Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Page 5
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992.
Fréttíx
Heimilislausa parið:
Stúlkanfórímeð-
ferðen pilturinn
erennágötunni
15 ára heimilislaus stúlka, sem DV
ræddi við í vikunni ásamt 16 ára vini
hennar, er farin í vímuefnameðferð
á meðferðarheimili. Eins og fram
kom í viðtali DV við ungmennin á
þriðjudag voru þau orðin háð am-
fetamíni sem þau sprautuðu sig
reglulega með í æð. Pilturinn og
stúlkan höfðu meðal annars sofið úti
undir beru lofti að undanfórnu.
DV ræddi aftur við piltinn í gær.
Sagðist hann einnig hafa óskað eftir
meðferð. Hins vegar kvaðst hann
hafa fengið húsnæði, litla geymslu-
kompu í vesturbænum, á 2 þúsund
krónur á mánuði, þar væri hægt að
halla sér. Pilturinn var ekki búinn
að taka ákvörðun um hvort hann
færi í umrædda meðferð.
. -ÓTT
Atvinnuleysið í Reykjavík:
í mars hafa 137
bæst á atvinnu-
leysisskrá
Atvinnuleysi heldur áfram að auk-
ast í Reykjavík. í gær voru 1464 á
atvinnuleysiskrá, að sögn Gunnars
Helgasonar hjá Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar. Hafði þá fjölgaö
á skránni um 137 á fyrstu 17 dögum
marsmánaðar. í þessum hópi voru
931 karlmaður og 533 konur.
Um síðustu mánaðamót voru sam-
tals 1327 á atvinnuleysisskrá í
Reykjavík. Hafði atvinnulausum
fjölgað stórlega frá í janúar og hafði
þá ekki um langt árabil verið jafn-
margt fólk án atvinnu í borginni. Þá
voru 855 karlmenn á skrá en 472
konur.
Að sögn Gunnars eru verslunar-
menn og verkamenn fjölmennastu
stéttirnar á atvinnuleysisskrá. Þá
sagði hann að iðnaðarmönnum fjölg-
aði og þá alveg sérstaklega bygging-
ariðnaðarmönnum. Annars væru
engar atvinnustéttir undanskildar í
þessu efni. Það hefur áður komið
fram i DV að það er einkum yngra
fólk sem er án atvinnu, sérstaklega
hjá verkamönnum.
Út á landsbyggðinni hefur heldur
dregið úr atvinnuleysinu enda stend-
ur vetrarvertíð sem hæst og aflast
vel þegar gefur. Þá skapar hin góða
loðnuveiði mikla vinnu. Nú fer henni
senn að ljúka og má þá gera ráð fyr-
ir að atvinnuieysi á landsbyggðinni
aukist eitthvað aftur. -S.dór
Loönan:
Yfir 120 þús-
und tonnum
verið landað á
Norðurlandi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Loðnulöndun í höfnun norðan-
lands á haust- og vetrarvertíð er nú
komin yfir 120 þúsund tonn og má
segja aö nokkuö vel hafi ræst úr þeim
málum nyrðra eftir afspyrnuslaka
haustvertíð.
Á haustvertíðinni var einungis
landaö um 16.500 tonnum fyrir norð-
an á þremur stöðum, Akureyri, Rauf-
arhöfn og Þórshöfn, og menn höfðu
miklar áhyggjur, t.d. Siglfirðingar
sem biðu með verksmiðju sína til-
búna en fengu ekki neitt. Síðan, eftir
að loðnan var komin suður fyrir
land, fór heldur betur að færast líf í
tuskurnar nyrðra og Siglfirðingar
hafa síðan í síðasta mánuði tekið á
móti tæplega 40 þúsund tonnum.
Heildarlöndun í Krossanesi á Ak-
ureyri á haust- og vetrarvertíö er
komin yfir 20 þúsund tonn, tæplega
27 þúsund tonn á Þórshöfn, tæplega
32 þúsund tonn á Raufarhöfn og um
3 þúsund tonn á Ólafsfirði.
T0Y0TA CAMRY XLi 2000Í - árg. 1988, 5 gíra,
4 dyra, hvítur, ekinn 64 þ.km., verð kr. 690.000 stgr.
MIVIC C0LT GLX 1500 - árg. 1986, 5 gíra, 5 dyra.,
steingrár, ekinn 95 þ.km., verð kr. 280.000. stgr.
MAZDA 323 langb. 1500 - árg. 1987, sjálfskiptur,
5 dyra, silfur, ekinn 58 þ.km., verð kr. 390.000 stgr.
V0LV0 740 GL 2300 - árg. 1987, sjálfskiptur,
4 dyra, blásans, ekinn 95 þ.km., verð kr. 890.000.stgr.
VW GOLF C 1600 - árgerð 1986, 4 gíra, 3 dyra,
rauður, ekinn 71 þ.km., verð kr. 350.000. stgr.
MMC PAJERO stuttur 2600 - árgerð 1986, 5 gíra
3 dyra, silfur, ekinn 91 þ.km., verð kr. 780.000. stgr.
VIÐ BJOÐUM TRAUST OG ÖRUGG VIÐSKIPTI
GREIÐSLUSKiLMÁLAR AÐ ÓSKUM KAUPENDA
NOTAÐIR BILAR
HEKLUHUSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BÍLAR
N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR
ærðjvj umu
ROFINN
N0TAÐIR BÍLAR
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVEROI