Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1992, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1992, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1992. Merming_______________________________________ RúRek ’92: Sjálfsagt að f á stórsöngv- ara í tilefni Árs söngsins - segir Vemharður Linnet, framkvæmdastjóri djasshátíðarinnar Djasshátíð Reykjavíkurborgar, Ríkisútvarpsins og Djassdeildar Fé- lags íslenskra hljómlistarmanna hófst með setningu og tónlist í Ráð- húsi Reykjavíkur á laugardaginn. Hátíðin mun svo standa til 16. maí með djassi út um alla borg, þar sem koma fram erlendir og innlendir djasssnillingar. Hátíðinni lýkur svo með tónleikum Jon Hendricks í Há- skólabíói næstkomandi laugardag, en eftirmáli verður í Púlsinum um kvöldið. Sá sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi og fram- kvæmd djasshátíðarinnar er Vern- harður Linnet, kennari og dagskrár- gerðarmaður, sem er öllum djassá- hugamönnum að góðu kunnur fyrir margra ára ötula baráttu sína í þágu djassins hér á landi. DV hitti Vem- harð að máli og spurði fyrst hvemig RúRek hefði orðið til: „Upphaflega var þessi hátíð kölluð Norrænir útvarpsdjassdagar, og voru haldnir til skiptis á Norður- löndum. Þegar kom að íslandi lenti það á Ólafi Þórðarsyni, sem þá var starfsmaður tónlistardeildar á út- varpinu, að sjá um djassdagana. Ól- afi fannst ekki hægt að vera með slíka hátíð í einn eða tvo daga heldur yrði að halda þessu úti í viku, sem og varð. Þetta var 1990 og með þessu var tónninn gefinn og í fyrra varð til nafnið RúRek enda Reykjavíkurborg þá komin inn í myndina ásamt FÍH. Varð þá til djasshátíðin í því formi Árni Egilsson kemur frá Los Angel- es til að leika á djasshátíöinni, en hann hefur ekki leikið hér á landi siöan 1974. sem hún er nú. í fyrra sem og árið áður vom djassmenn frá Norður- löndum mest áberandi, en nú er breyting á og mun meiri fjölbreytni þótt vissulega setji norrænir djass- leikarar setji svip sinn á hátíðina. Styrkir veittir til að vinna að tónlist Nokkrar aðrar breytingar em einnig frá í fyrra. Það var til að mynda tekinn sá póll í hæðina að auglýsa eftir umsóknum um styrki til að vinna að verkefnum fyrir hátíð- ina og komu tólf eða þrettán umsókn- ir. Við höíöum ekki peningaráð nema til að styrkja sex aðila og þar af vom tvö norræn samvinnuverkefni ís- lenskt-danskt og íslenskt-finnskt. Það er gífurlegur fengur fyrir okkur aö fá slík samvinnuverkefni á hátíð- ina, það eykur fjölbreytni og gæði þess sem boðið er upp á.“ - Richard Boone og Jon Hendricks. Hvað geturðu sagt um þá? „Richard Boone byrjaði meö Basi- e-bandinu og bæði lék og söng með því á sínum tíma. í kringum 1970 var hann fenginn til að blása með dönsku útvarpssveitinni og honum fannst svo gott að vera í Danmörku aö hann settist þar að og hefur búið þar síð- an. Boone er mikill húmoristi og skemmtilegur maður. Það var fljótlega ákveðið að fá eitt stórt nafn í djassinum til að halda stórtónleika og þar sem nú er Ár söngsins þótíi alveg sjálfsagt að fá söngvara og þá komu nú margir til greina. í mínum huga var það alltaf Jon Henricks, sem mér finnst vera lifandi tákn um djassöng. Hann er bæði ágætur söngvari, góður textahöfund- ur og ótrúlegur í impróviseringum, er á við bestu saxófónleikara í þeim efnum. Með honum koma eiginkona hans og dóttir ásamt ryþmasveit. Tónleikar Hendricks eru að sjálf- sögðu hápunkturinn, en það má einnig nefna tónleikana á fóstudags- kvöldið á Hótel Sögu en þar verða meðal annars flutt tvö frumsamin íslensk verk, minningarsvíta Gunn- ars Reynis Sveinssonar um Guð- mund Ingólfsson og verk eftir Ólaf Gauk.