Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992. Útlönd___________________ írakargefaleyfi tðlaðleitaað stríðsföngum írakar hafa gefiö Rauöa hálf- mánanum leyfi til að leita hvar sem er í landinu aö stríðsfóngum, sem yfirvöld i Kúveit halda fram aö séu ennþá þar í haldi. „írakar hafa ekkert á mótl því aö leyfa embættismönnura frá Rauöa hálfmánanum aö leita að Kúveitum, sem enn eru sagðir týndir," sagði Akram al-Witri hjá utanríkisráöuneyti íraks. „Við erum reiðubúnir aö heimila þeim takmarkalausan aögang aö fang- elsum og öðrum stöðum þar sem fangar gætu hugsanlega verið.“ Ekki liggur fyrir nákvæmlega hversu margir Kúveitar eru enn í írak eftir aö Persaflóastríðiö. Sagði Witri aö um 4000 manns hefðu gefiö sig fram með kúveisk vegabréf. Átti 900 milljónir Komiö hefur í ljós að Freddie Mercury, söngvari hljómsveitar- innar Queen, skildi eftir sig 900 milijónir. Mercury dó úr eyðni í nóvember síðastliðnum. Meirihluti þessarar flárhæðar rennur til vinkonu Mercury, Mary Austin, en auk þess gaf hann fyrirmæli um að elskhugi hans, vinir, fjölskylda og starfs- fólk fengi sitt. Meðan hann var enn á lífi lét hann stórar fjárhæð- ir renna til rannsóknar á sjúk- dómnum sem dró hann tO dauöa. Tyson sakaður umfilrauntðl nauðgunar Hnefaleikakappinn Mike Ty- son, sem þegar hefur veriö dæmdur í sex ára fangelsi fyrir nauögun, var um helgina sakað- ur um tilraun til nauðgunar. Það var hin 24 ára dóttir Bili Cosby, Erinn Cosby, sem þaö gerði í sjónvarpsviðtali. Sagðist Erinn svo frá að árið 1989 heföi henni og tveimur öðr- um vinkonum verið boöið i heim- sókn til Tyson. Hann heföi boöist til aö sýna henni húsið og þegar þau voru inni í svefnherberginu gerði hann sér litiö fyrir, iæsti dyrunura og reyndi að nauöga henni. Erinn tókst að kalia á hjálp og þá sleppti hann takinu á henrú. Sá hún mjög eftir því aö hafa ekki borið vitni gegn Tyson þegar réttarhöldin yfir honum fóru fram. Karlmaður barnshafandi Karlmanni á Filippseyjum hef- ur tekist að rugla lækna þar í landi laglega í riminu. Hann er nefnilega kominn sex mánuði á leið. Maðurinn, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur, er tvíkynja, þ.e. hann hefur bæði kynfæri karla og kvenna. Þaö hefur komiö manninum í talsveröan bobba að vera bams- hafandi þar sem hann á ekki rétt á barnsburðarleyfi. Hann hefur einnig hug á því að gjftast elsk- huga sínum en það getur hann ekki þar sem kirkjuyfirvöld á Filippseyjum leyfa ekki slíkt. Rekinnfyrir siðspillingu Kennari við háskólann í Teher- an í íran hefur verið látinn fara þar sem hann talaði viö nemend- ur sína um kynlíf fyrir hjóna- band. Höföu nemendumir kvart- að undan honum. Kennarinn mun einnig hafa hvatt nemendur sína til að temja sér vestrænan lífsmáta. Reuter DV Verkföll boðuð um alla Ítalíu í dag eftir lát Giovanni Falcone: Mafían drepur með tonni af dínamíti Vegfarendur virða fyrir sér brakið af bil Giovannis Falcones rannsóknardómara sem mafían myrti á Sikiley á laug- ardag. Símamynd Reuter Búist er við að milljónir verka- manna um alla Ítalíu taki þátt í verk- fallsaðgerðum í dag til að mótmæla moröinu á Giovanne Falcone rann- sóknardómara, helsta baráttumanni landsins gegn mafíunni. Falcone var sprengdur í loft upp með gífurlega öflugri sprengju þegar hann var á leið til heimilis síns í Palermo á Sikiley á laugardag. Eigin- kona hans og þrír lífverðir létu einn- ig lífið. Útför Falcones fer fram síðar í dag. Helstu verkalýðsfélög Ítalíu sögðu að þau mundu hvetja til átta klukku- stunda verkfalls á Sikiley og einnar klukkustundar verkfalls annars staðar í landinu. Hundruð manna söfnuðust saman inni í dómshöll Palermo í gær til þess að votta hinum látnu viröingu sína. Líkkistur fimmmenninganna voru sveipaðar ítölskum fánum og heiðursvörður stóð umhverfis þær. Nær allir syrgjendumir undirrit- uðu áskorun um að bundinn yrði endi á ofbeldi skipulagðra glæpasam- taka sem hefur verið landlægt á Sik- iley í marga áratugi. Falcóne var drepinn meö stærstu sprengju sem ítalska mafían hefur nokkru sinni sprengt. Eitt þúsund kíló af dimamíti voru falin við vegar- brúnina á hraðbrautinni milli Pal- ermo og Trapani og sprengjan sprakk þegar brynvarinn bíU Falcon- es fór hjá. Sprengingin, sem var að minnsta kosti tuttugu sinnum öflugri en fyrri