Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
Fréttir
Anna Mary Snorradóttir 1 vel heppnaða lungnaskiptaaðgerð:
Engin alvarleg
vandamál uppi
„Aögerðin gekk mjög vel, liffærin
starfa eölilega og engin- alvarleg
vandamál uppi. Aögerðin, sem gerð
var aðfaranótt laugardagsins, er
ipjög viðamikil og erfið, enda skipt
um bæði lungu. Tæknilega séð er
þetta erfiðari aðgerð en að skipta um
hjarta. Það er enn of snemmt að segja
nákvæmlega enn hver útkoman
verður en það lofar allt mjög góðu,“
sagði Jón Baldvinsson, sjúkrahús-
prestur í London, í samtaÚ við DV.
„Anna Mary Snorradóttir var flutt
frá Brompton-sjúkrahúsinu yfir á
Harefield-sjúkrahúsið þar sem að-
gerðin var gerö. Hún er enn í öndun-
arvél en allir sem fara í lungna-
skiptaaðgerö verða aö eyða næstu
dögum í öndunarvél til þess að vera
öruggir um aö lungun starfi eðlilega.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLANÖVERÐTRYQGÐ
Sparisjóðsbækur óbundnar 1 Allir
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 1,25-1,3 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 2,25-2,3 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 0,5 Allir
Sértékkareikningar 1 Allir
VlSITÖLUBUNDNIR reikningar
6 mánaða uppsögn 2 Allir
1 5-24 mánaða 6,25-6,5 Allir nema Sparisj.
H úsnæðissparnaðarreikn. 6,4-7 Landsb., Búnb.
Orlofsreikningar 4,75-5,5 Sparisjóðir
Gengisbundnir reikningar í SDR 6-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8-9 Landsb.
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 2-3 Landsb., Búnb.
Överðtryggð kjör, hreyfðir 2,75-3,75 Landsb.
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innantlmabíls)
Vísitölubundnir reikningar 1,75-3 Landsb.
Gengisbundir reikningar 1,25-3 Landsb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 4,5-6 Búnaðarbanki
Óverðtryggð kjör 5-6 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 2,7-3 Landsb., Búnb.
Sterlingspund 8,25-8,9 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,5-8,25 Landsbankinn
Danskar krónur 8,0-8,3 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%> lægst
OTLAN óverðtryggð
Almennir víxlar (forvextir) 11,5-11,75 Landsb., Búnaðarb.
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Allir
Almenn skuldabréf B-flokkur 10,85-11,5 Islandsbanki
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
ÚTLÁN verðtryggð
Almenn skuldabréf B-flokkur 8,75-9,25 Islandsbanki
afurðalAn
Islenskar krónur 11,5-1 2,25 Islb.
SDR 8,25-9 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,2-6,5 Sparisjóðir
Sterlingspund 1 2,25-1 2,6 Landsbanki
Þýsk mörk 11,5-12 Búnb.,Landsbanki
Húsnœðlslán 4.9
Ufsyrissjóðslán 5-9
Dréttarvextir 20,0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf maí 13,8
Verötryggð lán maí 9,7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala maí 3203 stig
Lánskjaravísitala júní 3210 stig
Byggingavísitala maí 1 87,3 stig
Byggingavísitala júní 188,5 stig
Framfærsluvísitala maí 1 60.5 stig
Húsaleiguvísitala apríl = janúar
VEBO Bft £FA$ JÖÐIR HLUTABRÉF
Sölugengi bréfa Sölu- og kaupgengi á Vorðbrófaþingi islands:
veröbréfasjóöa Hagst. tilboð
Lokaverö KAUP SALA
Einingabréf 1 6,252 Olís 2,19 1,85 2,19
Einingabréf 2 3,336 Fjárfestingarfélagið 1,18 1,18
Einingabréf 3 4,105 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 1,04 1,10
