Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 2
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992. 4 Fréttir DV Ráðstefna um ríkissjóðsvandann: Margt hægt að gera án þess að hækka skatta „Á ráðstefnunni var staðfest að það er hægt að gera margt til að styrkja stöðu ríkissjóðs án þess að hækka skatta, til dæmis með sölu eigna, bættri innheimtu, auknum útboðum og breyttum áherslum í starfsmannamálum. Þau viðhorf sem þama komu fram munu koma að gagni almennt séð í ráðuneytinu, ekki bara við fjárlagagerð heldur einnig í þeirri miklu vinnu að sjá til þess að fjárlögum sé hlýtt. Á því hef- ur verið mikili misbrestur," sagði Friðrik Sophusson fjármálaráöherra eftir ráðstefnu um ríkissjóðsvand- ann, sem SUS, Landsmálafélagið Vörður og skattanefnd Sjálfstæðis- flokksins stóðu fyrir á laugardaginn. Á ráðstefnunni, sem bar yfirskrift- ina „Á skal að ósi stemma“, voru tekjur og útgjöld ríkisins krufin til mergjar. Ráðstefnan var vel sótt og þótti takast vel. Ráðstefnustjóri var - segir Friörik Sophusson fl ármálaráðherra Ólafur Öm Klemensson, formaður Varðar. í upphafi ráðstefnunnar íjallaði Ingvi Harðarson hagfræðingur um fmmvarp ríkisstjómarinnar um samræmda skattlagningu eigna- og tekjutekna en hann sat í nefnd er undirbjó frumvarpið. Fram kom í máh hans að ekki væri ætlunin aö auka tekjur ríkisins með þessari skattabreytingu. Markmiöið væri fyrst og fremst að gera þessa skatta réttlátari og samræma þá skattlagn- ingu annarra landa. A ráðstefnunni ræddi Steingrímur Ari Arason hagfræðingur um nauð- syn hallalausra Ijárlaga, Einar Hálf- dánarson endurskoðandi um bætta skattheimtu og Ari Edwald, vara- formaður SUS, um sölu ríkisfyrir- tækja. Fram kom í máh Ara að þó að ríkisstjómin hefði farið sér hægt í sölu eigna þá væri ekki útilokað að Rikissjóðsvandinn var krufinn til mergjar á ráðstefnu sem Landsmálafélag- ið Vörður, SUS og skattanefnd Sjálfstæðisflokksins stóðu fyrir um helgina. Fjármálaráðherra segir ráðstefnuna hafa verið gagnlega og þau sjónarmið sem þar komu fram nýtast sér í ráðuneytinu. DV-mynd GVA henni tækist það ætlunarverk sitt að losa allt að 8 milljarða á seinni hluta kjörtímabilsins. Benedikt Jóhannesson tölfræðing- ur ræddi starfsmannamál ríkisins og vakti erindi hans mikla athygli. Hann kvað afar mikilvægt að fá rik- isstarfsmenn til að starfa á sambæri- legan hátt og í einkafyrirtækjum. Meöal annars benti hann á að með launahvetjandi kerfi mætti auka ábyrgðarkennd ríkisstarfsmanna og bæta starfsandann. í máli Þorleifs Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Landssambands ís- ienskra iðnaðarmanna, kom fram að stórauka mætti útboð hjá hinu opin- bera. Máli sínu til stuðnings benti hann á að nýleg könnun hefði sýnt að hjá Reykjavikurborg mætti auð- veldlega bjóða út verk og einkavæða aht að 20 prósent af rekstri borgar- innar. -kaa Nýjar úthlutunarreglur hjá LÍN í burðarliðnum: Lán vegna bóka og barna skorin niður - búið að dragast nógu lengi, segir Gunnar Birgisson „Lán vegna bóka og bama verða lítils háttar skorin niður, hvor stuð- ull um samtals 100 mihjónir. Megin- breytingin á úthlutunarreglunum felast í auknum kröfum um náms- framvindu. Fyrir 100 prósent náms- framvindu fá námsmenn fuht lán og 75 prósent lán fyrir 75 prósent nám. Sé framvindan undir 75 prósent fá þeir ekkert nema eitthvaö óvænt komi upp, svo sem veikindi, slys eöa að þeir lendi í því að eignast bam,“ segir Gunnar Birgisson, formaður stjómar Lánasjóðs íslenskra náms- manna. Nýjar úthlutunarreglur voru kynntar námsmönnum i stjóm LÍN í síðustu viku. Fundað var um regl- umar í stjórninni í gær og annar fundur hefur verið boðaður í dag. Reglumar byggjast á breyttum lög- um sem meðal annars gera ráð fyrir að námsmenn fá ekki fyrirfram- greidd námslán eins og verið hefur. Þá verður ferðastyrkjum breytt í ferðalán og skerðing lána vegna at- vinnutekna minnkuð. Að sögn Gunnars tryggir þessi breyting að lán verða í samræmi við námsframvindu og réttar tekjur. Nú geti námsmenn ekki lengur gefið upp vitlausar tekjur th að fá hærri lán. „Námsmenn óskuöu eftir að fá að skoöa þessar reglur nánar. Við höf- um verið að ræöa máhn vítt og breytt í stjóminni en vonandi tekst okkur að afgreiða þessar reglur í vikunni. Námsmenn verða að fá þetta í hend- ur sem fyrst. Þaö er búið að dragast nógu lengi,“ segir Gunnar. -kaa Málþing um stöðu karla í breyttu samfélagi: Engar jafnréttiskonur að agnúast út í umræðuefnið - segir Ari Skúlason hagfræðingur „Umræðumar fóra ekki út í neitt karp. Þama vora engar jafnréttis- konur að agnúast út í umræðuefnið. Máhð er aö jafnréttismál era ekki bara mál kvenna heldur hka karla. Markmiðið með þessu málþingi var að skapa umræður um þetta og það virðist hafa gengið mjög vel,“ segir Ari Skúlason hagfræðingur. Hann á sæti í nefnd sem fjallar um stöðu karla í breyttu samfélagi og stýrði málþingi um þetta efni um helgina. Á þriðja hundrað manns sátu mál- þingið en þar var haldinn fjöldi er- inda um stöðu karla í samfélaginu. Þau fjöhuðu meðal annars um breytt þjóðfélag og breytt hlutverk karla, lagalega stöðu karla, fyrirmyndir drengja og ímyndar- og tilfinninga- kreppu karla. Sérstaka athygh vakti erindi Ásþórs Ragnarssonar sálfræð- ings en hann fjallaði um gjald karl- mennskunnar. Þar kom meðal ann- ars fram aö drengir þurfi mun oftar en stúlkur á sálfræðhegri hjálp að halda. „Þetta málþing á eftir að nýtast okkur í nefndinni mjög vel en hlut- verk okkar er aö skoða þessi jafnrétt- ismál út frá öðra sjónarhomi heldur en gert hefur verið. Væntanlega munum við skila af okkur skýrslu meö haustinu," segir Ari. -kaa Á þriðja hundrað manns sóttu málþing um jafnréttismál karla sem haldin var um helgina. Að sögn stjómenda málþingsins var þingið málefnalegt. DV-mynd GVA Fra sjavarutvegsráðstefnu Sambands ungra framsóknarmanna sem haldin var um helgina. Þar kynntu ungir framsóknarmenn tillögu sem felur í sér að kvóta og veiðileyfagjaldi verði blandað saman. Um er að ræða skemmti- lega tillögu, að mati Steingrims Hermannssonar, formanns flokksins. Veiöileyfagjald rætt á ráðstefnu ungra framsóknarmanna: Kratar að linast í sínum kröf um - segir Steingrímur Hermannsson „Mer fannst það athyghsvert aö Þröstur Ólafsson boðaði ekki veiði- leyfagjald í sinni ræðu. Hann sagði að það væri ekki hægt að leggja álag á sjávarútveginn núna. Ég hélt nú að það væri stefna Alþýðuflokksins. Reyndar sýnist mér stefna í það aö kratar séu eitthvað að hnast í sínum kröfum um að lagt veröi álag á sjáv- arútveginn,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, formaöur Framsóknar- flokksins, eftir sjávarútvegsráð- stefnu sem ungir framsóknarmenn stóðu fyrir um helgina. Samband ungra framsóknar- manna hélt ráöstefnu um sjávarút- vegsmál á laugardaginn var. Meðal framsögumanna á fundinum vora Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður ut- anríkisráðherra, Einar Oddur Kristj- ánsson útgerðarmaður og Árni Gíslason, fulltrúi samtaka sem vhja breytta sjávarútvegsstefnu. Að sögn Steingríms tókst vel til með ráðstefnuna þó þar kæmu ekki fram skýrar hugmyndir um hvemig breyta mætti núverandi kvótakerfi. Á hinn bóginn hefði komið fram rétt- mæt gagnrýni sem menn hljóti að taka tillit th. „Mér fannst ungu mennimir koma fram með nokkuð skemmthega th- lögu. í henni er veiðileyfagjaldi og kvóta blandað saman. Af þeirra hálfu var þessi ráðstefna þó ekki boðuð th að taka afstööu heldur ætla ungir framsóknarmenn að nota hana th að mynda sér skoðun í haust.“ Athygh vakti á ráðstefnunni hversu mikla áherslu Einar Oddur lagði á minnkun flotans niður í þá stærð sem sóknin þolir. Að öðra leyti varði hann núverandi kvótakerfi og undirstrikaði það sjónarmið að sala á kvóta myndi auica hagræðingu í sjávarútvegi. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.