Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1992, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1992. Fréttir Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs Landsbankans: Bankinn mun standa við yf irlýsingu sína - segist vænta þess að á því verði fullkominn skilningur alira „Landsbankinn mun standa viö þá yfirlýsingu sem hann gaf aðilum vinnumarkaöarins. Ég á ekki von á öðru en á því verði fullkominn skiln- ingur allra. Hins vegar veit ég ekki til þess að neinn hafi skilið þessar yfirlýsingar bankanna þannig að vextir allra banka, á öllum tegundum inn- og útlána, ættu að vera þeir sömu upp á brot úr prósenti," segir Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs Landsbankans. Bankinn lækkar ekki vexti í dag eins og aðUar vinnumarkaðarins hafa krafist. Kröfuna byggja þeir á yfirlýsingu sem bankamir gáfu í tengslum við kjarasamningana. í henni var meðal annars kveðið á um að vextir lækkuðu í kjölfar þess að ríkið lækkaði sína vexti og að sam- ræmi væri í vöxtum miUi bankanna. Að sögn Kjartans mun bankaráð Landsbankans taka vextina til um- fjöUunar á fimmtudaginn kemur. Aðspurður vill ekki tjá sig um það hvort Uklegt sé að vaxtalækkun verði niöurstaöa þess fundar. Verði það hins vegar raunin gætu vextir bank- ans lækkað þann 21. þessa mánaðar. -kaa Irska söngkonan Linda Martin fagnar sigri i söngvakeppninni. Meö henni er höfundur lags og texta, Johnny Logan. Reuter-símamynd Evrópusöngvakeppnin: Stjórnin hafnaði í sjöunda sæti Stjómin lenti í sjöunda sæti í söngvakeppni Evrópustöðva í Malmö á laugardagskvöld með lagið Nei eða já. Veðbankar höfðu spáð íslenska laginu misjöfnu gengi. Sænski þátttakandinn spáði íslend- ingum botnsætinu en úrsUt fóru þannig að hann lenti þar næstum sjálfur, eða í næstneðsta sætinu. Sigurlagið var Why me? sem írska söngkonan Linda Martin söng. Breski söngvarinn Michael BaU varö í öðra sæti með One Step at a Time og Mary Spitery frá Möltu varð í þriðja sæti með Little ChUd. Hörku- barátta var lengi um efsta sætið á miUi þessara þriggja. Höfundur lagsins og textans, sem Linda Martin söng, er Johnny Logan ) en hann hefur tvisvar áður borið sig- ur úr býtum í söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva. Linda Martin, sem er þaulvön söngkona, hefur þekkt Johnny Log- an í fimmtán ár. Aðspurð segjast þau þeirrar skoðunar að það hafi ekki ráðið úrslitum að lag Johnnys var sungið á ensku. „Það er lagiö sjálft sem skiptir máU en ekki textinn," sagði Linda. Keppendur voru sammála um aö keppnin í Svíþjóð hefði verið ákaf- lega vel skipulögð. En innbrot í upp- lýsingaskrifstofu skipuleggjenda skyggði þó á ánægju Svía. Aðfara- nótt sunnudagsins höfðu kassar á skrifstofunni veriö opnaðir og póst- kortum, geisladiskum og gjöfum, sem skipuleggjendum höíðu borist, verið stolið. -IBS/TT, Reuter Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ: Landsbankinn lofaði að lækka vextina „Landsbankinn ber á því ábyrgö að þetta fari ekki aUt til fjandans. Hann gaf yfirlýsingu til samningsað- Ua um að hann myndi lækka vext- ina. Þetta verður bankinn að gera og eftir því hijótum við að ganga,“ segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASI. Ásmundur kveðst ekki eiga von á því að Búnaðarbankinn hækki sína vexti í dag eins og forsvarsmenn bankans hafa hótað lækki Lands- bankinn ekki sína vexti. Hann ætlar á fund forsvarsmanna Landsbank: ans í dag og knýja á um að bankinn standi við yfirlýsingu sina. „í tengslum viö kjarasamningavið- ræðurnar lofaði bankinn aðilum vinnumarkaöarins að lækka vextina þannig að þeir yrðu sambærilegir og í hinum bönkunum. Það gekk erfið- lega að fá þessa yfirlýsingu en það tókst þó. Bankinn verður einfaldlega að standa við sínar yfirlýsingar rétt eins og þeir sem skulda honum verða að standa við sitt.