Skammtímabréf 2,078 Islenski hlutabréfasj. 1,20 1,14 1,20
Kjarabréf 5,868 Auðlindarbréf 1,05 1,05 1,10
Markbréf 3,160 Hlutabréfasjóðurinn 1,53
Tekjubréf 2,136 Ármannsfell hf. 2,15
Skyndibréf 1,810 Eignfél. Alþýðub. 1,33
Sjóðsbréf 1 3,008 Eignfél. lönaðarb. 1,75 1,64 2,10
Sjóösbréf 2 1,955 Eignfél. Verslb. 1,35 1,25 1,40
Sjóðsbréf 3 2,070 Eimskip 4,6 4,60 4,90
Sjóðsbréf 4 1,752 Flugleiðir 1,70 1,38 1,71
Sjóðsbréf 5 1,263 Grandi hf. 2,80 2,80
Vaxtarbréf 2,1096 Hampiðjan 1,00 1,60
Valbróf 1,9773 Haraldur Böðvarsson 2,94
Islandsbréf 1,314 Islandsbanki hf. 1,45
Fjóröungsbréf 1,151 Islenska útvarpsfélagið 1,05
Þingbróf 1,311 Olíufélagið hf. 4,40 5,45
öndvegisbréf 1,294 Sildarvinnslan, Neskaup. 3,10
Sýslubréf 1,332 Sjóvá-Almennar hf. 4,30 6,50
Reiðubréf 1,265 Skagstrendingur hf. 3,80 4,00
Launabréf 1,028 Skeljungur hf. 4,00 4,40
Heimsbréf 1,220 Sæplast 3,26
Tollvörugeymslan hf. 1,25
Útgeröarfélag Ak. 3,90
1 Viö kaup á viöskiptavíxlum og viöskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miöað við sérstakt kaupgengi.
K = Kaupþing, V = VIB, L = Landsbréf, F = Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum.
Anna Mary Snorradóttir gekkst undir vel heppnaða lungnaskiptaaðgerð
aðfaranótt laugardagsins.
Ég talaði við eiginmann hennar
fyrir stuttri stundu og þróunin er
talin eðlileg, Anna er vöknuð og
meðvituð um allt. Prófessor Yacoub
gerði sjálfur aðgerðina og hann fer
fram á þriggja mánaða eftirmeðferð
sem tilskilinn tíma.
Allir sem gangast undir aðgerð af
þessu tagi verða fyrir höfnunarein-
kennum. Það sem skiptir máli er að
bregðast rétt við þeim í hverju til-
felli og því er mikilvægt að sjúkling-
urinn sé undir mjög ströngu eftirliti
fyrstu 3 mánuðina.
Anna Mary var búin að bíða í 11 'A
mánuð eftir nýjum lungum. Þessi
aðgerð á henni virkar eins og víta-
minsprauta á Halldóru Ingólfsdóttur
sem einnig bíður eftir að komast í
svona aðgerð," sagði Jón. -ÍS
Keyptur kvóti rekstrarkostnaður:
Við höf um líka haldið
þessu fram frá upphafi
- segirKristjánRagnarsson,formaðurLÍÚ
„Þessi úrskurður er í samræmi við
okkar afstöðu alveg frá upphafi,"
sagöi Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, um úrskurð Ríkisskatta-
nefndar sem birtur var fyrir helgina.
Þar er úrskurðað að þeim sem kaupi
langtíma aflakvóta beri að skrá hann
sem rekstrarkostnað en ekki eign.
Ríkisskattstjóri hefur frá upphafi tal-
ið að keyptan langtímakvóta beri að
bókfæra sem eign.
„Við teljum okkur hafa afnot af
þessum réttindum en eigum þau
ekki. Ef sú hefði orðiö niðurstaðan
að menn ættu að eignfæra kvóta
fannst okkur þaö rangt að það ætti
aö afskrifa hann vegna þess að hér
væri um endurnýjanlega auðlind að
ræða en ekki rýmandi. Þess vegna
töldum við úrskurð ríkisskattstjóra
um að eignfæra skyldi kvótann ekki
geta staðist með neinum hætti. Jafn-
vel þótt það væri útgerðarmönnum
til óhagræðis að mega ekki afskrifa
eign,“ sagði Kristján Ragnarsson.
Þorleifur Pálsson, hjá Hrönn hf á
ísafirði, sem gerir út togarann Guð-
björgu ÍS, sagði að miðað við álits-
gerð Sigurðar Líndals lagaprófessors
um málið heíði þessi niðurstaða Rík-
isskattanefndar ekki komið sér á
óvart. Það var einmitt Hrönn hf sem
skaut úrskurði ríkisskattstjóra til
Ríkisskattanefndar.
