Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992.
41
Fréttir
Afkoma ríkissjóðs í janúar og febrúar:
Útkoman er betri en
áætlað haffði verið
Talaðu við okkur um
BÍLASPRAUTUN
BÍLARÉTTINGAR
.JJjikenl ~
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64-21 -41
segir í frétt frá fjármálaráðherra
í fréttatilkynningu sem Friðrik
Sophusson íjármálaráðherra sendi
út í síðustu viku vegna afkomu ríkis-
sjóðs fyrstu 2 mánuði ársins segir að
útkoman sé einum milljarði króna
betfi en áætlað var. Einnig segir að
tölurnar gefi ekki tilefni til afgerandi
ályktana um afkomu ríkissjóðs á ár-
inu öllu. Helstu niðurstöður segir
íjármálaráðherra vera þessar:
Rekstrarhalli ríkissjóðs fyrstu tvo
mánuðina nam 2,2 milljörðum
króna. Það er helmingi minni halli
en á sama tíma í fyrra, en þá nam
hann 4,6 milljörðum.
Hrein lánsijárþörf ríkissjóðs nam
tæplega 3 milljörðum nú samanborið
við 5,2 milljarða í fyrra. Staða ríkis-
sjóðs gagnvart Seðlabanka var rúm-
lega 3 milljörðum betri en á sama
tíma í fyrra.
Innheimtar tekjur ríkissjóðs í fe-
brúarlok námu 16,5 milljörðum sem
er 2,7 milljörðum meira en í fyrra.
Ástæðurnar eru gildistaka trygg-
ingagjalds í ársbyrjun 1991 sem skil-
aði ekki tekjum þá fyrr en í febrúar.
Innheimta virðisaukaskatts nú er
fyrir tveggja vikna lengra timabil en
í fyrra, breytingar á uppgjöri stað-
greiðslu á síðasta ári og lækkun
barnabóta. Einnig er tilnefnd hækk-
un á þungaskatti og hækkun vaxta-
tekna. Aftur á móti hafi tollur og
innflutningsgjald af bifreiðum dreg-
ist saman í ár.
Gjöld ríkissjóðs þessa tvo mánuði
eru 400 milljónum króna meiri en á
sama tíma í fyrra. Hækkunin er 2
prósent milli ára en verðbólgan 7
prósent, segir í frétt fjármálaráð-
herra. Því hafi útgjöld ríkissjóðs
lækkað að raungildi um 900 milljónir
króna.
-S.dór
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir afkomu ríkissjóðs betri í upphafi
árs en áætlað var.
Ríkisstjórnin hef ur
Vinsælu
Bi
sjúkrasokkarnir
og sokkabuxurnar
fyrirliggjandi
Álftamýri 1-5. Sími 681251.
IRIum árangri náð
- segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi fjármálaráðherra
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum eignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
„Þessar niðurstöður sýna að ríkis-
stjóm Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins hefur litlum sem eng-
um árangri náð í að draga úr ríkisút-
gjöldunum. Hún hefur hins vegar
verið mjög dugleg við að ná inn meiri
skatttekjum. Þetta er mikil skatt-
heimtustjórn en ekki mikil aðhalds-
stjórn,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son, fyrrverandi fjármálaráðherra,
um afkomu ríkissjóðs fyrstu tvo
mánuði þessa árs.
Hann sagði að tekjuútreikningar
fjármálaráðherra væru byggðir á
sérkennilegum aðferðum.
„í fyrsta lagi eru 600 milljónir, sem
voru teknar af staðgreiðslu opin-
berra starfsmanna í desember á sið-
asta ári, færðar sem tekjur nú í jan-
úar en ekki í desember. í öðm lagi
innheimtist núna, vegna ákveðins
kerfiseiginleika virðisaukaskattsins,
virðisaukaskattur fyrir tveggja
vikna lengra tímabil en í fyrra. Það
gefur ríkissjóði 1,5 milljarða króna
umfram sambærilegan grundvöll í
fyrra. í þriðja lagi er tryggingagjaldið
innheimt í tvo mánuði núna frá árs-
lokum en var aðeins innheimt í einn
mánuð í fyrra. Ef árin eru borin sam-
an á sambærilegum grundvelli og
tekið tillit til þessara þriggja þátta,
er raunhallinn á ríkissjóði fyrstu tvo
mánuði ársins 5 milljarðar en ekki
2,2 eins og sagt er. Það er meiri halh
en var fyrst 2 mánuði ársins í fyrra,“
sagði Ölafur.