“ -kaa Guöni Ágústsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans: Skilyrði vaxtalækkunar ffyrir hendi - undrandiátregðuLandsbankans „Ég er mjög undrandi á tregðu Landsbankans til að lækka vext- ina. Skilyrði fyrir vaxtalækkun eru ótvírætt fyrir hendi, enda engin verðbólga og ríkisstjómin hætt sín- um vaxtapóker. En til að svo geti orðið þurfa aliir bankamir að fylgj- ast að. Ég trúi ekki öðm en að Landsbankinn lækki vextina þann 21. þessa mánaðar og standi þannig við þá yfirlýsingu sem aðilum vinnumarkaðarins var gefin í tengslum við kjarasamningana," segir Guðni Ágústsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans. Bankaráð Búnaðarbankans kem- ur saman til fundar á morgun til að ræða vaxtamálin. Aðspurður segist Guðni vonast til að hægt verði að komast hjá vaxtahækkun á ný. Það ráðist þó að nokkru af því hvaða ákvörðun Landsbankinn taki varðandi sína vexti. „Við erum orðnir langþreyttir á þessari tregðu til vaxtalækkana, enda höfum við í allan vetur verið að keyra vextina niður. Aðilar vinnumarkaöarins berja hins veg- ar á bönkunum eins og þeir væru einn maður. Við hljótum því að vekja athygli á því að nú sé veður fyrir Landsbankann aö lækka vext- ina,“ segir Guðni. -kaa Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra: Vona að Landsbanki lækki vexti sem fyrst - segir markmið kjarasamninganna ekki í hættu „Ég vonast til að Landsbankinn lækki sína vexti sem fyrst. En það verða að vera þeirra eigin ákvarðan- ir. Ótilkvaddur gaf hann yfirlýsingar í sambandi við gerð kjarasamning- anna um það hvemig hann ætlaöi að standa að vaxtaákvörðunum. Ég treysti því að hann fari með þær ákvarðanir eins og hann sagðist þar ætla að gera,“ segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. Jón segir yfirlýsingu Landsbank- ans fela í sér fyrirheit um vaxtalækk- un. Lækkunin sé hins vegar ekki tímasett né útfærð í smáatriðum. Aöspurður segir hann aðila vinnu- markaðarins ekki þurfa að óttast að Landsbankinn sprengi markmið kjarasamninganna með vaxtastefnu sinni. „Við vitum af þessu og fylgj- umst með þróun mála,“ segir Jón. -kaa Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ: Ekkert rúm fyrir nemn misskilning - segirLandsbankannverðaaðlækkavextina „Það er augljóst mál að Lands- bankinn hefur ekki staðið við sitt fyrr en hann er búinn að færa vaxta- stigið hjá sér niður til jafns við það sem gerist hjá hinum bönkunum. í þessu máli er ekki rúm fyrir neinn misskilning. Lækki hann ekki vext- ina þá er hann í raun aö sprengja þau markmið sem voru sett við gerð kjarasamninganna. Ég. tel að það komi ekki til nokkurra álita að bank- inn og eigendur hans láti slíkt ganga fram,“ segir Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri VSÍ. Þórarinn segir það grín haldi for- svarsmenn Landsbankans að þeir geti verið einir og í sérstöðu með sín vaxtamál enda sé bankinn með um 40 prósent af markaönum. Því muni það óþjákvæmilega valda vaxta- hækkunum annars staðar lækki Landsbankinn ekki sína vexti. „Þó sú tilviljanakennda staða hafi verið á þeim tímapunkti, sem samn- ingamir vom gerðir, að Landsbank- inn var með hæstu vextina þá skildi enginn þær yfirlýsingar, sem þá vom gefnar, að þannig ætti þaö að vera áfram. Hafi einhver verið í þeim mis- skilningi þá er þaö eitthvað sem þarf að leiðrétta." -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.