,Við gengum frá okkar kvótakaup-
um á sama hátt og Ríkisskattanefnd
hefur nú úrskurðað. Við höfum alltaf
litiö svo á að kvótakaup væm ekki
annað en réttur til að afla sér tekna.
Ríkisskattstjóri áleit að miðað við að
telja kvóta eign bæri að afskrifa hann
um 8 prósent á ári. Á sama tíma er
svo kvótaskerðingin við úthlutun
þorskkvóta fyrir þetta ár 15 til 16
prósent. Rýmun veiðiréttarins er því
miklu meiri en afskriftarreglur ríkis-
skattstjóra," sagði Þorleifur Pálsson.
-S.dór
Vigdís verður sjálf kjörin
Vigdís Finnbogadóttur verður
sjálfkjörin sem forseti íslands næsta
kjörtímabil en það hefst þann 1. ág-
úst næstkomandi og stendur til jafn-
lengdar 19%.
Framboðsfrestur rann út á mið-
nætti þann 22. maí, fimm vikum fyr-
ir kjördag, og barst ekkert mótfram-
boð gegn frú Vigdísi en hún hefur
gegnt embætti forseta íslands í 12 ár.
-J.Mar
Mikill fjöldi þátttakanda vár í Je-
súgöngunni. DV-mynd S
Jesúgangaí
miðbænum
í þrjátíu löndum fór fram svo-
kölluð Jesúganga á laugardaginn
og hér á landi var gengið um
miðbæinn. Á annað þúsund tóku
þátt í göngunni, að sögn þeirra
sem stóöu fyrir henni. Tilgangur-
inn er að minna á Jesú Krist og
kynna hann sem frelsara. Göngu-
menn bára ýmis spjöld sem
minntu á trúna og Jesú, mátti þar
sjá slagorð eins og Jesús lifir,
Þekkir þú Jesú, í stuði með Guði,
ísland fyrir krist og Lifðu líflnu
lifandi, veldu Krist.
Á Lækjartorgi var síðan úti-
fundur þar sem mætir menn tóku
til máls. Þótti gangan takast mjög
vel.
Akureyri:
Mikil ölvun
Mikil ölvun var á Akureyri aðf-
aranótt laugardags og sunnu-
dags. Fjöldi aðkomumanna var í
bænum og gengu menn ekki til
náöa fyrr en komið var fram á
rauðamorgun.
10 manns gistu fangageymslur
lögreglunnar, 2 voru teknir fyrir
meinta ölvun við akstur og 6 voru
teknirfyrirhraðakstur. -J.Mar
Umdeilt Ráðhúsmálverk:
Strípalingi
stillt upp
til sýnis
Listasafn Reykjavíkur hefur
ákveðið aö hafa hið umdeilda
málverk eftir Helga Þorgils, Ríki
Poseidon, til sýnis í Geysishús-
inu, á horni Aðalstrætis og Vest-
urgötu. Málverkið var tekið niö-
ur af vegg í Ráðhúsinu fyrir
skömmu þar sem það þótti ögra
skrifstofustúlkum um of og pirra
aðra sem leið áttu um húsið.
Að sögn Þorbjargar Gunnars-
dóttur, safnaleiðbeinanda
Reykjavíkurborgar, er öllum
fijálst að skoða þetta umdeilda
málverk sem sýnir sjávarguðinn
Poseidon í allri sinni nekt. Ekki
hafi staðið til að hylja það augum
fólks í dimmum geymslum á
Kjarvalsstöðum.
Um er að ræða sýningu sem
Listasafn Reykjavíkur stendur
fyrir í samvinnu við Árbæjarsafn
í nýjum húsakynnum Upplýs-
ingamiðstöðvar Ferðamálaráðs
íslands. -kaa
Stakk sig í
kviðinn
Rannsóknarlögregla ríkisins
var kölluð í hús í Fossvogi aðfara-
nótt sunnudag. Þar haíði maður
stungið sjálfan sig í kviðinn með
hnífi. Meiðsli mannsins munu
ekkihafaveriðalvarleg. -J.Mar