarins, Fé- lags málmiðnaðarkennara, endur- menntunarnefndar HÍ og KHÍ, þ.á m.tíueininganámíþróunar- starfl við framhaldsskóla vorið 1991, auk þess sem hann hefur sótt nám- skeið í Þýskalandi. Jónas tók sveinspróf í blikksmíði 1965 og öðlaðist meistararéttindi 1972. Hann starfaði við blikksmíðar á Sameinuðu verkstæðunum Mars hf. og á Járnsmiðjunni Varma. Þá tók hann sveinspróf í rennismíði 1972 og öðlaðist meistararéttindi 1981. Hann starfaði við rennismíði á Vélsmiðjunni Odda hf. og vann við viðgerðir olíuyerka fyrir dísil- vélar í um tvö ár. Jónas var settur kennari við Iðn- skólann á Akureyri 1983-84 og við Verkmenntaskólann á Akureyri frá 1984-86 en skipaður þar frá 1986. Hann hefur verið prófdómari í blikksmíði frá 1972 og í rennismíði frá 1984. Þá hefur Jónas verið iðn- fulltrúi á Norðurlandi eystra frá 1990. Jónas sat í stjórn Félags ungra jafnaöarmanna á Akureyri 1967-70 og í stjórn Alþýðuflokksfélags Ak- ureyrar 1979-81. Hann sat í stjórn Félags málmiðnaðarmanna á Akur- eyri 1981-84, var trúnaðarmaður FMA á vinnustað 1974-83, fulltrúi blikksmiða í iðnráði Akureyrar og ritari stjórnar þess 1980-83, fulltrúi FMA á þingum MSÍ og ASÍ, fulltrúi FMA í nefnd Málm- og skipasmíða- sambands íslands og Sambands málm og skipasmiðja um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnu- stöðum 1982-84. Hann hefur verið trúnaðarmaður HÍK á vinnustað frá 1983, fulltrúi kennara við VMA á aðalfundum HÍK og sat í stjóm Li- onsklúbbsins Hængs 1983-84. Fjölskylda Jónas kvæntist 6.6.1965 Sigrúnu, f. 27.8.1946, sjúkraliða. Hún er dótt- ir Kristjáns Pálssonar, vélsmiðs á Akureyri, sem lést 1972, og konu hans, Asu Helgadóttur, skrifstofu- mannsá Akureyri. Börn Jónasar og Sigrúnar eru Ásdís, f. 17.11.1961, húsmóðir á Ak- ureyri, gift Óskari Árnasyni vinnu- vélaverktaka og eiga þau þrjá syni; Gylfi, f. 1.9.1963, rafvirki í Svíþjóð, kvæntur Árnu Möller húsmóður og eigaþautvöböm. Systkini Jónasar era Snæborg Jóhanna, f. 17.7.1937, iðnverkakona á Akureyri, átti hún tvær dætur með fyrri manni sínum, Aðalgeiri Jónssyni, sem lést 1958, en með seinni manni sínum, Braga Stefáns- syni, á hún þrjár dætur; Gylfi, f. 3.1. Jónas Stefánsson. 1945, d. 16.9.1963; Fjóla, f. 12.1.1948, starfsmaður á skattstofunni á Húsa- vík, gift Vali Sigurjónssyni, vél- stjóra við Laxárvirkjun, og eiga þau tvær dætur. Foreldrar Jónasar: Stefán Snæ- björnsson, f. 19.6.1915, d. 23.10.1983, vélvirki og rennismiður á Akureyri, kaupmaður á Akureyri í flmmtán ár og síðast kennari við Bændaskól- ann á Hólum, og Sigurlaug Jó- hannsdóttir, f. 13.5.1913, húsmóðir, nú búsett í Reykjavík. Elna O. Bárðarson afmælið 18. mars Elna Orvokki Bárðarson, sauma- kona, kennari og húsmóðir, Dvalar- heimilinu Fellaskjóh, Grundarfirði, ersjötugídag. Starfsferill Elna er fædd í Finnlandi og ólst þar upp. Hún flutti til Svíþjóðar 21 árs gömul pg bjó þar í flögur ár en eftir það á íslandi, fyrst í Reykjavík í sjö ár en síðan að Gröf í Eyrar- sveit á Snæfellsnesi. Elna hefur búið í Fellaskjóli frá 1990. Elna vann á saumastofu í Finn- landi og Svíþjóð og í Reykjavík