Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992.
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992.
31
íþróttir
DV
íþróttir
Allt stefiiir í geysiharða keppni sex
liða Austurdeildar um þrjú sæti í
úrslitakeppni bandarísku NBA-
deildarinnar í körfuknattleik.
Nokkuð ljóst er að Chicago, Cleve-
land, NY Knicks, Ðetroit og Boston
£ara áfram en um hin þrjú sætin
beijast Atlanta, Indiana, 76ers,
Miami, Milwaukee og NJ Nets, en
sáralítið skilur þessi sex liö.
í Vesturdeildinni fara Portland,
Golden State, Utah, Phoenix og SA
Spurs mjög líklega áfram. Houston
og Seáttle standa þokkalega að vígi
en Los Angeles Lakers og Los
Angeies Clippérs stefna i hörku-
baráttu um 8. sætið.
Boston steinlá í nótt
Átta leikir íoru fram í nótt og þar
fór flest eftir bókinnL Athygli vek*
ur þó að Boston Celtics fékk 21 stigs
skell í Milwaukee sem hefur átt
frekar erfltt uppdráttar í vetur.
Úrslitin í nótt urðu þessi:
NJ Nets - Chicago....... 79-90
Orlando - NY Knicks......86-99
Mílwaukee - Boston......127-106
Houston - LA Clippers...100-92
Denver - Sacramento.....118-100
Phœnix - Dallas..........92-81
Portland - Minnesota....111-91
Seattle - Golden State..107-119
-VS
Hvor þeinra hefur betur á morgun?
Margir telja þá Rondey Robinson hjá Njarðvik, til hægri, og Haukamann-
inn John Rhodes bestu körfuboltamennina sem leika hér á landi i vet-
ur. Það veröur spennandi að sjá hvor þeirra hefur betur á morgun.
Blkarúrslitaleikimir í körfunnl á morgun:
Suðurnesjaliðin
sigurstranglegri
-Njarðvík-Haukaríkarlaílokki - KeflavíkogHaukaríkvennaflokki
Bikarúrslitaleikirnir í körfuknatt-
leik fara fram í Laugardalshöllinni
annað kvöld, fimmtudagskvöld.
Klukkan 18 mætast Keflavík og
Haukar í úrslitum í kvennaflokki og
klukkan 20 hefst úrslitaleikur Njarð-
víkur og Hauka í karlaflokki.
Suðurnesjaliðin eru sigurstrang-
legri í báðum tilfellum. Njarðvíking-
ar unnu 21 leik af 26 í Japisdeildinni
í vetur og þykja líkleg meistaraefni
en Haukar urðu næstneðstir í sínum
riðli með 12 sigra í 26 leikjum. Njarð-
vík vann báða leiki liðanna í deild-
inni, 100-80 í Hafnarfirði og 92-90 í
Njarðvík.
Bæði karlaliðin tefla fram sínum
sterkustu liðum. Meiðsh og veikindi
hafa þó herjað á Haukana en allir
verða með og hjá Njarðvík eru allir
heilir. Kvennaliðin veröa einnig
bæði með sína sterkustu leikmenn.
Keflavíkurstúlkurnar eru komnar
með aðra höndina á meistaratitilinn
eina ferðina enn, hafa unniö 16 leiki
af 17, en Haukastúlkurnar eru þær
einu sem geta náð þeim og hafa unn-
ið 13 leiki af 16. Keflavík hefur unnið
tvo leiki liðanna á íslandsmótinu,
60-d2 og 65-52, báða í Keflavík, en
Haukar unnu í Hafnarfirði, 54^16, og
liðin eiga eftir að mætast einu sinni.
Bæjarstjórar kaupstaðanna
þriggja, sem í hlut eiga, verða heið-
ursgestir á leikjunum. Reyndar verð-
ur Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, fulltrúi Hafnarfjarðar
þar sem Guðmundur Árni Stefáns-
hjá Robinson og Rhodes
- barátta þeirra mun ráða miklu hvar bikarinn lendir
Það er útht fyrir mikiö einvígi milli
tveggja af öflugustu körfuknattleiks-
mönnunum sem leikið hafa hér á
landi í vetur þegar Njarðvík og
Haukar mætast í úrslitaleik bikar-
keppninnar í Laugardalshöllinni
annað kvöld. Þar eigast við Banda-
ríkjamennirnir kraftmiklu, Rondey
Robinson hjá Njarðvik og John Rho-
des hjá Haukum.
Þeir eiga það sameiginlegt að hafa
aldrei áður tekið þátt í bikarúrslita-
leik og eru sammála um að barátta
þeirra tveggja muni ráða miklu um
hvaða lið hampar bikarnum glæsi-
lega sem DV gaf til keppninnar á sín-
um tíma.
