Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 26
38
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992.
Smáauglýsingar - Sími 632700
Empire pöntunarlistinn. Glæsilegt úr-
val af tískuvörum, heimilisvörum o.fl.
Verð kr. 400 + bgj. Pöntunarsímar
620638 10-18 eða 657065 á kvöldin.
Sjáum um saumaskapinn. Ódýr efni og
ýmis annar vamingur. Hverfisgata 72,
sími 91-25522.
Vinnulyftur til sölu og leigu, sjálf-
keyrandi, glussalyftur, bensín- og
rafinagns-, af ýmsum stærðum. Uppl.
í síma 91-44107 og 91-44995.
Léttitœki
íslensk framleiðsla, mikið úrval af alls
konar léttitækjum. Fáið senda
myndabæklinga. Sala leiga. *Létti-
tæki hfi, Bíldshöfða 18, s. 676955.
■ Verslun
SHCHEN
Tölvuleikir.
Sami leikurinn passar f/Nintendo
læstar/ólæstar, Redstone, Crazy boy,
Nasa o.fl., vorum að fá yfir 20 nýja
leiki. Hringið í s. 91-679775 allan sól-
arhr. og fáið sendan litabækling.
Sendum í póstkr. SACHEN á Islandi.
Endurski
í skam
Ódýrar Bianca baðinnréttingar.
Mikið úrval baðinnréttinga.
Afgreiðum samdægurs.
• Poulsen, Suðurlandsbraut 10,
sími 91-686499.
SKÍÐAVÖRUR
Skiðaverslun, skiðaleiga og viðgerðir.
• K2 skíði, K2 skíðagallar, Elan skíði,
• Alpina og Lowa skíðaskór.
• Barnaskíðapakki frá 12.500.
• Fullorðinsskíðapakki frá 19.990.
• Gönguskíðapakki, 12.500.
• Tökum notaðan skíðabúnað upp í
nýjan. Sportleigan gegnt Umferðar-
miðstöðinni, sími 19800.
Littu ekki langt yfir skammt.
Við bjóðum þér föt á alla fjölskylduna
á verði sem fáir eða engir geta boðið.
Og hvernig? Þú sérð það þegar þú lít-
ur inn. Engin yfirbygging. Lágmarks-
kostnaður. Sjón er sögu ríkari.
Haukurinn, Bergstaðastræti 19,
sími 91-627762.
■ BQar til sölu
Breyttu pallbilnum í ferðabíl á hálftima.
Eigum pallbílahús fyrir allar stærðir,
þ. á m. Double Cap og Extra Cap.
Húsin eru niðurfellanleg, þ.e. lág á
keyrslu en há í notkun. Glæsil. inn-
réttingar m/rúmum, skápum, bekkj-
um, borðum, ísskáp í eldhúsi og sjálf-
virkum hitastilli. Ódýr lausn heima
og erlendis. Eigum einnig pallbíla.
Tækjamiðlun íslands hfi, s. 674727.
Willys, vél 350, 36" radial, 44 fljótandi
öxlar að aftan, 44 að framan, no-spin
aftan og framan, 4 gíra, blæja fylgir,
þarfnast skoðun. Verð 450 þús. Uppl.
í síma 91-54731 eftir kl. 19.
Ford Econolme 4x4, arg. 78, til sölu,
5,7 Oldsmobile dísil, 38" dekk, sér-
skoðaður, skoðaður ’93, verð kr.
850.000. Nánari uppl. í síma 91-46991.
Afmæli
Einar Thorlacius
Einar Thorlacius, fulltnii Bílaleigu
Flugleiða Hertz á Akureyri, til
heimilis að Arnarsíðu 4 B, Akur-
eyri, er fertugur í dag.
Starfsferill
Einar fæddist í Reykjavík en flutti
með foreldrum sínum til Óslóar á
fyrsta árinu þar sem hann ólst upp
til 1960. Þá flutti hann til Reykjavík-
ur. Hann lauk landsprófi frá Haga-
skólanum 1968 og stundaði m.a.
byggingarvinnu. Árið 1970 fluttist
Einar til Vestur-Þýskalands þar sem
hann hóf nám við Fachhochschule
fur Gestaltung í Schwábisch
Gmiind, lagði stund á skartgripa-
hönnun og koparstungu og tók þátt
í ýmsum samkeppnum og sýningum
á skartgripum í Evrópu en Einar
útskrifaðist sem Schmuck Designer
1975.
Að námi loknu var Einar deildar-
stjóri herrafatadeildar stórmarkað-
ar í Aalen til ársloka 1975 en flutti
þá heim og var gullsmiður í fjögur
ár hjá Árna Höskuldssyni í Reykja-
vík. Þá var hann afgreiðslumaður í
Málaranum hf. 1980-82, sölumaður
hjá Reykjalundi 1982-84 en flutti þá
tU Akureyrar. Þar var hann mark-
aðsfulltrúi hjá Skinnaiðnaðardeild
SÍ S í tæpt ár en síðan sölumaður
hjá Mjólkursamlagi KEA. Hann hóf
störf við Bílaleigu Flugleiða á Akur-
eyri við stofnun og hefur verið full-
trúi þar síðan. Einar tók íslenskt
sveinspróf í gullsmíði 1989 hjá Sig-
tryggi og Pétri á Akureyri.
Starfsferill
Einar kvæntist 5.8.1972 Helgu
Ásgeirsdóttur, f. 7.2.1950, kennara.
Hún er dóttir Ásgeirs Þorsteinsson-
ar sjómanns og Astu Sigurðardóttur
húsmóður.