vann hún m.a. hjá Andrési Andréssyni klæðskera. í Grundarfirði vann Elna ýmiss störf. Hún var m.a. heimavinnandi húsmóðir, í neta- og fiskvinnu og kenndi handavinnu við Grunnskóla Eyrarsveitar í þrjú ár. Elna lærði teikningu í Finnlandi á sínum tíma og hérlendis naut hún tilsagnar Bjargar ísaksdóttur í Reykjavík. Elna hefur haldið mál- verkasýningar víða um land. Fjölskylda Maður Elnu var Þorsteinn Bárð- arson, f. 13.4.1916, d. 29.3.1990, skip- stjóri, hafnarvörður og hreppstjóri í Grundarfirði. Foreldrar hans vom Bárður Þorsteinsson og Jóhanna Magnúsdóttir en þau bjuggu að Gröf íEyrarsveit. Sonur Elnu og Þorsteins er Gústaf Haukur Gauti, f. 29.7.1955, sjómað- ur. Kjörsonur Elnu og Þorsteins er Bárður Orri, f. 16.3.1954, sjómaöur, hann á tvö börn. Fóstursonur Elnu og Þorsteins er Karl Bjarni Guð- mundsson, f. 6.1.1976. Elna eignaðist sjö systkini, flóra bræður og þrjár systur, en tvær systur hennar eru látnar. Foreldrar Elnu: Gustav Ehas Lait- Elna Orvokki Bárðarson. inen járnbrautarstjóri og Aino Pau- hna Laitinen húsmóðir en þau vom búsettíFinnlandi. Elna tekur á móti gestum í Dvalar- heimilinu Fellaskjóh nk. laugardag (21.3) eftir kl. 15. 80 ára Arnbjörg Magnúsdóttir, Eyjahrauni3, Vestmannaeyjum. 75 ára Guðjón Guðmundsson, Lyngbrekku 15, Kópavogi. 70 ára Alfreð Eymundsson, Miövangi 22, Egilsstöðum. 60 ára 50 ára Soffia Hulda Guðjónsdóttir, Hofsstöðum, Miklaholtshreppi. Christina BirgittaEngblom, Granaslyóh 29, Reykjavík. Sveindis Hansdóttir, Heiðarbóli 4c, Keflavík. Erna Kristinsdóttir, Þrúövangi 18, Hafnarfirði. Tryggvi Óskarsson, Þverá, Reykjahreppi. 40ára Stefán Jónsson, Hverfisgötu 92c, Reykjavík. Stefán Ragnar Þorvarðarson, Heiðarvegi 62, Vestmannaeyjum. Kolbrún Björgólfsdóttir, Laúgamestanga 62, Reykjavík. Guðrún Sigriður Bj örnsdóttir, Vörðu 13, Djúpavogi. Óskar Marías Hallgrímsson Óskar Marías Hallgrímsson, deild- arstjóri Lágspennudeildar Rag- magnseftirhts ríkisins, Dalatanga 13, Mosfellsbæ, er sjötugur í dag. Starfsferill Óskar fæddist að Ytri-Sólheimum í Mýrdal og ólst þar upp viö almenn sveitastörf. Fjórtán ára fór hann til Vestmannaeyja á vertíð og var hann þar fimm vertíðir. Hann fór til Reykjavíkur 1939 og starfaði þá hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Hann hóf síðan rafvirkjanám hjá Vilhjálmi Hahgrímssyni oglauk sveinsprófi 1950. Hann stundaði síðan nám í rafvélavirkjun hjá Rafvélaverk- stæði F. Bertelsson og lauk því námi 1952. Að námi loknu hóf Óskar störf hjá Áburðarverksmiöju ríkisins og starfaði þar tæp tvö ár. Hann stofn- aði síðan rafvirkjafyrirtæki, ásamt öðmm, sem starfrækt var tæp fimm ár en réðst þá sem deildarstjóri til Rafmagnseftirlits ríkisins 1958 þar sem hann hefur starfað síðan. Óskar hefur starfað í kórum frá 1944, m.a. Karlakóri iðnaðarmanna, Söngfélagi verkalýðssamtakanna, Söngfélagi Skaftfelhnga, RARIK- kómum og með Karlakórnum Stefni, auk þess sem hann hefur setið í stjórn margra kóra. Hann hefur unnið að stéttarfélagsmálum Starfsmanna ríkisstofnana og gegnt þar trúnaðarstörfum. Fjölskylda Óskar kvæntist 11.3.1950 Margréti