Sá sem verður harð-
ari af sér sigrar
„John er góður leikmaður og sá sem
verður harðari af sér sigrar. Það mun
hafa mikið að segja fyrir úrslit leiks-
ins hvor okkar hefur betur. Ef annar
skorar 30-40 stig og tekur 25 fráköst
mun það vega þungt. En John er
ekki sá eini hjá Haukum sem viö
þurfum að vara okkur á, við verðum
að halda Jóni Arnari niöri, hann er
mjög hættulegur, og sömuleiðis
Henning," sagði Rondey Robinson í
samtali við DV í gær.
Robinson skoraði 22,6 stig aö með-
altali í leik í vetur og tók 15,8 prósent
fráköst að meöaltali. Vítanýting hans
var 62,7 prósent og hittni innan víta-
teigs 68,36 prósent.
Vona að dómararnir leyfi
okkur að takast á
„Ég er mjög spenntur fyrir leiknum
en viö Haukamenn höfum engu að
tapa. Enginn bjóst við því að við
næðum svona langt og við munum
reyna að notfæra okkur það. Njarð-
vík er með frábært lið og til að sigra
þurfum við allir að gefa 110 prósent
í leikinn og hlutirnir þurfa að ganga
vel upp. Það er alltaf slagur þegar
við Rondey mætumst en ég vona
bara aö dómaramir leyfi okkur að
takast á. Viö erum báðir mjög líkam-
lega sterkir og beitum skrokknum
en viö erum ekki grófir leikmenn og
dómararnir þurfa ekki að vera sí-
flautandi þótt við berjumst um bolt-
ann,“ sagði John Rhodes.
Rhodes skoraöi 26 stig að meöaltali
í leik með Haukum í vetur og tók
18,7 fráköst að meðaltali. Vítanýting
hans var 38,3 prósent og hittni innan
vítateigs 65,13 prósent.
-VS
Stef nir í mikið einvígi
son er erlendis, en Kristján Pálsson kemur
frá Njarðvík og Ellert Eiríksson frá Kefla-
vík. Báðir eru þeir fastagestir á heima-
leikjum sinna liða.
Bergur Steingrímsson og Kristinn Ósk-
arsson dæma karlaleikinn en þeir Krist-
inn Albertsson og Jón Otti Ólafsson dæma
kvennaleikinn. -VS
Njarðvíkingar urðu bikarmeistarar árið 1990 og hér heldur Hreiðar Hreiðarsson, fyrr-
um fyrirliði liðsins, á hinum glæsilega bikar sem DV gaf fyrir nokkrum árum.
Skíðalands-
mótiðíóvissu
Enn ríkir óvissa um hvar skíöa-
landsmótið verður haldið en
vegna spjóleysis eru litlar líkur á
að Dalvíkingar og Ólafsfirðingar
geti séð um það eins og ráð var
fyrir gert. Nú er helst horft til
þess að nægur snjór veröi í Hlíö-
arfjalli við Akureyri en reynt
verður að taka endanlega
ákvörðun um mótsstaö um næstu
helgi.
-VS
Bogdan Wenta, til vinstri, í leik gegn Islendingum fyrir nokkrum árum. Hann meiddist illa á hendi og leikur ekki
með Pólverjum í B-keppninni.
Líkumar á að Júlíus leiki með landsliðinu hafa aukist:
Wenta meiddist illa
- leikur ekki með Bidasoa og pólska landsliðinu næsta mánuðinn
Stefan Kristjánsson, DV, Linz:
Líkurnar á því að Júlíus Jónasson
komi til liðs við íslenska landsliðið
hér í Linz og leiki með íslenska liðinu
gegn því hollenska á morgun hafa
stóraukist. Júlíus og félagar í Bid-
asoa eiga að leika gegn Teka í bikar-
keppninni í kvöld og ef Bidasoa tapar
leiknum heldur Július rakleitt hing-
að til Linz í kvöld.
Pólverjinn Bogdan Wenta, lang-
besti leikmaður Bidasoa og einn besti
handboltamaður heims, meiddist
síðasta fóstudag í leik gegn Atletico
Madrid. Hann féll í gólfið og einn
leikmanna Atletico steig illa á hönd
hans. Stór skurður opnaðist í lófan-
um sem þurfti að sauma þannig aö
talið er að hann verði frá keppni
næsta mánuðinn. Þá er varamark-
vörður hðsins einnig frá vegna
meiðsla. Þetta er ekki aðeins áfall
fyrir Bidasoa heldur einnig pólska
landsliðið sem tekur þátt í B-keppn-
inni hér í Austurríki.
„Það verður að segjast eins og er
að það er mjög svo skrítin aðstaöa
að vita ekki hvort það verður Júlíus
eða Alfreð sem verður sextándi leik-
maður okkar í þessari keppni. Og það
kemur sér vitaniega illa. En eftir
meiðsli Wenta verður að telja líkurn-
ar meiri á því að það verði Júlíus sem
komi til liðs við okkur," sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson landsliðsþjálf-
ari í samtali við DV í gær.
