Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992.
17
BIFREIÐAEIGENDUR
Fréttir
Vandi landsbyggðarverslunarinnar:
Kaupmannasamtökin eru
ekki að biðja um ríkisstyrki
- segir Bjarni Finnsson, formaður Kaupmannasamtakanna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég vil aö það komi skýrt fram aö
þegar verið er aö tala um vanda
landsbyggðarverslunarinnar eru
Kaupmannasamtökin ekki að fara
fram á neina ríkisstyrki eins og látið
hefur verið í veðri vaka. Spurningin
er hins vegar sú hvemig versluninni
verður háttað á smæstu stöðunum
þar sem í raun og veru er ekki grund-
völlur fyrir rekstri verslunar. Það
sem við erum að biðja um er stefna
stjórnvalda í þessum málum en þau
hafa tekið þá stefnu að allir eigi að
hafa rétt á verslun í sinni heima-
byggð. Við bjóðum fram sámvinnu
okkar í þessu máli,“ segir Bjarni
Finnsson, formaður Kaupmanna-
samtaka íslands.
Erfiðleikar í rekstri verslunar á
landsbyggðinni hafa verið nokkuð í
sviðsljósinu undanfarið og Kaup-
mannasamtökin efndu til ráðstefnu
á Akureyri um síðustu helgi þar sem
þetta var rætt. Þar kom ótvírætt fram
að fjöldi verslana á landsbyggðinni
ætti í verulegum erflðleikum og
þeirra biði ekkert annað en rekstrar-
stöðvun og gjaldþrot.
Hvað vilja stjórnvöld gera?
- Við hvaða fólksfjölda miðið þið
þegar þið talið um erfiðleika á
smæstu stöðunum?
„Það er e.t.v. verið að tala um staði
þar sem eru 300-500 íbúar. Ef aðstæð-
ur eru þannig að það er ekki þeim
mun styttra í næsta byggðarlag
þannig að verslun geti átt sér stað
þar eru vandræðin mikil því að
verslun þrífst ekki á 300-500 manna
markaði. Þá er spurningin hvað
stjórnvöld vilja gera. Vilja þau koma
til aðstoðar? Ef svo er viljum við vera
með í þeirri skipulagsvinnu."
- Hvernig gætu stjórnvöld komið
þarna inn í?
„Það sem ég sé fyrst og fremst fyr-
ir mér á þessum stöðum er að þar
væri e.t.v. hægt að mynda litlar þjón-
ustumiðstöðvar. Þar gæti verið
verslun, einhverjar veitingar, banki,
pósthús og jafnvel bæjarskrifstofur á
sama stað. Þá væri hugsanlegt að
opinberir aðilar gætu komið þarna
inn í með húsnæði eða annað í þeim
dúr.“
Hærra heildsöluverð
- Er ein ástæða erfiðleika lands-
byggðarverslunar sú að heildsalar
selja þangað á mun hærra verði en
á höfuðborgarsvæðið?
„Já, ef til vill. Eitt stærsta verkefni
landsbyggðarverslunar gæti verið að
koma á fót sterku og stóru innkaupa-
sambandi. Mér líst bara ekki á að það
sé hægt að ná þeirri samvinnu sem
þarf ef ég miða t.d. við fundinn sem
við héldum á Akureyri en þangað
komu aðeins um 5% af kaupmönnum
á landsbyggðinni. Það er ekki beint
uppörvandi fyrir þá sem eru að vinna
að þessum málum. En ég held að
innkaupin séu hluti af vandanum og
það sé verið að selja á hærra verði
en til stærri markaða hér í Reykja-
vík. Það hlýtur að vera því verðmun-
urinn eykst alltaf."
Bónusverslun
og aðstöðugjöld
- Er einhver grundvöllur fyrir svo-
kölluðu Bónus-fyrirkomulagi nema á-
allra stærstu stöðunum utan höfuð-
borgarsvæðisins?
„Það hefur verið bent á að eitt aðal-
vandamálið, sem vinnur gegn því að
aðilar gætu t.d. komist inn í inn-
kaupakerfi Bónus-verslunarinnar,
sé aðstöðugjaldamálið. Þegar kaup-
maður utan af landi kæmi hugsan-
lega inn á slíkan lager í Reykjavík
myndi Bónus-verslunin borga að-
stöðugjald af því. Síðan færi varan
út á land og þar yrði aftur greitt aö-
stöðugjald.
