Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 34
50
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
Afmæli
Stefanía V. Stefánsdóttir
Stefanía Valdís Stefánsdóttir kenn-
ari, Hnjúkaseli 14, Reykjavík, er
fimmtugídag.
Starfsferill
Stefanía er fædd aö Bót í Hróars-
tungu í Norður-Múlasýslu en ólst
upp á Egilsstöðum. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1962, stundaði nám við
Kennaraháskóla íslands og lauk
þaðan kennaraprófi 1987. Stefania
var við framhaldsnám í síðarnefnda
skólanum 1991-92.
Stefanía var húsfreyja í Reykjavík
1962-70, á Vopnafirði 1970-71 og aft-
ur í Reykjavík 1971-84. Hún var
gjaldkeri í Landsbanka íslands í
Reykjavík 1962-68. Stefanía hefur
verið kennari í heimilisfræðum við
Ölduselsskóla í Reykjavík frá 1987.
Stefanía hefur verið í stjórn Hús-
stjómarkennarafélags íslands frá
1987.
Fjölskylda
Stefanía giftist 18.8.1962 Skúla
Guðmundi Johnsen, f. 30.9.1941,
héraðslækni í Reykjavík. Foreldrar
hans eru Baldur Garöar Johnsen,
f. 22.10.1910, læknir í Vestmannaeyj-
um og Reykjavík og síðar forstöðu-
maður Heilbrigðiseftirhts ríkisins,
og kona hans, Jóhanna Jóhanns-
dóttir Johnsen, f. 28.10.1908, söng-
kennari og konsertsöngkona.
Böm Stefaníu og Skúla: Baldur
Johnsen, f. 25.11.1963, tölvunar-
fræðingur, Baldur Johnsen er bú-
settur í Reykjavík; Valdemar John-
sen, f. 5.12.1968, nemi og starfsmað-
ur VÍS, sonur hans og Hönnu Maríu
Harðardóttur, f. 9.1.1969, er Skúh
Þór Johnsen, f. 16.11.1990, Valdemar
Johnsen er búsettur í foreldrahús-
um; Guðrún Johnsen, f. 5.4.1973,
nemi, Guðrún Johnsen er búsett i
foreldrahúsum.
Systkini Stefaníu: Birna Helga
Stefánsdóttir, f. 13.11.1935, fuhtrúi
hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar, maki Jón Bergsteinsson, f.
28.2.1932, skrifstofustjóri Happ-
drættis Háskóla íslands, þau eru
búsett í Kópavogi og eiga tvö börn;
Pétur Stefánsson, f. 23.3.1939, verk-
fræðingur hjá Almennu verkfræði-
stofunni, maki Hlíf Samúelsdóttir,
f. 7.8.1939, heildsali, þau era búsett
í Garðabæ og eiga þrjú börn; Gunn-
steinn Snævarr Stefánsson, f. 13.6.
1943, heilsugæslulæknir í Hafnar-
firði, maki Helga Snæbjörnsdóttir,
f. 28.9.1950, hjúkrunarfræðingur,
þau era búsett í Hafnarfirði og eiga
fiögurbörn.
Foreldrar Stefaniu: StefánPéturs-
son, f. 22.11.1908, d. 1.3.1992, bóndi
í Bót og á Flúðum í Hróarstungu,
vörabifreiðastjóri á Egilsstöðum og
síðar kirkjugarðsvörður í Reykja-
vík, og kona hans, Laufey Valde-
marsdóttir Snævarr, f. 31.10.1911,
húsfreyja í Bót og á Flúðum í Hró-
arstungu, á Egilsstöðum og síðar
Reykjavík.
Ætt
Stefán var sonur Péturs Stefáns-
sonar, f. 16.12.1871, d. 3.5.1910, bú-
Stefanía Valdís Stefánsdóttir.
fræðings og bónda á Urriðavatni og
í Fjahaseli í Fellahreppi og í Bót í
Hróarstungu í N-Múlasýslu, og
konu hans, Sigríðar Eiríksdóttur, f.
16.6.1877, d. 18.11.1946, húsfreyju.
Laufey er dóttir Valdemars Val-
vessonar Snævarr, f. 22.8.1883, d.
18.7.1961, skólastjóra á Húsavík og
síðar í Neskaupstað, og konu hans,
Stefaníu Erlendsdóttur, f. 6.11.1883,
d. 11.12.1970, húsfreyju.
Sviðsljós
Verðlaunasafn Ragnheiðar
Sigurgeir Svemason, DV, Akranesi:
Verðlaunasafn sundkonunnar
kunnu, Ragnheiðar Runólfsdóttur,
sem hún hefur unnið á glæstum
og viðburðaríkum keppnisferli, er
til sýnis í Búnaðarbankanum á
Akranesi og verður fram á haustið.
Það er óhætt að segja að verðlauna-
gripimir era hinir glæsilegustu og
meðal þeirra styttan fagra sem
íþróttamaöur ársins hlýtur í kjöri
íþróttafréttamanna. Ragnheiður
hlaut þann titil 1991.
Rafn Benediktsson
Hluti af verðlaunasafninu og styttan fagra sem íþróttamaður ársins varðveitir.
DV-myndir Sigurgeir
Rafn Benediktsson, bóndi að Staðar-
bakka I, Ytri-Torfustaðahreppi, er
fertugurídag.
Starfsferill
Rafn fæddist að Staðarbakka I og
ólst þar upp. Hann lauk fuhnaðar-
prófi frá bamaskólanum á Laugar-
bakka 1965, stundaöi nám við Hér-
aðsskólann á Reykjum í Hrútafirði
1966-69, lauk þar landsprófi og lauk
búfræðiprófi frá Bændaskólanum
aðHvanneyril970.
Rafn vann ætíð á búi foreldra
sinna. Hann tók jörðina á leigu 1975
og hóf þar þá búskap en keypti hana
1982.
Rafn sat í stjóm Ungmennafélags-
ins Grettis, var formaður Ung-
mennasambands Vestur-Húnvetn-
inga í nokkur ár, situr í stjórn Veiði-
félags Miðfirðinga, er formaður
Sauðfiárræktarfélags Ytri-Torfust-
aðahrepps, situr í stjóm Félags
sauðfiárbænda í Vestur-Húnavatns-
sýslu og situr í húsnefnd Félags-
heimhisins Ásbyrgis.
Fjölskylda #
Rafn kvæntist 31.12.1978 Ingi-
björgu Þórarinsdóttur, f. 11.10.1954,
bónda. Hún er dóttir Þórarins Jóns-
sonar og Guðfinnu Steinsdórsdótt-
ur, bænda að Straumi í Hróars-
tungu í Norður-Múlasýslu, en þau
erabæði látin.
Börn Rafns og Ingibjargar era
Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir, f. 28.6.
1976; Þórarinn Óli Rafnsson, f. 27.6.
1979; Benedikt Rafnsson, f. 26.7.1985.
Systkini Rafns era Margrét Bene-
diktsdóttir, f. 18.11.1945, húsmóðir
í Reykjavík, gift Ólafi H. Jóhanns-
syni kennara og eiga þau fiögur
böm; Ingimundur Benediktsson, f.
26.8.1948, húsgagnasmiöur í Reykja-
vík, kvæntur Matthildi G. Sverris-
dóttur húsmóður og eiga þau þrjú
börn; Jón Magnús Benediktsson, f.
26.2.1951, skrifstofustjóri, búsettur
í Mosfellsbæ, kvæntur Þorbjörgu
Ólafsdóttur ljósmóður og eiga þau
þijúböm.
Foreldrar Rafns: Benedikt Guð-
mundsson, f. 30.11.1905, d. 17.1.1990,
bóndi að Staðarbakka, ogÁsdís
Magnúsdóttir, f. 21.8.1920, bóndi.
Ætt
Benedikt var sonur Guðmundar,
b. og hreppstjóra á Staöarbakka,
Gíslasonar, b. í Hnausakoti, Guð-
mundssonar. Móðir Guðmundar
hreppstjóra var Margrét Jónsdóttir.
Móðir Benedikts var Margrét Beþe-
diktsdóttir, b. á Bjargarstöðum,
Jónssonar, og Sesselju Jónsdóttur.
Ásdís er dóttir Magnúsar Frí-
manns, trésmiðs á Bjargi á Seltjam-
amesi, bróður Björns H. Jónssonar,
skólastjóra á ísafirði. Magnús var
sonur Jóns, b. á Torfustöðum, Jóns-
sonar og Ólafar Jónsdóttur frá
Svarðbæli. Móðir Ásdisar var Guð-
finna Bjömsdóttir, b. í Núpsdals-
tungu, Jónssonar, b. á Syðri-Reykj-
um, Teitssonar. Móðir Björns var
Elínborg Guðmundsdóttir, smiðs á
Síðu.
Rafn tekur á móti gestum að heim-
ihsínuþannl2.6.nk.
Rafn Benediktsson.
Sigurður Ólafsson,
Hólmgarði 18, Reykjavík.
Maria Jóhannsdótt ir,
Eyrarvegi 9, Flateyri.
Friðbjörg Johansen,
Nönnustig 13, Hafnarfirði.
Ólöf Sigurbj örg Jóhannesdóttir
fráKvígindis-
firðií A-Barða-
strandarsýslu,
Furugrund 20.
Kópavogi.
Huntekurá
móti gestum á
aftnælisdaginn
í safnaðarheim-|_____________
hi Árbæjarkirkju við Rofabæ frá
kl.20.
75 ára_______________
Sigurpáh Árnason,
Furaiundi 6, Seyluhreppi.
Guðbjörg Bárðardóttir,
Æsufehí 4, Reykjavík.
Gyða Arnórsdóttir,
Njálsgerði 13, Hvolsvelli.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Pálmholti 4, Þórshöfn.
Geir S. Geirmundsson,
Hólagötu 17, SandgerðL
Svavar Gylfi Jónsson,
Goðheimum 12, Reykjavik.
Óskar H. Friðþjófsson,
Efstasundi 37, Reykjavík.
Auðunn Benediktsson,
Akurgerði 11, Öxarfiarðarhreppi.
Arnþrúður Ingvadóttir,
Lyngheiði 25, Hveragerði.
S verrir Skaftason,
Hrannargötu 5, Keflavík.
Kjartan J. Sigurðsson,
Hraunbæ 134, Reykjavík.
Arni Benediktsson,
Jakaseh 15, Reykjavík.
Guðbrandúr Þ. Elíasson,
Reykási 7, Reykjavik.
Vignir Sigurþórsson,
Borgarvík 20, Borgarnesi.
Hreinn Rafnar Magnússon,
Tunguvegi 8, Njarðvík.
JónGuðnason,
Bakkagötu 20, Öxarfiarðarhreppi.
Kristín Gunnlaugsdóttir,
Brimnesvegi 28, Flateyri.
Guðríður S vandís Hauksdóttir,
Breiðvangi 18, Hafnarfirði.
Ólafur R. Sigmundsson,
Háalundi 11, Akureyri.
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
632700