sprengingar mafíunnar, myndaöi fimmtíu metra gíg á hraðbrautinni og klæðning hennar rifnaði af á hundrað metra löngum kafla. Jóhannes Páll páfi var meöal þeirra sem fordæmdu tilræðið. „Það eru ekki til orð sem lýsa hryllingi þessa glæps,“ sagði hann í gær. Sextándu umferö forsetakosning- anna í þinginu var frestað fram til mánudags vegna atburðarins. Nokkrir stjórnmálamenn sögðu að stjórnarkreppan, sem hefur verið á Ítalíu frá því í kosningunum í síöasta mánuði, hafi hvatt tilræðismennina til dáða. Giovanni Spadolini, starfandi for- seti, flaug til Palermo í gær til að stjóma neyðarfundi lögreglustjóra. Hann sagði að Falcone heföi verið æðsta tákn endalausrar baráttunnar gegn mafímmi. Falcone var 53 ára þegar hann lést. Honum haföi margsinnis verið hótað lífláti og að minnsta kosti ein tilraun hafði verið gerð til að ráða hann af dögum. Hann komst efst á aftökulista mafíunar fyrir fimm árum þegar 338 mafíubófar voru dæmdir til fangels- isvistar í fjöldaréttarhöldum. Reuter Bandariska strandgæslan ætlar framvegis að flytja flóttamenn frá Haití aft- urtil síns heima. Teikning Lurie George Bush: Flóttamennina frá Haítí heim George Bush Bandaríkjaforseti fyrirskipaði bandarísku strandgæsl- unni í gær aö hefja heimflutning flóttamanna frá Haítí sem hirtir eru upp á hafi úti þar sem flóttamanna- búðir á bandarísku herstööinni í Guantanamoflóa á Kúbu væru orðn- ar troðfullar. Judy Smith, talsmaður Hvíta húss- ins, sagði í gær að mikill fjöldi flótta- mannanna hefði skapað hættulegar og óviðráðanlegar aðstæður. „Við eigum ekki annarra kosta völ en flytja þá aftur heim sem við hirðum upp úti á sjó,“ sagði hún. Bandaríska strandgæslan hefur bjargað meira en 34 þúsund flótta- mönnum frá því að fyrsta lýðræðis- lega kjörna forseta Haítí, Jean-Bertr- £md Aristide, var bolað frá völdum í byltingu í septemberlok í fyrra. Á undanförnum vikum hefur fólks- flóttinn frá Haítí aukist til muna vegna síversnandi lífskjara í land- inu. Allt þar til á fimmtudag fór strand- gæslan með alla flóttamenn sem teknir voru í hafi til flotastöðvarinn- ar á Kúbu. Þar eru nú 12.500 flótta- menn og komast ekki fleiri fyrir. Um helgina haföi strandgæslan aðeins afskipti af flóttamannabátum sem voruíbráðrihættu. Reuter Tæland: Suchinda f arinn frá Tælenskir herforingjar, sem sak- aðir eru um að hafa myrt lýðræðis- sinna, héldu sigí fiarlægð frá þinginu í morgun, meðan fjöldinn allur af fólki safnaðist fyrir utan og hrópaði: „Þið getið hvergi falið ykkur.“ Þingflokksmenn stjómarandstöð- unnar klæddust sorgarbúningum eða gengu með svört sorgarbönd um handlegginn. Þingfundurinn kom í kjölfar afsagnar forsætisráðherra landsins, Suchinda Kraprayoon, sem komst til valda í valdaráni hersins í fyrra. Breytingamar, sem þingiö hyggst koma í gegn, myndu koma í veg fyrir að slíkt gæti endurtekið sig þar sem aðeins sá, sem kjörinn hefur veriö, getur orðiö forsætisráðherra. Er breytingunum ætlað að vera málamiölun og binda enda á verstu óeiröir í Tælandi í tvo áratugi. Tælendingar eru ævareiðir yfir því að Suchinda tókst að gefa þeim, sem bera ábyrgð á morðunum í síðustu viku, eftir sakir áður en hann sagði af sér. Vill landslýður að hann, mág- ur hans og yfirmenn hersins verði dregnir fyrir dóm og látnir svara til saka. Reuter Berlín: Jaðarf lokkar vinna á Þýsku miðflokkarnir era nú í sár- um eftir slæma útreiö í fylkiskosn- ingum í Berlín um helgina. Þriðjung- ur kjósenda greiddi jaðarflokkum til hægri og vinstri atkvæði sitt. Repúblikanaflokkurinn, sem er lengst til hægri, fékk 8,3 prósent at- kvæði samkvæmt opinberum tölum, flokkur lýðræðislegra sósíalista sem er kommúnistaflokkur fékk 11,3 pró- sent og græningjar og mannréttinda- baráttuflokkar 13,3 prósent. Kristilegir demókratar, flokkur Kohls kanslara, fékk hins vegar að- eins 27,5 prósent atkvæða í þessum fyrstu fylkiskosningum sem haldnar vom í allri borginni frá því árið 1946. Jafnaðarmenn fengu flest atkvæði, eöa 31,8 prósent. Mikið góðviðri var í Berlín um helgina og kosningaþátttaka ekki nema 61,2 prósent sem er öllu minna en venjulega. Fréttaskýrendur segja að vel- gengni jaðarflokkanna megi rekja til óánægju almennings með frammi- stöðu stjórnar landsins í málefnum innflytjenda. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.