“ - Nú er von á Áma Egilssyni til landsins, en hann hefur ekki leikið hér lengi? „Það verður spennandi að heyra í honum. Hann hefur ekki leikið hér síðan á Listahátíð 1974 þegar hann lék með Andre Previn. Það var ekki auðvelt að fá Áma, ekki vegna þess að hann langaði ekki að koma heldur vegna anna og hann lagði mikið á sig til að geta komið. Segja má að hann sé bókaður í hljóðverum frá morgni til kvölds. Ami vildi samt koma og sagði mér að hann hefði lengi haft áhuga á að koma heim og leika með íslenskum djassistum. Með honum í fórinni er Jón Páll Bjarnason gitar- leikari en þeir hafa gert dálítið að því að leika saman í Los Angeles. Og fyrst búið var aö fá þessa kappa hingað var ekki hægt annað en að ná í Pétur Östlund til að leika með þeim. Ég vil taka það fram að það hafa margir lagt hönd á plóginn svo vel megi takast, meðal annars hafa Flug- leiðir reynst okkur vel í aðstoða okk- ur við að koma Áma og Jón Páli frá vesturströnd Bandaríkjanna á djass- hátiðina, en ef ekki hefði komið til aöstoð þeirra hefði það ekki verið framkvæmanlegt vegna kostnaðar. -HK Stórsveitin er komin til að vera - segir Sæbjöm Jónsson, stjómandi sveitannnar Sæbjörn Jónsson, stjórnandi Stórsveitar Reykjavíkur. Myndin er tekin þeg- ar verió var aó æfa fyrir tónleikana i Ráóhúsinu. DV-mynd ÞÖK Við setningu RúRek djasshátíðar- innar í Ráðhúsi Reykjavíkur á laug- ardaginn lék í fyrsta skipti Stórsveit Reykjavíkur undir sfjóm Sæbjöms Jónssonar. Það þarf mikinn kraft og átak til að halda úti slíkri sveit og þótti okkur því tilhlýðilegt að taka stjómanda sveitarinnar, Sæbjöm Jónsson tah: „Stórsveit Reykjavíkur á sér nokk- um aðdraganda. Fyrir tæpinn tveim- ur árum lagði ég niður Big-band sem við vorum með í Tónmenntaskólan- um, en þar vom sleipir hljóðfæra- leikarar sem héldu áfram námi. Þessir strákar hafa síðan verið að færa í tal við mig að gera alvöru úr að stofna stórsveit og það varð úr að ég fór í gang í vor og setti mér það markmið að hljómsveitin léki á djasshátíðinni sem nú stendur yfir. Ég hóaði saman liöi og við höfum verið að æfa síðan. Þetta er sautján manna hljómsveit og komum við til með að leika hefð- bundna big-band tónlist. Við æfum einu sinni í viku og ætlum að halda því áfram. Þessari hljómsveit er ekki ætlað að deyja út heldur munum viö fara í að leita okkur verkefna þó við gerum okkur grein fyrir því að laun- in verða aldrei há. Við viljum gjam- an komast inn á skemmtistaöi þar sem hægt er að nýta slíka hljóm- sveit.“ - Kemur þú til með að halda þeim mannskap sem er í sveitinni? „Það held ég sé á hreinu. Þaö er mikill áhugi í hljóðfæraleikurunum og allir eru tilbúnir að leggjast á eitt svo dæmið gangi upp. Markaðurinn er litiU en hann er fyrir hendi, til dæmis værum viö kjörnir til að hafa í fóstum skemmtiþáttum í sjónvarpi. Við ætlum okkur ekkert að sækja um styrki eða slíkt en vonum aftur á móti að stórir aðilar skapi okkur verkefni. Ég vil taka það fram að við höldum ekki úti slíkri sveit nema með aðstoð góðra manna og hefur Tónmenntaskóliim stutt vel við bak- ið á okkur, hefur skaffaö okkur æf- ingahúsnæði og nótur. - Nú ert þú sjálfur trompetleikari, kemur þú til með að leika með hljóm- sveitinni? „Nei, ég reikna ekki með því, það er svo erfitt starf að stjórna stórsveit að það nægir mér alveg, enda er val- inn maöur í hveiju rúmi. Yfirleitt eru þetta ungir strákar, en þó má nefna gömlu kempumar Áma Elvar og Bjöm R. Einarsson sem em mættir með básúnur sínar. - Þú ert bjartsýnn á framtíð Stór- sveitar Reykjavíkur? „Það þýðir ekkert annað. Starfsem- in mun ekki vera mikil í sumar, en um leiö og sumri hallar verðum við komnir í gang og látum heyra í okk- ur.“ -HK Friðrik Erlingsson hlaut íslensku bamabókaverðlaunin: Viðburðaríkt sumar í litlu hverf i Þrítugur Reykvíkingur, Friðrik Erlingsson, hlaut íslensku bama- bókaverðlaunin 1992 sem afhent vora síðastliðinn fimmtudag. Fékk hann verðlaunin fyrir bók sína, Benjamín dúfu sem kom út á vegum Vöku-Helgafells sama dag. Bama- bókaverðlaun þessi voru nú afhent í sjöunda sinn. í samkeppnina að þessu sinni vora yfir þijátíu handrit send inn og er það svipaður fjöldi og á liðnum árum. í orðum dómnefndar um bókina segir: „Benjamín dúfa er nýstárleg og áhrifamikil saga úr íslenskum veruleika sem jafnframt er spenn- andi og þaulhugsuð af hálfu höfund- arins. Hann dregur persónur sínar skýram dráttum, kemur átakamiklu efni til skila af einstakri nærfæmi og tekst að skapa einkar trúverðuga og læsilega sögu fyrir böm og ungl- inga.