Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 87 00 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992. Bandarikja- menn töldu Eðvald sekan um stríðsglæpi - neituðu vegabréfsáritun Eðvald Hinriksson sótti um vega- bréfsáritun til að ferðast um Banda- ríkin til annars áíángastaðar í des- ember 1946, sama mánuði og hann kom til íslands meö skipinu Rosita. Sendiráð Bandaríkjanna í Svíþjóð kannaði feril hans og mælti eindreg- ið gegn umsókninni. Niðurstaða þess eftir að það kannaði feril hans var aö hann væri sekur um stríðsglæpi. Þetta er samkvæmt heimildum DV sem Þór Whitehead, prófessor í sagn- fræði, hefur staðfest. í skjölum sem hann hefur skoðað í tengslum við rannsóknir sínar á sögu Eistlands á árunum eftir stríð koma meðal ann- ars fram sömu atriði varðandi Eð- vald og fjallað hefur verið um í fjöl- miðlum að undanfornu. Umsókn Eðvalds er frá í desember 1946 en umsögn sendiráðsins frá því í janúar 1947. Eðvald getur ekki um þetta í ævisögu sinni en segir í þeim kafla sem segir frá fangavist hans í Svíþjóð 1944-1946 að hann hafi sótt um landvistarleyfi í ýmsum erlend- um ríkjum og að í sumum tilfellum hafiþaðveriðveitt. -VD Kjarasanmingarnir: Eingreiðslanverði tilviðbótarkaup- máttaraukningu Eins og DV skýrði frá fyrir tæpum tveimur vikum, lýstu atvinnurek- endur sig tilbúna til að skoða ein- greiðslu á lægstu laun. Þetta geröist þá á bak við tjöldin en var lýst yfir opinberlega í gær. Atvinnurekendur eru að tala um eingreiöslu á laun sem eru lægri en 67 til 68 þúsund krónur á mánuði. Launþegar miða aftur á móti við 75 til 80 þúsund krónur. Þá er það almennt skoðun fulltrúa launþega að þessi eingreiðsla komi til viðbótar kaupmáttaraukingu og miða þar við að ná kaupmætti upp í það sem hann var í júní í fyrra. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði í morgun að á fundinum í gærkvöldi hefði ekkert komið frá samningamönnum ríkisins varðandi velferðarmálin, en eftirgjöf ríkisins í þeim málum er ein af forsendum þess að samningar geti tekist. Ög- mundur sagði að það hlyti að koma í ljós á allra næstu dögum hvaða skref ríkisvaldið ætlaði að stíga varð- andi velferðarmálin. Samningafundir halda áfram í dag. -S.dór Gleyptu 350 grömm af hassi í 110 smokkum Sakadómur í ávana- og fíkniefna- málum hefur dæmt tvo 22 ára karl- menn úr Reykjavík og Kópavogi í 5 og 7 mánaða íangelsi fyrir að hafa fiutt rösklega 1,3 kfló af hassi til landsins og dreift megninu af því á árinu 1990. Rúmlega 60 þús- und krónur voru dæmdar til upp- töku til ríkissjóðs sem ætlaður gróði af fíkniefnasölu. Ungu mennimir viðurkenndu að hafa keypt 650 grömm af hassi í Amsterdam í júlí 1990. Á heimleið kváðust þeir haía fariö til Lúxem- borgar þar sem þeir kornu 350 grömmum af efrúnu fyrir í samtals 110 smokkum. Áöur en þeir fóru með ílugi heim gleypti annar þeirra 80 smokka en hinn 30 stykki. Af- gangurinn af hassmu, um 300 grömm, var skilinn eftir ytra. Þegar heim var komið seldu mennirnir hassið á 1.000 krónur grammið. Söluandvirðinu skiptu þeir með sér og notaði annar þeirra hagnaðinn af ferðinni til að fjár- magna aöra íör til Amsterdam. Þangað fór hann nokkrum dögum síðar og keypti 800 grömm af hassi. Fram kom fyrir dómi að það var íri að nafni Símon sem fenginn var til að fiytja þann skammt með sér til íslands. íslendingurinn kom síð- an með 200 grömm af því hassi sem skilið hafði