Hann sagði almenning hafa orðið
að greiða hærri skatta í ár með
hækkun tekjuskattsins vegna þess
að persónuafsláttur hefði í raun ver-
ið lækkaður og barnabætur hefðu
einnig lækkað.
„Hér eru því á ferðinni fréttir sem
sýna að það er aukið skattastreymi
og hærri skattar í gengum lengra
innheimtutímabil sem skapa meiri
skatttekjur tvo fyrstu mánuði ársins.
Varðandi útgjöldin er athyglisvert
að þau útgjöld sem erfiðast er að
hemja, eins og útgjöld Trygginga-
stofnunar og atvinnuleysistrygging-
ar hafa vaxið mun meira á fyrstu 2
mánuðum ársins miöað við sama
tíma í fyrra. Stjórnanleg ríkisútgjöld,
vaxtagreiðslur og fasteignakaup hafa
hins vegar minnkað,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson.
-S.dór
Presthúsabraut 35, þingl. eigendm'
Hjalti Bjömsson & Sigrún Jónsdóttir,
íöstudaginn 20. mars 1992 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðandi er Reynir Karlsson
hdl.
Vallarbraut 9, 02.02., þingl. eigandi
Helga Jónsdóttir, fóstudaginn 20.
mars 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendi
er Tiyggingastoínun ríkisins.
BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI
Ekki hægt að draga álykt-
anir af tveimur mánuðum
■ segir Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvennalistans
„Það væri nú sitt hvaö ef ríkis-
stjóminni tækist ekki að ná betri
stöðu ríkissjóðs eftir allar þær að-
gerðir sem gripið hefur verið til. Ég
tel þó varlegt að draga miklar álykt-
anir af aðeins tveimur mánuðum,
þar sem koma inn minnkandi
greiðslur barnabóta og annað sem
dregur úr útgjöldum ríkissjóðs,"
sagði Kristín Astgeirsdóttir, þing-
kona Kvennalistans, um stöðu ríkis-
sjóðs.
Hún sagði að sá mikli’niðurskurð-
ur, sem ríkisstjórnin hefði ákveðið,
væri til þess að bæta stöðu ríkis-
sjóðs. Hún sagöi kvennalistakonur
taka undir nauðsyn þess að bæta
stöðu ríkissjóðs en spurningin væri
alltaf hvernig það væri gert.
„Við gagnrýndum í fjárlagaum-
ræðunni áætlanir um sértekjur. Það
á auðvitað eftir að koma fram hvern-
ig stofnanir ríkisins standa sig við
að ná í þær sértekjur sem þeim er
ætlað að ná í. Þess vegna segja þess-
ar tveggja mánaða tölur lítið um
stöðu hinna ýmsu ríkisstofnana. Þá
vekur það athygli mína hve sala rík-
isverðbréfa hefur gengið vel. Það
sýnir að til er fólk í þjóðfélaginu sem
á peninga. Nú er verið að lækka vexti
á þessum bréfum þannig áð gera má
ráð fyrir að dragi úr sölu þeirra. Mín
niðurstaða er sú að aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar voru það harkalegar
að þær hlutu að koma fram í þessum
tölum, enda þótt mér þyki vafasamt
að draga of miklar ályktanir af tölum
þessara tveggja fystu mánaða árs-
ins,“ sagði Kristín Ástgeirsdóttir.
-S.dór
Stemgrímur Hermannsson:
„Ég hef að vlsu ekki grandskoð-
að þessar tölur. Hitt sýnist mér
Ijóst af því sem ég hef séð að ráð-
herrarnir eru nú að uppgötva að
það er meira en að segja hlutina
þegar um ríkisfjármál er að ræða.
Það eru nefhilega ýmis útgjöld
sem ekki verða skorin niður með
oröunum tómum," sagði Stein-
grímur Hermánnsson, fyrrver-
andi forsætisráðherra, um stöðu
ríkissjóðs fyrstu tvo mánuði árs-
ins. -S.dór
* 0
SAMTOK cegn astma oc ofnæmi
Aðalfundur
Samtaka gegn astma og ofnæmi verður haldinn íimmtu-
daginn 19. mars kl. 20.00 í Múlabæ, Ármúla 34,3. hæð.
Dagskrá:
’ 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kaffiveitingar. - Félagar eru hvattir til að íjölmenna.
STJÓRN SAMTAKA GECN ASTMA OG OFNÆMI
4*Alternatorar
Startarar
^ Ótal gerðir og tilheyrandi varahlutir.
MW* Hagstætt verð. 12 mán. ábyrgð.
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-81 47 88