Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1992, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1992.
17
Fréttir
Skólagjöld í Miðskóla í vetur:
15 þúsund fyrir
barnið á mánuði
- 80staðfestarumsóknirhafaborist
Miðskólinn við Fríkirkjuveg í
Reykjavík tekur til starfa um
næstu mánaðamót. Nú hafa borist
röskiega 80 staðfestar umsóknir
um skólavist næsta vetur en fyrir-
hugað er að starfrækja fjórar
bekkjardeildir í skólanum. Yngstu
nemendumir .verða 9 ára en þeir
elstu 12 ára.
Miðskólinn er einkaskóh og þarf
hver nemandi að greiða kr. 15.000
í skólagjöld á mánuði, auk þess sem
flestir munu líklega kaupa heitan
bakkamat í hádeginu. Skóladagur
verður samfelldur. Gert er ráð fyr-
ir 7 stöðugildum við skólann. Til
samanburðar má geta þess að
skólagjöld í Tjarnarskóla era kr.
16.560 á mánuði. Skólagjöld í ísaks-
skóla eru hins vegar mun lægri
samkvæmt upplýsingum DV eða
röskar tvö þúsund krónur á mán-
uði fyrir hvert bam.
í samkomulagi, sem Skólaskrif-
stofa Reykjavíkur hefur gert við
Miðskólann, kemur fram að stuðn-
ingur borgarinnar við skólann felst
m.a. í því að borgin leggur skólan-
mn til húsnæði og húsbúnað. Mið-
skólinn greiðir ekki húsaleigu, hita
eða rafmagn.
-ask
Útibú fiskmarkaðar Breiðafiarðar á Amarstapa:
75 prósent aflans
f óru um markaðinn
- forsenda útgerðar hér, segir Hjörleifur Kristjansson
Útibú frá Fiskmarkaði Breiða-
fjarðar tók til starfa á Amarstapa í
byrjun maí. Hjörleifur Kristjánsson,
starfsmaður hafnarinnar á Amar-
stapa, sagði að frá áramótum væm
komin 730 tonn á land og þar af hafa
550 tonn farið í gegnum fiskmarkað-
inn.
í lok síðasta mánaðar var Fisk-
markaður Breiðafjarðar búinn að
taka á móti tæpum 6.000 tonnum.
Auk Amarstapa fer fiskur frá Ólafs-
vik, Gmndarfiröi, Hellissandi og
Stykkishólmi í gegnum markaöinn.
„Fiskmarkaðurinn hefur gefið
góða raun. Auðvitað vom byijunar-
erfiðleikar sem auðvelt reyndist að
sníða af,“ sagði Hjörleifur. Bróður-
partur aflans er sæmilegur þorskur.
Síðustu vikumar hefur töluvert bor-
ist af góðum ufsa.
Karlamir koma að landi síðdegis
og stundum er verið að landa fram
á nótt. Starfsmenn markaðarins taka
fiskinn, ísa hann og skrá nákvæm-
lega hvaða bátur veiddi fiskinn.
Næsta morgun er sent símbréf til
Ólafsvíkur með upplýsingum um afl-
ann. Þar setja menn upplýsingamar
í tölvu og 60-70 kaupendur, sem sitja
víös vegar um landið, hafa aðgang
að þessari tölvu og bjóða í aflann.
„Héðan fer fiskurinn út um alit
land. Sem dæmi get ég nefnt að
nokkrum sinnum seldum við fisk til
Hríseyjar," sagði Hjörleifur. „Fisk-
markaðurinn er forsenda þess að
hægt sé að gera út báta héöan eins
og málum hefur verið háttað í sum-
ar. Áður var hér fiskverkun og í fyrra
var aflinn fluttur héðan til Hafnar-
fjarðar. Sá aðili hætti og þá fóm
menn að flytja á Faxamarkaðinn.
Trillukarlamir sáu þá um það sjálfir
að flytja fiskinn." Skráningin gerir
það að verkum að kaupendur vita
nákvæmlega af hvaða trUlukarli þeir
eru að kaupa hverju sinni. Meö öðr-
um orðum getur svo farið að kaup-
endur bítist um fiskinn frá ákveðn-
um bátum en forðist aðra. Uppboðs-
fyrirkomulagiö ætti því að hvetja
menn til að fara sem best með aflann
- og reyna að fá sem hæst verð.
Aflahæsti báturinn sem hefur ver-
ið eingöngu á færum síðan í apríl var
kominn með 35 tonn um síðustu
mánaðamót. Aflinn fékkst í 43 róðr-
um. Meðalafli á bát er undir meðal-
lagi miðað við undanfarin ár. „Þetta
markaðsfyrirkomulag gerir það að
verkum að nú er hægt að koma hrá-
efninu strax í vinnslu,“ sagði Hjör-
leifur. ask
Hjörleifur Kristjánsson, starfsmaður hafnarinnar á Arnarstapa
Sigurbjörn Jónsson, Hreinn Jónsson og Bjarni Einarsson á Tröð.
DV-mynd ask
Staöarós í Staðarsveit:
Veiðimennirnir verða
vitlausir á f lóðinu
- segirBjamiEinarssonáTröö
Aö Tröðum í Staðarsveit er hægt
að fá ódýr veiöileyfi í ós Staðarár.
Þar veiða menn lax, sjóbirting og sil-
ung. Fjölmargir leggja leið sína í ós-
inn þegar líður á sumarið enda er
veiðivon fyrir hendi. Þegar DV skoð-
aði ósinn fyrir skömmu vom þar á
ferð tveir gamalreyndir veiðimenn,
þeir Sigurbjöm Jónsson og Hreinn
Jónsson. Sá fyrmefndi hefur komið
þama hvert sumar í þijá áratugi.
Dagurinn í ósnum og neðsta hluta
árinnar kostar 2.500 krónur.
„Fiskurinn er vænn og fallegur.
Það er oft fjör á flóðinu þegar þeir
stökkva 20 eða 30 saman. Þá verða
veiðimennimir vitlausir," sagði
Bjami Einarsson sem býr á Tröð
ásamt konu sinni, Unu Jóhannes-
dóttin-.
Hreinn og Sigurbjöm sögðust vera
ánægðir með veiðina en aflinn, sem
sjá má á myndinni, fékkst á einum
degi. Ekkert hafði aflast morguninn
sem DV sótti þá félaga heim. „Hann
skipti um vindátt og þá breyttist það.
Viö viljum helst hafa hæga norðan-
átt, sól og blíðu,“ sagði Hreinn. Með-
alstærðin er u.þ.b. tvö pund. Hreinn
hefur fengið 14 punda lax í ósnum.
„Þetta er góð á. Hér á árum áður var
þetta talinn besti veiðistaður fyrir
sjóbirting," sagði Hreinn.
ask.
SUZUKISWIFT
3 DYRA, ÁRGERÐ 1992
*
*
9fe
*
*
Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu.
Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraðið.
Framdrif.
5 gíra.
"Verð kr. 726,000.- á götuna, stgr.
^SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 ' SlUI 685100
UPUR OQ SKEWMTLEQUR 5 MANNA BfU_
®
BÚNAÐAR
BANKINN
-Tmiistur banki
SPARISJOÐURINN
KAUPÞING BÝÐUR
PERSÓNLEGA
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF
OG ÞJÓNUSTU
STARFSFÓLKS IVIEÐ
MIKLA REYNSLU
OG SÉRMEN NTUN.
VELDU
ÞJÓNUSTU
í FJÁRMÁLUIVI.
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, sími 689080
f eigu Búnaiarbanka fslands ogsparisjóianna