Böm Einars og Helgu eru Nadine
Guðrún Thorlacius, f. 7.2.1975, nemi
við MA; Þórdís Ásta Thorlacius, f.
20.2.1983; Steinunn Erla Thorlacius,
f. 11.12.1984.
Systkini Einars: Þorsteinn
Thorlacius, f. 12.8.1946, viðskipta-
fræðingur og bóksali á Akureyri,
kvæntur Guðrúnu Jónasdóttur og
eiga þau þrjú börn; Þorbjörg
Thorlacius, f. 18.2.1954, húsmóðir í
Vestur-Þýskalandi, gift Klaus Let-
EinarThorlacius.
haus verkfræðingi og eiga þau eina
dóttur, auk þess sem Þorbjörg á tvo
syni frá fyrra hjónabandi; Ragnhild-
ur Thorlacius Bondrop, f. 6.12.1957,
löggiltur skjalaþýðandi í Kaup-
mannahöfn, gift Torben von Mud-
ersback Bondrop lögfræðingi og
eigaþautvöböm.
Foreldrar Einars: Þorleifur
Thorlacius, f. 18.4.1923, d. 3.2.1986,
sendiherra, og Guðrún Einarsdóttir
Thorlacius, f. 7.7.1925, húsmóðir.
Til sölu Toyota 4Runner ’85, 38" radial
Mudder, No spin að aftan og framan,
5,71 hlutföll. Skipti möguleg á ódýr-
ari. Verð 1200 þús., staðgreitt. Upplýs-
ingar í síma 91-657494, e.kl. 16.
Sprækur sportbitl.
Ford PROBE, árg. ’89, til sölu, ekinn
28 þúsund km, einn með öllu, athuga
skipti á ódýrari. Upplýsingar í símum
91-681502 og 91-681510 á daginn eða
91-687046 á kvöldin.
Double cab 1990, upphækkaður, 33"
dekk, nýjar fjaðrir, demparar, bretta-
kantar. Upplýsingar í síma 91-652484
eða 985-32242.
Toyota Tercel 4WD, árg. ’86, til sölu, 5
gíra, rauður, staðgreiðsluverð kr.
490.000. Upplýsingar í síma 92-11120
og 92-11937.
Skemmtarúr
Félagasamtok, veitinganus,______
einstaklingar, athugið: Félag ís-
lenskra hljómlistarmanna útvegar
hljóðfæraleikara og hljómsveitir við
hvers konar tækifæri: rokk, djass,
klassík. Hringið í s. 678255 alla virka
daga frá kl. 13-17. Faxnúmer 678215.
TtmntttyrtrsDa •pl •
wm
Meiming
Pétur Grétarsson slagverksleikari.
Slagverkstónleikar
Pétur Grétarsson slagverksleikari hélt tónleika í Borgarleikhúsinu í
gærkvöldi. Þar lék hann verk eftir Áskel Másson, Tryggva M. Baldvins-
son, Láms H. Grímsson, Istvan Lang, Gitta Steiner og William Kraft. Auk
Péturs léku á tónleikunun þeir Kjartan Óskarsson, klarínett, og Eiríkur
Öm Pálsson, trompet.
Það er ekki á hverjum degi sem slagverksmenn halda einleikstónleika
hér á landi. Yfirleitt er það allt of fágætt að heyra tónleika þar sem þessi
litskrúðugi og vandmeðfami hljóðfærahópur er í sviðsljósinu og verður
þetta framtak Péturs Grétarssonar að teljast til tíðinda. Mikil og ör fram-
þróun slagverkshljóðfæra hefur orðið á þessari öld. Bæði hafa hljóðfærin
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
sjálf hatnað og þeim fjölgað. Þá vegur ekki síður þungt að fæmi slagverks-
manna hefur tekið miklum framfómm og má telja með ólíkindum hve
einn góður slagverksleikari kemst yfir mikið nú til dags. Þess var getið
hér að ofan að slagverkið væri vandmeðfarið. Kostir þess eru mikil lita-
fjölbreytni og vítt styrkleikasvið. Þá er skýrleiki hrynræns efnis meiri í
slagverkshljóðfæmm en öðrum. Hversu mönnum gengur að hagnýta sér
þessi sérkenni ræður úrslitum um hvernig til tekst með tónsmíðar fyrir
slagverk.
Verkefnaval á þessum tónleikurrrvar vel heppnað að þessu leyti og ljóst
að vandað hafði verið til valsins. Tónleikamir hófust á verki Áskels
Mássonar. „Prím“ fyrir eina litla trommu, þar sem farin er leið sparsem-
innar í hljóðfæravali. í „Lífdagatali 2“ eftir Tryggva Baldvinsson eru
dregnar upp fallegar hljóðmyndir við ljóð bróður tónskáldsins, Svein-
bjöm I. Baldvinsson. „Bragðlaukar" eftir Lárus Grímsson er efnisrík tón-
smíð fyrir segulband og slagverk þar sem áhrifa gætir úr djassi. Af verk-
um hinna erlendu höfunda var verk Krafts einna áhrifaríkast og sýndi
góða þekkingu á hinum fíngerðari blæbrigðum hljóðfæranna.
Hljóðfæraleikur þremenninganna var mjög góður, en hæst bar að sjálf-
sögðu frammistöðu Péturs enda var hún viðamest. Leikur Péturs var
sérlega skýr og vel útfærður. Hljóðfæri hans vom mjog vel hljómandi
og kom þar einnig til fallegur ásláttur hans. Þessir tónleikar voru í heild
áhugaverðir og skemmtilegir.