Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00 Fossvogsdalur: Maðurvopnaður hnífi gyrti niður um sig - annarleitaðiástúlku Lögreglan leitaði um helgina að manni sem sýnt hafði mjög ósiðlega og ógnandi framkomu við stúlku í landi Skógræktar ríkisins í Foss- vogsdal. Maðurinn gyrti niður um sig fyrir framan stúlku og var hann vopnaður hnífi. Um höfuðið hafði maöurinn peysu en þó sást í andlit hans. Athæflð var tÚkynnt lögregl- unni í Kópavogi en maðurinn háði að komast undan. Málið er í rann- sókn. Lögreglan í Reykjavík leitaði í gær- kvöldi að manni sem talinn er um tvítugt, sem leitaði á stúlkubam í húsagarði við Hringbraut. Maðurinn var talinn hafa tælt stúlkuna til sín. Lögreglan telur ekki útilokað að sami maður hefði verið við svipað athæfi í sama hverfi þann 8. maí síð- astliðinn. Ekki hefur náöst til mannsins ennþá. -ÓTT ** Unglingar stálu fjórum skotvopnum - náðueinrLLghnífum Tveir piltar, 16 og 18 ára, viður- kenndu í gærkvöldi að hafa stolið fjórum skotvopnum, hnífum og skot- færum í geymslum í fjölbýlishúsi við Engihjalla nýlega. Piltarnir sögðust hafa ætlað að selja vopnin. Upphaf málsins varð með þeim hætti að piltar sáust vera að grafa byssu í jörð í Kópavogi. Þegar farið var að rannsaka málið lék grunur á að byssan væri stolin og aö fleiri byssur hefðu horfið. Þegar böndin beindust að fjölbýlishúsi við Engi- hjalla kom í ljós að sami eigandi saknaöi fjögurra skotvopna. Einnig varð ljóst að skotfæri og veiðihnífar höfðu horfið auk þess sem eigendur að öðrum geymslum söknuðu ýmissa hluta eins og viðlegubúnaðar. Þegar leit var gerð heima hjá pilt- unum og víðar komu þrjár byssur í viðbót í leitirnar. Piltamir sögðust hafa komist yfir lykla sem voru í óskilum í umræddu fjölbýlishúsi og þannig fikrað sig áfram með hvar þeir pössuðu. Áður en yfir lauk höfðu þeir náð að stela skotvopnunum íjór- um, skotfærum og ýmsu öðru. Rann- sóknadeild lögreglunnar í Kópavogi telur málið að fullu upplýst. -ÓTT LOKI Veióibændur verða vænt- anlega að laxera! staðið yf ir í 20 tíma /1 * / Verkfall stýrimanna á farskipum í Faxaflóahöfhum kom til fram- kvæmda á miðnætti síðastliðnu þrátt fyrir að samningaviðræður stæðu yfir. Akraborgin hefur feng- ið undanþágu frá verkfallinu og mun því sigla áfram um óákveðinn tíma. Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari sagði í samtali við DV í morgun að samningaviði-æður, sem staðið hafa yfir frá klukkan 14.00 í gær, væru enn á afar viö- kvæmu stigi. „Það hefur vissulega mjakast nokkuð í nótt en það getur enn brugðið til beggja vona. Samninga- fundi verður haldið áfram, alla vega fram eftir deginum, meðan von er að samningar takist," sagöi Guðlaugur Þorvaldsson. Það er gömul saga og ný í samn- ingaþófí sem þessu að sáttasemjari setur ekki af stað slíkan maraþon- fund sem þennan nema hann eygi von um samninga. Það er lika reynsla fyrir því að ef upp úr slitn- ar, eftir svo langan samningafund, hleypur mikil harka í aðgerðir og erfitt að koma samningaviðræðum í gang aftur. Takist ekki samningar i dag fer áhrifa verkfallsins að gæta strax á morgun. Þau farskip sem koma til hafnar í Reykjavík fara ekki út aft- ur meðan verkfallið stendur. Von er á allnokkrum farskipum til Reykjavíkur í þessari viku, einkum skipa Samskipa hf. í samningaviðræðunum er tekist á um nokkru hærri kauphækkun en var i miðlunartillögu ríkissátta- semjara á dögunum. Stýrimenn hafa fallist á nokkur hagræðingar- atriði sem þeir segja að minnki vinnu þeirra og laun að sama skapi. Þetta vilja þeir að einhverju leyti fá bætt í dagvinnulaunum. -S.dór Veðriðámorgun: Sólskin og hlýja Á morgun verður suðaustan- eða sunnanátt, víðast gola eða kaldi við suöurströndina, skýj- að og dálítil súld með köflum suðaustanlands og með suður- ströndinni en léttskýjað annars staðar. Hlýtt verður í veðri, 11-16 stig. Veðrið í dag er á bls. 52 Framkvæmdir á Vellinum: Niðurstöðu aðvænta íBrussel Niðurstöðu mun vera að vænta um i áframhaldandi starfsemi íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli.ii Vegna deilna í Mannvirkjasjóði NATO um einkarétt verktakanna á vellinum var umfangsmiklum fram- kvæmdum frestað, þar á meðal frá-1 gangi á olíuleiðslum, byggingu tveggja flugskýla og áhafnaskýlis.' Talið er að allt að 200 manns geti. misst vinnuna náist ekki sakomulag; um verkefnin. Samkvæmt heimildum DV mun málið verða rætt á fundi varnar-| málaráðherra NATO í Brussel í dag. Róbert Ámi Traustason, skrifstofu- Í stjóri varnamáladeildar, og Stefán Friðfinnsson, forstjóri íslenskra að- s alverktaka, eru nú staddir í Brussel | til að fylgjast með framvindu mála. -kaa HelgarskákmótáFlateyri: . Karl Þorsteins- son sigraði Sumarið er greinilega komið og hér sjást ungar stöllur njóta veðurbliðunnar í Reykjavík. Það hitnaði vel í gær enda njótum við nú veðurs frá Evrópu þar sem hefur verið hlýtt að undanförnu. Veðurfræðingar spá áframhald- andi bliðu næstu daga. DV-mynd GVA Karl Þorsteinsson varð einn efstur á helgarskákmótinu á Flateyri. Hann sigraði Helga Ólafsson í síðustu um- ferð og hlaut 6'A vinning af 7 mögu- legum. í öðru til fimmta sæti urðu Helgi Ólafsson, Jón L. Ámason, Héð- inn Steingrímsson og Guðmundur Halldórsson með 5 'A vinning. -ÍS ltlO'BlLAS^ó( ÞRÖSTUR 68-50-60 VANIR MENN Í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.