verið eftír í fyrri ferð- inni innvortís með íranum til landsins. Þegar írinn kom til Reykjavikur fékk hann 204 þúsund krónur fyrir flutninginn. Þegar lögreglan handtók íslend- ingana tvo voru þeir búnir aö seija mest af hassinu úr ferðunum hér á landi. Tæplega 100 grömm af hassi fundust þó i fórum þeirra. Andvirði hassins sem seldist nam rúmiega 1,1 milljón króna. Mönnunum var virt það til refsi- þynghigar að þeir sammæltust um brot sín. Öðrum sakbominganna var auk fangelsisrefsingar einnig gert að greiða 60 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs þar sem hann lét sannanlega af liendi fíknefni gegn fégjaldi og hafði hagnað af. -ÓTT Menn úr björgunarsveitinni Ingólfi náöu upp þriggja tonna plastbáti sem sökk viö bryggju skammt frá Kaffivagninum i Reykjavíkurhöfn í fyrradag. Gat kom á bátinn eftir að hann hafði slegist utan í þar sem hann lá. Kafarar frá Ingólfi settu belgi í bátinn þannig að hann flaut upp. Við það var notuð dæla sem Reykjavíkurhöfn var nýbúin að gefa slysavarnafélagsmönnum. DV-mynd S Magnús fyrir dómara: JónBaldvinog Halldór bera ekki vitni Málflutningur hófst í Noregi í gær í máh Greenpeace gegn Magnúsi Guðmundssyni vegna myndar hans Lífsbjörg í norðurhöfum. Lögmaður Magnúsar mun hafa farið fram á það við Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra og Halldór Ásgríms- son, fyrrverandi sjávarútvegsráð- herra, að þeir beri vitni í máhnu en af því mun þó ekki verða. Greenpeace-samtökin krefjast á fjórðu mihjónar króna í bætur vegna sýningar myndarinnar í Noregi. í myndinni eru vinnubrögð Greenpeace gagnrýnd, einkum áróð- ursherferö ssuntakanna gegn hval- veiðþjóðum. Myndin var sýnd í um 15 löndum og vakti hvarvetna mikla athygh. í mörgum þessara landa hótuðu græn- friðungar málsókn en féllu alls staö- ar frá því nema í Noregi. -kaa Peningaskápur brotinn upp hjá Flugleiðum Peningaskápur var brotinn upp í skrifstofu Flugleiða við Lækjargötu í fyrrinótt. Þeir sem þarna voru að verki tóku allt sem í skápnum var. Auk þess urðu miklar skemmdir á húsnæðinu vegna innbrotsins. Ekki hafa fengist upplýsingar um hve miklu var stohð en ljóst er þó aö ávísanir og ýmis skjöl hurfu. Á síð- ustu vikum hefur verið brotist inn á fleiri stöðum þar sem peningaskápar voru og þeir brotnir uþp. Rannsóknarlögregla ríkisins rann- sakar einnig að minnsta kosti þijú innbrot þar sem mikil verðmæti hafa horfið að undanfórnu - samtals á aðra mihjón króna. í Snævarsviaeoi við Höföabakka voru tekin mynd- bands- og sjónvarpstæki. Hluti af því þýfi hefur náðst. Einnig var farið inn í Golfheima í Skeifunni þar sem myndbandstökutæki og fleiri verð- mæti upp á 400-500 þúsund krónur voru tekin. í Félagsgarði í Kjós var tekin ljósritunarvél, tölva og fleiri tæki. Þessi mál eru öh í rannsókn. -ÓTT Margeir vann Motwani Úrsht í alþjóðaskákmótinu í Hafn- arfirði í gær urðu þau, að Björn Freyr sigraði Ágúst Sindra Karlsson. Þá sigraði Þröstur Þórhallsson Jón L., Margeir sigraði Paul Motwani og Conquest vann Helga Áss. Björgvin Jónsson og J. Lewitt gerðu jafntefli. J. Howell og Hannes Hlifar skildu einnigjafnir. -JSS LOKI Það er betra að hafa þá vel $murða! Veðrið á morgun: Breytileg áttog víða gola • Ámorgunverðurbreytilegátt og víðast gola og skýjað með köflum. Frost verður víða yfir 5 stig að næturlagi en vægara yfir hádaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.