Rögnu Jóhannsdóttur, f. 8.8.1929, húsmóður. Hún er dóttir Jóhanns Kr. Ólafssonar, brúarsmiös í Reykjavík, og konu hans, Kristínar Guðnadóttur húsmóður. Börn Óskar og Margrétar em Reynir, f. 21.6.1951, bifvélavirki í Mosfellsbæ, kvæntur Berglindi Guðmundsdóttur kennara og eiga þau einn son, Óskar; Hróbjartur Ægir, f. 16.2.1953, kennari ogtré- smiður í Reykjavík, kvæntur Lilju Amardóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo syni, Öm og Ara; Krist- ín, f. 23.2.1955, hjúkrunarfræðingur í Vestmannaeyjum, gift Agnári ívari Agnarssyni vélstjóra og eiga þau þrjá syni, Jóhann Helga, Óskar Matthías og Magnús; Gunnar, f. 26.2. 1959, bifreiðavirki í Reykjavík, og á hann tvö böm, Guðrúnu og Óla; Margrét, f. 1.12.1962, húsmóðir í Reykjavík, og á hún þrjá syni, Andra, Hjálmar og Trausta; Hah- Óskar Marias Hallgrímsson. grímur, f. 21.5.1965, trésmiður í Mosfehsbæ, kvæntur Helenu Jóns- dóttur kennara og eiga þau eina dóttur, Hrefnu. Óskar átti tólf systkini, þar af einn albróður, en á nú fimm systkini á lífi. Foreldrar Óskars vora Hallgrím- ur Brynjólfsson, f. 1.9.1870, d. 24.7. 1937, bóndi, og Guðrún Einarsdóttir, f. 12.1.1888, d. 3.5.1965, húsfreyja. Óskar tekur á móti vinum sínum og vandamönnum í Skaftfellinga- búð, Laugavegi 178, klukkan 20.00. Iaugardaginn21.3. íí SMÁAUGLÝSINGASÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: 99-6272 DV GRÆNI SfMINN EOI Þorsteinn Bjarnason, Kristinn Rúnar Hartmannsson, Syðri-Tungu, Tjörneshreppi. Víkurbraut 9, Grindavik. Magndís Guðrun Gísladóttir, Ásgeir Bjarnason, Þórsgötu 4, Patreksfirði. Ghtvangi 11, Hafnarfirði. Henryk Bakunowicz, Króktúni6, Hvolsvelh Hrefna Markan Harðardóttir Hrefna Markan Harðardóttir kenn- ari, Leifsgötu 11, Reykjavík, er fimmtugídag. Starfsferill Hrefna er fædd í Reykjavík og ólst þar upp fyrstu árin. Hún flutti aö Brekkulæk i Miðfirði, V-Húna- vatnssýslu, árið 1949 og bjó þar í áratug. Hrefna var kennayi í Stykkishólmi 1961-84, starfaði við Heilsuræktina í Kópavogi um fimm ára skeið eftir það en er nú kennari við Dalbraut- arskóla. Hrefna hefur tekið mikinn þátt í félagsstarfi. Hún þjálfaði m.a. sund- og körfuknattleiksiðkendur hjá SnæfeUi í Stykkishólmi og vann ennfremur að málefnum aldraðra í gegnum Rauða krossinn í nokkur ár. Fjölskylda Hrefna giftist 1962 Hermanni Guð- mundssyni, f. 10.6.1942, rafvirkja, þau skildu. Foreldrar hans: Guð- mundur Bæringsson og Kristbjörg Hermannsdóttir. Böm Hrefnu og Hermanns: Ólöf Guðrún, f. 30.4.1963, hún á tvö börn; Hörður, f. 6.5.1971; Kristbjörg, f. Hreina Markan Harðardóttir. 8.10.1974. Systkini Hrefnu: Kristín Markan, f. 1938, d. 1988, hún eignaðist fimm böm; Sigríður, f. 1940, hún á þrjú börn; Elín, f. 1943, hún á tvö böm; Guðrún, f. 1944, hún á þrjú börn; Hörður, f. 1945, hann á þrjú börn. Hálfbróðir Hrefnu, samfeðra, er Böðvar. Foreldrar Hrefnu: Hörður Mark- an og Guðrún Guölaugsdóttir. Fóst- urforeldrar Hrefnu: Jóhann Sig- valdason, bóndi að Brekkulæk í Miðfirði í V-Húnavatnssýslu, og Sig- urlaug Friðriksdóttir húsmóðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.