“ Armann Kr. Einarsson, en hann og fjölskylda hans era aðilar að þess- um bamabókaverðlaunum, afhenti Friðriki verölaunin, 200.000 krónur, en við þá upphæð bætast höfunda- laun. Að lokinni verðlaunaafhend- ingu ávarpaði Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra viðstadda og óskaöi verðlaunahöfundinum til hamingju með sigurinn. Nemendur úr Laugamesskóla sungu og léku á hljóðfæri við athöfnina. í Benjamín dúfu segir frá viðburða- ríku sumri í litlu hverfi. Þegar hrekkjusvínið Helgi svarti fremur enn eitt illvirkið ákveða fjórir vinir að taka höndum saman, stbfria Reglu rauða drekans og hefja baráttu gegn ranglæti heimsins. Þeir era Róland dreki, Andrés öm, Baldur hvíti og Benjamín dúfa. Um tíma er lífið óslit- ið ævintýri. En það koma brestir í vináttuna, ævintýrið hættir skyndi- lega og kaldur raunveruleikinn ryðst af hörku inn í líf þeirra. -HK Ármann Kr. Einarsson rithöfundur sést hér afhenda Friðriki Erlingssyni verðlaunin. Bak við þá er Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi. DV-mynd GB Fimm listamenn frá Turku í Finnlandi sýna um þessar mund- ir verk sín í sýnmgarsalnum Slunkariki á ísafirði. Hér eru á ferðinni félagar í stærstu samtök- um myndlistarmanna í Finn- pappírsverk, flest unnin þannig að listamennirnir búa til pappír- inn sjálfir, lita hann og líma. Sýn- ingin er haldin í tengslum viö opnun Norrænu upplýsingaskrif- stofunnar á ísafirði og styrkti finnska menntamálaráðuneytiö för tveggja listamanna til að fylgja sýningunni úr hlaðl Ustamennfá starfslaun Úthlutað hefur verið starfs- launum til listamanna. Úthlutað var til 173 listamanna misháum launum. Mest er úthlutað þriggja ára starfslaunum. í flokki mynd- listarmanna fengu Björg Þor- steinsdóttir, Helgi Þorgils Frið- jónsson, Kristinn G. Harðarson og Rúrí þriggja ára starfslaun. Sams konar laun fengu rithöf- undarnir Einar Kárason og Stein- unn Sigurðardóttir, Brynja Bene- diktsdóttir leikari og Leifur Þór- arinsson og Áskell Másson tón- skáld fengu einnig þriggja ára starfslaun. Visastofnar menningarsjóð Nýr menningarsjóður hefur verið stofnaður. Er þaö Visa sem stofriar þennan menningarsjóð. Stofnfé sjóðsins er 2.500.000, þar af verður úthlutað 1,5 milfjónum í haust og er tekið á móti umsókn- um til ágústloka. Tekjur sjóðsins era árleg framlög frá Visa ís- landi. Tilgangur sjóösins er í reglugerð sagður vera: 1. Að styðja íslenska menningu og list- ir. 2. Að veita fé til líknar- og raenningaimála. 3. Að efla verk- menntun, vísindi og tækni. í sfjórn sjóðsins hafa verið til- nefndir Jóhann Ágústsson, sfjórnarformaður Visa, Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri og Jón Stefánsson, organisti og söngsfjóri. Mariaráðin listdansstjóri Maria Gísladóttir hefur verið róöin listdanssfjóri íslenska dansflokksins. María starfaði i niu ár viö ballettílokk þýsku óperannar i Berlín, lengst af sem sólódansari. Síðan var María að- aldansari við ballettflokkinn í Wiesbaden í þrjú ár. Hún hélt síö- an til Bandaríkjanna og dansaði i þrjú ár í New York og í fimm ár sem aðaldansari Richmond baUettsins í Virgimu. María kom heim til íslands 1990. Síðastliðin tvö ár hefur hún verið kennari við Listdansskóla íslands. Æfingaráhaust- verkefnum hjá LRaðhefjast Nu eru aö hefjast æfingar á haustverkefrium Leikfélags Reykjavikur. Kjartan Ragnars-, son ríður á vaðið með æfingar á æskuverki Antons Tjekov sem oft er kennt viö Platonof, aðalper- sónuna í þessum gamanleik um brostnar vonir og sumarást. Leikgerð hefrir Pétur Einarsson unnið og er frumsýning áætluð i október. Meðal leikenda eru Þröstur Leó Gunnarsson, Guð rún S. Gísladóttir, Guðmundur Olafsson og Pétur Einarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.