Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Síða 18
26
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992.
Iþróttir
Sport-
stúfar
Örsllt leikja í NBA
deildinni í körfUknatt-
leik i fyrrinótt:
Atlanta-Orlando
............ 96-99
Boston-Cleveland......96-94
Miami -Indiana.......111-116
Detroit - 76ers....... 91-85
Dallas - LA Clippers.86-117
SA Spurs - Sacramento ....116-89
Golden State - Minnesota.123-120
LALakers-Portland.....93-98
Viöavangshlaup Kópa-
vogs a laugardag
Frjálsíþróttadeild
Breiðabliks gengst fyr-
ir víöavangshlaupi
Kópavogs á laugardag-
inn og hefct það klukkan 14 við
Vallargerðisvöll. Skráning hefst
klukkan 13.15 á staðnum. Karlar
og konur hlaupa 6 kílómetra en
drengir og meyjar 3 kílómetra.
Þriöji heimsbikartitill
hjá Kronberger
Austurríska stulkan Petra Kron-
berger tryggði sér í gær heims-
bikarinn á skíðum þegar hún
hafnaði í 19. sæti í risasvigi í Cras
Montana í Sviss í gær. Þetta var
þriðji heimsmeistaratitill Kron-
berger og hún er önnur konan
sem vinnur tvisvar sinnum sigur
i samanlögðum greinum alpa-
greina í sögunni. Landi hennar,
Annemarie Moser-Pröl, vann
heimsbikarinn alls sex sinnum.
Danirnirúrleik
ítalska liðið Torino vann sigur á
danska liðinu B1903,1-0, í UEFA-
keppninni í knattspymu í gær.
Torino vann fyrri leikinn í Dan-
mörku, 2-0, og því samanlagt 3-0.
Breiðablik
vann HK
Biikastúlkur • höfðu
betur gegn grönnum
sínum í HK í Digranesi
í úrslitakeppni kvenna
i blaki í fyrrakvöld. Leikurinn
var sveiflukenndur en mjög jafti.
HK vann í fyrstu hrinu, 15-13, en
í þremur næstu höíðu Blikar bet-
ur, 15-13,16-14 Og 15-8.
Oddný Erlendsdóttir, Breiða-
bliki, var yfirburðamanneskja í
leiknum, átti sannkallaðan
stjömuleik.
Stórleikur á sunnudag
Leikmenn Víkings og ÍS munu
leiða saman hesta sína klukkan
14.00 á sunnudag í Hagaskóla.
Búast má við hörkuleik, enda
hafa þessi tvö lið verið í sérflokki
í vetur. í síðustu viðureign iið-
anna höfðu stúdínur betur en
þær hafa leikið mjög vel að xmd-
anfömu. -gje
Haukar (47) 77
Njarðvík (50) 91
2-2, 11-8, 19-23, 22-30, 34-44,
(47-50), 62-52, 64-68, 68-79, 72-86,
77-91.
Stig Hauka: Rhodes 27, Henning
13, Jón Öm 9, ívar 7, Tryggvi 6,
Bragi 6, Jón A 5, Pétur 4.
Stig UMFN: Robinson 28, Teitur
23, Friðrik 16, Kristinn 10, ísak 8,
Ástþór 6.
Dómarar: Bergur Steingrímssön
ogKristtnn Óskarsson, ágætir.
Áhorfendur: ura 1500.
Haukar (35) 70
KefLavík (27) 54
Stig Hauka: Hanna Kjartansdótt-
ir 22, Hafdís Hafberg 15, Eva Hav-
likova 11, Ásta Óskarsdóttir 10,
Guðbjörg Norðfjörð 9, Sólveig
Pálsdóttir 3.
Stig ÍBK: Anna María Sveins-
dóttir 24, Olga Færseth 13, Björg
Hafsteinsdóttir 8, Elínborg Her-.
bertsdóttir 4, Svandís Gylfadóttir
2, Guðlaug Sveinsdóttír 2, Katrín
Biríksdóttir 1.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Jón Otti Ólaísson.