Pólverjar verða að öllum líkindum
meðal mótherja íslands í milhriðli
B-keppninnar og það er mikið áfall
fyrir þá að fara í keppnina án Wenta
sem hefur borið Uð þeirra uppi mörg
undanfarin ár.
Kvíði í strákunum
Stefan Kristjánsson, DV, Línz:
íslenska lansliöið í handknattleik
kom um kvöldmatarleytið 1 gær til
iðnaðarborgarinnar Linz i norður-
hluta Austurríkis þar sem liðið
mun leika þrjá fyrstu leiki sína í
B-kepninni. Liðið leikur fyrsta leik
sinn i keppninni á morgun kl. 17
að íslenskum tíma í glæsilegri
íþróttahöll sem rúmar á bilinu 5-8
þúsund áhorfendur.
Greinilegt var á íslensku leik-
mönnunum í gær og þjálfurum
liðsins að þeir óttast andstæðinga
sina mjög í þessari keppni og mik-
ill kviði er I íslenska liðinu. Eftir
gríðariega strangan undirbúning
síðustu vikurnar, þar sem æft var
tvívegis á degi hvetjum og leiknir
voru sjö landsleíkir á niu dögum,
er íslenska liðið spurningarmerki
sem aldrei fyrr og í raun er ómögu-
legt aö gera sér grein íyrir því hvar
liðiö stendur. En íslensku leik-
mennirnir eru staöráðnir í að
standa sig, hópurinn er hreint ótrú-
lega vel samstilltur og víst að allir
munu gera sit besta til að leggja
Hollendinga að velli á morgun.
Hávaxnir Hollendingar
Lið Hollendinga hefur veríð í nokk-
urri framför að undanfömu og er
lið þeirra í dag óvenju hávaxið.
Fastíega má búast við því aö liðiö
leiki 6-0 vörn gegn Islendingum.
íslendingar hafa hingað til ekki átt
í erfiðleikum með lið Hollendinga
á stórmótum. Eitt er það þó sem
dregur verulega úr bjartsýni
manna að þessu sinni. Holiending-
ar era þekktir fyrir að byija afar
vel á mótum en dala svo verulega
þegar á liður. Þeir gætu því bitið
hressilega ffá sér á morgun og ís-
lenskur sigur síður en svo öruggur.
Hlaupið á götum Linz
Þegar landsliðið kom til Lánz í gær
og ekki var hægt að útvega liðinu
æingu í íþróttahöllinni. Þorbergur
þjálfari var hins vegar ekki á því
að gefa sínum mönnum frí heldur
lét hann strákana hlaupa úti á göt-
um Linzborgar enda nauðsynlegt
fyrir okkar menn að iiðka sig að-
eins eftir 14 kiukkustunda ferðalag.
Bestu íslensku dómaramir dæma í B-keppninm:
Dæma líklega í C-riðli:
Stefán Kristjánsson, DV, Linz:
Bestu íslensku handknattleiks-
dómaramir Stefán Amaldsson og
Rögnvald Erlingsson verða á meðal
þeirra dómarapara sem dæma í B-
keppninni. Þeir komu til Austurríkis
með íslenska liðinu í gær.
Ekki er búið að ákveða í hvaða riðli
þeir dæma en í samtali í gær sögðu
þeir félagar að líklegast myndu þeir
dæma í C-riðli en ieikir í riðlinum
fara fram í borginni Lustenau, um
850 kílómetrum frá Vín og nánast í
hinum enda landsins. I C-riðh leika
Sviss, Búlgaría, Kína og Argentína.
Argentína kom óvænt inn í keppnina
á síðustu stundu eftir að Kúba ákvað
að senda ekki lið vegna fjárhagsörð-
ugleika.
Gettu betur
á markaðinn
Gettu betur, nýtt tímarit fyrir
knattspyrnuáhugamenn og tipp-
ara, er komið út í fyrsta skipti.
Sel-útgáfan gefur blaðið út en rit-
stjóri þess er Eirikur Jónsson,
getraunasérfræðingur DV.
Fyrsta tölublaðið er 24 biaðsíður
og þar er ítarlega fjallað um get-
raunir og getraunakerfi, og með-
ai annars er birt kerfi sem gaf 10
milljóna vinning. Auk þess er
Manchester United rækilega
kynnt og einnig mikiö skrifað um
Evrópumót félagshða.
Enski boltinn
ígærkvöldi
Úrslit leikja í ensku knatt-
spyraunni í gær urðu þannig:
1. deild
Notts County-Everton...0-0
2. deild
Bristol C-Wolves.......
Cambridge-Middlesbr..
Grimsby-Leieester........
Ipswich-Watford........
Southend-Portsmouth..
Swindon-Tranmere......
3. deild
Bolton-Birmingham........1-1
4. deild
Gillingham-Rochdale......0-0
Scarborough-Ghesterfield.3-2
Skoska úrvalsdeildin
Airdrie-Dundee Utd.......1-0
Celtic-Motherwell........4-1
-GH
Marseille vann
liðACMilan
Frönsku meistararnir í Mar-
seilie unnu 1-0 sigur á ítalska lið-
inu AC Milan í vináttuleik í Mar-
seille í gærkvöldi. Markamaskín-
an Jean Pierre Pain skoraði eina
mark leiksins á 66. mínútu.
í frönsku 1. deildinni vann St.
Etienne sigur á Nantes, 2-1. í
þýsku úrvalsdeiidinni geröu Du-
isburg og Fortuna Dusseldorf 2-2
jafhtefli.
-GH
Sviar uröu í gær Evrópumeist-
arar í karlaflokki í borðtennis
þegar þeir unnu sigur á Þjóðverj-
um í urslitum, 4-0. Sigurlið Svía
var þannig skipað: Jan-Ove
Waldner, Jörgen Persson, Peter
Karlson og Erik Lindh.
-GH
Júlíus í erfiðri stöðu
- lið hans þarf að tapa á Spáni svo hann geti leikið gegn Hollendingum
„Ég fer aldrei í leik með því hugar-
fari að tapa og hef ákveðið að taka leik-
inn við Teka sem hvern annan leik.
Það myndi líta afar illa út ef ég léki
illa og við töpuðum leiknum," sagði
Júlíus Jónasson, handknattleiksmað-
ur hjá Bidasoa á Spáni, í samtali viö
DV í gær.
Júlíus er í afar erfiðri stöðu. Hann á
að leika með Bidasoa gegn Teka í 8-liða
úrshtum spænsku bikarkeppninnar í
kvöld. Vinni Bidasoa leikinn'er ljóst
að hann getur ekki leikið meö íslenska
landsliðinu í B-keppninni í Austurríki.
Tapi Bidasoa, mun Júlíus halda strax
í fyrramálið tii móts við landsliöið í
Austurríki.
„Það verður að segjast eins og er að
við eigum frekar litla möguleika gegn
Teka. Margir leikmanna okkar eru
meiddir, þar á meðal Bogdan Wenta
og markvörðurinn, og hópurinn er lít-
ill fyrir þennan leik,“ sagði Júlíus.
Vinni Bidasoa leikinn, spilar liðið í
undanúrshtum keppninnar á föstudag,
og þá yrði Alfreð Gíslason kallaður til
AusturríkisístaðJúlíusar. -VS
Finals-bolir til styrktar SSÍ
Sundsamband íslands fékk á dögunum afhentan fyrsta Barcelona ’92 Fin-
als-bolinn en slíkir bolir veröa seldir um land allt á næstu dögum til styrkt-
ar ólympíuliði íslands i sundi. Þetta tengist samningi SSÍ og sundfatafram-
leiðandans The Finals sem Austurbakki hf. hefur umboð fyrir. Á myndinni
tekur Guðfinnur Ólafsson, t.v., formaður SSÍ, við bolnum af Birni L. Þóris-
syni hjá Austurbakka hf. DV-mynd Hanna
1. deild kvenna í handbolta:
Óvæntur sigur
ÍBV á Val
ÍBV sigraði Val í 1. deild kvenna
í handknattleik, 15-16, að Hlíð-
arenda í gærkvöldi eftir að stað-
an hafði verið 7-9 í leikhléi.
Eyjastúlkur komu muu ákveðnari til
leiks og höfðu þær yflrhöndina nær allan
tímann. Valsstúlkur náðu þó að jafna und-
ir lokin. Staðan var 15-15 þegar um 4 mín-
útur voru eftir og fengu bæði lið tækifæri
á aö komast yfir. Þegar 20 sekúndur voru
til leiksloka náði Þórunii Jörgensdóttir,
markvörður ÍBV, að veria víti, Eyjastúlk-
ur nýttu sér þetta komust í hraðaupphlaup
og fiskuöu vítakast og úr því skoraði Stef-
anía Guðjónsdóttir örugglega og tryggði
ÍBV þar með sigurinn.
Mörk Vals: Kristín 5,- Una 4, Ama 3,
Soffia 2, Lilja 1.
Mörk ÍBV: Stefanía 8, Judit 4, Ingibjörg
3, íris 1.
-BÓ
Stefán Kristjánsson
íþróttafréttamaður DV
skrifar frá ^
Austurríki
IÞROTTAFÉLAGIÐ
LEIKNIR
Aðalfundur félagsins 25. mars í Gerðubergi kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Leiknis