Jóhannes í Bónusi hefur bent á'að
eitt aðalvandamálið sé sú margskött-
un sem þarna á sér stað. Þarna er
hugsanlega einn hlutur sem ríkis-
valdið gæti komið inn í að í stað
beinna styrkja ætti að beita sér fyrir
því að aðstöðugjöld yrðu felld niður
og sérstakur skattur af verslunar- og
skrifstofuhúsnæði. En þetta er
reyndar mismunun og okkur finnst
þessi skattlagning í báðum tilfellum
óeðlileg."
Ástandið versnar
- Hefur ástandið versnað mjög á
landsbyggðinni á síðustu misserum
og árum?
„Já, sjálfsagt hefur það verið að
gerast, enda eru samgöngur að batna
og lífsmunstur fólks að breytast.
Fólk, sem t.d. býr í 200 km fjarlægð
frá Reykjavík, er vant aö koma til
höfuðborgarinnar vikulega eða
hálfsmánaðarlega og gerir þá sín
stóru innkaup. Þarna hefur orðið á
breyting. Hins vegar má það koma
fram að verslun á landsbyggðinni er
ekki alls staðar í molum, það eru
kaupmenn sem standa sig mjög vel
en þeir verða mikið að hafa fyrir
því,“ sagði Bjarni.
Erfiðleikar i rekstri verslunar á landsbyggðinni hafa verið nokkuð í sviðsljósinu undanfarið og Kaupmannasamtök-
in efndu til ráðstefnu á Akureyri um síðustu helgi þar sem þetta var rætt eins og fram kom í DV i gær. DV-mynd gk
Húsavlk:
Nýjar hugmyndir um verndun
og endurheimt landkosta
- forseti íslands og ráöherrar meöal ráöstefnugesta um helgina
nýju fyrirspurnir og umræður.
Meðal umræðuþátta ráðstefnunn-
ar er stefna stjórnvalda í landbúnaði
og umhverfismálum, nýjar aðferðir
við athuganir og úttekt á svæðum
sem eru í hættu, gervitunglamyndir
og nýjungar í gróðurkortagerð, inn-
ganga í bandalög um tolla og við-
skipti og upplýsingamiðlun, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Ráðstefnan er öllum opin, en mark-
hópar hennar eru bændur, landeig-
endur, sveitarstjórnarmenn og
áhugamenn um landkosti og land-
græðslu. Ráðstefnustjórar verða Ein-
ar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík,
og Sigurgeir Þorgeirsson, aöstoðar-
maður landbúnaðarráðherra.
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
„Landið er framtíðin" er yfirskrift-
ráðstefnu um verndun og endur-
heimt landkosta sem fram fer á
Húsavík um helgina. Það er Húsgull,
samtök áhugamanna á Húsavík um
náttúruvernd, uppgræðslu og rækt-
un, sem stendur fyrir ráðstefnunni
sem fram fer á Hótel Húsavík og
hefst kl. 9.30 á laugardagsmorgun.
Þeir sem flytja ávörp og erindi á
ráðstefnunni samkvæmt dagskrá
eru um 20 talsins og má búast við
afar fróðlegum erindum. í upphafi
ráðstefnunnar mun frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, flytja stutt
ávarp og tveir ráðherrar flytja er-
indi. Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra ræðir ný viðhorf og Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra ræðir
um stefnu stjórnvalda í landgræðslu
og gróðurvernd. Eftir erindi ráðherr-
anna verða fyrirspurnir og umræð-
ur.
Síðan rekur hver dagskrárliðurinn
annan fram eftir öllum degi og meðal
þeirra sem taka til máls eru Egill
Jónsson, formaður landbúnaðar-
nefndar Alþingis, Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri, Haukur Halldórs-
son, formaður Stéttarsambands
bænda, Ómar Ragnarsson frétta-
maður, Ólafur Arndals frá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins, Ása
Aradóttir frá Skógrækt ríkisins, Ní-
els Árni Lund frá landbúnaðarráðu-
neytinu, Andrés Arnalds frá Land-
græðslu ríkisins og Auður Sveins-
dóttir frá Landvernd. Þá verða að
I verslun okkar,
Skeifunni 11,
fœröu hemlahluti
í allar geröir ökutœkja.
Viö seljum eingöngu hemlahluti
sem uppfylla ströngustu kröfur
um öryggi og eru framleiddir
samkvœmt kröfum Evrópu-
bandalagsins.
Meö því aö flytja inn beint frd
framleiöendum getum viö boöiö
mun lœgri verö.
30 dra reynsla og sérhœft af-
greiöslufólk okkar veitir þér
trausta og góöa þjónustu.
Verið velkomin - Nœg bílastœði.
®] Stilling
SKEIFUNNI 1 1, SÍMI 679797
,HEMLAHLUTIR
I ALLAR GERÐIR
FOLKSBILA