UMFN bikarmeistari
- eftir glæsilegan sigur á Haukum í úrslitaleik, 91-77
Njarðvíkingar tryggðu sér sigur í
bikarkeppninni í körfuknattleik í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi þeg-
ar liöið lagði Hauka aö velli í úrslita-
leik, 91-77. Þetta var í fimmta skiptið
á síðustu sex ámm sem Njarðvíking-
ar vinna sigur í bikarkeppninni,
sannarlega glæsilegur árangur. Fjöl-
mennur stuöningshópur fylgdi liö-
inu frá Njarðvík, studdi vel við bakið
á sínum og átti stóran þátt í sigrin-
um.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn
en um tíma náðu þó Njarðvíkingar
fjórtán stiga forskoti. Haukaliðið var
þó ekki af baki dottið og stórleikur
John Rhods gerði það að verkum aö
liðið minnkaði muninn niður í þrjú
stig fyrir leikhlé. Rhods var mjög
sterkur á þessum leikkafla, hirti
fjölda frákasta og skoraði 20 stig í
hálfleiknum.
Njarövíkingar frábærir
í síðari hálfleik
Eftir bráðskemmtilegan fyrri hálf-
leik snerist dæmið alveg við í síðari
hálfleik. Haukaliðið veitti Njarðvík-
ingum aðeins mótspymu í upphafi.
Þegar. á leið sýndu Njarövíkingar
mátt sinn, léku stórkostlega á köflum
og vissu Haukamenn vart sitt rjúk-
andi ráö. Njarðvíkingar beittu stífri
pressuvöm og John Rhods var alveg
lokaður af. Viö þessari varnartaktík
áttu Haukamenn ekkert svar og
Njarðvíkingar sigu jafnt og þétt fram
úr.
Njarðvíkingar léku á köflum í síð-
ari hálfleik við hvem sinn fingur.
Rondey Robinson var gríöarlega
sterkur í vöm og sókn og Friðrik
Ragnarsson var ennfremur góöur og
komst Jón Amar Ingvarsson lítið
áleiðis gegn honum í vöminni. Teitur
Örlygsson var mjög áberandi í fyrri
hálfleik og skoraði þá grimmt, þar
af þrjár þriggja stiga körfur. Allt
Njarðvíkurliðiö á þó hrós skilið fyrir
frammistöðu sína og liðin vann verð-
skuldað. Eftir leikinn var Rondey
Robinson útnefndur maður leiksins
og kom það fáum á óvart.
Á meðan Jón Arnar og ívar Ás-
grímsson ná sér ekki á strik í heilum
leik er varla aö búast við að Haukar
vinni sigur. John Rhods stóð upp úr
í liðinu, fimasterkur leikmaöur þar
á ferð. Henning var ágætur en hefur
oft áður verið betri. Jón Öm hleypti
lífi í leik Hauka þegar hann kom inn
á í fyrri hálfleik og kom það á óvart
aö hann skyldi ekki vera í byrjunar-
liðinu í upphafi síðari hálfleiks.
-JKS
Rondey Robinson og Teitur Örlygsson hampa bikarnum eftir sigurinn í gærkvöldi en DV gaf þennan fagra grip
til keppninnar fyrir nokkrum árum. Á myndinni eru einnig Ástþór Ingason fyrirliöi og Sturla Örlygsson.
DV-mynd GS
Gerðum okkar besta
- sagöi Ólafur Rafnsson, þjálfari Hauka
„Eg er að vonum mjög svekktur
með þessa niðurstöðu. Við misst-
um einbeitinguna í síðari hálfleik
en það hefur oft viljaö brenna viö
í öðrum leikjum í vetur. Að mínu
mati vom liðin jöfn að getu í 30
mínútur en síöan hrundi allt hjá
okkur. Njarðvíkingar vom betri og
þeir eru vel að sigrinum komnir,"
sagði Ólafur Rafnsson, þjálfari
Haukaliðsins, í samtali við DV eftir
leikinn.
„Þaö er engum um að kenna
hvemig fór. Við gerðum okkar
besta en sterkur vamarleikur
Njarðvíkinga sló okkur út af lag-
inu. Við hittum einnig illa í vítum
og það munar um minna í leik sem
þessum," sagði Ólafur.
-JKS
sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari UMFN
„Það er í einu orði sagt stórkost-
legt að vinna sigur í þessari keppni.
Þessi sigur vannst ekki átakalaust
en viö skiptum um vöm í síðari
hálíleik sem gaf góöa raun og lagöi
grunninn að sigrinum. Við létum
þá skjóta heldur en að fá þá nær
körfúnni,“ sagði Friörik Rúnars-
son, hinn 23 ára gamli þjálfari
Njarðvíkurliösins, sem náð hefur
frábærum árangri með liðið.
„Bikarsigurinn á eftir að þjappa
mönnum saman fyrir siaginn um
íslandsmeistaratitilinn en þar er
mikil barátta fyrir höndum. Ég er
hæfilega bjartsýnn fyrir þá keppni
en við stefnum að sjálfsögðu aö því
aö vinna tvöfalt sem yrði meíri-
háttarsagði Friðrik.
-JKS
Sólveig Pálsdóttir, fyrirliði Haukastúlkna, kampakát með bikarinn en
meö henni á myndinni er Ingvar Jónsson sem af mörgum er talinn fað-
ir körfuknattleiksins i Hafnarfirði. DV-mynd GS
Frekar óvænt
- Haukar bikarmeistarar í kvennaflokki
Haukastúlkur unnu stóran og
sanngjarnan sigur á ÍBK í bikar-
keppni kvenna í gærkvöldi. Hauka-
stúlkur komu mjög ákveönar til
leiks og með sterkri vöm og 90%
vítahittni tókst þeim þaö sem eng-
inn haföi búist við, að sigra Kefla-
vík, 70-54.
„Við lékum undir mikilli pressu,“
sagði Sigurður Ingimundarson,
þjálfari IBK, eftir leikinn. Þaö
bjuggust altir við því að við mynd-
um sigra og stelpumar náðu ekki
að rífa sig upp úr stressinu. En
Haukamir léku mjög vel og ég óska
þeim til hamingju. Haukastúlkur
sýndu frábæran körfuknattleik.
Byrjuöu leikinn af miklum krafti
og Keflavíkurstúlkumar komust
aldrei irm í leikinn. í hálfleik höfðu
þær 12 stiga forskot, 35-27. Hauka-
liöið iagði mikla áherslu á vömina,
lék pressuvörn alian tímann og
náöi að halda Önnu Maríu Sveins-
dóttur og Björgu Hafsteinsdóttur
niðri. Anna María lék hest hjá ÍBK.
Hjá Haukum var þaö liðsheildin
sem skóp sigurinn. Hafdís Hafberg,
sem var kjörin maður leiksins í
leikslok, átti frábæran leik og þá
áttu Hanna Kjartansdóttir, Eva
Havlikova, Guöbjörg Norðfjörð,
Ásta Óskarsdóttir og Sólveig Páls-
dóttir góðan leik.
„Þetta var æðislegt. Það gekk allt
upp. Við ætluðum að leika góða
vöm og hcdda Önnu Maríu og
Björgu niöri og það tókst,“ sagði
Ingvar Jónsson, þjálfari Hauka.
„Þetta var frábært og kominn tími
til. Það vom allir búnir aö spá ÍBK
sigri en viö ætluðum ekki að láta
fjölmiðlana ráða,“ sagöi maður
leiksins, Hafdís Hafberg. Við vor-
um ákveðnar í að vinna og hlökk-
uðum til aö leika þennan leik. Við
náðum að halda þeim niðri og þær
svekktu sig yfir mótlætinu.“
„Við höfðum allt að vinna og meö
yfirveguðum leik tókst þaö,“ sagöi
Sólveig Pálsdóttir, fyrirliöi Hauka.
„Ingvar þjálfari undirbjó okkur
mjög vel, síðustu tvær vikur höfum
viö undirbúiö okkur markvisst fyr-
ir þennan leik.“
-ih